Morgunblaðið - 14.10.2009, Síða 9

Morgunblaðið - 14.10.2009, Síða 9
Fréttir 9 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. OKTÓBER 2009 Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16 • Engjateigur 5 • Sími 581 2141 • www.hjahrafnhildi.is Þýskar gæðabuxur Verð frá 10.900 kr. Styttri skálmalengd, hentar lágvöxnum konum KVIKMYNDATÓNLIST JOHN WILLIAMS John Williams hefur samið tónlist við fleiri ódauðlegar bíómyndir en nokkur annar fyrr eða síðar og hefur hann verið tilnefndur til alls 45 Óskarsverðlauna. Tónlist hans er oft samin fyrir stóra og glæsilega sinfóníuhljómsveit þar sem spennan nýtur sín til fulls. Þetta eru tónleikar sem engir áhugamenn um kvikmyndir og góða tónlist mega láta fram hjá sér fara! Tryggðu þér miða í síma 545 2500 eða á www.sinfonia.is Fim. 22.10. - Uppselt Fös. 23.10. - Aukatónleikar „Megi mátturinn vera með þér“ Obi-Wan Kenobi, Star Wars Fös. 23.10.09 » 19:30 Í Tösku- og hanskabúðinni finnur þú mikið úrval af handtöskum, tölvu- og skjalatöskum, seðla-og leðurveskjum, ferðatöskum, leðurhönskum og vönduðum göngustöfum svo fátt eitt sé nefnt. Þú getur litið við í verslun okkar eða farið á slóðina www.th.is þar sem hægt er að skoða úrvalið og gera góð kaup! Tösku og hanskabúðin • Skólavörðustíg 7 • 101 Reykjavík • Sími 551 5814 • www.th.is 15. til 17. október 1. Drög að frumvarpi til nauðasamninga og afstaða kröfuhafa til þess kynnt. 2.Tillaga stjórnar félagsins um að hluthafafundur feli stjórninni að leitaeftirheimildhéraðsdómstil nauðasamningsumleitana. DAGSKRÁ Atorka Group hf • Miðvikudaginn 21. október 2009 kl. 10:00 • Hótel Hilton Nordica Stjórn Atorku Group hf. Dagskrá fundarins og tillaga stjórnar félagsins í samræmi við framangreint munu liggja frammi til sýnis fyrir hluthafa á skrifstofu félagsins frá og með 14. október 2009. Í FRAMHALDI af frétt Morgun- blaðsins í gær um að kvartað hafi verið til landlæknis vegna bæklings GlaxoSmithKline (GSK) um þung- lyndi þar sem í honum væri gefið í skyn að lyf væru eina aðferðin til að lækna þunglyndi vill GSK á Íslandi taka eftirfarandi fram: „Bæklingur GSK um þunglyndi var fyrst gefinn út árið 1999. Um var að ræða þýðingu á dönskum bækl- ingi en leitað var faglegrar ráðgjafar og efnið staðfært í samvinnu við ís- lenskan geðlækni. Á því tíu ára tíma- bili sem bæklingurinn hefur verið í dreifingu hefur fyrirtækið ekki feng- ið neinar athugasemdir vegna inni- halds hans eða efnistaka fyrr en fé- lagið fékk til umsagnar afrit af kvörtun dr. Steindórs J. Erlings- sonar til landlæknis fyrr á þessu ári. Í svarbréfi GSK á Íslandi til land- læknis var tilkynnt að félagið myndi endurskoða bæklinginn og að á með- an sú endurskoðun færi fram yrði frekari dreifing hans stöðvuð. Frá því bæklingur GSK um þung- lyndi kom fyrst út hafa orðið marg- víslegar framfarir í meðferð þung- lyndis bæði hvað varðar lyf og önnur úrræði fagaðila. Mikilvægasta breytingin er þó hugsanlega sú vit- undarvakning sem átt hefur sér stað um þunglyndi og einkenni þess og að dregið hefur úr fordómum og fá- fræði um sjúkdóminn. Útgáfa bækl- ings GSK um þunglyndi hafði ekki hvað síst þetta að markmiði. GlaxoSmithKline er umhugað að fræðsluefni á vegum fyrirtækisins endurspegli bestu vitneskju hverju sinni. Fræðslubæklingur um þung- lyndi var sá fyrsti sem gefinn var út af GSK hér á landi um geðsjúkdóma og í kjölfar hans komu út bæklingar um ofsakvíða, áráttu- og þráhyggju- röskun, almenna kvíðaröskun og geðhvörf. Samhliða endurskoðun á efni þunglyndisbæklings verður þetta fræðsluefni nú einnig yfirfarið í samráði við innlenda sérfræðinga.“ Hjörleifur Þórarinsson framkvæmdastjóri Fræðslubæklingur GSK um þunglyndi Í aukablaði Morgunblaðsins um tísku og förðun sem kom út 9. októ- ber misritaðist að ilmurinn Idole d́Armani væri karlmannsilmur. Hið rétta er að þetta er fágaður og góður kvenmannsilmur. Beðist er velvirð- ingar á mistökunum. LEIÐRÉTT Ilmur misritaðist PRENTSMIÐJUNNI Örk á Húsa- vík hefur verið lokað og útgáfu viku- blaðsins Skarps hefur verið hætt. Á heimasíðu blaðsins segir að ástæður þessa séu fjárhagserfiðleikar prent- smiðjunnar og færri verkefni. Prentsmiðjan hefur gefið út aug- lýsingablaðið Skrána og fréttablaðið Skarp og kom síðasta tölublað þess út sl. föstudag. Nú hefur útgáfunni verið hætt um „ófyrirsjáanlega framtíð“ eins og segir á heimasíðu blaðsins. „Ég hygg að mörgum bregði við að fá ekki blað samkvæmt venju næstkomandi föstudag,“ segir Jóhannes Sigur- jónsson sem hef- ur verið ritstjóri Skarps og þar áð- ur Víkurblaðsins sl. þrjátíu ár, eða allt frá árinu 1979. Hann segir Þingeyinga áfram um að útgáfunni verði ekki hætt og að hafnar séu bollaleggingar til að tryggja áfram- hald hennar þó óljóst sé hver útkom- an þar verði. sbs@mbl.is Prentsmiðja lokar og vikublað hættir útgáfu Jóhannes Sigurjónsson Fáðu fréttirnar sendar í símann þinn

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.