Morgunblaðið - 14.10.2009, Qupperneq 33

Morgunblaðið - 14.10.2009, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. OKTÓBER 2009 FRÁ LEIKSTJÓRA 40 YEAR OLD VIRGIN OG KNOCKED UP. STÓRKOSTLEG GRÍNMYND MEÐ ÞEIM ADAM SANDLER, SETH ROGEN OG ERIC BANA. BYGGÐ Á SANNSÖGU- LEGUM ATBURÐUM ATH. ALLS EKKI FYRIR VIÐKVÆMA HHHH HULDA GEIRSDÓTTIR, RÁS 2 FRÁ FRAMLEIÐANDANUM PETER JACKSON KEMUR EIN BESTA MYND ÞESSA ÁRS! A REACH FOR EXCELLENCE THAT TAKES BIG RISKS.“ 100/100 – SAN FRANCISCO CHRONICLE „IT’S THE WORK OF A MAJOR TALENT.“ 88/100 - ROLLING STONES. „CAREFULLY WRITTEN DIALOGUE AND CAREFULLY PLACED SUPPORTING PER- FORMANCES -- AND IT’S ABOUT SOMETHING.“ 88/100 – CHICAGO SUN-TIMES BÍÓ GESTIR TJÁ SIG Á FACEBOOK - Æðisleg! - Algjört meistarverk!! - Myndin er geeðveik! :D - sá myndina þína í dag þú er idolið mitt sveppi - Þetta er geðveik mynd!!!! Allir að fara á hana - Langbesta myndin líka - Sveppi á erindi til okkar allra - hún er geeeðveik - Snillddddddd - Besta fjölskyldumyndin síðan MEÐ ALLT Á HREINU - Hún er jafn fyndin fyrir fullorðna! - Strákurinn minn er enn með stjörnur í augunum - Krakkarnir tala ekki um annað! YFIR 20.000 GESTIR FYRSTU 2 VIKURNAR VINSÆLASTA MYNDIN AÐRA VIKUNA Í RÖÐ Á ÍSLANDI SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI, OG AKUREYRI SÝND Í ÁLFABAKKA OG AKUREYRI SÝND Í KRINGLUNNI SÝND Í ÁLFABAKKA SÝND Í ÁLFABAKKA OG SELFOSSI / SELFOSSI FAME kl. 8 - 10:20 L JENNIFER'S BODY kl. 8 16 DISTRICT 9 kl. 10:20 16 / KEFLAVÍK FAME kl. 8 - 10:20 L ORPHAN kl. 8 - 10:30 16 / AKUREYRI kl. 6 L kl. 8 L kl. 5:40 12 kl. 8 L ÚTGÁFUfyrirtækið fríska og fjör- uga, Kimi Records, stendur í kvöld fyrir sérstöku kvöldi á NASA þar sem helstu skjólstæðingum þess verður teflt fram. Einblínt verður á þá listamenn útgáfunnar sem eru með plötu í farteski en fram koma Me, The Slumbering Napoleon, Retrön, Morðingjarnir, Reykjavík!, Sudden Weather Change og Kim- ono. Sænski poppprinsinn Juvelen er svo sérstakur gestur kvöldsins Kimi Records flaggar sínu á NASA í kvöld HEFÐ hefur skapast fyrir því að út- gáfufyrirtæki, tímarit og ýmsir þeir sem tengjast tónlistinn tryggðar- böndum standi fyrir eigin kvöldum. Auk Kimi Records munu Moshi Moshi og Bedroom Community standa að eigin kvöldum en einnig aðilar á borð við Kerrang!, Clash Magazine, Bugged Out, Rás 2, PZ, Kronik, ATG (Ahead Of the Game), Breakbeat.is, Weirdcore, Grapevine, Grapewire, Reyk Week, Goethe, SESAC and many more. Heill hellingur af sérstökum kvöldum Á MEÐAN á hátíðinni stendur verð- ur hægt að fylgjast með útsend- ingum frá hinni svonefndu Airwaves TV, en efni á henni verður uppfært á tveggja til þriggja klukkustunda fresti á meðan að hátíð stendur. Þar má finna viðtöl, fréttir, upptökur frá tónleikum o.fl.. Hægt er að nálgast hlekk á stöðina á forsíðu mbl.is. Airwaves keyrir eigin sjónvarpsstöð út hátíðina ÞAÐ sem hefur í gegnum tíðina aukið á þá góðu stemningu sem leikur um Airwaves er að vegna hins mikla hátíð- arbrags sem fyllir stræti og torg mið- borgarinnar vilja allir vera með. Staðir sem hýsa ekki formlega dagskrá halda engu að síður tónleika þannig að „tón- leikahýslar“ skipta mörgum tugum en á hátíðinni koam fram - samanlagt - yf- ir 200 listamenn og sveitir. Af stöðum utan alfaraleiða eða „off venue“ eins og það er kallað má nefna 12 Tóna, Ba- balú, Cultura, Eymundsson, HAVARÍ Hemma og Valda, Hitt Húsið, Kaffistofu, Lost Horse Gallery, Naked Ape, Prikið og Skífuna. Nóg í gangi utan alfaraleiða HLJÓMSVEITIN Cynic Guru, sem er leidd af fiðluleikaranum knáa Roland Hartwell, spilar í kvöld á Sódómu Reykjavík. Sveitin sú fór í mikla frægðarför til Georgíu af öllum löndum fyrr á árinu, og lék sem eitt aðalnúmerið á tónlist- arhátíð í höfuðborginni, Tbilisi Open Air. Eftir að Loftbylgjustuði lýkur mun sveitin snúa aftur til Georgíu til hljómleikahalds þar, en landsmenn þar fá víst aldrei nóg af Hartwell og co. Gúrúinn kaldhæðni spilar en er svo farinn til Georgíu! Eftir Árna Matthíasson arnim@mbl.is SKAGASVEITIN Cosmic Call er ekki alveg ný af nálinni, en þó