Morgunblaðið - 16.10.2009, Page 40
Án hvers geturðu ekki verið?
Fyrir utan börn og konu er það sennilega sími
og internet.
Hvar læturðu helst til þín taka á heimilinu?
Ég er lunkinn í eldhúsinu, að ganga frá, setja í
uppþvottavél og svona.
Ætlarðu að kaupa nýja EGÓ diskinn? (spyr sein-
asti aðalsmaður, Jakob Smári bassaleikari).
Ég þori ekki öðru, enda topphljómsveit.
Áttu Suzuki?
Nei en ég ek um á Suzuki Grand Vitara.
Getur þú lýst þér í fimm orðum?
Jákvæður, stundvís, glaður, lítill og kærulaus
Hvaða persónu myndirðu vilja hitta?
Ég væri til í að hitta Mick Jagger. Það er eitt og
annað sem ég þarf að ræða við hann, ýmsir laus-
ir endar sem við þurfum að ganga frá
Hvernig myndir þú vilja deyja?
Það væri töff að vera gamall maður og deyja í
beinni útsendingu.
Borðarðu mikið af sveppum?
Ekkert svona brjálæðislega mikið en mér finnst
þeir mjög góðir, viðurkenni að þegar ég kaupi í
Pulsu með öllu hjá Bæjarins beztu.
Uppáhalds Prúðuleikari?
Ætli það sé ekki Dýri.
Býrðu yfir leyndum hæfileika?
Já, fullt af þeim og þeir eru ekkert það leyndir
lengur. Ég get verið með hluti á nefinu og
geng á höndum eins og vindurinn.
Ef þú ættir að taka þér annað gríp-
andi listamannsnafn, eins og t.d.
Lady Gaga, hvert væri það?
Sveddi Skrípó.
Hvernig fagnarðu marki í fót-
bolta?
Reyni yfirleitt að fara í koll-
hnís án handa.
Segðu eitthvað um Eið
Smára sem hann vill ekki að
fólk viti um hann.
Hann er mikill letingi.
Hvers viltu spyrja næsta við-
mælanda?
Er Auðunn Blöndal snoð-
aður eða sköllóttur?
matinn sting ég einum upp í mig.
Gísli Rúnar er....?
... hann er náttúrlega snillingur!
Hefur þú hugleitt að bjóða þig fram til forseta?
Mmmm... ég get nú ekki sagt það. Ég myndi
aldrei gera það, þá fyrst yrði nú grafinn upp
skítur um mig sem ég vil ekki að komi í ljós.
Ef þú værir trélitur, hvernig værirðu á litinn?
Ég væri líklega dálítið blár með dassi af gulu.
En ef þú værir tré, hvernig tré værir þú?
Ég væri jólatré.
Er allt að fara til fjandans?
Nei, það held ég nú ekki. Er ekki alltaf allt að
fara til fjandans einhvern veginn?
Hversu mikill snillingur er útlitsgúrúinn Karl
Berndsen á skalanum 1-10?
Það má eiginlega segja að hann sé 10. Hann er
viðkunnanlegur, góður sjónvarpsmaður og
skemmtilegur, hann er Berndsen og hann er
frændi minn.
Hver er þinn helsti kostur?
Ætli það sé ekki hvað ég er góður bílstjóri.
Hvað færðu ekki staðist?
„ÉG GET VERIÐ MEÐ HLUTI Á NEFINU“
AÐALSMAÐUR VIKUNNAR, SVERRIR ÞÓR SVERRISSON EÐA SVEPPI, ER STJARNA KVIKMYNDARINNAR ALGJÖR
SVEPPI OG LEITIN AÐ VILLA SEM GERIR ÞAÐ GOTT NÚ UM STUNDIR Í ÍSLENSKUM KVIKMYNDAHÚSUM
Sveppi með nýjan
barnaþátt.
40 MenningFÓLK
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. OKTÓBER 2009
Ein allra öflugasta dauðarokks-
sveit landsins í dag er Beneath en
þar heldur um hljóðnemann eng-
inn annar en Gísli Sigmundsson
sem leiddi í eina tíð hina goð-
sagnakenndu Sororicide. Hljóm-
sveitin hefur nú gert samning við
kalifornísku útgáfuna Mordbrann
sem sérhæfir sig í útgáfu á þungri
tónlist frá Skandinavíu. Mor-
dbrann mun gefa út sex laga stutt-
skífu með sveitinni í nóvember
sem ber nafnið Hollow Empty
Void.
