Morgunblaðið - 14.10.2009, Side 6

Morgunblaðið - 14.10.2009, Side 6
6 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. OKTÓBER 2009 Eftir Silju Björk Huldudóttur silja@mbl.is „VIÐ höfum sent Greiðslustofu lífeyrissjóð- anna (GL) skriflega fyrirspurn þar sem við óskum eftir nánari upplýsingum um fyrirhug- aðar skerðingar á lífeyrisgreiðslum öryrkja frá 1. nóvember nk. og óskum svara fyrir 26. októ- ber,“ segir Lilja Þorgeirsdóttir, framkvæmda- stjóri Öryrkjabandalags Íslands (ÖBÍ). „Sam- kvæmt upplýsingum frá GL var við breyting- una byggt á tekjuupplýsingum sem fram koma í staðgreiðsluskrá Ríkisskattstjóra um tekjur sl. 12 mánuði. Í því ljósi viljum við m.a. vita minnir á að ríkið hafi þegar lagt pening inn í líf- eyrissjóðina til að mæta aukinni greiðslubyrði vegna örorkulífeyrisþega. Lilja segist óttast að sú hækkun sem orörkulífeyrisþegar geti sótt til TR vegna lækkunar lífeyrisgreiðslna muni hafa áhrif á næstu tekjuskoðun lífeyrisjóðanna í þá veru að lífeyrisgreiðslurnar lækki enn meira. Þess má geta að samkvæmt upplýsing- um frá GL mun hún framvegis skoða tekjur ör- orkulífeyrisþega fjórum sinnum á ári, en slík skoðun var síðast gerð í ágúst 2008. „Þessi spírall sem farinn er af stað virðist helst munu enda með því að lífeyrisgreiðslurnar verði í núlli.“ Eins og fram hefur komið höfðaði ÖBÍ prófmál gegn GL fyrir hönd lífeyrisþega sem varð fyrir skerðingum árið 2007. Það ár lækk- uðu greiðslur viðkomandi úr 76 þús. kr. í rúmar 29 þús. kr. „Núna er aftur verið að skerða líf- eyrisgreiðslur hennar um 5 þúsund kr. þó hún sé ekki með neinar aðrar tekjur en frá TR.“ en mun frá og með nóvembermánuði fá 14.221 kr. greiddar frá lífeyrissjóðnum. „Þar sem greiðslur hennar úr lífeyrissjóði skertu tekjur hennar frá TR getur hún núna sótt um hækkun greiðslna hjá TR sem nemur 7.907 kr. Þetta þýðir að skerðing á greiðslum frá lífeyrissjóð- um hækkar útgjöld ríkisins,“ segir Lilja og hvaða tekjur lagðar eru til grundvallar úr stað- greiðsluskrá Ríkisskattstjóra við útreikning á lífeyrisgreiðslum sem og hvaða viðmið og/eða vísitölu lífeyrisgreiðslur eru reiknaðar út frá. Eins spyrjum við um það við hvaða tekjur mið- að sé við þegar tekjur falla niður eða eru skert- ar,“ segir Lilja. Bendir hún á að fyrri svör bendi til þess að greiðslur á borð við náms- styrki og tímabundin fjárhagsleg aðstoð sveit- arfélaganna séu reiknaðar inn sem tekjur. „Það er eins og þetta fólk megi aldrei komast upp úr neinu fari.“ Greiðslur aftur skertar í prófmálinu Að sögn Lilju hefur fjöldi félagsmanna leitað til skrifstofu ÖBÍ frá því tilkynning um skertar lífeyrisgreiðslur bárust um 1.900 örorkulíf- eyrisþegum rétt fyrir helgi. Sem dæmi um skerðingu nefnir Lilja dæmi um konu sem 1. október sl. fékk 39.164 kr. frá lífeyrisjóði sínum Endar skerðingin í núlli?  „Það er eins og þetta fólk megi aldrei komast upp úr neinu fari,“ segir framkvæmdastjóri ÖBÍ  Segir ljóst að skerðing lífeyrisgreiðslna muni hækka útgjöld ríkisins á fjárlögum 2010 Í HNOTSKURN »Kona sem leitaði til ÖBÍ fékkgreiddar 92.285 kr. um síðustu mán- aðamót frá lífeyrissjóðnum Gildi en fær eftir breytingu greiddar 52.722 kr. »Sá sem verður fyrir örorku má ekkifá greidd hærri laun en meðaltal síð- ustu þriggja ára fyrir tekjutap. FYRIRTÆKIÐ Svalþúfa vinnur að því þessa dagana að bæta við skreiðarhjöllum í hraun- inu fyrir sunnan Hafnarfjörð. Fyrirtækið sér- hæfir sig í alls konar aukaafurðum sem til falla af fiskinum og er með 15-20 manns í vinnu. Hertir hausar eru seldir til Nígeríu og er mikil eftirspurn eftir hausunum. „Það selst allt sem við náum að hengja upp,“ segir Magnús Gylfason hjá Svalþúfu. Fyrirtækið saltar einnig talsvert fyrir Portúgalsmarkað, gellur, bita og fés og fleira sem til fellur við vinnsluna. aij@mbl.is Skreiðarhjallar í hrauninu sunnan Hafnarfjarðar Morgunblaðið/RAX Allt sem hengt er upp selst VERJENDUR í skattahluta Baugsmálsins svonefnda lögðu fram sameigin- lega bókun í þinghaldi í gær. Í henni er gerð sú krafa að dóm- ari geri ákæru- valdinu það skylt að „flokka bet- ur“ eða tilgreina framlögð gögn á ásættanlegan hátt og tengja við ákæruliði. Um er að ræða um