Morgunblaðið - 14.10.2009, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 14.10.2009, Blaðsíða 20
20 Minningar MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. OKTÓBER 2009 ✝ Edda Kristín Aar-is Hjaltested fæddist í Reykjavik 11. ágúst 1945. For- eldrar hennar voru Björn Hjaltested for- stjóri f. 9.12. 1905, d. 20.4. 1980, f. í Reykja- vík, sonur Péturs Hjaltested stjórn- arráðsfulltrúa og So- fíu Dórótheu Finsen, og Grethe Aaris Hjaltested, f. í Viborg Danmörku 11.11. 1916, dóttir Jens Jen- sen Aaris múrarameistara og Emil- íu Kristíne Aaris. Systkini Eddu eru: Walter fram- kvæmdastjóri f. 14.3. 1934 sam- feðra, kona hans er Svandís Guð- mundsdóttir og eiga þau þrjú börn. Jytte fyrrv. flugfreyja f. 5.5. 1941, gift Gunnari Geirssyni tæknifræð- ingi og eiga þau einn son. Jens Pét- ur Hjaltested viðskiptafræðingur f. 28.2. 1949, en eiginkona hans var Maríanna Haraldsdóttir, d. 12.3. 2002 og eiga þau eina dóttur. Edda ólst upp í Reykjavik en dvaldi tíðum á sumrin hjá móðurforeldum sínum í Danmörku. Hún tók virkan þátt í starfi skátahreyfingarinnar í Reykjavik á unglingsárum. Edda lauk námi frá verslunardeild Haga- skóla árið 1962, brautskráðist frá Hjúkrunarskóla Íslands 1968 og lauk námi í hjúkrunarstjórnun við Háskóla Íslands 1989. Stundaði nám við Kennaraháskóla Kaup- nær þrjá áratugi, en Sólheimar voru hennar annað heimili. Hún stuðlaði að því að unnt var að hefja þýðingu biblíunnar í Konsó í Ethi- opiu með því að kosta byggingu Biblíuhúss og aðstoðaði við stofnun Heimilis friðarins í S.-Afríku sem starfar fyrir þroskahefta. Edda giftist 1968 Jóni Friðriks- syni lækni f. 12.12. 1944. Foreldrar hans voru Friðrík A. Jónsson og Guðrún Ögmundsdóttir. Þau skildu 1978. Synir þeirra eru: Friðrík Örn ljósmyndari f. 18.2.1970. Dóttir hans og Þórönnu Björnsdóttir er Úlfhildur Lokbrá f. 28.9. 2007. Óli Rafn deildarstjóri f. 17.8. 1974. Eig- inkona hans er Valgerður Magn- úsdóttir. Sonur þeirra er Atli Þór f. 7.3. 2008. Síðari eiginmaður Eddu er Pétur Sveinbjarnarson f.v. fram- kvæmdastjóri f. 23.8. 1945. For- eldrar Sveinbjörn Tímóteusson og Guðrún Pétursdóttir. Pétur á tvo syni með fyrrverandi eiginkonu sinni Auðbjörgu Guðmundsdóttur: Guðmund Ármann framkvæmda- stjóra f. 9.5. 1969, sambýliskona hans er Birna Ásbjörnsdóttir og eiga þau eina dóttur, Emblu Líf f. 24.8. 2004. Áður átti Guðmundur Ármann Auðbjörgu Helgu f. 23.3. 1996. Eggert fulltrúi búsettur í Sví- þjóð f. 18.7. 1973. Sambýliskona hans er Malin Svenson og eiga þau tvö börn, Freyju Cristine f. 5.7. 1994 og Einar Pétur Lars f. 16.5. 2007. Útför Eddu verður gerð frá Dóm- kirkjunni miðvikudaginn 14. októ- ber og hefst athöfnin kl. 15. mannahafnar 2002- 2003. Að námi loknu starfaði Edda sem hjúkrunarfræðingur við Landakotsspítala 1968-1970, hjúkr- unarforstjóri sjúkra- húss Patreksfjarðar 1972- 1973, hjúkr- unarfræðingur við Borgarspítalann 1975-1977. Starfaði sem hjúkrunarfræð- ingur í Svíþjóð og Danmörku 1977-1980, deildarstjóri á Landa- kotsspítala 1981-1990 og hjúkr- unarframkvæmdastjóri 1990-1994. Forstöðumaður félags- og þjónustu- miðstöðvar aldraðra og íbúða aldr- aðra við Vitatorg frá stofnun þess staðar árið 1994. Edda tók virkan þátt í félagsmálum hjúkrunarfræð- inga á níunda áratugnum. Sat m.a. í kjaramálanefnd og í undirbúnings- nefnd fyrir Bláskóga, hús félagsins að Úlfljótsvatni sem vígt var 28.9. 