Íslenskt dauðarokk
til Bandaríkjanna
Fólk
ÞEIR eru góðir vinir og senda frá sér diskinn
Vinalög á morgun. Söngfuglarnir Jógvan Hansen
og Friðrik Ómar leiddu saman krafta sína á nýjum
geisladiski þar sem þjóðerni þeirra réð lagavalinu.
Friðrik syngur tíu þekkt dægurlög Færeyinga
sem hafa verið þýdd á íslensku og Jógvan flytur
tíu þekkt íslensk lög á færeysku.
„Platan kemur í búðir á morgun og útgáfu-
tónleikar í Salnum í kvöld og annað kvöld kl.
20.30,“ segir hinn færeyski Jógvan hress.
Spurður hvað gæti komið Íslendingum á óvart
við færeysku lögin sem Friðrik syngur á íslensku
segir Jógvan það helst vera tungumálið. „Tungu-
málin eru svo lík og þó textarnir séu þýddir er
margt eins. Íslendingar ættu að geta sungið með
færeyskunni. Annars eru íslensku lögin á disknum
poppaðri en þau færeysku eru meira út í vísna-
tónlist.“
Á útgáfutónleikunum um helgina skiptast Jógv-
an og Friðrik á að syngja lögin en taka líka nokkur
saman. „Það eru lög sem við syngjum saman eins
og „Rómeó og Júlía“ eftir Bubba, þá syng ég á fær-
eysku og Friðrik á íslensku en það heyrist varla
munur,“ segir Jógvan. Þeir félagar halda svo til
Færeyja þar sem þeir verða með tónleika í Norð-
urlandahúsinu um næstu helgi. ingveldur@mbl.is
Syngja Rómeó og Júlíu á íslensku og færeysku
Vinir Jógvan og Friðrik senda frá sér Vinalög.
Nú er hinn ágæti sjónvarps-
maður Egill Helgason byrjaður
að keyra hina ágætu þætti sína
Kiljuna í Sjónvarpinu. Þættirnir
eru listavel uppbyggðir, skipt
upp í hæfilega stutt og fjöl-
breytileg innslög þannig að at-
hyglin helst út allan þáttinn. Það
enginn vandi að búa til fúlan og
upptrekktan þátt um bókmenntir
en slíkt virðist með öllu ómögu-
legt í tilfelli Egils. Draumateymið
Kolbrún og Páll Baldvin fara
þannig iðulega á kostum, Bragi
bóksali segir kersknislegar sögur
af skáldum fyrri tíma og viðtöl
eru alla jafna lifandi og fróðleg.
Einn af kunnustu álitsgjöfum
þjóðarinnar, myndlistar- og
fræðimaðurinn Goddur átti svo
algjört tímamótainnslag í síðasta
þætti þegar hann ræddi um nýút-
komna bók um munstur. Goddur
fór á mikið flug og sleppti aldrei
orðinu – Egill gat með erf-
iðismunum skotið að einu hummi.
Innblásin einræðan varð tilfinn-
ingaþrungnari með hverri mín-
útunni og endaði með guðlegri
tilvísun í fúgur Bachs. Eftir sat
áhorfandinn, búinn á því. Snilld.
Goddur er með munn-
inn fyrir neðan nefið
Eftir Helga Snæ Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
„SVARTUR svanur er myndlíking
sem búin hefur verið til fyrir atburði
sem gerast óvænt, koma líkt og
þruma úr heiðskíru lofti. Viðburðir
þessir valda gjarnan miklum usla en
eftir á að hyggja hefði kannski mátt
sjá þá fyrir.“ Svo segir í texta um
sýningu sem Gjörningaklúbburinn
opnar í Kling & Bang galleríinu kl.
17 á morgun, Svarta svani. Það
fyrsta sem blaðamanni dettur í hug
er Hrunið þegar hann les þennan
texta enda hefur nær öll umræða á
landinu seinasta árið tengst því með
einum eða öðrum hætti. Skyldu þær
Jóní Jónsdóttir, Sigrún Hrólfsdóttir
og Eirún Sigurðardóttir í Gjörn-
ingaklúbbnum hafa verið að velta
Hruninu fyrir sér, þegar þær bjuggu
til svartan svan úr nælonsokkabux-
um og vír?
