Morgunblaðið - 05.01.2010, Qupperneq 15
Daglegt líf 15
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. JANÚAR 2010
Árið 2009 var Þingeyingum um margt hag-
stætt. Dilkar voru vænir, kýr mjólkuðu vel og
það var gróska í hestamennsku sem er vaxandi
búgrein. Nautakjötsframleiðsla er í sókn og
Þingeyingar framleiddu hlutfallslega mest
allra af úrvalsmjólk. Þá blómstraði ferðaþjón-
usta á sveitabæjum og enn er verið að auka
umsvifin því í Aðaldal verður hægt að kaupa
gistingu á nær tíu bæjum næsta sumar.
Umhverfisverðlaun voru nýlega til umfjöll-
unar hjá framkvæmda- og þjónustunefnd
sveitarfélagsins Norðurþings og var þar sam-
þykkt að bærinn Reykjavellir í Reykjahverfi
fengi viðurkenningu fyrir snyrtimennsku.
Þetta hefur mælst vel fyrir en segja má að
þetta sé mjög góð hvatning til þeirra sem
ganga alltaf vel um og eru öðrum til góðrar eft-
irbreytni. Umgengni á sveitabæjum í sýslunni
hefur tekið miklum framförum á undanförnum
árum og til þess að svo haldi áfram er nauð-
synlegt að hvetja menn til dáða í þeim efnum.
Íbúafjöldi í Þingeyjarsveit fer heldur niður á
við, en í sveitarfélaginu fækkaði um fjóra mið-
að við 1. desember 2009 og eru íbúarnir nú 941
í stað 945 árið 2008. Í byggðakjarnanum á
Laugum í Reykjadal fækkaði nokkuð og í
Reykjahlíðarþorpi í Mývatnssveit varð einnig
fækkun. Íbúaþróunin á sveitabæjunum er ekki
upp á við, enda fáir að hefja búskap í því ár-
ferði sem nú er. Bændafólk í héraðinu ræðir
þessa stöðu, en ljóst er að meðalaldur þeirra
sem stunda hefðbundinn búskap fer mjög
hækkandi.
Samgöngur skipta alla máli en viðhald vega er
undir niðurskurðarhnífnum við misjafnar und-
irtektir. Þá stendur til að fækka áætl-
unarferðum til Akureyrar um 36% árið 2010
og mun sú skerðing koma verst niður á ferða-
fólki, námsmönnum og eldri borgurum. Búið
er að skora á viðkomandi yfirvöld að taka
þessa ákvörðun til baka en ólíklegt er að þess-
um fyrirætlunum verði breytt.
Skólamál í Þingeyjarsveit verða væntanlega í
brennidepli í aðdraganda sveitarstjórnarkosn-
inganna sem fram fara í vor, en vart er að bú-
ast við því að hægt sé að reka þrjá grunnskóla
eftir þá fólksfækkun sem orðin er í héraðinu.
Lítið er talað um nýjar sameiningar og enn er
Tjörneshreppur einn á báti. Sameining sveit-
arfélaganna var að mörg leyti erfið fæðing og
ekki allir á einu máli um hverju hún hefur skil-
að.
Veturinn hefur verið kaldur undanfarið og það
marrar í hurðum útihúsa sem sumar hverjar
hafa hélað vel að innan í frostakaflanum. Fugl-
ar eru fáir á ferli og það hefur verið kuldalegt
krunkið í hrafninum. Engin hlýindaspá í þeim
hljóðum enda langt til vors. Þingeyingar
þekkja vel kalda vetrardaga og mörgum líkar
vel að hafa snjó og frost. Bóndi í Aðaldal orðaði
þetta svo:
Velkominn sértu, vetur kær,
vald þitt nú máttu kynna.
Á mig ei framar ótta slær
ágengni rosa þinna.
Morgunblaðið/Atli Vigfússon
Líflegt Jón Helgi Jóhannsson og Unnur S. Káradóttir með tvo nautkálfa sem fæddust um jólin.
LAXAMÝRI
Atli Vigfússon fréttaritari
Eftir Svanhildi Eiríksdóttur
Reykjanesbær | Fullt var út úr dyr-
um á áramótatónleikum Tónlistar-
félags Reykjanesbæjar, Álfar og
tröll, en flytjendur voru allt lista-
menn á Suðurnesjum. Fluttar voru
sögur og söngvar um jól og áramót af
sönghópnum Orfeus og hljómsveit-
inni Talentunum í útsetningum Arn-
órs Vilbergssonar kantórs. Handrit
unnu hjónin Bylgja Dís Gunn-
arsdóttir og Henning Emil Magn-
ússon.