1990. Meðal stofnenda og fyrsti for- maður Innsýnar, félags starfs- manna sem vinna við speglanir. Edda flutti fyrirlestra um hjúkr- unar- og öldrunarmál, m.a. við há- skóla í Bandaríkjunum, á ráð- stefnum í Danmörku og Bretlandi og fyrir hönd íslenskra hjúkr- unarfræðinga á Norðurlandaþingi hjúkrunarfræðinga í Kaupmanna- höfn 1990. Edda starfaði mikið fyrir Sólheima, þar sem eiginmaður hennar hefur gegnt formennsku í Edda Hjaltested lést 4. þ.m. á Landsspítalanum eftir tólf mánaða baráttu við illvígan sjúkdóm. Hún var á góðum aldri og þróttmikil þegar sjúkdómurinn greindist og hafði verið heilsuhraust fram að því. Vilji hennar og reisn á baráttutímabilinu við þessa ofurógn sjúkdómsins var ólýsanleg og lærdómsrík fyrir okkur sem fylgd- umst vanmáttug með. Með Eddu er gengin mikilhæf manneskja og einn traustasti vinur okkar hjóna. Edda var menntuð hjúkrunarfræð- ingur og starfaði sem stjórnandi á því sviði um langt árabil. Af henni fer gott orð sem farsæll og duglegur stjórn- andi, ekki síst á sviði öldrunarmála þar sem framsýni hennar og atorka nýttist til hinstu stundar. Edda var víðsýn og hafði mikla alþjóðlega þekkingu og innsýn í ólíkar sam- félagsgerðir, menningar- og þjóð- félagshætti. Hún var drífandi og ávallt trú þeim verkefnum sem hún tók sér fyrir hendur og lagin við að leysa flókin verkefni. Þá var Edda jafnframt virkur og atkvæðamikill þátttakandi með manni sínum, Pétri Sveinbjarnarsyni stjórnarformanni Sólheima í Grímsnesi, í öllu þeirra fjölbreytta og þrotlausa starfi á um- liðnum árum við uppbyggingu sjálf- bærs samfélags og þróun þjónustu við íbúa byggðahverfisins að Sólheimum. Samfélagið á Sólheimum er að okkar mati eitt það fremsta mannfélag á sínu sviði á alþjóðavísu, framlag Pét- urs og Eddu er þar ómetanlegt og verður seint þakkað. Edda naut virð- ingar hjá öllum er til hennar þekktu og framganga hennar var ávallt ákveðin og fagleg. Hún ræddi sjaldn- ast árangur sinn og nálgaðist sín eigin mál af hógværð. Hún tók sjálfan sig og lífið almennt ekki of hátíðlega en sýndi öllu og öllum í kringum sig geislandi áhuga og var einstaklega hvetjandi til góðra verka. Við hjónin höfum þekkt Eddu og Pétur náið um árabil og samverustundir, samstarf og vinátta okkar mikil og góð, ekki síst síðastliðin fimmtán ár. Við áttum margar ógleymanlegar samveru- stundir þegar við bjuggum og störf- uðum á Sólheimum árin 1995 til 2000 og allar götur síðan. Leiðir okkar lágu saman bæði á faglegu- sem félagslegu sviði og voru þar ánægjutímabil sem og erfiðar stundir, aldrei bar þar skugga á mik- ilvæg og traust vináttubönd. Þá var komin óformleg regla um að við hjón- in fórum með þeim í menningarferðir víða um heim, má þar nefna ferðir til