Morgunblaðið - 14.10.2009, Page 25

Morgunblaðið - 14.10.2009, Page 25
Dagbók 25 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. OKTÓBER 2009 Sudoku Frumstig 9 2 5 1 6 1 6 2 4 9 2 8 6 7 8 4 7 5 8 3 5 2 6 4 9 4 6 3 1 3 5 2 2 1 6 5 3 2 8 5 4 5 2 1 4 7 7 8 2 9 3 5 6 2 7 1 5 7 2 3 4 6 4 8 4 2 5 4 6 3 2 1 9 3 9 6 2 8 4 1 7 5 2 1 5 3 7 6 8 4 9 8 7 4 1 9 5 6 3 2 7 6 9 5 4 3 2 8 1 1 2 3 9 6 8 7 5 4 4 5 8 7 2 1 9 6 3 9 8 2 4 3 7 5 1 6 5 3 7 6 1 9 4 2 8 6 4 1 8 5 2 3 9 7 8 1 4 2 5 6 7 9 3 7 9 3 1 4 8 6 2 5 2 5 6 9 3 7 4 1 8 4 7 2 6 8 1 3 5 9 3 8 1 5 9 4 2 7 6 5 6 9 3 7 2 8 4 1 6 2 5 4 1 3 9 8 7 1 3 8 7 2 9 5 6 4 9 4 7 8 6 5 1 3 2 2 6 7 4 8 3 5 1 9 1 5 3 9 7 2 6 8 4 9 4 8 6 5 1 2 7 3 5 8 6 1 9 7 3 4 2 3 7 2 5 6 4 1 9 8 4 1 9 2 3 8 7 6 5 7 2 1 3 4 9 8 5 6 6 3 4 8 1 5 9 2 7 8 9 5 7 2 6 4 3 1 Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3-reit birtist töl- urnar 1-9. Það verður að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má tvítaka neina tölu í röðinni. Í dag er miðvikudagur 14. október, 287. dagur ársins 2009 Orð dagsins: Ef þér fyrirgefið mönnum misgjörðir þeirra, þá mun og faðir yð- ar himneskur fyrirgefa yður. (Matt. 6, 14.) Víkverji var staddur í Kaup-mannahöfn um helgina þegar Danir tryggðu sér farseðilinn á heimsmeistaramótið í knattspyrnu í Suður-Afríku á næsta ári. Gríð- arlegur fögnuður braust út þegar Danir höfðu lagt Svía á heimavelli á laugardagskvöldið og rápuðu syngj- andi hópar um bæinn langt fram eft- ir nóttu. Ekki þótti verra að með sigrinum slökktu Danir nánast vonir Svía um að komast á HM, þeir þurfa að treysta á að Malta, sem ekki hef- ur skorað eitt einasta mark í riðl- inum til þessa og aðeins fengið eitt stig, geri Portúgölum skráveifu. Það verður að teljast harla ólíklegt. x x x Danir hafa löngum staðið sig vel ífótbolta og náð undraverðum árangri miðað við höfðatölu. Þeir hafa iðulega leikið glimrandi skemmtilega knattspyrnu og nægir að nefna leikmenn á borð við Sören Lerby, Preben Elkjær Larsen og Laudrup-bræður til að kalla fram góðar minningar. Sennilega er 6-1 sigur Dana á Úrúgvæ í Mexíkó árið 1986 einn sá fræknasti, en frammi- staða liðsins á Evrópumeist- aramótinu 1992 þess stærsta stund. Þá mistókst liðinu að tryggja sér þátttökurétt, en komst að vegna þess að Júgóslavíu var meinuð þátt- taka þegar gripið var til refsiaðgerða út af átökunum á Balkanskaga. Dan- ir gerðu sér lítið fyrir og urðu Evr- ópumeistarar eftir að hafa sigrað Þjóðverja 2-0 í úrslitaleiknum. x x x Danir hafa greinilega miklarvæntingar til liðsins nú. Dönsku blöðin bentu á það að aldrei áður hefði það gerst að danska landsliðið hefði verið búið að tryggja sér þátttökurétt á stórmóti þegar ein umferð væri eftir í riðlinum, sem lið- ið léki í. Frammistaða danska lands- liðsins í riðlinum hefur verið prýði- leg. Liðið hefur ekki tapað einum einasta leik, unnið sex og gert þrjú jafntefli. Það er vel af sér vikið hjá Dönum að komast áfram, en hvort þeir hampi heimsmeistaratitli í Suð- ur-Afríku í júlí á næsta ári er hins vegar annað mál. víkverji@mbl.is Víkverjiskrifar Krossgáta Lárétt | 1 kvöldmessu, 8 landræk, 9 nothæfan, 10 elska, 11 eldstæði, 13 hagnaður, 15 dýr, 18 nægtir, 21 leðja, 22 borguðu, 23 klampinn, 24 eftirtekja. Lóðrétt | 2 hérað, 3 smáaldan, 4 hugsa um, 5 veiðarfærið, 6 kubba sundur, 7 snjór, 12 tangi, 14 leturtákn, 15 tónverk, 16 skjall, 17 kurf, 18 korgur, 19 