Organistablaðið - 01.11.1982, Side 11

Organistablaðið - 01.11.1982, Side 11
Guðmundur Matthíasson organisti Guömundur Eggert Matthíasson, fyrrum organisti í Kópavogi, lést á Vífilsstöðum þann 17. júlí, 73 ára aö aldri. Guðmundur fæddist ( Grímsey 26. febrúar 1909. Hann var sonur hjónanna Matt- hiasar Eggertssonar, prests þar, og Guðnýjar Guðmundsdóttur, en þau hjón eign- uðust alls 14 börn. Guðmundur lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Akureyri, eftir það stundaði hann tónlistarnám í Þýskalandi í 6 ár, fyrst í píanóleik og tónfræði í Leipzig og Berlín, en síöar tónvísindi við háskólana í Hamborg og Köln. Hann var síðan tónlistarkennari við Kennaraskóla íslands en kenndi einnig tungu- mál, aðallega þýsku. Hann var organisti í Kópavogi frá þvi að Kópavogssöfnuður var stofnaður árið 1952 og gegndi því starfi i 20 ár, eða til ársins 1972. Hann var félagi í Félagi islenskra organleikara frá 1952, sæti hans þar var sjald- an autt á félagsfundum. Þaðan munum við organleikarar hlýtt viðmót hans, hógværa kímni, samviskusemi, nákvæmni og mikla þekkingu hans á öllum tónlistarmálum. Eftirlifandi kona Guðmundar er Helga Jónsdóttir frá Möðruvöllum í Hörgárdal, en foreldrar hennar voru Jón Eggertsson og María Sigurðardóttir frá Dagverðareyri. Helga hefur starfað við kennslu og skrifstofustörf. Þau Helga og Guðmundur eign- uðust fjórar dætur. Þær eru: Guðný, konsertmeistari í Sinfóníuhljómsveit fslands, María, hjúkrunarfræðingur og tónlistarkennari í Osló, Rannveig, húsmóðir og félags- málafulltrúi á ísafirði, og Björg, húsmóðir og snyrtisérfræðingur á Patreksfirði. Hann lagði öllum málum lið. Hógværð, hlýja og gleði fylgja minningu hans. Ég votta fjölskyldu hans dýpstu samúð. K.S. ORGANISTAI5LAÐIÐ 11

x

Organistablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Organistablaðið
https://timarit.is/publication/787

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.