Noregs, Austurríkis, Danmerkur og Frakklands. Þau hjónin voru verald- arvön og stundir okkar saman á ferðalögum og fróðleikur þeirra um sögu og menningu er okkur mikils virði. Þá var í bígerð næsta ferð okkar og stefnan tekin á Ítalíu og Rómar- borg og mikil eftirvænting farin að byggjast upp þegar sjúkdómur Eddu greindist. Edda var lífsglöð, glæsileg og ein- staklega skemmtileg manneskja sem hafði ríka kímnigáfu. Samverustundir með henni voru eftirsóknarverðar. Edda Hjaltested er kvödd með djúpum söknuði. Lífshlaup, viðhorf og lífsgleði hennar verða okkur alltaf minnisstæð og þakkarverð. Við fær- um ástvinum Eddu og eftirlifandi maka, Pétri Sveinbjarnarsyni og fjöl- skyldumeðlimum öllum innilegar samúðarkveðjur. Óðinn Helgi Jónsson og Guðrún Lára Halldórsdóttir. Edda Hjaltested, okkar kæra vin- kona, hefur kvatt eftir hetjulega bar- áttu. Þegar hugurinn reikar til baka staðnæmist hann í dymbilviku um miðjan níunda áratug síðustu aldar er við nutum samveru með Eddu og Pétri að skoða mannlíf, leikhús og listasöfn New York-borgar. Frá þeim tíma höfum við átt marg- ar samverustundir, allar ljúfar og góðar, ekki síst á Sólheimum í Gríms- nesi, þeim yndislega stað. Sú minning sem kemur nú hvað sterkast fram er frá 5. júlí í sumar, á afmælisdegi Sól- heima, þegar Edda af mikilli reisn af- hjúpaði verkið „Engill – sameining vonar“ og bað staðnum og fólkinu þar verndar englanna. Það hefur verið aðdáunarvert að fylgjast með af hve mikilli hugprýði Edda tókst á við hinn illvíga sjúkdóm. Undir slíkum kring- umstæðum kemur gjarnan í ljós úr hverju maðurinn er gerður. „Það eru dönsku genin,“ var svarið hjá henni þegar dáðst var að ótrúlegu baráttu- þreki hennar, jákvæðni og innri styrk. Edda bar einnig hag annarra mjög fyrir brjósti og fékk annað okkar að njóta þess ríkulega þegar hún starfaði á Landakotsspítala. Þá fór ekki fram hjá þeim sem þekktu til hversu kært henni var til móður sinnar, Grethe, og sonanna, Frissa og Óla, og síðar barnabarna og hve annt henni var um heill þeirra. Edda var og listfeng kona, eins og glerverk hennar bera merki um, og hún var gestgjafi mikill sem við feng- um oft að njóta. Við kveðjum elsku Eddu með þakklæti fyrir allt og allt. Við biðjum góðan Guð að styrkja Pét- ur, strákana og fjölskyldur þeirra og Grethe og fjölskyldu hennar. Missir þeirra er mikill. Kristín Sigurðardóttir, Ólafur Gústafsson. Edda Hjaltested var falleg kona og glæsileg. Hávaxin fríðleikskona sem hvarvetna var eftir tekið. Nafnið Edda stendur fyrir ármóðir, vitur kona og móðir sem umfaðmar alla og dreifir visku sinni til allra. Þannig var Eddan okkar hollsystranna og þannig munum við vinir hennar hana, ekki síst þegar mikil veikindi steðjuðu að. Styrkur hennar og þor, reisn og vilji var einstakur. Alltaf reis hún upp eft- ir hvert áfall, staðráðin í að standa vel á meðan stætt var, gefa og njóta elsku og ástar fjölskyldu og vina. Haustsólin vermir í dag hafflötinn og himinninn er roðagylltur, íslensk kvöldfegurð sem á fáa sína líka. Allt er tært og hreint. Snæfellsjökull