Morgunblaðið - 23.11.2009, Qupperneq 3
Íþróttir 3
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. NÓVEMBER 2009
ÞEGAR dregið var í 32 liða úrslit EHF-
keppninnar í handknattleik í haust prísaði Ar-
on Kristjánsson, þjálfari Íslandsmeistara
Hauka, sig sælan yfir að hafa ekki dregist
gegn rússneska liðinu Astrakhan. Frá Íslandi
er langt og dýrt ferðalag til Astrakhan sem
Haukar voru fengir að komast hjá. Aron og
lærisveinar hans eru hinsvegar ekki lausir úr
þeirri „hættu“ að mæta Astrakhan í keppninni
því bæði lið verða í hattinum þegar dregið
verður í 16 liða úrslit EHF-keppninnar í höf-
uðstöðvum EHF í fyrramálið.
Auk Hauka og Astrakhan verða þýsku liðin
Göppingen, Lemgo og Flensburg í hattinum
hjá EHF á morgun en Íslendingar leika með
tveimur síðastnefndu lið-
unum. Dunkerque sem
Ragnar Óskarsson spilar
með verður þar einnig svo
og svissneska liðið Kadet-
ten sem Björgvin Páll Gúst-
avsson landsliðsmarkvörð-
ur er á mála hjá, auk
Aragon og La Rioja frá
Spáni, danska liðsins GOG,
Cleje Lasko frá Slóveníu,
Tartan Presov frá Slóvakíu,
Benfica frá Portúgal, Trimo Trebnje frá Slóv-
eníu, Istres frá Frakklandi og AaB frá Dan-
mörku. iben@mbl.is
Enn er möguleiki á ferð til Astrakhan
Aron
Kristjánsson
DANSKA handknattleiksliðið GOG, sem Guð-
mundur Þórður Guðmundsson þjálfar og Ás-
geir Örn Hallgrímsson leikur með, tryggði sér
sæti í 16 liða úrslitum EHF-keppninnar í hand-
knattleik í gær. Þá vann liðið öruggan sigur á
Partizan Belgrad, 27:19, á heimavelli og vann
því samtals með fjögurra marka mun í tveimur
leikjum.
Það gekk alls ekki þrautarlaust hjá leik-
mönnum GOG að tryggja sér sigurinn. Þegar
stundarfjórðungur var til leiksloka munaði að-
eins þremur mörkum á liðunum, 21:18. Á
endaspretti leiksins fór Norðmaðurinn André
Jørgensen mikinn og skoraði fimm af síðustu
sjö mörkum GOG.
Ásgeir Örn Hallgrímsson
skoraði þrjú marka GOG.
Hrikaleg staða
Þótt vel gangi hjá GOG
innan vallar þá er allt aðra
sögu að segja af stöðu þess
utan vallar. Í gær var
greint frá því að félagið
hefði tapað um 175 millj-
ónum íslenskra króna á síð-
asta fjárhagsári og rambaði
á barmi gjaldþrots, kæmi ekki verulega aukið
fjármagn inn í reksturinn á næstu mánuðum.
iben@mbl.is
GOG slapp inn í 16 liða úrslit
Guðmundur Þ.
Guðmundsson
eftir Kristján Jónsson
kris@mbl.is
,,JÁ, ÉG ætla allavega rétt að vona
það. Ef við höfum ekki haft gaman af
þessum leik í dag þá veit ég ekki hvað.
Mér fannst allir vera glaðir í dag og
allir ætluðu að leggja sig fram. Það var
sama hver kom inn á, allir stóðu fyrir
sínu. Mér fannst þetta því bara fínn
leikur og fínn dagur,ldquo sagði lands-
liðskonan Hanna G. Stefánsdóttir sem
fór hamförum í markaskorun í síðari
hálfleik og skoraði þá 10 af 13 mörkum
sínum í leiknum.
Veisla hjá Haukum
Haukar byrjuðu leikinn af krafti og
komust í 4:0 en þá tókst FH-ingum að
snúa blaðinu við og náðu þeir foryst-
unni, 5:4. Jafnræði var með liðunum
fram að leikhléi en Haukar náðu þó að
skora síðustu þrjú mörkin fyrir hlé og
voru yfir, 14:11, fyrir síðari hálfleikinn.
