Ísfirðingur


Ísfirðingur - 17.06.1961, Side 11

Ísfirðingur - 17.06.1961, Side 11
ISFIRÐINGUR 11 llm æskárjóns Sigurðssnnar foreldra lians og eigiiihonu Jón Sigurðsson, forseti, fæddist 17. júní 1811 að Rafnseyri við Arnarfjörð. Foreldrar hans voru þau hjónin Sigurður Jónsson, prestur að Rafnseyri og kona hans Þórdís Jónsdóttir. Ólst Jón upp í foreldrahúsum að Rafnseyri, og naut þar hins mesta ástríkis for- eldra sinna. Vandist hann þegar í æsku allri vinnu eins og henni var þá háttað í sveit. Um ferm- ingaraldur fór Jón að stunda róðra á bát sem faðir hans gerði út. Fyrstu vertiðina sem Jón reri var báturinn gerður út frá ver- stöðinni Bás í Verdölum við Arn- arfjörð. Sá sem þetta ritar heyrði þá sögu í Arnarfirði að Jón mundi hafa verið ráðinn upp á hálfan hlut, en eftir fyrsta róðurinn hafi hann haft orð á því við formann- inn að sér þætti hlutur sinn smár, og teldi hann sig hafa unnið fyrir heilum hlut engu siður en hinir hásetarnir. Féllst formaðurinn á að það væri rétt og lét Jón fá heilan hlut sem aðra. Snemma þótti bera á því, að Jón væri með afburðum góður námsmaður. Faðir hans, sem hafði orð á sér fyrir að vera ágætur kennari, kenndi honum heima. Jón þótti snemma skrifa ágæta rithönd og er sagt að í tómstund- um sínum á Rafnseyri hafi hann skrifað eitt og annað fyrir ná- granna sína, t.d. almanök. Eitt- hvað mun Jón hafa gert lað því á þessum árum að semja stökur. Skal hér til gamans tilfærð ein vísa sem hann er talinn hafa skrif- að framan á almanak sem hann skrifaði fyrir Jón Guðmundsson bónda á Auðkúlu: „Almanaksins skrifuð skrá skal árstímann vísa„ sómamanni seggjum hjá signor Jóni Kúlu á.“ Þær sagnir hafa geymst á æsku- stöðvum Jóns, að á uppvaxtarár- um sínum hafi hann verið hvers manns hugljúfi og öllum viljað gagn gera. Árið 1829, er Jón hafði lokið skólanámi í föðurhúsum, fór hann til Reykjavíkur og var útskrifaður af Gunnlaugi Oddssyni, dómkirkju- presti. Eftir það vann hann um skeið við verzlun hjá Einari föður- bróður sínum sem þá var verzlun- arstjóri í Reykjavík. Þar mun hann aðeins hafa unnið eitt ár; en þá réðizt hann sem skrifari til Steingríms Jónssonar, biskups, og þar vann hann í um það bil þrjú ár. Sumarið 1833 var Jón um tíma á Bessastöðum við grískunám hjá Sveinbirni Egilssyni, en síðsumars sigldi hann til Kaupmannahafnar til þess að stunda þar nám við há- skólann. Foreldrar Jóns forseta. Séra Sigurður, faðir Jóns for- seta, var fæddur á Stað á Snæ- fjallaströnd 2. janúar 1777. Faðir hans var Jón prestur Sigurðsson að Stað á Snæfjallaströnd, Ás- mundssonar bónda að Ásgarði í Grímsnesi. Móðir Sigurðar Jóns- sonar var Ingibjörg ólafsdóttir, systir Jóns Ólafssonar lögsagnara að Miðhúsum í Reykhólasveit. Séra Sigurði er þannig lýst að hann hafi verið hár maður vexti, þrekinn og karlmannlegur. Hann var „stiltur og alvarlegur“ kenni- maður ágætur og iðjusamur svo að af bar. Hann var lærður vel og kenndi mörgum piltum undir skóla. Hann var fyrst aðstoðar- prestur hjá föður sínum á Rafns- Þá voru þar bæjarhús mikil . . . Baðstofan var í 6 stafgólfum, 6 álnir innan veggja, með 14 sperr- um, 7 stöfum, 7 bitum, öll undir súð, nema í miðju, og hálfflett boi'ð yfir nyrðra enda. Hús var sitt í hvorum enda baðstofu, ann- að í nyrðra enda 2 stafgólf, hitt 1 stafgólf, bæði alþiljuð allt um kring. Þess er getið, að tveir gler- gluggar voru fyrir stærra húsinu, hvor með fjórum rúðum. Lopt var yfir baðstofu. Göng frá baðstofu að dyraporti voru 12 álnir að lengd, veggir lágir, viðir yfir. Eld- hús var þar næst í tveim stafgólf- um. Þá búr í þrem stafgólfum. Hið fimmta hús var skáli í tveim staf gólfum, með standþili fyrir fram- an. Þá kom stofa í hálfu þriðja stafgólfi, alþiljuð, með lopti og og súð yfir allri, standþili fyrir framan, einum 'glerglugga, og í 6 rúður. Bæjardyraportið var í þrem stafgólfum, með slagþili fyrir framan, en lopt var ekki yfir. Úti- hús voru þar: Smiðja, skemmur tvær, hvor í þremur stafgólfum, hjallur í fjórum stafgólfum, fjós handa 10 kúm, fjárhús voru þar 4, tók eitt 28 kindur, annað 14, hið þriðja „inni á Hólmum“ 16, en hið fjórða, „sauðakofi úti í brekkunni" 10. Fjós hafði verið í „Bæli“ (Bæl- isbrekku), en var nú haft að hest- húsi, ætlað þrem hestum. Loks var naust við sjó fram, yfir eitt skip, er fylgdi staðnum. Má af þessari eyri en tók við staðnum að fullu við lát föður síns 1821. Rafnseyrar- prestakalli þjónaði hann svo til ársins 1851 og hafði hann þá verið prófastur í Vestur-lsafjarðarpró- fastsdæmi í 14 ár. Kona séra Sigurðar Jónssonar og móðir Jóns forseta var Þórdís Jónsdóttir prófasts Ásgeirssonar að Holti í Önundarfirði. Henni er þannig lýst að hún hafi verið í meðallagi há, fríð, gáfuleg og „forkunnar vel eygð.