„Ja, það má alveg tengja það við
þetta hrun ... en við erum kannski
ekki að tala um það sem slíkt heldur
atburði sem virðast alltaf vera að
gerast sem enginn átti von á. Síðan
er þetta kannski ekki það óvænt,
eins og er að koma í ljós með þetta
hrun,“ svarar Sigrún. Ef fólk lesi
rétt úr umhverfi sínu sé hægt að
koma í veg fyrir ýmislegt. Svanurinn
á sýningunni var áður á samsýning-
unni 10 Days on the Island í Tas-
maníu sem þær stöllur tóku þátt í.
Þar fengu þær áhuga á fuglinum
svarta sem er algengur þar.
Skotthúfubomba
Ákveðin föndurhneigð er áberandi
í verkum ykkar, kvenleg líkt og næl-
onsokkar. Er sýningin í þeim dúr?
„Já, það er alveg hægt að sjá
þarna kvenleg element. Það verða
líka þarna tvö verk frá sýninguni í
Safnasafninu, mjög kvenleg,“ svarar
Sigrún og á þar við sýningu klúbbs-
ins þar síðasta sumar. Hún nefnir
sem dæmi verkið „Skotthúfu-
bombu“, skotthúfu sem gerð hefur
verið eftir kúnstarinnar reglum en
minnir á sprengju í teiknimynd.
Hættulegar konur á ferð? „Við erum
náttúrlega konur og gerum hlutina
með okkar lagi,“ segir Sigrún ákveð-
in. „Við höfum mikinn áhuga á þess-
ari handverkshefð og myndgerð-
arhefð sem hefur verið tengd við
konur og viljum að sjálfsögðu gera
því hátt undir höfði,“ segir Sigrún og
minnir á að listasagan hafi verið
skrifuð af körlum og verk kvenna
fengið þar litla athygli.
Gjörningaklúbburinn byggir, líkt
og nafnið bendir til, sitt listræna
starf á gjörningum. Upp úr þeim
hefur hópurinn unnið þrívíð verk,
innsetningar og vídeó en gjörning-
urinn sem listform er ávallt til
grundvallar. Á sýningunni í Kling &
Bang eru ný þrívíð verk til sýnis og
teiknimynd, verk sem sýnd hafa ver-
ið bæði á suður- og norðurhveli jarð-
ar á síðasta ári. Teiknimyndin fjallar
um svartan svan sem breytist gegn
vilja sínum í óvæntan gest. Þá tekur
klúbburinn einnig þátt í Sequences-
hátíðinni í ár, sýnir á henni vídeó-
verk í Regnboganum 31. okt. kl. 16
og 5. nóvember kl. 17. Vídeóverkið
er skrásetning á gjörningi sem
klúbburinn framdi með lúðrasveit-
inni Svaninum í Garðskagavita í vor.
Þá er einnig búið að klippa inn í
verkið senur án áhorfenda.
Ekki svo sjaldséðir svartir svanir
Gjörningaklúbburinn tekur fyrir svarta svani í Kling & Bang
Svartir svanir eru sjaldséðir á Fróni en algengir í Tasmaníu
Gjörningaklúbbur
Morgunblaðið/Heiddi
Sýna svartan svan Eirún Sigurðardóttir, Sigrún Hrólfsdóttir og Jóní Jónsdóttir eru Gjörningaklúbburinn.
Af Vísindavefnum: „Svartur litur
á svönum, sem og öðrum fuglum
og spendýrum, stafar af lit-
arefninu melanín í fjöðrunum. Al-
hvítir svanir eru án þessa lit-
arefnis í fiðrinu.“
„Sennilega eru bæði svartháls-
asvanurinn í Suður-Ameríku og
svartsvanurinn í Ástralíu komnir
af hvítum svanategundum. Þess-
ar tvær tegundir halda sig að
mestu á stöðum þar sem ekki er
ís eða snjór og græða því ekkert á
að nota hvítt sem felulit.“
Um svarta svani