Morgunblaðið - 14.10.2009, Síða 15

Morgunblaðið - 14.10.2009, Síða 15
Daglegt líf 15 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. OKTÓBER 2009 Eftir Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is S töðugt fleiri Íslendingar heimsækja landnáms- byggðir Íslendinga í Vesturheimi. Undanfarin 10 ár hefur Jónas Þór farið með um 1.400 manns vestur í 35 ferðum í tengslum við Þjóðrækn- isfélag Íslendinga og í samvinnu við ýmsar deildir Þjóðræknisfélagsins í Norður-Ameríku auk þess sem hann tók á móti vel á annað hundrað manns að vestan í sumar. Síðustu ferð sumarsins er nýlokið og undir- búningur hafinn fyrir næsta ár. „Þetta hefur gengið mjög vel, sér- staklega í sumar og fyrrasumar, og þegar eru fimm hópferðir vestur og ein að vestan frágengnar næsta sumar,“ segir Jónas, sem stofnaði félagið Vesturheim sf. 2006 til að sjá um ferðirnar fyrir Þjóðræknis- félagið. Námskeið upphafið Hugmyndin að ferðunum kviknaði í kjölfar endurreisnar Þjóðræknis- félags Íslendinga 1997. Jónas Þór er sagnfræðingur að mennt og eftir að hafa flutt útvarpserindi um fólk af íslenskum ættum í Vesturheimi boð- aði Markús Örn Antonsson, þáver- andi formaður ÞFÍ, hann á stjórnar- fund haustið 1999 til að fá hann til að halda námskeið um vesturfarana í nafni ÞFÍ. „Þátttakendur lifðu sig vel inn í söguna og um vorið óskuðu þeir eftir því að fara í vettvangs- könnun og fyrsta ferðin varð að veruleika skömmu síðar,“ rifjar Jón- as upp. Fyrsta ferðin byggðist einkum á sögu fyrstu vesturfaranna en síðan hefur mikið vatn runnið til sjávar. Auk hefðbundinna ferða til Minne- sota, Norður-Dakóta og Manitoba hafa verið skipulagðar ferðir til Ut- ah, vesturstrandar Bandaríkjanna og Kanada, Alberta, Saskatchewan, Ontario, Quebec og hringnum var lokað í Nova Scotia í haust. „Við höf- um heimsótt hverja einustu land- námsbyggð vesturfarasögu Íslend- inga á tíu árum,“ segir Jónas. Jónas hefur farið með ófáa ís- lenska kóra vestur. Eins hefur starfsfólk skóla tekið sig saman, hópar ýmissa félagssamtaka eins og Lions og Rotary, sem hafa verið áberandi í þessum ferðum, félög eldri borgara og svo félagsmenn ÞFÍ auk annarra. „Ég fór til dæmis í sjö ferðir vestur í sumar og tók á móti þremur hópum að vestan,“ seg- ir Jónas og bætir við að fólk hafi greinilega mikinn áhuga á sögu Vestur-Íslendinga. „Tengingin við skyldfólk spilar líka stórt hlutverk,“ segir hann. Kynning Almar Grímsson tók við for- mennsku ÞFÍ af Markúsi Erni árið 2003 og hefur síðan unnið ötullega að samskiptum Íslendinga og fólks af íslenskum ættum vestra. Hann hefur heimsótt margar deildir Þjóð- ræknisfélagsins í Norður-Ameríku og á dögunum var hann heiðurs- gestur á árlegri Leifs Eiríkssonar hátíð Íslendingafélagsins í Edmon- ton. Þar lagði hann áherslu á teng- inguna og áréttaði að samskipti væru hugsunin á bak við ferðirnar. „Maður er manns gaman,“ segir Almar og bendir á að í gegnum þess- ar ferðir hafi hann meðal annars kynnst ættfólki vestra sem hafi komið til Íslands í kjölfarið og hann síðan heimsótt á dögunum. Jónas segir að hann hafi alltaf fundið fyrir miklum áhuga vestra á Íslandi og Íslendingum og vegna fjölda fyrirspurna hafi hann ákveðið að bjóða upp á hópferðir til Íslands í sumar. „Áður setti fólk helst kostn- aðinn fyrir sig en eftir að krónan veiktist urðu Íslandsferðir sérlega hagstæðar og ég er þegar farinn að taka við pöntunum í sumarferðina að ári.“ Hann bætir við að eftir því sem flugáfangastöðum vestra fjölgi aukist áhuginn enn frekar á ferð- unum og ekki síst á Íslandsferðum. Almar bendir á að beint flug til To- ronto hafi opnað nýjar dyr og marg- ir bíði spenntir eftir því að beint flug til Winnipeg verði að veruleika. Samvinna margra Félagarnir minna á að margir komi að þessum ferðum. Vestur- farasetrið á Hofsósi hafi til dæmis í hyggju að vera með sérstaka Vest- ur-Íslendingahátíð seinni hluta júní árlega og ferðir að vestan taki mið af hátíðinni, en fyrsta hátíðin hafi verið í sumar. Setrið sé líka mjög mikil- vægt við að aðstoða fólk við að finna ættingja, rétt eins og Vesturfarinn á Vopnafirði. Sendiherrar og ræðis- menn vestra hafi verið Þjóðræknis- félaginu mjög innan handar sem og einstaklingar á viðkomandi stöðum. „Það leggjast allir á eitt til að ferð- irnar takist sem best og það er til dæmis ótrúlegt að sjá sveitunga í nágrenni við Riverton fylla félags- heimilið í hvert sinn sem íslenskur kór kemur og syngur,“ segir Jónas. „Það er líka gaman að fá söguna í æð á íslensku í nýja byggðasafninu í Árborg, en svona er þetta á hverjum stað og þetta endurspeglar áhugann vestra á þessum ferðum. Móttökur- nar eru ótrúlega góðar.“ Tímamót Þjóðræknisfélagið verður 70 ára 1. desember í ár og verður tímamót- anna minnst í Þjóðmenningarhús- inu. Gestir koma frá Norður- Ameríku og íslenskir listamenn, sem hafa skemmt vestra, koma fram auk þess sem verkefni ÞFÍ verða kynnt. Winnipeg Jónas Þór hefur farið með marga hópa vestur og er hér með hóp úr Félagi eldri borgara í Hafnarfirði framan við styttu af Jóni Sigurðssyni við þinghúsið í Winnipeg í Kanada í fyrra. Tengingin styrkist enn Þjóðræknisfélag Íslendinga byrjaði að skipuleggja ferðir til Vesturheims fyrir 10 árum og hefur Jónas Þór séð um þær frá upphafi en hann stofnaði sérstakt fyrirtæki til að sinna verkefninu og tengingunni. Morgunblaðið/Heiddi Fararstjórar Almar Grímsson og Jónas Þór hafa komið tengingum á. Markland Í haust var hópferð til Nova Scotia og þar með var hringnum lokað. Garðar John Johnson og Magnús Ólafsson við minnismerkið um Stephan G.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.