fimm þúsund blaðsíður. Helgi Magnús Gunnarsson, saksóknari efnahags- brota, telur sig fara að lögum og mun hann fara betur yfir tenging- ar við aðalmeðferð. Næsta fyr- irtaka fer fram 22. október nk. Málið var höfðað á hendur Jóni Ásgeiri Jóhannessyni, Tryggva Jónssyni, Kristínu Jóhannesdóttur auk Baugs Group og fjárfestingar- félagsins Gaums. Sakarefnið er meiriháttar brot gegn skattalög- um á árunum 1998 til 2002. Lagt hefur verið upp með að aðal- meðferð í málinu fari fram í byrj- un næsta mánaðar. Fari svo að dómarinn, Pétur Guðgeirsson, fall- ist á kröfu verjendanna er næsta víst að verulegur dráttur verður á málinu. Rannsókn á bókhaldi og skatt- skilum Baugs hófst í nóvember 2003. andri@mbl.is Verjendur vilja frekari tengingu við ákæruliði Helgi Magnús Gunnarsson FRÉTTASKÝRING Eftir Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is UNNIÐ er að því að íslensk stór- iðjufyrirtæki, sem hluti af EES- svæðinu, fari inn í viðskiptakerfi Evrópusambandsins með heimildir fyrir losun á gróðurhúsaloftteg- undum frá og með 1. janúar árið 2013. Þá hefur fyrsta skuldbind- ingartímabil Kyoto-bókunar Sam- einuðu þjóðanna um loftslagsbreyt- ingar runnið sitt skeið á enda. Fram hefur komið hjá Svandísi Svavarsdóttur umhverfisráðherra að ekki verði óskað eftir frekari und- anþágu frá Kyoto-bókuninni, sem ís- lenska ákvæðið svonefnda hefur heimilað, en samkvæmt upplýs- ingum blaðsins er ekki talið útilokað að framlengja þurfi ákvæðið tíma- bundið. Ísland er sjálfstætt ríki gagnvart bókuninni, öfugt við ESB, og svo gæti farið að hér verði tvöfalt kerfi með losunarheimildir eftir 2012, annars vegar viðskiptakerfi ESB og ný bókun sem mögulega verður samþykkt á loftslagsráð- stefnu SÞ í Kaupmannahöfn. Óvissa er um á þessari stundu hvaða áhrif þetta getur haft fyrir ís- lensk stóriðjufyrirtæki. Formaður samninganefndar Íslands um lofts- lagsmál, Þórir Ibsen, svaraði ekki skilaboðum Morgunblaðsins í gær en haft var eftir honum í fréttum Bylgjunnar um helgina að eftir árið 2012 myndu íslensk fyrirtæki ekki þurfa að greiða fyrir losunarheim- ildir sínar til að byrja með. Engar breytingar yrðu á heimildunum fram að þeim tíma. Greiðslur koma síðar Samkvæmt upplýsingum blaðsins má hins vegar reikna með að fyrir- tækin, eins og álverin hér á landi, Járnblendiverksmiðjan, Sements- verksmiðjan og Steinullarverk- smiðjan, muni með tímanum þurfa að greiða fyrir losunarheimildir sín- ar, eftir því sem ESB muni gera meiri kröfur um losun gróðurhúsa- lofttegunda. Hve þær greiðslur verða háar liggur ekki fyrir í dag. Samtök atvinnulífsins hafa gagn- rýnt ummæli umhverfisráðherra og talið ótímabært að vera með yfirlýs- ingar um íslenska ákvæðið á meðan ESB hefur ekki endanlega gengið frá sínu regluverki og samþykkt það. Hafa samtökin hvatt stjórnvöld til að halda sig við áður boðaða stefnu um að draga úr útstreymi gróðurhúsalofttegunda um 15% frá 1990 til 2020. Það vilyrði, sem gefið hafi verið í alþjóðlegu loftslags- viðræðunum, sé skilyrt því að ís- lenska ákvæðið gildi áfram. Ríkis- stjórnin hljóti að fylgja þeirri stefnu sinni allt til loka samningagerðar. Lítið greitt fyrir losun í fyrstu  Íslensk stóriðjufyrirtæki væntanlega hluti af viðskiptakerfi ESB með losunar- heimildir eftir 2012  Svo gæti farið að „íslenska ákvæðið“ verði framlengt Umhverfisráðherra hefur boðað að ekki verði óskað eftir frekari undanþágu frá Kyoto-bókun. Ákvörðunin er umdeild og áhrif hennar óljós sem stendur. Í tengslum við Kyoto-bókun Sameinuðu þjóðanna um lofts- lagsbreytingar, sem tók gildi ár- ið 2005, fékkst í gegn sérstakt ákvæði fyrir lítil hagkerfi, kallað íslenska ákvæðið. Það gerir ráð fyrir að koldíoxíðlosun frá nýrri stóriðju eða stækkun, sem hef- ur starfsemi eftir árið 1990 og leiðir til meira en 5% aukningar í losun á fyrsta skuldbindingar- tímabili bókunarinnar (2008- 2012), verði haldið utan við los- unarskuldbindingar bókunar- innar eftir að heimildir viðkomandi lands hafa verið fullnýttar. Nær ákvæðið til ríkja sem losuðu minna en 0,05% af heildarlosun iðnríkja á koldíox- íði árið 1990. Íslenska ákvæðið

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.