stendur í loga og bláma slær á Esj- una. Ljósrák ber við sjóndeildar- hring; „ljósið“, þetta himneska ljós sem við öll síðar hverfum í, hefur nú tekið til sín Edduna okkar, eina af Ís- lands góðu konum. Eftir stöndum við vinkonur hennar hnípnar í sorg með þakklæti í hjarta yfir að hafa átt hana að vinkonu á ævigöngunni. Hópurinn sem hóf nám í hjúkrun í desember árið 1964 var um margt ólíkur. Sumar voru meiri heimskonur en aðrar, en eitt áttum við sameig- inlegt; við ætluðum að verða hjúkr- unarkonur. Á þessum tíma bjuggu flestar í heimavist Hjúkrunarskóla Íslands en nokkrar sem áttu heima í Reykjavík bjuggu heima. Edda var ein af þeim. Á hverjum morgni kom hún brunandi á litlu Volkswagen- bjöllunni sinni og hlaut mikla aðdáun fyrir, slíkur munaður var fátíður í þá daga. Edda varð hjúkrunarfræðingur með láði og hefur alla tíð staðið við það sem hjúkrunarheitið okkar kveð- ur á um í lokin; að vera stétt minni til sóma. Starfsvettvangurinn varð fjöl- breyttur, almenn hjúkrun og stjórnun jafnt hér heima og erlendis. Ég sem þessar línur rita naut sérþekkingar hennar og færni þegar hún var deild- arstjóri á göngudeild Landakotsspít- ala fyrir mörgum árum. En einnig naut ég alltumvefjandi hlýju og ör- yggis sem er svo mikilvægt fyrir okk- ur er þurfum að bregða okkur hinum megin við heilsulínuna. Fyrir það verður seint fullþakkað. Hver morgunn nýr, hugvekjur Jón- asar heitins Gíslasonar vígslubiskups í Skálholti, er einstök bók. Þar tekur hann fyrir alla helgidaga ársins með skírskotun kristinnar trúar til nú- tímans og segir m.a.: „Vér eigum að lifa Guði. Ég hugsa til stjarnanna. Sólin er sjálflýsandi en reikistjörn- urnar eiga sjálfar enga birtu, en þær endurvarpa birtu sólar, er á þær skín. Vér líkjumst reikistjörnum meir en sólinni, því vér eigum að endurvarpa ljósi Guðs til meðbræðranna.“ Edda endurvarpaði ljósi á veg okkar sam- ferðamannana og hefur fengið nafn sitt skráð í Lífsins bók. Hún er farin til Guðs og hefur með sinni alkunnu röggsemi sagt við Lykla-Pétur: Ljúktu upp fyrir mér. Mér er boðið í himin Guðs. Og Pétur hefur lokið upp, því himnaríki er fyrir boðsgesti Jesú Krists og Edda var einn af þeim. Sendum eiginmanni, sonum, móður og fjölskyldunni allri samúðarkveðjur um leið og áratuga vinátta og vinsemd er þökkuð. Guð blessi þig Edda mín. Fyrir hönd hollsystranna þinna, Sigþrúður Ingimundardóttir. Og nú fór sól að nálgast æginn, og nú var gott að hvíla sig og vakna upp úngur einhvern daginn með eilífð glaða kringum þig. Nú opnar fangið fóstran góða og faðmar þreytta barnið sitt; hún býr þar hlýtt um brjóstið móða og blessar lokað augað þitt. Hún veit, hve bjartur bjarminn var, þótt brosin glöðu sofi þar. (Þorsteinn Erlingsson.) Elskuleg vinkona okkar og skóla- systir er látin langt fyrir aldur fram. Þegar við lítum til baka og minnumst hennar koma upp í hugann ljóslifandi myndir af bráðfallegum og fjörugum unglingi í Hagaskóla og síðar glæsi- legri konu sem alla tíð bar sig með mikilli reisn og háttvísi. Við minn- umst góðra stunda saman, skemmti- legum