Áramótatónleikar Tónlistarfélags
Reykjanesbæjar eru orðnir fastur
liður í menningardagskrá bæj-
arfélagsins. Sú nýjung varð þó í ár að
flytjendur, höfundar og stjórnendur
voru allt bæjarbúar og nær-
sveitamenn. Bylgja Dís Gunn-
arsdóttir sópransöngkona og stofn-
andi sönghópsins Orfeusar hafði í
félagi við eiginmann sinn, Henning
Emil Magnússon, sett saman ára-
mótadagskrá byggða á þekktum
heimildum, svo sem Þjóðsögum Jóns
Árnasonar, jólavísum Jóhannesar úr
Kötlum og þjóðlegum fróðleik þjóð-
háttafræðinganna Árna Björnssonar
og Ólínu Þorvarðardóttur. Þau komu
að máli við hljómsveitina Talent-
urnar, sem skipuð er hljóðfæraleik-
urum úr Kór Keflavíkurkirkju, og
stjórnandi kórsins, Arnór Vilbergs-
son, útsetti þekktar þjóðvísur, jóla-
og áramótavísur. Úr urðu skemmti-
legir og líflegir tónleikar með sögum
og söngvum í bland.
Tónleikarnir verða endurteknir í
Bíósal Duushúsa miðvikudaginn 6.
janúar kl. 20.00.
Morgunblaðið/Svanhildur Eiríksdóttir
Kötturinn Jólaköttur Jóhannesar úr Kötlum var flottur í meðförum Orefeusar og Talentanna. Hér hafa söngkon-
urnar Dagný Jónsdóttir og Birna Rúnarsdóttir brugðið sér í hlutverk kattarins.
Álfar og tröll á áramótatónleikum
Tónlistarfélags Reykjanesbæjar
Heimamenn sáu um flutning í ár og fullt var út úr dyrum
Morgunblaðið/Svanhildur Eiríksdóttir
Fjölhæfar Talenturnar eru jafnvígar á söng og hljóðfæraleik. Hér sjást
Hanna Björg Konráðsdóttir, Bjarni Benediktsson og Kristján Jóhannsson.
DANÍEL Þorsteinsson tónlistar-
maður býr ásamt fjölskyldu sinni í
Reykárhverfi í Eyjafjarðarsveit.
Haustið 2006 réðst hann til starfa
sem organisti og stjórnandi
kirkjukórs Laugalandsprestakalls
og hefur fjögur undanfarin haust
samið nýjan jólasálm fyrir kórinn.
Daníel byrjaði mjög ungur að
skrifa niður það sem flaug gegn-
um hugann þegar hann settist við
hljóðfærið. „En þegar samstarf
mitt og kirkjukórs Laugalands-
prestakalls hófst árið 2006 og ég
skynjaði hvað þetta var góður og
öflugur kór með hreinan hljóm
ákvað ég að semja þessi jólalög.“
Daníel segist ekki líta á sig sem
tónskáld og hann sitji ekki dag-
langt við tónsmíðar þó hann geti
samið brúkstónlist eins og hann
orðar það svo hæversklega.
„Ég vinn mikið við að útsetja
bæði fyrir kóra, einsöngvara og
hljóðfæri og það tekur sinn tíma.
En þegar ég er að semja þessi lög
þá byrja ég á því að finna fallegt
kvæði eða ljóð og læt það tala til
mín, reyni að finna músíkina í því.
Mjög oft kviknar laglínan út frá
ljóðinu.“
Daníel segist ekki líta svo á að
hann sé að semja fyrir eilífðina.
„Ef fólk vill nota þetta núna, sem
ég er að gera eins og kirkjukórinn
til dæmis og líkar tónlistin vel þá
er það fullkomlega nóg. Að fá svo
að flytja þetta annað hvort á að-
ventukvöldum eða um jól, það eru
forréttindi.“
Aðspurður hvort hann ætli að
halda þessu áfram segir Daníel að
hann sé algjörlega orðinn háður
þessu og hann hlakki til að takast
á við það á hverju hausti.
Við orgelið Daníel Þorsteinsson leik-
ur á orgel Grundarkirkju við aftan-
söng síðastliðið aðfangadagskvöld.
Nýr jólasálmur fyrir hver jól