Morgunblaðið - 05.01.2010, Síða 21
Minningar 21
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. JANÚAR 2010
Minningar á mbl.is
Ingibjörg Jóhanna
Vilhjálmsdóttir
Höfundar: Þorvaldur
Steinþórsson.
Guðbjörg Jóna Jóhanns.
Ingibjörg Jóhanna.
Hrafnkell
Kristjánsson
Höfundar: Ólafur Már
Svavarsson.
Viðar Halldórsson.
Ólafur E. Rafnsson.
Ólöf Huld Helgadóttir.
Ásgeir M. Ólafssson og
Kristján Ó. Guðnason.
Geir Þorsteinsson.
Leifur S. Garðarsson.
Agnes Lára
Magnúsdóttir
Höfundar: Jón Agnar,
Bára og Þórey.
Martin Meyer
Höfundur: Halldór G. Meyer
Tryggvi Rúnar
Guðjónsson
Höfundar: Mamma og pabbi.
Guðlaugur, Valdís og Ásta.
Ásta Jónsdóttir
Höfundar: Þórður Jónsson.
Martha og Einar Júlíus.
Ólafur Geir Vagnsson.
Inga Hrefna
Búadóttir
Höfundar: Þórey Kolbeins.
Árni Björnsson.
Sigrún.
Jón Kristberg
Sigurðsson
Höfundar: Bjarni Óskarsson
og fjölskylda.
Guðný.
Fleiri minningargreinar um Björn
Björnsson bíða birtingar og munu
birtast í blaðinu næstu daga.
✝ Björn Björnssonfæddist á Syðra
Laugalandi í Eyja-
firði 8. júní 1947
Hann lést 18. desem-
ber sl. Foreldrar hans
eru Margrét Þor-
steinsdóttir hús-
móðir, f. 12. febrúar
1922, d. 29. ágúst
2009 og Björn Ólafur
Ingvarsson, fyrrver-
andi yfirborgardóm-
ari í Reykjavík, f. 20.
maí 1917. Bræður
Björns eru þeir Ingv-
ar lögmaður, f. 8.júlí 1944, d. 7.apríl
1997 og Þorsteinn prentari, f.
31.júlí 1945. B jörn var í sambúð
með Sigrúnu Halldórsdóttur hjúkr-
unarfræðingi, f. 12. mars 1950, þau
slitu samvistum. Börn þeirra eru
Björn Viðar nemi, f. 23.júlí 1986 og
Margrét, nemi, f. 10. desember
1991. Uppeldisbörn Björns eru þau
Halldór Guðfinnsson flugstjóri, f.
30. nóvember 1973 og Hildigunnur
Guðfinnsdóttir flugfreyja, f. 6.júlí
1977.
Björn bjó alla sína
tíð í Hafnarfirði.
Hann gekk í Lækjar-
skóla, Flensborg og
Núp í Dýrafirði einn-
ig var hann í versl-
unarskóla í Brighton
á Englandi. Björn var
formaður að-
alstjórnar íþrótta-
félagssins Hauka árið
1973-’74 og formaður
handknattleiks-
deildar Hauka 1985-
’87. Hann var ötull
framsóknarmaður
ásamt því að taka þátt í starfi Frí-
múrarareglunnar í Hafnarfirði.
Björn starfaði til fjölda ára í frí-
höfninni á Keflavíkurflugvelli, rak
heildverslun var verslunarmaður
og bókari hjá bandaríska hernum.
Árið 2001 veikist hann og lét þá af
störfum. Björn verður jarðsunginn
frá Hafnarfjarðarkirkju í dag,
þriðjudaginn 5. janúar og hefst at-
höfnin kl, 13.
