Morgunblaðið - 23.11.2009, Qupperneq 1
MÁNUDAGUR 23. NÓVEMBER 2009
íþróttir
Fimm mörk Enski landsliðsframherjinn Jermain Defoe jafnaði markametið með því að skora
fimm mörk í 9:1-sigri Tottenham. Alan Shearer og Andy Cole deila metinu með Defoe. 7
Íþróttir
mbl.is
GUÐJÓN Árni
Antoníusson,
bakvörður Kefl-
víkinga, lék lík-
lega kviðslitinn í
Pepsi-deildinni
allt síðasta sum-
ar. Guðjón tjáði
Morgunblaðinu í
gær að hann
hefði fundið fyrir
sársauka í nára
bæði á undirbúningstímabilinu og
um sumarið. Þegar álagið var mikið
gat hann ekki æft vegna þessa. Ekki
hafi þó tekist að finna út úr því hvað
amaði að fyrr en að leiktíðinni lok-
inni. Þá fór Guðjón í segulómskoðun
þar sem í ljós kom að um kviðslit
væri að ræða.
Saxi fann réttu greininguna
,,Þá kom loksins í ljós að það var
lítið gat sem var að trufla mig. Ég
hafði farið í margar rannsóknir sem
ekkert kom út úr. Ég fór í mynda-
töku síðasta sumar og þá sást þetta
ekki. Saxi læknir (Sigurjón Sigurðs-
son) fann loksins réttu greininguna í
haust. Þá var ég drifinn í aðgerð og
hún gekk vel. Þeir skáru og settu
net sem á að loka gatinu og styrkja
svæðið í kring,“ sagði Guðjón sem
var að brúna kartöflur með sunnu-
dagssteikinni þegar Morgunblaðið
sló á þráðinn til hans í gær. Batinn
gengur vel hjá Guðjóni sem er byrj-
aður að hreyfa sig á ný en aðgerðin
var framkvæmd fyrir um mánuði.
Hann á ekki von á öðru en að hann
geti beitt sér á fullu strax eftir ára-
mót. Guðjóni tókst að leika 20 leiki í
deildinni í sumar þrátt fyrir kviðslit-
ið og skora í þeim 2 mörk. Hann
þótti hins vegar ekki leika jafn vel
og hann gerði árið 2008 þegar Guð-
jón átti frábært sumar. kris@mbl.is
Guðjón lék
kviðslitinn
í sumar
Guðjón Árni
Antoníusson
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Efniviður Silfurleikar ÍR í frjálsíþróttum fóru fram á laugardag en þetta er í 14. sinn sem mótið fer fram. Nánar verður fjallað um mótið á þriðjudag.
Eftir Ívar Benediktsson
iben@mbl.is
„ÉG er mjög glaður með þann góða
árangur sem náðist á Íslandsmeist-
aramótinu,“ sagði Hörður J. Odd-
fríðarson, formaður Sundsambands
Íslands, í gærkvöldi þegar keppni á
Íslandsmeistaramótinu í sundi í 25
m braut lauk í Laugardalslaug. Alls
voru sett 15 Íslandsmet og á þriðja
tug aldursflokkameta unglinga á
mótinu sem stóð yfir í fjóra daga.
Hæst bar framúrskarandi árang-
ur Jakobs Jóhanns Sveinssonar,
Sundfélaginu Ægi, í 100 og 200 m
bringusundi þar sem hann stór-
bætti Íslandsmetin og hjó nærri
Norðurlandametunum í báðum
greinum. Jakob Jóhann bætti síðan
þriðja metinu við í gær í 50 m
bringusundi.
Erla Dögg Haraldsdóttir, sem
keppti sem gestur á mótinu, setti
einnig þrjú Íslandsmet; í 100 m
fjórsundi á 1.01,77 mínútum, í 200
m fjórsundi á 2.15,32 og í 50 m
bringusundi á 31, 26 sekúndum.
Sambýlismaður Erlu Daggar,
Árni Már Árnason, gerði sér lítið
fyrir og bætti Íslandsmet Arnar
Arnarsonar í 50 m skriðsundi í gær
um 4/100 úr sekúndu í gær og synti
á 22,29 sekúndum.
Sigrún Brá Sverrisdóttir, Sund-
félaginu Ægi, bætti tvö Íslandsmet
og þar af var annað orðið 17 ára
gamalt í 800 m skriðsundi. Þar kom
hún í mark á 8.46,47 mínútum. Í
gær bætti hún eigið met í 400 m
skriðsundi um tvær sekúndur þeg-
ar hún kom í mark á 4.15,17.
Hin unga og efnilega sundkona
frá Akureyri, Bryndís Rún Hansen,
bætti þriggja ára gamalt Íslands-
met Kolbrúnar Ýrar Kristjáns-
dóttur í 50 m flugsundi þegar hún
synti vegalengdina á 27,24 sek-
úndum.
Hrafnhildur Lúthersdóttir bætti
met Erlu Daggar í 100 m bringu-
sundi eftir hörkukeppni við fyrrver-
andi meistara. Hrafnhildur synti á
1.08,46.
Þá bætti Ragnheiður Ragn-
arsdóttir eigið meti í 100 m skrið-
sundi þegar hún kom fyrst í mark á
54,76 sekúndum.
Kvennasveit Ægis setti þrjú Ís-
landsmet á mótinu og karlasveit
SH eitt í boðsundi.
Á uppskeruhátíð sundfólks í gær-
kvöldi var síðan upplýst að Jakob
Jóhann og Ragnheiður hefðu verið
valin sundkarl og sundkona ársins,
en keppnistímabil þess vals miðast
við tímabilið frá 1. ágúst 2008 til 31.
júlí í ár.
Jakob Jóhann fékk einnig viður-
kenningu fyrir besta afrek Íslands-
meistaramótsins í karlaflokki sam-
kvæmt stigalista FINA,
alþjóðasundsambandsins. Þegar á
þann lista er litið var árangur hans
í 100 m bringusundi það sem stóð
upp úr á mótinu. Í kvennaflokki
náði Erla Dögg Haraldsdóttir best-
um árangri samkvæmt sama lista í
100 m fjórsundi.
Jakob og Erla settu þrjú met hvort
Fimmtán Íslandsmet sett á Íslandsmeistaramótinu Sex met slegin á lokadegi mótsins
Jakob Jóhann
Sveinsson
Erla Dögg
Haraldsdóttir