Morgunblaðið - 16.10.2009, Blaðsíða 44
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. OKTÓBER 2009
Íslenskt í öndvegi var yfirskriftþessa fyrsta kvölds Airwaveslíkt og svo oft áður; eiginlega
er miðvikudagskvöldið orðið besta
kvöld hátíðarinnar því þá gefst oft
færi á að sjá það sem ferskast er og
frumlegast í íslenskri músík.
Sl. miðvikudag var og hvergi
betra að vera en á Grand Rokk.
Ekki löngu eftir að ég mætti ástaðinn var komið að Cosmic
Call sem spilar nýbylgjukennt
rokk, eilítið gamaldags á köflum,
svona eins og slíkt rokk var fyrir
tuttugu árum eða svo en ekki verra
fyrir það. Fyrsta lagið ætlaði mig
lifandi að drepa, en það sem á eftir
kom var betra og tvö síðustu lögin
áhrifamikil keyrsla.
Hnáturnar í Pascal Pinon erukrútt í æðra veldi, á annarri
plánetu, krúttplánetunni, og þar er
frábært að vera. Reyndar var svo
mikið skvaldur í salnum að maður
varð að fara upp á svið til að heyra
eitthvað í þeim; rétt hljómsveit á
röngum stað / röngum tíma? Þær
létu skvaldrarana þó ekki slá sig út
af lágværu laginu.
Um það leyti sem Útidúr sté ásvið var andrúmsloftið á
Grand Rokk svo þrungið spennu að
skera mátti það með hníf, eða
kannski klippa með skærum; það
fór ekki á milli mála að stór hluti
gesta var kominn til að berja sveit-
ina augum. Menn fengu og sitthvað
fyrir sinn snúið því svo margar
tónlistarstefnur voru í gangi að all-
ir fengu eitthvað.
Útidúr er ekki gott að skil-greina, kannski mætti grípa
til merkimiðans mikið af öllu. Með
smá meiri aga og snerpu væri hún
framúrskarandi, svo mikið er víst.
Þá var röðin komin að Sing ForMe Sandra; þrælþéttir og vel
undirbúnir, en eiginlega ómögu-
legir í ljósi þess sem á undan var
gengið. Ég fór því á Kimonokvöldið
í Nasa.
Íslenskt í öndvegi
FRÁ AIRWAVES
Árni Matthíasson
»Miðvikudagskvöldiðer orðið besta kvöld
Airwaves því þá gefst
færi á að sjá það sem
ferskast er og frumleg-
ast í íslenskri músík.
Morgunblaðið/Kristinn
Lágvært Stúlkurnar frá Krúttplánetunni – Pascal Pinon – héldu sínu striki.
NORSKA hljómsveitin A-ha lýsti
því yfir í gær að hún ætlaði að hætta
störfum eftir 25 ára samstarf. „Við
höfum í raun upplifað hið endanlega
drengjasveitaævintýri,“ segir í yfir-
lýsingu frá A-ha. Þar kemur einnig
fram að þeir félagarnir geti nú varið
tíma sínum til annarra mikilvægra
hluta. A-ha var mjög vinsæl á níunda
áratugnum og átti marga smelli.
Sveitin gaf nýlega út plötuna Foot
Of The Mountain sem komst í 5. sæt-
ið á breska breiðskífulistanum og 1.
sæti á þeim þýska. Titillag plötunnar
hefur fengið heilmikla spilun hér á
landi. Þetta er í annað sinn sem
sveitin hættir en árið 1993 lagðist
sveitin í dvala í fimm ár. Hún hefur
starfað sleitulaust síðan 1998 við
miklar vinsældir. Allir meðlimir A-
ha hafa ýmist sinnt sólóferli eða ver-
ið í öðrum hljómsveitum samhliða A-
ha. A-ha hefur verið á tónleika-
ferðalagi undanfarið til að fylgja eft-
ir Foot Of The Mountain.
Reuters
A-ha Magne Furuholmen, Morten
Harket og Paul Waaktaar-Savoy.
A-ha hætt
SÝND Í ÁLFABAKKASÝND Í ÁLFABAKKA OG KEFLAVÍK
BYGGÐ Á SANNSÖGULEGUM ATBURÐUM
FRÁ LEIKSTJÓRA 40 YEAR OLD VIRGIN OG
KNOCKED UP. STÓRKOSLEG GRÍNMYND MEÐ ÞEIM
ADAM SANDLER, SETH ROGEN OG ERIC BANA
HHHH
- S.V. MBL
SÝND Í KRINGLUNNI
BRUCE WILLIS ER
MÆTTUR Í HÖRKU-
SPENNANDI MYND
SEM ENGIN MÁ
MISSA AF
MANNLEG FULLKOMNUN
– HVAÐ GETUR FARIÐ
ÚRSKEIÐIS?
SURROGATES
H
HHHH
- K.U. - TIME OUT NEW YORK
"ENTERTAINING AND
INGENIOUS!
- ROGER EBERT
MÖG
88/100 CHICAGO
ROGER EBERT
“MORE SHOCKIN
– PAUL CHRISTEN
“NOT SINCE ‘FAT
DELIVERED SUCH
– MARK S. ALLEN
THE HAUNTING IN CONNECTICUT
ATH. ALLS EKKI FYRIR VIÐKVÆMA
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI OG AKUREYRI
SÝND Í ÁLFABSÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI OG SELFOSSI
SÝND MEÐÍSLENSKU TALI
FRÁ LEIKSTJÓRA CRANK
HÖRKU HASARMYND
ÞÚ SPILAR TIL AÐ LIFA
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI, AKUREYRI, KEFLAVÍK OG SELFOSSI
ÆVINTÝRI, GRÍN
OG GAMAN!
STÓRSKEMMTILEG
MYND FRÁ DISNEY
FYRIR ALLA
FJÖLSKYLDUNA
/ KRINGLUNNI
GAMER kl.8:15D -10:20D 16 DIGITAL DISTRICT9 kl. 10:20 16
SKELLIBJALLAOGTÝNDI... m. ísl. tali kl.4:15D L DIGITAL ALGJÖRSVEPPI kl. 4:15D - 6:15D L
FAME kl. 8:10D L DIGITAL UPP (UP) ísl. tali kl.6:103D L
ORPHAN kl.10:30 16 UPP (UP) ísl. tali kl. 4:15 - 6:15 L
SURROGATES kl. 8:20 12
/ ÁLFABAKKA
GAMER kl. 5:50-8D-10:10D 16 DIGITAL SURROGATES kl. 6 - 8 - 10:20 12
GAMER kl. 4 - 8 - 10:10 LÚXUS VIP ALGJÖR SVEPPI.. kl. 4D - 6D L
SKELLIBJALLA OG... m. ísl. tali kl. 4-6 L FUNNY PEOPLE kl. 8 12
FAME kl. 3:40 - 5:50 - 8 - 10:20 L HAUNTING IN..... kl. 10:40 16
ORPHAN kl.8 -10:40 16 UPP (UP) m. ísl. tali kl. 3:40 L
SURROGATES kl.6 LÚXUS VIP G-FORCE m. ísl. tali kl. 4 L
á allar 3D sýningar merktar með grænu850 krrSPARBÍÓ