boðum og ekki hvað síst saumaklúbbnum okkar þar sem mikið var spjallað og hlegið en frekar lítið saumað. Edda og „bláa bjallan“ er órjúfan- legur hluti af þeim minningarsjóði sem við nú búum að og getum ornað okkur við. Við kveðjum Eddu með trega og söknuði, það er skarð fyrir skildi í litla hópnum okkar en enn stærra er skarðið hjá fjölskyldu hennar og ást- vinum. Við vottum þeim okkar inni- legustu samúð og biðjum góðan Guð að styrkja þau og blessa á erfiðum tímum. Við biðjum Hann einnig að blessa Eddu og vernda í nýjum heim- kynnum. Blessuð sé minning hennar. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. (V. Briem.) Aðalheiður, Erla, Ingibjörg Norberg, Ingibjörg Sveins, Þorbjörg, Þórunn Blöndal og Þórunn Hafstein. Edda Hjaltested, elskuleg vinkona mín til nærri 50 ára, lést 4. október sl. langt um aldur fram, nýlega orðin 64 ára gömul. Hún háði harða baráttu við illvígan blóðsjúkdóm í heilt ár. Við vorum lengi vel bjartsýn um að hún, með sínum sterka lífsvilja og andlega krafti myndi sigrast á óvætti þessum. En þrátt fyrir að hún sjálf, læknar og hjúkrunarfólk gerðu allt sem unnt var vann sjúkdómurinn sigur að lokum. Ég var svo heppin að kynnast Eddu snemma á lífsleiðinni. Á þeim tíma voru áhyggjur fjarri og ung- lingslífið eilífur dans á rósum. Eftir gagnfræðapróf störfuðum við um tíma saman á skrifstofu Eimskipa- félags Íslands hf. og þá kynntist ég betur þroskuðum persónuleika Eddu. Hún var mikill gleðigjafi, andlega sterk, tilfinningarík, hreinskiptin og ákveðin í skoðunum, vildi hafa „allt á hreinu“. Þessir eiginleikar hennar hugnuðust mér vel. Við fundum það strax báðar að við yrðum að eilífu bestu vinkonur. Hún var úrræðagóð, hlý, greiðvikin og hjálpsöm og ein- staklega smekkvís. Allir gátu leitað ráða hjá henni um hin ýmsu mál. Ekki síst var hægt að reiða sig á smekkvísi hennar hvort sem um var að ræða fataval, skreytingar, liti, framkomu gagnvart öðrum eða annað sem upp á bar. Við Edda höfðum einstaklega gam- an af að gera ýmislegt saman, þar á meðal að velja fatnað og fallega hluti, enda var smekkur okkar keimlíkur. Mér verður alltaf minnisstæð ferð okkar nokkurra starfsfélaga af Vita- torgi til Boston fyrir nokkrum árum síðan. Þar var hlegið og gantast myrkranna á milli, þotið um „mollin“ að hennar einstaka hætti, skoðað og verslað með hraði og allt fullkomlega og fumlaust valið af einstöku öryggi. Edda var afskaplega stolt af drengjunum sínum tveimur og síðar mökum þeirra og börnum. Væntum- þykja hennar í garð sona Péturs, maka þeirra og barnabarna var tak- markalaus og falleg. Þau öll voru hennar börn, eins og hún sagði svo oft með blik í augum. Við hjónin eigum góðar minningar frá heimsóknum til Eddu á Grenimel- inn, til Patreksfjarðar, Skövde í Sví- þjóð, Kaupmannahafnar, Ásvallagötu og Sólheima. Alltaf tók hún jafn inni- lega og höfðinglega á móti okkur. Hún fylgdist vel með uppvexti barna okkar og við með hennar. Sérstaklega voru augljós falleg tilfinningatengsl hennar og Hönnu Kristínar dóttur okkar sem átta ára gömul