stirðu, 20 þyngdareining. Lausn síðustu krossgátu Lárétt: 1 grett, 4 fálát, 7 rífur, 8 risum, 9 næm, 11 aurs, 13 eðla, 14 ósinn, 15 hjal, 17 næpa, 20 ugg, 22 pólar, 23 ritin, 24 romsa, 25 tánum. Lóðrétt: 1 gorta, 2 erfir, 3 turn, 4 form, 5 lasið, 6 tomma, 10 æsing, 12 sól, 13 enn, 15 hopar, 16 aulum, 18 æstan, 19 afnem, 20 urta, 21 grút. 6 8 11 15 22 1 24 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 7 20 2 16 Skák Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is 1. e4 e6 2. d4 d5 3. exd5 exd5 4. Rf3 Bd6 5. Bd3 Bg4 6. O-O Rc6 7. c3 Rge7 8. h3 Bh5 9. He1 Dd7 10. Rbd2 f6 11. b4 O-O 12. Rf1 Bg6 13. Rh4 Bxd3 14. Dxd3 Rd8 15. Re3 Rf7 16. Bd2 Hfe8 17. He2 c6 18. Hae1 Bf4 19. Ref5 Bd6 20. Df3 Rg6 21. Dg4 Hxe2 22. Hxe2 Dd8 23. Rxg6 hxg6 24. Dxg6 Bf8 Staðan kom upp í Evrópukeppni taflfélaga sem lauk fyrir skömmu í Ohrid í Makedóníu. Stefán Arnalds (2002) tefldi fyrir Taflfélag Bolung- arvíkur og hafði hér hvítt gegn Finn- anum Teemu Vihinen (2150). 25. He7! Dxe7 26. Rxe7+ Bxe7 27. Df5 hvítur hefur nú gjörunnið tafl. Framhaldið varð eftirfarandi: 27…Hd8 28. Bf4 Bd6 29. b5 Bxf4 30. Dxf4 cxb5 31. Dc7 a6 32. Dxb7 Hd6 33. Dc8+ Kh7 34. Df8 Kg6 35. h4 f5 36. De7 Hc6 37. h5+ og svartur gafst upp. Hvítur á leik. Brids Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is Vandræðabarn. Norður ♠Á875 ♥G ♦Á72 ♣ÁD1092 Vestur Austur ♠D92 ♠64 ♥ÁD95 ♥K10763 ♦KD3 ♦10 ♣G73 ♣K8654 Suður ♠KG103 ♥842 ♦G98654 ♣-- Suður spilar 5♠. Opnun á tígli er til vandræða í Prec- ision-kerfinu, ekki síst ef búið er að fórna opnun á 2♣ undir veikar djöfla- hendur. Þá verður að byrja á 1♦ með spil norðurs. Það gerði Eric Rodwell í undanúrslitaleik við Kínverja á HM. Austur passaði og Jeff Meckstroth svaraði á 1♠. Nú blandaði vestur sér í sagnir með dobli og fyrr en varði barst leikurinn upp á fimmta þrep, þar sem Meckstroth freistaðist til að berjast í 5♦ yfir 5♣ austurs. Sagnir enduðu í 5♠. Meckstorth fékk út lauf, prófaði drottninguna og trompaði kónginn. Spilaði svo hjarta. Austur tók slaginn og skipti yfir í ♦10 – gosi, drottning og ás. Nú kom spaði á kóng og ♠G svínað. Svo ♦6, sem vestur dúkkaði. Meckstr- oth yfirdrap þá með sjöu, tók ♣Á og trompaði niður gosann. Ellefu slagir! (21. mars - 19. apríl)  Hrútur Þú getur ekki ætlast til þess að aðrir viti hvað þú hugsar ef þú ert ekki maður til þess að segja þeim það sjálfur. Leggðu þitt af mörkum með því að sýna skilning og umburðarlyndi. (20. apríl - 20. maí)  Naut Það er rangt að láta eigið skap bitna á öðrum. Hugsun þín er skörp og í jafn- vægi um þessar mundir og þú munt ná ár- angri í starfi. (21. maí - 20. júní)  Tvíburar Þú þarft að setja saman trausta aðgerðaáætlun. Fólk tekur aðrar ákvarð- anir en þú býst við og það hefur bein áhrif á þig. Sýndu tillitssemi. (21. júní - 22. júlí)  Krabbi Einhver leggur stein í götu þína, en það er tímabundin hindrun. Hlustaðu vandlega á það sem sagt er og reyndu að taka fagmannlega á málunum. (23. júlí - 22. ágúst)  Ljón Ef þú freistast til þess að skipta þér af annarra málefnum skaltu ekki búast við því að geta sinnt eigin skyldum á með- an. (23. ágúst - 22. sept.)  Meyja Þú gætir auðveldlega hneykslað fólk í dag en láttu það ekki angra þig. Reyndu samt að missa ekki sjónar á vel- ferð þinna nánustu. (23. sept. - 22. okt.)  