Ísfirðingur


Ísfirðingur - 17.06.1961, Síða 9

Ísfirðingur - 17.06.1961, Síða 9
ISFIRÐINGUR 9 Sigurður Nordal, prófessor: Afbnrðamaflur „ .. . Um stórmenni sögunnar og áhrif þeirra gfirleitt eru skoðanir mjög skiptar. Oft og einatt hefur sagan verið skráð nær einvörðungu sem saga „mikilmenna“, sem öllu hafi ráðið og allt verði að miða við. Nú á dögum hallast margir fremur að hinu, að jafnvel mestu leiðtogar og skörungar séu varla annað en glitrandi faldur á öldum, sem þeir hafi valdið næsta litlu um, hvort né hvernig risu. Vitanlega verður aldrei fundið eitt og algilt lögmál fgrir þá margbregtni, sem hér er um að ræða, enda þurfa þessar skoðanir ekki alltaf að stangast, heldur geta bætt hvor aðra upp. Svo er um starf og feril Jóns Sigurðs- sonar. Hvað hefði orðið úr honum, ef hann hefði t.d. verið uppi á 16. eða 17. öld, á tímum vaxandi konungsvalds, sem enginn fékk rönd við reist? En mætti ekki líka spgrja, livað Islend- ingum hefði orðið úr aðstæðum og tækifærum 19. aldarinnar, ef þeir hefðu ekki einmitt þái eignast slíkan leiðtoga? Hann stóð að vísu í fglkingarbrjósti, og vér komumst ekki gfir að minnast að verðleikum allra hinna óbregttu liðsmanna, sem áttu hver sinn hlut í sókninni. Að því legti er hann tákn. En hver hefði fglkingin orðið og hvernig hefði henni verið skipað, ef hann hefði ekki safnað liði og sett því takmark? Svo framar- lega sem réttmætt er að nefna nokkurn mann mikilmenni og skörung þjóðar sinnar, er óhætt að hafa þau orð um Jón. Hann var þeim kostum búinn, að í hvaða landi og á hverjum tíma sem hann hefði komið við stjórnmál, hefði hann hlotið að skara fram úr. Þó að játað sé, að ekki liafi verið eins vonlaust að gerast leiðtogi Islendinga og koma einhverju áleiðis um hans daga og löngum áður og talsvert hafi verið búið í hendur hon- um með baráttu og hugsjónum undanfarinna kgnslóða, var sannarlega ekki miklu undir hann hlaðið. Hann var ekki annað en embættislaus fræðimaður að atvinnu, þegar hann hófst handa, og jafnan síðan, átti hvorld bakhjall auðs né ættarfglgis, tók við forgstu smáþjóðar, sem var hnípin og illa leikin, sífellt þurfti að tala kjark í, lwetja og brgna. Einmilt með hinum smæstu þjóðum er afburðamönnum að })ví skapi torvelt að njóta sín sem það virðist auðvelt að vaða þar uppi fgrir miðlungs- menn. Látum oss viðurkenna hvort tveggja, að Jón Iiafi verið uppi á réttum tíma og rétti maðurinn á þeim tíma. Eitt er víst að þar eignuðust Islendingar MANN SEM LÁNAÐIST, — varð bæði gæfumaður sjálfur og gæfa þjóð sinni. Vér getum ekki skilið, hvers virði þetta var fgrir hugsunarhátt þeirra og viðhorf, ef aðeins er horft á samtíð hans og sgnileg afrek. Til þess verður að liafa alla sögu Islands í hálfa sjöundu öld í huga. Það er varla ofmælt, að allt frá því, er Jón Loftsson í Odda leið, hafi engum íslenzkum þjóðskörungi orðið svipaðs gengis auðið. Þetta mætti rekja öld eftir öld og með þvi að telja hina nafn- kunnustu menn, hvern af öðrum. Alls staðar ber skugga Islands óhamingju á ævi þeirra, sem máttu þgkja kjörnastir forvígis- menn. Sumir þekktu ekki vitjunartíma sinn, misskildu köllun sína og hlutverk. Sumir lutu í lægra haldi fgrir ofurefli, að- stæðum og lífskjörum, voru beggðir eða brotnir. Sumum var svipt burt af dutlungum örlaganna, áður en þeir voru full- þroskaðir eða fullregndir. En Jón fékk að lifa, þroskast, starfa, beita sér af alefli vinna ótvíræða sigra. Engir örðugleikar bug- uðu kjark hans, liann örvænti aldrei, smækkaði lworki sjálfur né slakaði á kröfum sínum til þjóðarinnar og fgrir þjóðina, þótt hann kæmi ekki öllu fram. Hann skildi löndum sínum eftir ófölskvaðar