var nokk- urs konar „mini au pair“ hjá Eddu á Patreksfirði eitt sumar. Hugur Hönnu Kristínar er hjá Eddu þessa dagana með hlýju og söknuði. Með styrk sínum, greind, velvilja og hlýrri framkomu tókst Eddu ávallt að laða fram það besta hjá vinum sín- um og samferðarmönnum. Ég kveð yndislega vinkonu mína í dag með þakklæti fyrir vináttuna og söknuð í hjarta. Móður hennar Grethe sem níutíu og tveggja ára gömul fylgir dóttur sinni til grafar í dag með sinni einstöku reisn, Pétri, sonum og öðrum ástvinum sendi ég mínar innilegustu samúðarkveðjur og bið algóðan Guð að styðja þau í sorg- inni. Sigurdís Sigurbergsdóttir. Ferjan hefur festar losað farþegi er einn um borð mér er ljúft af mætti veikum mæla nokkur kveðjuorð. Þakka fyrir hlýan huga handtak þétt og gleðibrag þakkir fyrir þúsund hlátra þakkir fyrir liðinn dag. (J. Har.) Hjartkær vinkona er kvödd. Far- sælu og góðu lífshlaupi lauk allt, allt of fljótt Við stór kaflaskil í lífi manns streyma minningar fram. Þær eru eins og perlur á bandi og á perlubandi minninganna skína sumar perlur skærar en aðrar. Eddu perla skín þar einna skærast og fallegast. Edda vin- kona okkar sem var svo gegnheil manneskja, svo falleg að innan sem utan. Leiðir okkar þriggja lágu saman á unga aldri. Vesturbærinn var okkar leik- og skólasvæði. En kynnin urðu meiri við nám í Hjúkrunarskólanum þar sem við vorum á svipuðum tíma. Seinna hittumst við svo á Landa- koti og þar unnum við saman um ár- tuga skeið. Edda var deildarstjóri og síðar hjúkrunarframkvæmdarstjóri og stjórnaði af hlýju og með sínum góða danska húmor. Það var mikið brasað, hlegið og haft gaman að lífinu í og utan vinnutíma. Eitt árið stóð t.d. fyrir dyrum ráð- stefna í fagfélagi okkar en þar var Edda formaður. Sökum hræðslu við að standa í ræðustóli ákváðum við að ganga í ITC. Það skilaði góðum ár- angri því ekki fipaðist Eddu við stjórnun ráðstefnunnar og talaði hún bæði dönsku og ensku lýta- og áreynslulaust! Kvöld eitt var svo hattakvöld hjá ITC, allar mættar með látlausa hatta. Rétt í því að slegið var í með fund- arhamrinum, þögn var í salnum, opn- uðust þá ekki dyrnar og inn gekk Edda með barðastóran stráhatt þak- inn grænmeti og ávöxtum og hélt á garðkönnu fullri af blómum! Edda tók síðar við starfi forstöðu- manns á Vitatorgi en það breytti engu um vináttuna, við héldum áfram að hittast, hlæja saman og líta í búðir eða, eins og Edda orðaði það svo skemmtilega, „toga aðeins í tuskur“. Edda sagði stundum að hún ætti sér tvö líf. Eitt í Reykjavík og annað á sínum kæru Sólheimum. Þar áttu þau Pétur sitt annað heimili og þar elskaði hún að vera. Í erfiðum veikindum sín- um sótti hún þangað kraft, frið og orku og hvergi annars staðar vildi hún vera þegar smástund gafst á milli stríða. Að leiðarlokum er margs að minn- ast og þakka. Við kveðjum kæra vin- konu og biðjum henni blessunar á leið til nýrra heima og trúum því að henn- ar bíði verkefni á æðri stigum. Við söknum hennar sárt. Edda Kristín Aaris Hjaltested

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.