það ný að hún hefur ekki spilað á Airwaves áður. Frumraunin verður því í kvöld þegar hún treður upp á Grand Rokk. Sveitina skipa þau Fjölnir Gíslason, Sigurmon Hartmann Sigurðsson, Bergþóra Sveinsdóttir, Pétur Ingi Jónsson og Ása Katrín Bjarnadóttir. Fjölnir verður fyrir svörum þegar leitað er upplýsinga um sveitina og hann segir að það sé mikil hugur í meðlimum, æfingar hafi verið strang- ar og þau séu öll sjóðheit fyrir vikið. „Við stefnum náttúrlega að heims- yfirráðum,“ segir hann og skellir upp- úr, en bætir svo við af meiri alvöru að sveitin geri sér engar sérstakar vonir um að þátttakan í Airwaves eigi eftir að skila nokkru, en þau muni þó leggja sig fram sem mest þau mega. Ekki er bara að Cosmic Call spili á Grand Rokk í kvöld, heldur hyggst hún líka spila utan eiginlegrar dag- skrá; verður á Dillon á fimmtudags- kvöld, á Bar 11 föstudagskvöld og svo stendur líka til að spila í Flensborg. Að auki verður sveitin með nýlega stuttskífu sína til sölu og hefur dreift henni í helstu plötubúðir. Að sjá sjálfan sig spila Fjölnir segist hafa sótt hátíðina áð- ur og haft gaman af. Hann segist vera spenntastur fyrir því sem íslensku sveitirnar séu að gera enda sé fullt eins mikið af forvitnilegri músík í boði hér á landi og í hvaða stórborg er- lendri. „Ég myndi náttúrlega vilja sjá sjálfan mig spila ef ég gæti,“ segir hann og hlær við, „en svo er ég spenntur að sjá Pascal Pinon, Útidúr og Sing For Me Sandra, sem eru öll að spila með okkur á Grand Rokk, en líka Vicky Pollard, Mammút, Nögl og Retro Stefson.“ Sveinsprófið Cosmic Call Fullt af forvitnilegri músík Skagakrakkar Cosmic Call þreytir frumraun sína á Airwaves í kvöld. Cosmic Call spilar á Grand Rokk í kvöld og hefur leik sinn kl. 20.20. Eftir Árna Matthíasson arnim@mbl.is AIRWAVES rúllar af stað í kvöld og í boði er ný íslensk tónlist með lítilræði af sænsku poppi í bland. Meðal sveita sem stinga í samband í kvöld er Kimono, sem kom fyrst fram á Airwaves fyrir sjö árum. Kimono á það til að hverfa löngum stundum en birtast svo aftur tvíefld þegar minnst varir. Hún snýr nú aftur með bunka af nýjum lögum og plötu nánast tilbúna, að því er Alex McNeil segir. „Við erum að ljúka við plötuna, Easy Music for Difficult People, og vonumst til að klára hana í næstu viku.“ Aðspurður um það hvað valdi því að sveitin eigi það til að hverfa segir hann að margt komi til en aðallega þó bassaleikaravandræði sem þeir félagar hafi glímt við und- anfarin ár, en nú eru þau vandamál að baki og Kimono bú- ið að finna fjölina sem tríó. „Gylfi [Blöndal] spilar á bassa í einu lagi en annars hljómar gítarinn hjá honum nálægt bassa og það dugir til og vel það,“ segir Alex og bætir við að það væri ósanngjarnt að fara að bæta manni við í sveit- ina því þeir félagarnir hann, Gylfi og Kjartan Bragi Bjarnason hafi þraukað saman svo lengi að það væri á fárra manna færi að slást í hópinn. „Við veltum því fyrir okkur að fá bassaleikara með okkur til að spila gömlu lög- in, en langaði svo ekkert til þess,“ segir hann og fyrir vikið verður öll músík ný af nálinni í kvöld. Kimonokjarninn Til að auðvelda væntanlegum tónleikagestum að gera upp hug sinn er Alex beðinn að lýsa tónlistinni sem verður í boði enda Kimono þekkt fyrir sínar snörpu beygjur á rokkhraðbrautinni. „Tja, ég vona að Kimonokjarninn sé á sínum stað, en það má eiginlega lýsa þessu svo að við höf- um aukið hraðann aðeins, þetta er meira pönk.“ Ef allt gengur eftir kemur platan nýja út á næstu vikum og verður hún kynnt hérlendis sem erlendis en sveitin fer væntanlega út í desember til að gera jólainnkaupin og til að spila í Berlín og Brussel og fleiri evrópskum stór- borgum. Í janúar er svo fyrirhuguð meiri spilamennska ytra, enda segir Alex að það sé fullur hugur í mönnum að spila sem mest þó ekki séu þeir í leit að erlendum frama, það sé bara svo gaman að spila fyrir ný eyru. Heimasveit Kimono Meira pönk! Pönkarar Kimono kynnir nýtt efni á NASA í kvöld. Kimono spilar á NASA í kvöld kl. 23.30.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.