Morgunblaðið - 16.10.2009, Blaðsíða 48
FÖSTUDAGUR 16. OKTÓBER 289. DAGUR ÁRSINS 2009
»VEÐUR mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 295 ÁSKRIFT 3390 HELGARÁSKRIFT 2070 PDF Á MBL.IS 1950
SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT
Morgunblaðið bíður
eftir þér þegar þú
vaknar á morgnana
FÓLK Í FRÉTTUM»
Heimild: Seðlabanki Íslands
DOLLARI
STERLINGSPUND
KANADADOLLARI
DÖNSK KRÓNA
NORSK KRÓNA
SÆNSK KRÓNA
SVISSN. FRANKI
JAPANSKT JEN
SDR
EVRA
MEÐALGENGI/VIÐSKIPTAVOG ÞRÖNG
122,67
199,66
119,57
24,59
22,052
17,706
120,99
1,3615
195,59
183,07
Gengisskráning 15. október 2009
122,96
200,15
119,92
24,662
22,117
17,758
121,33
1,3655
196,17
183,58
235,2963
MiðKaup Sala
123,25
200,64
120,27
24,734
22,182
17,81
121,67
1,3695
196,75
184,09
Heitast 12 °C | Kaldast 5 °C
S 10-18 m/s og rign-
ing, fyrst vestantil, en
S 18-23 m/s á annesj-
um NV-lands. Hlýjast á
Norður- og Austurlandi. » 10
Gjörningaklúbb-
urinn tekur fyrir
svarta svani. Mynd-
líking óvæntra at-
burða – og má
tengja við hrun. »40
LIST »
Algengt í
Tasmaníu
ICELAND AIRWAVES»
Farið að hitna í kolunum
– brak og brestir. »43
Britney Spears hef-
ur náð þeim árangri
að komast beint á
topp Billboard-
listans, sú fyrsta í
þrjú ár. »46
FÓLK »
Britney
á þremur
FÓLK »
Spacey og Clooney eru
umslúðraðir. »41
AÐALSMAÐUR »
Sveppi er ánægður með
nefið á sér. »40
Menning
VEÐUR»
1. Fannst látinn á Langasandi
2. Flestir lykilmennirnir farnir …
3. Lýst eftir konu í tengslum við …
4. 6 ára drengur fastur í loftbelg
Íslenska krónan hélst óbreytt
»MEST LESIÐ Á mbl.is
Sveitarstjórinn
hrynheiti Grímur
Atlason situr ekki
auðum höndum í
Dölunum frekar en
fyrri daginn en
föstudaginn næst-
komandi, hinn 23.,
blæs hann til rokkhátíðarinnar Slát-
urs í nýju Reiðhöllinni í Búðardal.
Fram koma m.a. Dr. Gunni, Retro
Stefson og FM Belfast og fá sveit-
irnar greitt í dilkum og sviðakjömm-
um. Meðfram þessu verður lands-
byggðarvæn dagskrá; hrútasýning,
hagyrðingakvöld og Íslandsmeist-
aramótið í rúningi m.a.
TÓNLIST
Rokk og þjóðleg gildi sam-
an í eina sæng í Dölunum
Árni Þór Sig-
urðsson, þing-
maður Vinstri
grænna, var í gær
kjörinn 5. varafor-
seti Alþingis í stað
Álfheiðar Ingadótt-
ur, sem tók nýlega
við embætti heilbrigðisráðherra.
Með kjöri Árna er rofið einveldi
kvenna í forsætisnefnd þingsins, sem
staðið hefur í fimm mánuði, eða 154
daga. Þegar þingið var sett 15. maí
voru forseti þingsins og varaforset-
arnir sex kjörnir, allt konur. Þetta
hafði aldrei áður gerst í sögu þingsins
og vakti að vonum athygli.
STJÓRNMÁL
Árni Þór rýfur einveldi
kvennanna á Alþingi
„Ég var eigin-
lega búinn að
ákveða að hætta en
eftir að Andri Mar-
teinsson ræddi við
mig fannst mér
þetta spennandi
kostur. Andri
kveikti neistann í mér aftur. Ég á
eftir að ganga endanlega frá þessu
með forráðamönnum Hauka og lík-
lega klárast þetta um helgina,“ sagði
knattspyrnumaðurinn Arnar
Gunnlaugsson í gær en hann mun
að öllum líkindum leika með Hauk-
um úr Hafnarfirði í Pepsídeild karla
á næstu leiktíð auk þess að vera að-
stoðarþjálfari liðsins.
