Morgunblaðið - 14.10.2009, Page 7

Morgunblaðið - 14.10.2009, Page 7
Fréttir 7INNLENT MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. OKTÓBER 2009 Gerog Jensen Damask sængurfatnaður 20% afsl DUX 8888 BESTA RÚM Í HEIMI ! 20% afsl 2 DUX 1001/Original 90x200cm/Xtandard yfirdýna 180x200cm/fætur Kr. 299.000 Fire sófi 20% afsl aðeins Kr. 319.200 Haustveisla stendur frá 15 -17 okt. HAUST VEISLA sérfræðingur frá DUX í Svíþjóð verður á staðnum Ármúla 10 | sími: 5689950 | duxiana.com Í DAG, miðviku- dag, mun lög- maður Færeyja, Kaj Leo Johann- esen flytja fyr- irlestur undir yf- irskriftinni „The Faroes in a glo- balized world - opportunities and challenges“, sem fjallar um tækifæri og áskoranir Færeyinga í alþjóðavæddum heimi. Fyrirlesturinn hefst kl. 08:30 í hátíðarsal Háskóla Íslands og er öllum opinn. Lögmaður Færeyja heldur fyrirlestur Kaj Leo Johann- essen Á föstudag nk. kl .12.30 verður op- inn fundur um atvinnumál. Fund- urinn verður haldinn í Virkjun, Flugvallabraut 740 á Keflavíkur- flugvelli (gamla varnaliðssvæðið) og mun Árni Páll Árnason félags- málaráðherra mæta, flytja stutt ávarp og svara svo spurningum fundarmanna. Atvinnumál STJÓRN Fjórðungssambands Vest- firðinga og fastanefnd sambandsins um samgöngumál skora á yfirvöld að tryggja áframhaldandi daglegar siglingar ferjunnar Baldurs yfir Breiðafjörð en ætlun samgöngu- yfirvalda hefur verið að draga úr stuðningi við siglingar ferjunnar. „Það má ljóst vera að daglegar ferðir ferjunnar eru samfélaginu á sunnanverðum Vestfjörðum lífs- nauðsynlegar og samkeppnishæfni svæðisins verður stórlega skekkt gagnvart öðrum landshlutum.“ Álykta um Baldur AÐ ósk sóttvarnarlæknis hefur inn- flutningi á fyrsta skammti af bólu- efni gegn H1N1 veirunni verið flýtt. Gert er ráð fyrir að fyrsta sending af bóluefninu, um 15 þús- und skammtar, komi til landsins á morgun. Með samningi sem íslensk stjórnvöld gerðu við GlaxoSmith- Kline árið 2007 voru Íslendingum tryggðir 300 þúsund skammtar af bóluefni gegn inflúensufaraldri. Samningurinn felur í sér að Íslend- ingar fái ákveðið hlutfall af því bóluefni sem framleitt er í hverri viku. Miðað var við að í fyrstu send- ingu af bóluefni til Íslands yrðu um 70 þúsund skammtar af bóluefni, en það samsvarar nokkra vikna fram- leiðslu. Flýtt fyrir innflutn- ingi á bóluefni HLAÐVARPINN, menningarsjóður kvenna á Íslandi, auglýsir nú eftir umsóknum um styrki. Umsóknar- frestur er til 1. nóvember nk. og geta umsækjendur verið konur, samtök þeirra, félög eða fyrirtæki. Nánari reglur um úthlutun eru að finna á hladvarpinn.is. Hlaðvarpinn STUTT Eftir Önund Pál Ragnarsson onundur@mbl.is STEINGRÍMUR J. Sigfússon fjár- málaráðherra tók fram í framsögu- ræðu sinni við umræðu um fjárauka- lög, á Alþingi í gær, að útgjalda- aukningin frá fjárlögum væri minni nú en á árinu 2008. Í ár er hún 26,9 milljarðar króna en var 33,1 millj- arður í fyrra. Pétur H. Blöndal, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, gagnrýndi hins vegar að ýmislegt vantaði inn í frum- varpið, sem skekkti heildarmyndina af því hversu mikil útgjaldaaukning- in væri í raun. Þyngst vegi þar að hvergi sé minnst á Icesave-samn- inginn sem búið sé að gera við Breta og Hol- lendinga. Pétur gerði einnig að umtals- efni að áfram- haldandi fram- kvæmdir við tónlistar- og ráð- stefnuhúsið vantaði inn í lögin. „Hvar er tónlistarhúsið í þessu ágæta plaggi?“ spurði Pétur. Hann sagði að verið væri að plata skatt- greiðendur framtíðarinnar með þessu, sem sé bannað í stjórnarskrá. Þar segir að ekkert gjald megi greiða af hendi nema heimild sé til þess í fjárlögum eða fjáraukalögum. Steingrímur svaraði því til að bók- færsla þeirrar skuldbindingar væri flókið mál og í skoðun milli Ríkisend- urskoðunar og fjármálaráðuneytis hvernig fara eigi með hana. Fjárlaganefnd þarf heimildir Ásbjörn Óttarsson, fulltrúi Sjálf- stæðisflokks í fjárlaganefnd, tók einnig til máls og hvatti til þess að eftirlitsvald hennar yrði eflt og að þingmenn í þeirri nefnd tækju ekki sæti í neinni annarri nefnd, til að valda því verkefni. Vakti hann at- hygli á því að ekki er búið að stað- festa ríkisreikning fyrir árið 2008 og sagði að fjárlaganefnd hefði ekki enn, í október, fengið eina einustu skýrslu frá neinni stofnun um fram- kvæmd fjárlaganna fyrir þetta ár. Lagði hann til að nefndin fengi að- gang að bókhaldi ríkisstofnana til að geta haft sjálfstætt eftirlit með því hvort farið er eftir fjárlögum. Rakti hann dæmi þess að brotið væri gegn fjáraukalögum með því að Vatnajök- ulsþjóðgarður færði fé á rekstrar- reikning, til að halda úti fleiri land- vörðum, sem hefði átt að nota til fjárfestingar. Stóra pósta vantar í fjáraukalögin Steingrímur J. Sigfússon

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.