Morgunblaðið - 14.10.2009, Síða 22

Morgunblaðið - 14.10.2009, Síða 22
22 Minningar MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. OKTÓBER 2009 Það haustar að. Sumargróður hefur lagt niður lauf, lífsins tíð lagst í dvala. Andblær haustsins nístir huga og sál er við kveðjum hjartkæra mágkonu, systur og frænku, Guðríði Hannibalsdóttur. Hugurinn hvarflar til samvista liðinna sumra með Gurrý og fjölskyldu að æskuslóðum hennar á Hanhóli við Bolungarvík. Bjartar og fagrar minningar birtast fyrir hugsjónum og þíða upp sálarél. Gurrý var einstök kona. Hún hafði Guðríður Hannibalsdóttir ✝ Guðríður Hanni-balsdóttir fæddist í Þernuvík í Ög- urhreppi við Ísafjarð- ardjúp 3. mars 1938. Hún lést á kvenna- deild Landspítalans 9. október 2009. Útför Guðríðar fór fram frá Langholts- kirkju þriðjudaginn 13. október sl. Meira: mbl.is/minningar alið manninn í faðmi fjölskyldu, sem taldi sautján manns og var Gurrý næstelsta barn foreldra sinna og elst dætranna, í samvist- um við náttúru sem var í senn gjöful og óblíð, ægifögur og hrikaleg. Æskuárin, fyrst í Þernuvík, síðar á Hanhóli, með þá ábyrgð og skyldustörf sem fylgja því að vera elsta dóttirin á stóru sveitaheimili, hafa vafalítið mótað gildi hennar og við- horf til lífsins. Gurrý féll sjaldan verk úr hendi. Hún var hjartahlý, vinnusöm og glaðlynd og hafði fengið í vöggugjöf röggsemi, áræði, glettni og glaðværð föður síns og iðjusemi, æðruleysi, gæsku og mildi móður sinnar og var afar elsk að samferðamönnum sín- um. Gurrý var margt í senn, því ásamt því að vera húsmóðir, einstök dóttir, eiginkona, móðir, systir og vinur var hún höfuð ættar sinnar, kennari, handverkskona, félags- málakona, samvinnukona af hug- sjón, náttúrubarn og ræktunarkona sem hlúði að öllu því sem lifði og lagði sig fram um að rækta landið fyrir komandi kynslóðir. Gurrý tók virkan þátt í ýmsum félögum, m.a. ITC, félagi hannyrðakennara, Skóg- ræktarfélagi Mosfellsbæjar og Vest- firðingafélagsins enda römm sú taug sem hún hafði til æskuslóðanna fyrir vestan. Komu þau hjón vestur nokkrar ferðir á ári og var það mikið tilhlökkunarefni að fá þau í heim- sókn. Þá var slegið upp veislu, skraf- að og hlegið eða notið þeirra ger- sema sem átthagarnir hafa upp á að bjóða með fjallaferðum og fagurri ásýnd eða ávaxtanna af jarðargróðri auk samvista við ástvini. Gurrý naut augnabliksins og var óhrædd við að feta ótroðnar slóðir. Þau hjón voru samhent. Þau ráku veitingastaði saman um árabil, bjuggu erlendis um skeið og ferðuð- ust víða. Gurrý lagði mikla rækt við bróður sinn og guðdóttur á Hanhóli og varla komum við suður án þess að koma við í Bergholtinu eða Gvend- argeisla þar sem við nutum góð- gjörða og þáðum græðlinga sem hún hafði komið til. Ósjaldan var leitað til Gurrýjar með aðstoð við hannyrðir og á jólum mátti ávallt eiga von á glaðningi frá þeim, einhverju nyt- samlegu og góðu eða hlýjum ullar- flíkum eins og um síðustu jól þegar hún sendi bróðurnum og dætrum hans peysu, vesti og kjóla sem hún hafði prjónað um haustið. Magnea Gná býr nú að hlýjum minningum um þessa stórfrænku sína og guð- móður frá dvöl með henni í Aðalvík í sumar. Ekki er hægt að horfa til baka til samferðamannsins Guðríðar Hanni- balsdóttur án þess að fyllast þakk- læti og hlýju yfir að hafa átt hana að fjölskyldu og vin og aðdáun á því hve æðrulaus, ákveðin og jákvæð hún hefur mætt þeim vágesti síðasta ára- tug sem nú hefur lagt hana að velli. Guð vaki yfir þessari sómakonu og gæti ástvina hennar á skilnaðar- stund. Guðrún Stella Gissurardóttir og fjölskylda, Hanhóli. Manni bregður alltaf þegar maður heyrir andlátsfregn, þó lengi hafi verið vitað í hvað stefndi. Núna er áralangri baráttu Gurrýjar við sjúk- dóminn lokið. Maður furðaði sig oft á því hversu ótrúlega hetjulega hún barðist og hvað hún kom miklu í verk á þessum tíma. Þá streyma fram minningar um gamlar og góðar stundir. Þar sem fjölskyldurnar bjuggu nánast hlið við hlið í Berg- holtinu þá var samgangur alltaf mik- ill, bæði hjá börnum og fullorðnum. Heimili Gurrýjar og Óla á númer 4 var eins og félagsheimili, þangað komu allir og þar var endalaust pláss fyrir fleiri. Gott var að koma til Gur- rýjar og fá ráðleggingar, sér í lagi varðandi handavinnu. Því það var ekki komið að tómum kofunum í þeim efnum. Hún var einstaklega dugleg, sérstaklega hvað varðar handavinnu og var stöðugt að. Áhugamál hennar voru fjölmörg. Hún sinnti ýmsum félagsstörfum, t.d. var hún lengi í ITC og Skógrækt- arfélagi