Vog Þú nýtur talsverðrar athygli um þess- ar mundir, kannski vegna þeirrar stöðu sem þú gegnir. Tækifærið bíður handan hornsins en vandaðu val þitt. (23. okt. - 21. nóv.) Sporðdreki Þú færð hugsanlega óvænta gjöf í dag. Það eru miklar líkur á því að vinnuaðstæður þínar muni breytast til batnaðar á árinu. (22. nóv. - 21. des.) Bogmaður Það er löngu tímabært að þú sýnir ástvinum hvern hug þú berð til þeirra. Gerðu áætlanir tengdar listsköpun og fríi. Drífðu í þessu. (22. des. - 19. janúar) Steingeit Notaðu nú tækifærið og jafnaðu ágreining þinn við gamlan vin. Breyttu um aðferð og vertu ögn þolinmóðari í framsetningu. (20. jan. - 18. febr.) Vatnsberi Þú munt hugsanlega kvarta undan foreldrum þínum við systkini þín í dag. Einkar hvetjandi verður að fá fréttir af því að fjárhagsleg umbun er hugsanleg. (19. feb. - 20. mars) Fiskar Þú skalt vera skýr í öllum sam- skiptum við aðra. Atvinnutækifærin sem þú girnist eru nær en þig grunar. Sá væg- ir sem vitið hefur meira, segir máltækið. Stjörnuspá 14. október 1863 Fjórir Þingeyingar komu til Rio de Janeiro eftir þriggja mánaða ferð frá Akureyri, með viðkomu í Danmörku. Þetta var upphaf ferða til Brasilíu en þær urðu undan- fari fólksflutninga til Kanada og Bandaríkjanna um og upp úr 1870. 14. október 1939 Laxárvirkjun, rafstöð Akur- eyrar við Laxárfossa í Þing- eyjarsýslu, tók til starfa. Hún var 2000 hestöfl og fengu Ak- ureyringar þá „nóg rafmagn til ljósa, suðu og iðnaðar,“ að sögn Þjóðviljans. 14. október 2006 Tónverkið Edda I eftir Jón Leifs var flutt í fyrsta sinn í heild í Háskólabíói. „Tímamót í íslenskri tónlistarsögu,“ sagði gagnrýnandi Morgun- blaðsins. Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson. Þetta gerðist… Maren Ósk Eggertsdóttir, Sólrún Hulda Sigtryggsdóttir og Hulda Magnea Árnadóttir héldu tombólu við verslunina Samkaup Strax við Byggðaveg á Akureyri. Þær söfn- uðu 2.300 kr. sem þær styrktu Rauða krossinn með. Á myndinni eru Maren Ósk og Sólrún Hulda. Hlutavelta SIGURÐUR Grétar Guðmundsson, vatns- virkjameistari og orkuráðgjafi, er 75 ára í dag. Hann er fæddur að Sandhólaferju í Rangár- vallasýslu en fluttist 13 ára til Kópavogs, bjó þar samfellt til ársins 2002 þegar hann flutti til Þor- lákshafnar og hefur búið þar síðan að Lýsubergi 6. Sigurður Grétar hefur komið víða við á lífsleið- inni, lærði ungur pípulagnir en stundaði einnig nám í Leiklistarskóla Ævars Kvaran. Iðnin varð hans lifibrauð en hann lék einnig mörg hlutverk í leikritum hjá Leikfélagi Kópavogs og víðar. Hann hefur tekið virkan þátt í félagsmálum, sat í bæjar- stjórn Kópavogs frá 1966-1974 og var varaþingmaður Alþýðubanda- lagsins 1967-1971. Hann skrifaði pistlana Lagnafréttir í Morgun- blaðið vikulega í rúm 16 ár. „Ég fæ mér svínakótilettur og tek því rólega með konunni,“ segir Sigurður Grétar um verkefni dagsins, en hann býður ættingjum, vin- um, velunnurum og nágrönnum að líta til sín og konu sinnar, Helgu Harðardóttur, í Versali í Ráðhúsi Ölfuss klukkan 17-19 laugardaginn 17. október. „Ég held alltaf upp á afmælið að einhverju leyti en ekki með svona látum eins og núna,“ segir hann. steinthor@mbl.is Sigurður Grétar Guðmundsson er 75 ára Afmælishófið á laugardag Nýbakaðir foreldrar? Sendið mynd af barninu til birtingar í Morgunblaðinu Frá forsíðu mbl.is er einfalt að senda mynd af barninu með upplýsingum um fæðingarstað, stund, þyngd, lengd, ásamt nöfnum foreldra. Einnig má senda tölvupóst á barn@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.