Organistablaðið - 01.11.1982, Blaðsíða 5
Kristján Sigtryggson og
Gústnf'Jóhannesson
13. norræna
kirkju-
tónlistarmótið
Fimmtudaginn 19. ágúst lögðum við 4 íslendingar af stað með flugvél Flugleiða
frá Keflavíkurflugvelli og var ferðinni heitið til Álaborgar í Danmörku á norrænt kirkju-
tónlistarmót, það 13. í röðinni.
Fyrsta mótið var haldið 5.-7. mai árið 1933 í Stokkhólmi undir traustri stjórn David
Áhlén. Síðan hafa þau verið nokkurn veginn reglulega á 4 ára fresti og röðin er
alltaf sú sama: Svíþjóð, Finnland, Danmörk, Noregur og ísland. Næsta mót verður
því í Noregi árið 1986 og röðin kemur að íslandi árið 1990 í þriðja sinn, en mótin
voru á íslandi árin 1952 og 1970. Félag íslenskra organleikara var stofnað árið
1951 i tengslum við þetta mót.
Öll hafa þau borið svip norrænnar hámenningar, verið vettvangur umræðu um kirkju-
tónlist og þróun hennar, og þó sérstaklega gefið þátttakendum kost á að hlýða á
og taka þátt í vönduðum flutningi kirkjutónlistar í guðsþjónustum og á konsertum.
Ferðafélagar mínir voru Gústaf Jóhannesson organleikari Laugarneskirkju i
Reykjavík, Halldór Vilhelmsson óperusöngvari og kona hans Áslaug Ólafsdóttir tón-
menntakennari.
Ferðin gekk að óskum. Við komum til Álaborgar um kl. 16.00 eða nógu snemma
til að tilkynna komu okkar f Álborg hallen og taka þar þátttökugögn sem danska
mótsnefndin hafði látið gera og voru til mikillar fyrirmyndar.
Gústaf, Halldór og Áslaug fóru að athuga tvær kirkju og orgel þeirra, sem nota
skyldi til flutnings nýrra íslenskra kirkjutónverka eftir Gunnar Reyni Sveinsson síðari
ORGANISTABLAÐIÐ 5