Skólablaðið - 01.03.1936, Side 3
ar, sem nú er sð deyja út, Þangað til sð
Þið og niðjar ykksr lendið í klóm brezka
ljónsins, fyrirlitnir af öllum, eða viljið
Þið taka höndum saman og vera Islendingar
fyrst og fremst, afma Þann smánarblett, sem
vesalingar hafa saurgað hreinan skjöld
Þjóðarinnar með, berjast fyrir sjalfstæði
landsins, siðferðislegu og andlegu, og fá
sigur eða bane?
Hörður ÞórhellBSon.
Atb. - H.3?. hefir leyft að birt sé svar
í Þessu blaði. Það fer hér á eftir.
ÞJðÐERHISFYRIRLITHING?
ÞRÆLSLEGHR HUGSUNARHÁTTHR ?
H. Þ. kemur fram með í grein sinni hug-
leiðingar m Það, hvaða stjómmálaflokkar
hér beri velferð íslands og algert sjalf-
stæðd Þess, andlegt og fjárhagslegt, fyrir
brjósti, Hann kemst að Þeirri niðurstöðu,
að enginn Þeirra geri Það.
Pyrst tekur hann fyrir tvo flokka, sem
hann kallar erlenda öfgaflokka, Þjóðemis-
sinnaflokkinn eða nazista og Kommúnista-
flokkinn. Það ma skjóta Þvx hér inn í að
Það er afar hæpið að kalla einhvem sérstak-
an flokk eða stefnu erlenda, Því Það má
kalla hvaða flokk hér sem væri og benda a
annan flokk erlendis, hvar sem væri, sem
hefir sömu stefnu x aðalatriðum. Þá neetti
alveg eins kalla alla flokka hér erlenda.
H.Þ. kemst 8ð Þeirri heilbryggðu niðurstöðu
að á nazistum sé ekkert að byggja, Þeir
muni frekar bera hag Þjóðverja fyrir brjósti
en Islendinga. Þetta er nú gott svo langt
sem Það nær, en hann fer harkalega út af
línunni Þegar hann kemur að kommúnista-
flokknum. Hvað honum viðkemur tekur hann
upp allar firrur, hringavitleysur og lygsr
nazistanna, sem hann er búinn að fordæma ■
nokkrum lxnum ofar. H.Þ. finnst Það voða-
legt að Kommúnistaflokkurinn vilji móta
hugsunarhátt og lífsskoðanir manna. Hann
segir eklcert um hvemig hugsunarhátt og
lífsskoðanir kommúnistaflokkurinn vill að
menn hafi. Hann segir að Kommúnistaflokkur-
inn fyrirlíti Þjóðemið, og hann segir enn
að évextir Þessa flokks séu "Þessir svoköll-
uðu rithöfundar og sorprit Þeirra, leirskáld- i
in og svo urmull af slæpingjxim og Þjóðleys-
ingjum" og enn að í kommúnismanum birtist
Þrælslegur hugsunerháttur fram úr öllu hófi.
Ekki munu Þessi ummæli H.Þ. um Kommúnista-
flokkinn stafa af heimsku, heldur munu Þau
stafa af megnri vsnÞekkingu á kommúnismanum.
Hann sækir "rökin" til erkifjanda kommúnism-
ans, íhalds og nazista. En nú skulum við taka
Þessi ummæli til nánari athugunar.
Við vitum að lífsskoðanir manna og hugsun-
arhéttm- mótast mjög a.f Því umhverfi, sem
Þeir lifa í. Þannig mótar Það Þjóðskipulag,
sem við eigum nú við að búa, skiljanlega
mjög hugsunarhétt okkar. Það elur á Þann
hugsunarhatt að vera sjllfum sér nógur að
hugsa ekkert um náungann, við eigum að
keppa miskunnarlaust við hann og nota Þar
öll brögð, og er Þar Því miður aðeins um að
ræða miður heiðarleg brögð, sem sagt, við
eigum að "slá okkur upp" á kostnað náungans.
Spillingin í auðvaldsÞjóðfélaginu hefur og
geigvænleg éhrif á hugsunarhltt okkar,og svo
mætti lengi telja. Slíkum lífsskoðunum og
hugsunarhætti vilja kommúnistar breyta meö
Því að afnema orsökina, auðvaldsskipulagið,
og byggja annað nýtt Þjóðfélag, sem ekki
byggist á einkaeignarétti og arðráni, Þjóð-
félag socialismans, sem byggist á bræðralogi
og sameign. Slíkt Þjóðfélag mun móta Þann
hugsunarhátt og Þo lífsskoðun, sem er sannri
menningu samboðin.
Að k'ommúnistar fyrirlíti Þjóðernið er hin
furðulegasta firra, sem fljótlega skal af-
sönnuð. Við skulum líta til Rússa, foringja
allra kommúnista. Pyrirlíta Þeir Þjóðemið?
Kei, öðru nær. Þeir gera allt, sem í Þeirra
valdi stendur til Þess að vemda Þjóðerni
og frelsi Þeirra hundraða. Þjóða, sem eru
innan Sovétlýðveldanna. Rúsaar, einir allra
stórveldanna, fordæma alla landránapólitík. -
En kommúnistar allsstaðar í heiminum fordaana
einnig allan Þjóðemisgorgeir, en viljo
bræðralag allra Þjóða, sem Þýðir afnám auð-
valdsskipulagsins og afnám allra styrjalda.
Þé kemur H.Þ. að ávöxtum Kommúnistafloklcs-
ins. Mér feætti vaaat um ef H.Þ. við tækifTsri
vildi upplýsa mig um Það hverjir "hinir svo-
kölluðu rithöfundar", sorprit, leirskáld,
slæpingjar og Þjóðleysingjar, séu, sem hann
talar um, að séu ávextir Kommúnistaflokksin.':..
Þá komum við að hinum Þrælslega hugsunsr-
hætti kommúnismans. E]cki nefnir H.Þ. nein
dami um Þennan Þrælslega hugsunarhátt, Þoð
er út í loftið eins og ðnnað í grein hans,