Morgunblaðið - 05.01.2010, Blaðsíða 14
14 FréttirERLENT
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. JANÚAR 2010
Eftir Boga Þór Arason
bogi@mbl.is
HÆSTA bygging heims, Burj Dubai, var tekin í notkun
með mikilli viðhöfn í miðborg Dubai í gær þrátt fyrir
gríðarlegan skuldavanda furstadæmisins.
Burj Dubai, eða „Dubai-turn“ á arabísku, er 828 metr-
ar á hæð og tvisvar sinnum hærri en Empire State-
byggingin í New York. Turninn er úr steinsteypu, stáli
og um 26.000 glerplötum, sem glitra í eyðimerkursólinni,
og sést í 95 kílómetra fjarlægð.
Í byggingunni eru alls 1.044 íbúðir og 49 skrif-
stofuhæðir. Í turninum verður einnig 160 herbergja hót-
el, sem nefnist Armani. Búist er við að um 12.000 manns
búi eða vinni í byggingunni.
Byggingarframkvæmdirnar hófust árið 2004 þegar
mikill efnahagsuppgangur var í furstadæminu.
Fyrirtækið Skidmore, Owings and Merrill, sem er
með höfuðstöðvar í Chicago, hannaði turninn. Einn
hönnuðanna, Bill Baker, sagði að turninn hefði upp-
haflega átt að verða ívið hærri en Taipei 101-turninn,
sem er 508 metrar á hæð og næsthæsta bygging heims,
en eigandi turnsins, fasteignafélagið Emaar Properties,
hefði hvað eftir annað beðið hönnuðina að hækka bygg-
inguna.
„Við hönnuðum miklu hærri byggingu en við töldum
mögulegt í fyrstu. Við lærðum mikið á þessu verkefni.
Ég tel að við getum auðveldlega hannað kílómetra háan
turn,“ hafði fréttastofan AFP eftir Baker.
Fasteignaverð lækkaði um 50%
Við hönnun turnsins þurfti að taka mið af því að mjög
hvasst getur orðið í svo mikilli hæð og byggingin var
reist nálægt misgengislínu, að því er fram kemur á
fréttavef breska ríkisútvarpsins, BBC.
Dubai hefur safnað miklum skuldum á síðustu árum
vegna gríðarlegrar uppbyggingar og fjárfestingaæðis í
krafti nánast óhefts aðgangs að lánsfé vegna olíu-
auðlinda sem verða uppurnar innan 20 ára. Fyrirtæki í
eigu furstadæmisins hafa meðal annars reist sjö stjarna
hótel og háhýsi, sem snúast í hringi. Eitt þeirra hugðist
einnig byggja nýjan „Heim“, fjölda tilbúinna smáeyja í
líki ýmissa þjóðlanda en saman áttu þær síðan að mynda
heimsálfurnar. Á eyjunum átti að reisa glæsivillur eins
og þær gerast bestar og selja þær fína, fræga og ríka
fólkinu.
Dubai-menn þurftu að slá þessum framkvæmdum á
frest vegna hruns á fasteignamarkaðnum í furstadæm-
inu. Verð flestra fasteigna í Dubai hefur lækkað um 50%
á rúmu ári og búist er við að það lækki um allt að 30% til
viðbótar.
Hafa selt um 90% turnsins
Þrátt fyrir þetta hrun hefur fjárfesting Emaar Pro-
perties í Dubai-turninum skilað hagnaði, einkum vegna
þess að fyrirtækið notaði eigið fé til að kaupa lóðina og
seldi flestar íbúðirnar og skrifstofuhæðirnar áður en
hrunið varð.
Fréttavefur BBC hefur eftir stjórnarformanni Emaar
Properties, að um 90% húsnæðisins hafi verið seld og
sama hlutfall verði tekið í notkun. Flestar íbúðirnar og
skrifstofurnar seldust á tveimur dögum þegar salan
hófst árið 2004.
Sumir fjárfestanna högnuðust mjög á fjárfestingunni
því verðið á húsnæðinu tvöfaldaðist á fjórum árum.
Viðbúið er hins vegar að þeir sem keyptu húsnæðið þeg-
ar það var dýrast tapi á fjárfestingunni vegna hruns fast-
eignamarkaðarins. Sérfræðingar telja að erfitt verði fyr-
ir fjárfesta að finna fyrirtæki sem vilja greiða nógu háa
leigu fyrir skrifstofurými í turninum til að fjárfestingin
borgi sig.
Um 60.000 manns voru viðstaddir athöfnina í gær þeg-
ar turninn var lýstur upp með flugeldum og ljósa- og
leysigeislasýningu.