“ Var hún af öllum sem til þekktu talin val- kvendi mikið og gáfukona. Hún var kona hversdagslega hæglát og stjórnsöm svo að af bar. Þær sagnir voru í Arnarfirði að hún hafi verið mjög gjafmild og greiða- söm við fátæklinga, jafnvel svo að manni hennar hafi stundum þótt nóg um. Lifðu á vörum fólksins ýmsar sögur um þessa hluti þó að þær verði ekki raktar hér. Þeim hjónum Þórdísi og Sigurði varð þriggja barna lauðið: Jóns, forseta, Jens, rektors, og Margrétar sem lengi bjó á Steina- nesi við Amarfjörð og var oftast við þann bæ kennd. Kvonfang Jóns forseta. Þann 4. september 1845 voru þau Jón Sigurðsson og Ingibjörg Einarsdóttir, frændkona hans, gef- in saman í hjónaband. Þá var hún 41 árs gömul og hann 34 ára. Tal- ið er að þau hafi fyrst kynnst þegar Jón var við verzlunarstörf hjá föður hennar í Reykjavík eftir að hann flutti suður frá Rafnseyri. Frú Ingibjörg varð Jóni forseta frábær eiginkona. Hún var for- sjárkona hin mesta og heimilis- stjórnin öll til fyrirmyndai'. Hún stóð dyggilega við hlið manns síns og studdi hann á alla lund. Heimili þeirra í Kaupmannahöfn stóð allt- af öllum Islendingum opið, og er talið að það hafi verið fáir Islend- ingar sem til Kaupmannahafnar komu á þessum árum sem eigi hafi leitað þangað og notið frábærrar greiðasemi og fyrirgreiðslu þeirra hjónanna. Húsakostur á Bafusepð á öndverðri 19. öid lýsingu sjá, að staðarlegt hefir verið á Rafnseyri og húsaskipun rífleg við þann mannfjölda, er þurfti, en í heimili hjá séra Sigurði voru 16—20 manns, og er það ekki ýkjamikið, eftir því sem þá var oftast á prestseti'um og stórbýl- um.........“ Þess skal að lokum getið, að á Rafnseyri var torfkirkja til ársins 1885. Fyrir henni var sterkleg hurð og gat á. Töldu menn, að hurðin væri frá Sturlungaöld, en gatið eftir ör, er skotið hefði verið að presti, meðan hann var fyrir altari; hefði prestur beðið bana af, en bogmaður skyldi hafa staðið á Gvendarholti og skotið; er sú vegalengd nálægt 450 feta. Ekki var sú hurð höfð fyrir timbur- kirkjunni nýju 1886, heldur vængjahurð, samkvæmt prófasts- bókum Vestur-ísafjarðarsýslu. Rafnseyri er gamalt höfðingja- setur. Jörðin er landnámsjörð, og þar bjó fyrstur Án rauðfeldur, og var það Grelöð, kona hans, er réð þar bólfestu þeirra, því þar þókti henni „hunangsilmur úr grasi.“ Á Rafnseyri bjó og einn merk- asti maður fornaldar vorrar, Rafn Sveinbjarnarson. Hefir hann þókt maklegastur þess, að staðurinn væri við hann kenndur, allra þeirra, er þar hafa búið. Heimild Páll Eggert Ölason: Jón Sigurðsson, 1. bindi. Hátíðarnefnd I nefnd þeirri sem skipuleggur og sér um hátíðahöldin á Rafns- eyri 17. júní eru þessir menn: Jóh. Gunnar Ólafsson, sýslumað- ur Isafirði, Ari Kristinsson, sýslu- maður Patreksfirði, Björgvin Bjarnason, sýslumaður Hólmavík, Einar Guðfinnsson, útgerðarmaður Bolungarvík og Sturla Jónsson, hreppstjóri Súgandafirði, en hann er jafnframt framkvæmdastjóri nefndarinnar. Þegar blaðið fór í prentun hafði nefndin ekki getað fullsamið dag- skrá hátíðahaldanna, og því er dagskráin ekki birt hér í blaðinu. Otgefandi: Samband Framsóknarfélaganna í Vestfjarðakjördæmi Hitstjórar: Halldór Kristjánsson og Jón Á. Jóhannsson, áb. AfgreiSsluma'óur: Guðmundur Sveinsson Engjaveg 24 - Sími 332 V--------------------------------/ 10. til 13. tölublað. 1961. Prentstofan ÍSRÚN h.f., Isafirði

x

Ísfirðingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ísfirðingur
https://timarit.is/publication/790

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.