Þá hrundi leikur FH algerlega og
Haukakonur gengu á lagið og völtuðu
yfir granna sína. Í síðari hálfleik var
aldrei spurning hvort liðið næði að
landa stigunum sem í boði voru og
leikurinn varð hálfgerð hraðaupp-
hlaupsveisla fyrir Hauka. Hanna segir
Hauka hafa reynt að bæta andann í
herbúðum sínum fyrir grannaslaginn:
,,Við ákváðum að hysja upp um okk-
ur buxurnar og mæta jákvæðar til
leiks. Það hefur gengið á ýmsu hjá
okkur og við höfum bara ekki náð sam-
an. Við höfum allar verið þungar og í
fýlu. Það er eiginlega rétta orðið yfir
þetta. Við ákváðum að taka okkur
saman í andlitinu eftir síðasta leik en
sá leikur var ekkert annað en rass-
skelling. Mér finnst að við séum á upp-
leið. Boltinn fékk að ganga betur á
milli leikmanna í sókninni. Vörnin hef-
ur líka batnað hjá okkur og við fengum
fína markvörslu í þessum leik. Við get-
um auðvitað bætt okkur meira og þurf-
um að gera það,“ sagði Hanna enn-
fremur í samtali við Morgunblaðið.
Óhætt er að taka undir með Hönnu um
að markvarslan hafi verið í lagi hjá
Haukum því Bryndís Jónsdóttir varði
24 skot og var besti leikmaður liðsins
ásamt Hönnu.
Hjá FH var Ragnhildur Guðmunds-
dóttir að venju markahæst og skoraði
að þessu sinni níu mörk. Líklega er það
undir meðaltali hennar á þessari leik-
tíð þó það kunni að hljóma ótrúlega.
Hin leikreynda Jolanta Slapikiene stóð
fyrir sínu í markinu og varði 18 skot.
Haukar fundu taktinn
Hanna G. Stefánsdóttir segir Haukakonur hafa verið í fýlu Hristu af sér
slenið og völtuðu yfir FH í Hafnarfjarðarslagnum Hanna skoraði 13 mörk
Morgunblaðið/Eggert
Einbeitt Ester Óskarsdóttir, leikmaður Íslandsmeistaraliðs Hauka, skoraði fjögur mörk gegn FH í gær.
Haukar ráku heldur betur af sér
slyðruorðið í Hafnarfjarðarslag gegn
FH í N1-deild kvenna í handknattleik í
gær. Leikið var á Ásvöllum og eftir
fremur jafnan fyrri hálfleik skildu
leiðir í þeim síðari og Haukar unnu
stórsigur, 35:19. Afleitt gengi Hauka
hefur vakið athygli að undanförnu og
þá sérstaklega hversu stóra skelli lið-
ið hefur fengið gegn toppliðunum.
Haukar urðu deildarmeistarar á síð-
ustu leiktíð og eru með svipaðan leik-
mannahóp og þá. Stórsigur í gran-
naslagnum gæti snúið dæminu við.
Guðjón ValurSigurðsson
skoraði fjögur
mörk þegar
Rhein-Neckar
Löwen vann
öruggan sigur á
Gorenje Velenje,
37:29, í meist-
aradeild Evrópu í
handknattleik í gær en leikið var á
heimavelli Slóvenanna. Snorri
Steinn Guðjónsson skoraði tvö
marka RN Löwen og Ólafur Stef-
ánsson eitt. Rhein-Neckar Löwen
og Veszprém eru efst í B-riðli meist-
aradeildar með 10 stig að loknum
sex leikjum.
Róbert Gunn-arsson var
markahæstur
leikmanna þýska
liðsins Gummers-
bach þegar þeir
unnu KH Kast-
rioti-Ferizaj,
38:13, í seinni leik
liðanna í 32 liða
úrslitum EHF-
keppninnar í handknattleik í Kosovo
í gær. Róbert skoraði sjö mörk þeg-
ar Gummersbach tryggði sér öruggt
sæti í 16 liða úrslitum keppninnar.
Uppselt var á leikinn í Kosovo þótt
nokkuð ljóst væri að heimamenn
ættu enga möguleika á sigri eftir að
hafa tapað fyrri leiknum með 27
marka mun. Alls greiddu um 3.000
áhorfendur aðgangseyri.