framtíðarhugsjónir, þar sem liina raunveru- legu framsókn þraut. Það var orðið annað og meira að vera Kristján A. Kristj ánsson: Háliðlegl augnablik Það var árla morguns hinn 18. júní 1911. Við Súgfirðingar vorum á tveim bátum á heimleið frá 100 ára afmælishátíð Jóns Sigurðssonar á Rafnsegri við Arnarfjörð. Við höfðum lifað einn glóandi góðviðrisdag til enda. Við lwfðum hlustað á söng og ræðuhöld, horft á íþróttir, mannagrúa, hestahópa og bátafjölda, etið, drukkið og verið glaðir með glöðu fólki og efnir megni hjálpað til að trampa grassvörðinn af túninu, svo það hefir víst ekki sprottið neitt sérstaklega vel það sumarið. Og svo höfðum við lagt af stað um það legti sem hafgolan lagðist til lwíldar og skildi við fjörðinn, blikandi eins og „bráð- ið stál“, við bjarma hnígandi sólar í faðmi íslenzkrar vornætur. Flestir höfðu lagt sig til svefns, skömmu eftir að af stað var farið, og á þiljum voru ekki aðrir en stgrimenn og vélstjórar. Eg vissi ekki lwe lengi'ég hafði sofið, er ég vaknaði, án þess ég vissi af hverju. Eg reis á fætur og gekk upp á þiljur. ■— Við vorum þá nádega út af miðjum Dgrafirði. Eg renndi augum fram um stafn, inn gfir land og vestur gfir fjöllin og aftur um skut, gekk síðan niður aftur og lagðist til svefns. Þetta var bara örstutt stund, en það er eitt hið hátíðlegasta augnablik, sem ég hefi lifað. Eg get vitanlega ekki Igst með orðum sólaruppkomu úti fgrir Vestfjörðum á glófögrum vormorgni. Eg get ekki gert gð- ur Ijós litbrigðin á austurloftinu alsettu háttsvífandi dúnléttum smáskgjum, heldur ekki hátíðleik vesturf jallanna, sem rjóð í kinnum og með útbreiddum örmum meðtóku glþrungna kossa hinnar „rósfingruðu morgunggðju ‘ eða Ijósleita bjarmann, sem vegna útrænunnar verpur á gáraðan liafflötinn um það legti sem Skinfaxi dregur hina gullnu kerru dagsins upp og fram um Ijósbládjúpan loftsins veg. Og þarna stóð Barðinn með hngkla í brúnum og lirukkur í kinnum, hánef jaður, með skuggadimma öldungs ásjónu. En bátarnir okkar, báðir hvítir, með öllum segl- um uppi, svífandi lwor í annars kjölfar. — Þeir líktust liægt fljúgandi svönum — frjálsir á svifi og léttir í öllum hregfing- um. - En nei, ég get ekki Igst slíkum júnímorgni sem þessum. Það getur enginn, hvorki með orðum, litum eða Ijóðum. Sú dgrð verður einungis skilin augliti til auglitis — og hún varir lengur en bura augnablikið. Sálin varðveitir áhrifin — það veit ég af eigin regiul, því með sannindum get ég sagt það að í þau ellefu og hálft ár sem liðin eru síðan hefi ég ekki svo augum litið einn einasta fagran vormorgun um sólarupprás, að ekki hafi mér komið í hug þessi stutta slund þarna út af Dgrafirði árið 1911. Og við umhugsun þessarar dgrmætu minningar, hefi ég stundum pskað þess ,að þessi Ijómandi árdagsröðull mætti lxafa verið liinn fgrsli er skein gfir vöggu einhvers þess svein- barns á Vestf jörðum, sem grði eins innilega elskað og dáð af íslenzkri þjóð árið 2011 og Jón Sigurðsson sgnilega var árið 1911. Sá morgun þætti mér slíkum sveini samboðinn. Skrifað í desember 1922. tllllllllllllll'lllllilllllllllllllUlllllllllllllllllllllKllllllllltlllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllltlfllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllll Islendingur, þegar Iiann hafði runnið skeið sitt ii enda, en það var, þegar hann kom til sögunnar.. Ofanskráð er stuttur kafli úr hinni snjöllu ræðu sem prófessor Sigurður Nortlal flutti á lýðveldishátíðinni að Rafnseyri 17. júní 1944.

x

Ísfirðingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ísfirðingur
https://timarit.is/publication/790

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.