Mosfellsbæjar. Margar ferðir voru farnar upp í „reit“. Mikið eru þau búin að gróð- ursetja þar, Gurrý og Óli, og stór- kostlegt að sjá breytinguna á land- inu, sem var einungis mýri og melar en er núna að verða skógur. Ekki má heldur gleyma spilaklúbbnum, þar sem oft var glatt á hjalla og við krakkarnir fengum jafnvel að spila með. Ógleymanlegar eru líka allar ferðirnar sem við fórum í saman. Flestar ferðirnar voru innanlands, en eina ferð fóru fjölskyldurnar sam- an til útlanda. Við ferðuðumst á tveimur húsbílum vítt og breitt um Evrópu og höfðum gaman af. Við krakkarnir vorum að fara til útlanda í fyrsta skipti og fannst þetta allt saman stórkostlegt. Við kveðjum Gurrý með söknuði. Elsku Óli og fjölskylda, Guð styðji ykkur í sorg- inni. Ragnhildur, Þórunn, Þorsteinn og Berglind. ✝ Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang- amma, GUÐBJÖRG K. ARNDAL, til heimilis Austurbyggð 17, Akureyri, andaðist á Sjúkrahúsinu á Akureyri aðfaranótt laugardagsins 3. október. Útför hennar fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík föstudaginn 16. október kl. 15.00. Kristín Jóhannesdóttir Arndal, Stígur Sæland, Guðrún Jóhannesdóttir, Oktavía Jóhannesdóttir, Karl Ágúst Gunnlaugsson, Reynir Reynisson, Ásta Júlía Theodórsdóttir, ömmubörn og langömmubörn. ✝ Innilegar þakkir færum við þeim sem sýndu okkur samúð, ómetanlega hlýju og vinarhug við andlát og útför eiginkonu minnar, móður okkar, tengda- móður, ömmu og langömmu, SVANHILDAR SUMARRÓSAR LEÓSDÓTTUR, Ytra-Krossanesi, Akureyri. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki gjörgæslu- deildar Sjúkrahúss Akureyrar. Kristján Þórðarson, Guðmundur Kristjánsson, Manevan Yothakong, Laufey Kristjánsdóttir, Jósep Hallsson, Ingvar Kristjánsson, Kristbjörg Anna Guðmundsdóttir, Arnar Kristjánsson, Katrín Eiðsdóttir, Brynjar Kristjánsson, Freydís Gunnarsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Okkar ástkæri SVEINN KR. PÉTURSSON, sem lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi miðvikudaginn 7. október, verður jarðsunginn frá Fella- og Hólakirkju fimmtudaginn 15. október kl. 13.00. Guðrún Iðunn Jónsdóttir, Gunnar Hrafn Sveinsson, Hannes Jón Lárusson, Elke Zimmermann, Johanna Björg og Jonathan. ✝ Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GRÍMA THORODDSEN, Vallargötu 20, Keflavík, verður jarðsungin frá Keflavíkurkirkju föstudaginn 16. október kl. 14.00. Sumarliði Gunnarsson, Bolli Thor Valdimarsson, Helga Guðjónsdóttir, Gunnar Sumarliðason, Birna Þórðardóttir, Ingibjörg Sumarliðadóttir, Jarl Larsen, Kristín Sumarliðadóttir, E. Roy Arris, Ragnhildur Sumarliðadóttir, Sigurjón Kristjánsson, Ásthildur Sumarliðadóttir, Þröstur Elliðason, ömmubörn og langömmubörn. ✝ Við viljum þakka kærlega fyrir auðsýnda samúð og vináttu við fráfall JÚLÍUSAR KRISTJÁNS THOMASSEN. Allt það sem fólk lagði á sig til aðstoðar, allar hlýjar kveðjur og heimsóknir hafa verið okkur mikil huggun á þessum sorgartíma. Við sendum ykkur öllum kærleikskveðjur. Stórfjölskyldan í Kúlunni. ✝ Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir og afi, ÆVARR HJARTARSON ráðunautur, Furulundi 33, Akureyri, lést miðvikudaginn 7. október. Útförin fer fram frá Akureyrarkirkju föstudaginn 16. október kl. 10.30. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Sjálfsbjörg, Akureyri. Freydís Laxdal, Hrafnhildur L. Ævarsdóttir, Stefán S. Ólafsson, Harpa Ævarsdóttir, Haraldur B. Ævarsson, Elín S. Ingvarsdóttir, Andri Fannar, Alma, Atli Snær, Ævarr Freyr og Jóhanna Margrét. ✝ Ástkær sonur okkar og bróðir, STEFÁN MÁR HARÐARSON, Múlasíðu 7d, Akureyri, verður jarðsunginn frá Glerárkirkju, Akureyri fimmtudaginn 15. október kl. 13.30. Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á Styrktarfélag krabbameinssjúkra barna, reikningsnr. 301-26-545, kt. 630591-1129, sími 588 7555. Bára Waag Rúnarsdóttir, Jóhann Helgi Steinarsson, Marta Ósk Jóhannsdóttir, Almar Ingi Jóhannsson, Hörður Guðmundsson. ✝ Elskulegur faðir minn, tengdafaðir og afi, HANS ARREBOE CLAUSEN, Kársnesbraut 33, Kópavogi, sem lést þriðjudaginn 6. október, verður jarðsunginn frá Kópavogskirkju fimmtudaginn 15. október kl. 13.00. Michael Clausen, Heiða Sigríður Davíðsdóttir og afabörn. ✝ Elskuleg móðursystir og frænka okkar, AÐALHEIÐUR ELINÍUSARDÓTTIR kennari, áður til heimilis að Hjarðarhaga 64, Reykjavík, er látin. Útförin hefur farið fram í kyrrþey. Hjördís Magnúsdóttir og fjölskylda.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.