800 metrar
700
600
500
400
300
200
100
HÆSTU BYGGINGAR HEIMS
Lokið
Petronas-
turnarnir
Kuala Lumpur,
Malasíu
1998
1 World
Trade
New York,
Bandaríkjunum
2013
Burj Dubai
Dubai,
Sameinuðu arabísku
furstadæmunum
2010
Taipei
101
Taipei,
Taívan
2004
Heimildir: Emaar Properties, Emporis buildings, Dubai Mall, www.burjdubaiskyscraper.com, www.burjdubai.com
Turninn er miðkjarni Burj-hverfisins og
nýrrar miðborgar í Dubai
Hæðir - 162
Hæð - 828m
Kostnaður - 100 milljarðar króna
Met - Hæsta bygging, þak, mastur,
íbúðarhæð veraldar
Kostnaðurinn um 2.500 milljarðar króna
Alls um 2.000 ferkm
24.000 fermetra garðar og 120.000 ferm
vatn sem búið var til
Um 30.000 íbúðir og 9 hótel
Fyrstu íbúarnir hafa þegar flust inn og
íbúðir í turninum hafa verið afhentar
MIÐBORG DUBAI
BURJ DUBAI
Turninn Burj Dubai var vígður í gær, en
hann er hæsta bygging heims og
meira en 800 metrar á hæð
TURNINN Í DUBAI
Hlutföllin eru
ekki rétt
Garðar
Íbúðar-
turnar
Burj
Dubai
Lake-
hótelið
Gamli bærinn
Lágreist íbúðarhús í
hefðbundnum
arabískum stíl
Verslanamiðstöð
Ein af stærstu verslana-
miðstöðvum heims, með
sædýrasafni og skautasvelli
SAMEINUÐU
ARABÍSKU
FURSTADÆMIN
ÓMAN
SÁDI-ARABÍA
Abu
Dhabi
Dubai
Pe r s a f l ó i
150 km
Ytri klæðning
Hönnuð sérstaklega til að þola
mikinn sumarhita
541 m 508 m
452 m
828 m
160 + Tæki
156-159 Fjarskipti, útvarp og sjónvarp
155 Tæki
139-154 Fyrirtækjasvítur
136-138 Tæki
125-135 Fyrirtækjasvítur
124 Útsýnishæð
123 Hraðlyfta
122 Veitingahúsið At.mosphere
111-121 Fyrirtækjasvítur
109-110 Tæki
77-108 Íbúðir
76 Hraðlyfta
73-75 Tæki
44-72 Íbúðir
43 Hraðlyfta
40-42 Tæki
38-39 Armani-hótelsvítur
19-37 Íbúðir
17-18 Tæki
9-16 Armani-íbúðir
1-8 Armani-hótel
Jarðhæð Armani-hótel
B1-B2 Bílastæði, tæki
SKIPULAG HÆÐA TURNSINS
Hæsta bygging heims í
notkun í miðborg Dubai
Tvisvar sinnum hærri en Empire State í New York
STJÓRNVÖLD í Bandaríkjunum
hertu í gær reglur um öryggisgæslu
á flugvöllum til að koma í veg fyrir
að hryðjuverkamenn gætu laumað
sprengjum í farþegaþotur. Þá var að
minnsta kosti þremur sendiráðum í
Jemen lokað þar sem óttast var að
liðsmenn al-Qaeda væru að undirbúa
árásir á þau.
Áður hafði hreyfingin al-Qaeda á
Arabíuskaga hvatt til árása á sendi-
ráð í Sanaa, höfuðborg Jemens. Þar-
lendir fjölmiðlar sögðu í gær að
sendiráðunum hefði verið lokað eftir
að sex vörubílum, fullum af vopnum
og sprengiefni, hefði verið ekið inn í
borgina. Bílarnir hefðu komist und-
an her- og lögreglumönnum sem
reyndu að veita þeim eftirför.
Sendiráð Bandaríkjanna, Bret-
lands og Frakklands í Sanaa voru
lokuð í gær og öryggisgæsla var
aukin við önnur sendiráð og flugvöll
borgarinnar.
Farþegar frá 14 löndum
sæta sérstöku eftirliti
Hreyfingin al-Qaeda á Arabíu-
skaga starfar einkum í Jemen og
Sádi-Arabíu. Hún hafði áður lýst því
yfir að hún hefði staðið fyrir tilraun
23 ára gamals Nígeríumanns til að
sprengja farþegaþotu í loft upp á
leiðinni til Detroit í Bandaríkjunum
á jóladag.
Tilraunin varð til þess að banda-
rísk yfirvöld hertu reglur sínar um
öryggisgæslu á flugvöllum til að
koma í veg fyrir hryðjuverk. Til-
kynnt var í gær að allir farþegar
flugvéla sem koma frá fjórtán lönd-
um ættu að sæta nákvæmara eftirliti
og leit en aðrir. Í öllum löndunum
nema einu, Kúbu, eru múslímar í
meirihluta og bandarísk yfirvöld
voru sökuð um að mismuna fólki eft-
ir þjóðerni. bogi@mbl.is
Óttast árásir
á sendiráð
í Jemen
Bandarísk yfirvöld auka öryggiseftirlit
Í HNOTSKURN
» Bandarísk yfirvöld hafasakað fjögur ríki – Kúbu,
Íran, Súdan og Sýrland – um
að styðja hryðjuverka-
starfsemi.
» Hertar öryggisreglurbandarískra yfirvalda eiga
að ná til allra farþega frá þess-
um fjóru löndum og eftirfar-
andi ríkjum: Afganistan, Alsír,
Írak, Líbanon, Líbíu, Nígeríu,
Pakistan, Sádi-Arabíu, Sómal-
íu og Jemen.
JACOB Zuma, forseti Suður-Afríku (t.h.), dansar á brúðkaupi sínu í þorp-
inu Nkandla í KwaZulu Natal-héraði í gær. Zuma, sem er 67 ára
fjölkvænismaður, kvæntist þá Thobeka Madiba, sem er 30 árum yngri. Fyr-
ir átti hann tvær eiginkonur og önnur þeirra tók þátt í athöfninni en hin
var heima til að undirbúa brúðkaupsveisluna. Zuma hefur kvænst alls
fimm konum, en skildi við eina þeirra og ein fyrirfór sér fyrir níu árum.
Hermt er að forsetinn sé að undirbúa sjötta brúðkaupið.
Reuters
Kvæntur þremur konum