Alexander Petersson skoraðifimm mörk fyrir Flensburg
þegar liðið vann sinn annan stór-
sigur á Maccabi Rishon LeZion frá
Ísrael á einni viku í EHF-keppninni
í handknattleik í dag, 43:25. Leikið
var í Campushalle í Flensburg.
Þórir Ólafsson skoraði tvö markaLübbecke og Heiðmar Fel-
ixson eitt þegar liðið tapaði á útivelli
fyrir Wetzlar, 33:27, í þýsku 1. deild-
inni í handknattleik.
Minden, semGylfi
Gylfason og
Ingimundur
Ingimundarson
eru á mála hjá,
tapaði illa á
heimavelli í fyrir
næstneðsta liði
deildarinnar,
Dormagen,
27:21, eftir að jafnt var í hálfleik,
10:10. Gylfi skoraði tvö mörk og
Ingimundur eitt. Minden er í 15.
sæti af 18 liðum með fimm stig.
Vignir Svavarsson og samherjar íLemgo komust í gær í 16 liða
úrslit EHF-keppninnar þrátt fyrir
að hafa aðeins náð jafntefli, 28:28, í
síðari leiknum við Buducnost
Podgorica í Svartfjallalandi í gær.
Lemgo vann stórsigur á heimavelli í
fyrri leiknum og það fleytti liðinu
áfram. Vignir skoraði fjögur marka
Lemgo í gær.
Fólk sport@mbl.is
Ásvellir, Íslandsmótið í handknatt-
leik, úrvalsdeild kvenna, N1-deildin,
sunnudaginn 22. nóvember 2009.
Gangur leiksins: 1:0, 4:0, 4:5, 6:8,
10:10, 14:11, 15:11, 17:12, 20:14,
24:14, 27:15, 30:17, 35:19.
Mörk Hauka: Hanna G. Stef-
ánsdóttir 13/3, Erna Þráinsdóttir 6,
Ramune Pekarskyte 6, Ester Ósk-
arsdóttir 4, Erla Eiríksdóttir 3, Nína
B. Arnfinnsdóttir 2, Karen Sig-
urjónsdóttir 1.
Varin skot: Bryndís Jónsdóttir 24
(þar af 7 aftur til mótherja).
Utan vallar: 8 mínútur (Nína fékk
rautt spjald fyrir þrjár brottvísanir).
Mörk FH: Ragnhildur Guðmunds-
dóttir 9/3, Birna Íris Helgadóttir 3,
Berglind Björgvinsdóttir 2, Sigrún
Gilsdóttir 1, Gunnur Sveinsdóttir 1,
Birna Berg Haraldsdóttir 1, Ingi-
björg Pálmadóttir 1.
Varin skot: Jolanta Slapikiene 18/1
(þar af 6 aftur til mótherja).
Utan vallar: Aldrei.
Dómarar: Gísli Jóhannsson og Haf-
steinn Ingibergsson. Góðir.
Áhorfendur: Um 150.
Haukar – FH 35:19
,,Í FYRSTU var talið að ég hefði
brotnað aftur en svo var ekki,“
sagði Hólmar Örn Rúnarsson, mið-
vallarleikmaður Keflvíkinga í
Pepsi-deildinni í knattspyrnu.
Hólmar hefur farið sér hægt
undanfarið en hann meiddist aftur
á utanverðri ristinni í haust. Hólm-
ar braut þar bein í vor og missti úr
tvo mánuði síðasta sumar vegna
meiðslanna. ,,Þetta var ekki eins al-
varlegt og ég hélt. Ég fékk högg á
beinið og hef þurft að taka mér
hvíld. Ég fór í myndatöku og þá
var talið að sprunga væri í beininu
en svo mat sérfræðingur málið
þannig að ekki væri um sprungu að
ræða. Þar sem ég er með nagla í
fætinum þá var erfiðara að meta
þetta. Ég hef ekki verið á fótbolta-
æfingum undanfarið og fer rólega
af stað. Það lítur ekki út fyrir að
ég þurfi að fara í aðra aðgerð,“
sagði Hólmar í samtali við Morg-
unblaðið í gær en Willum Þór
Þórsson þjálfari Keflavík á næstu
leiktíð. kris@mbl.is
Hólmar sleppur við aðra aðgerð
Heppinn Hólmar Örn Rúnarsson