FÓTBOLTI
„Var eiginlega búinn
að ákveða að hætta“
Eftir Kristínu Heiðu Kristinsdóttur
khk@mbl.is
„MÉR hlotnaðist sá heiður að fá að kokka fyrir
áttatíu manns á búgarðinum Chef’s Garden í Ohio
en þar ræktar garðyrkjubóndinn Lee Jones há-
gæða grænmeti og kryddjurtir eingöngu fyrir
veitingastaði,“ segir listakokkurinn Einar Gúst-
avsson sem er nýkominn heim úr frægðarför til
Bandaríkjanna. „Þetta hófst allt á því að í vor kom
hingað til lands kona sem er ritstjóri tímaritsins
Art Culinaire Magazine, en það er matreiðslu-
tímarit sem gefið er út fjórum sinnum á ári í
Bandaríkjunum og er með þekktari útgáfum í
heiminum á þessu sviði. Tekin voru viðtöl á nokkr-
um veitingastöðum hér á Íslandi, meðal annars við
mig en þá var ég að vinna á veitingastaðnum Gull-
fossi. Þessi ágæta kona bauð mér síðan á Star
Chefs, matar- og vínráðstefnu í New York, þar
sem ég hitti meðal annars þarlenda kunningja úr
kokkabransanum sem hafa komið hingað á Food
and Fun-hátíðina.“ Ritstjórinn lét ekki þar við
sitja heldur bauð Einari einnig með sér í heimsókn
á fyrrnefndan búgarð í Ohio sem varð til þess að
garðyrkjubóndinn Lee Jones bauð honum að elda
í sínu eftirsótta eldhúsi. „Hann vill skapa beina
tengingu milli bóndans og kokksins og því býður
hann einu sinni í mánuði upp á svokallaðan Earth
to Table Dinner, til að kynna sitt hráefni, og er þá
oft með einhverja gestakokka en svo eru einnig
fastráðnir kokkar í hans frábæra eldhúsi. Þangað
mætti heilmargt fólk í matreiðslugeiranum og það
var gaman að sjá viðbrögð þess við matnum. Virt-
ur geitaostsframleiðandi átti einnig þátt í þessum
kvöldverði og ég notaði ostinn frá honum í mat-
reiðslunni. Þetta var ótrúleg lífsreynsla, Lee Jon-
es er mjög framarlega í sínu fagi og mörgum árum
á undan því sem er að gerast hér heima.“
Einar stefnir á að fara aftur til Bandaríkjanna
og ætlar að freista þess að fá vinnu hjá Lee Jones,
til að fá að kynnast betur öllu því eftirsóknarverða
sem þar er að gerast. Ritstjórinn góði er einnig
með allsérstæða kokkabók í bígerð sem kemur út
á næsta ári og þar verður Einar eitt af viðfangs-
efnunum, ásamt kokkum frá veitingastöðunum
Per Se, Fat Duck og El bulli svo eitthvað sé nefnt,
en bókin mun fjalla um það hvað kokkar borða.
www.chefsgarden.com www.starchefs.com
Kokkur á framabraut
Eldaði á eðalbúgarði í Ohio Í viðtali hjá Art Culinaire, einu helsta matreiðslu-
tímariti heims Verður í bók sem fjallar um það hvað kokkarnir sjálfir borða
Gaman saman Einar ásamt Lee Jones, bónd-
anum góða, í eldhúsinu á Chef’s Garden í Ohio.
FRANSKT
bókaforlag ætlar
að gefa út allar
fjórar bækur
Yrsu Sigurðar-
dóttur á næst-
unni og var
samningur þess
efnis undirrit-
aður á bóka-
kaupstefnunni í
Frankfurt í gær.
„Við erum mjög ánægð með
þennan samning,“ segir Pétur Már
Ólafsson, útgefandi hjá Veröld.
Hann bætir við að hann muni ekki
eftir svona íslenskum fjögurra bóka
samningi og franska fjölskyldu-
forlagið Anne Carrière ætli sér
mjög stóra hluti með Yrsu. Stefnt
sé að því að fyrsta bókin komi út á
næsta ári og hinar fljótlega eftir
það. Áhersla verði lögð á norrænar
bækur á bókakaupstefnunni í París
2011 og ætlunin sé að gera Yrsu þar
hátt undir höfði.
Bækurnar sem um ræðir eru
Þriðja táknið, Sér grefur gröf, Aska
og Auðnin. Fleiri forlög sýndu
áhuga en Pétur Már segir að valið
hafi verið auðvelt. „Það er betra að
vera laukur í lítilli ætt en strákur í
stórri,“ segir hann. steinthor@mbl.is
Einstakur
útgáfu-
samningur
Allar bækur Yrsu
gefnar út í Frakklandi
Yrsa
Sigurðardóttir
SÚ var tíðin að jólasveinarnir í Rammagerðinni í Hafn-
arstræti birtust í gluggum verslunarinnar í byrjun des-
ember. Í huga barna í Reykjavík voru það fyrstu merki
þess að jólin væru í nánd. Jólasveinarnir hafa verið að
birtast í búðargluggunum æ fyrr og í gær var hún
Andrea í Rammagerðinni að koma þeim fyrir á sínum
stað, að þessu sinni um miðjan október. Jólaskreyt-
ingar hafa verið settar upp í nokkrum verslunum og á
götum höfuðborgarinnar má víða sjá jólaskreytingar,
sem gleðja fólkið í myrkrinu.
Morgunblaðið/Ómar
SNEMMA Á FERÐINNI