Meira: mbl.is/minningar
Pabbi minn var þrjóskasti maður í
heimi. Mér fannst það alltaf svo
skemmtilegt, hvað hann stóð alltaf á
sínu. „Helvítis íhaldið“ var eitthvað
sem ég heyrði þónokkuð oft þegar ég
fór að hitta pabba. Hann var með
ótrúlega sterkar skoðanir og hann
var mesti Framsóknarmaður sem ég
veit um. Mér fannst alltaf svo gaman
þegar við deildum sömu skoðunum á
einhverju efni. Þá fannst mér ein-
hvern veginn eins og ég hefði á réttu
að standa, t.d. þegar kosið var um
stækkun álvers hér í Hafnarfirði þá
var ég sterklega á móti því og pabbi
líka. Ætli ég hafi það ekki frá pabba
hvað ég sé þrjósk?
Pabbi fór oft með mig í bíltúr
Nesjavallaleiðina á haustin. Honum
fannst haustlitirnir svo fallegir. Þeg-
ar ég var svona 5-6 ára bað ég pabba
um kött en þá gaf hann mér tölvudýr
sem var köttur. Ég var ótrúlega sár.
Ég man líka rosalega vel eftir því
þegar hann fór með mig og Björn
Viðar bróðir upp á völl þar sem hann
vann og við fengum okkur Wendy’s
saman. Við kölluðum það alltaf litlu
Ameríku.
Það sem einkenndi pabba minn
var Framsókn, íþróttafélagið Hauk-
ar og brids. Þetta var pabbi minn í
hnotskurn. Hann var ótrúlega góður
maður. Hann vildi manni allt svo
gott. Það sem mér finnst óréttlátast
er að eftir að hann hafi fengið heila-
blóðfall og verið ofboðslega duglegur
og seigur að vinna sig í gegnum það,
þurfti hann að fara svona. Ég hefði
viljað hafa hann lengur hjá mér.
Margrét Björnsdóttir.
Elsku Björn, pabbi. Ég var ekki
orðin tveggja ára þegar þið mamma
hófuð sambúð. Við náðum strax vel
saman og ég hafði alltaf mikið dálæti
á þér. Hvernig var annað hægt þeg-
ar stór og mikill maður ber mann á
herðum sér út um allt. Þú tókst að
þér hlutverk uppeldisföður míns og
reyndist okkur systkinum ávallt vel.
Alltaf gat ég verið vissum stuðning
þinn og aðstoð hvort sem það var í að
finna gistingu erlendis eða hjálpa við
val á vinnu.
Veikindi þín voru þér erfið en aldr-
ei kvartaðir þú og þar kom ákveðni
þín og þrautsegja sér vel. Aldrei leit-
aðir þú eftir aðstoð annarra þó ég
hefði gjarnan viljað gera meira fyrir
þig. Handboltinn átti stóran sess í
þínu lífi og varstu alla tíð duglegur
að sækja leiki. Þú smitar mig af
handboltaáhuga þínum. Ég lék
handbolta í nokkur ár, en þá kom
ekkert annað til greina en að leika
með þínum mönnum í Haukum. Síð-
ustu árinn átti brids stóran þátt í
þínu lífi og mun ég ævinlega vera
þakklát fyrir þann félagskap og vin-
áttu sem þú fannst þar. Ég mun allt-
af varðveita þær minningar um þá
skemmtilegu hluti sem við gerðum
saman, t.d söluferðir okkar um allt
land eða bara sitja saman, horfa á
bíómyndir.
Á gelgjuskeiðinu hætti ég að kalla
þig pabba. Ég veit að það særði þig
en þú mátt vita að auðvitað ertu
pabbi minn og átt svo mikið í mér,
meira en okkur bæði gæti grunað.
Ég var heppin að eiga þig sem auka
pabba.
Þín dóttir,
Hildigunnur.
Björn Björnsson
Minningarkort
535 1825
www.hjarta.is 5351800
✝
Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og
amma,
EMMY MARGIT ÞÓRARINSDÓTTIR,
Neðstaleiti 2,
Reykjavík,
sem lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi
aðfaranótt þriðjudagsins 22. desember, verður
jarðsungin frá Dómkirkjunni í Reykjavík föstu-
daginn 8. janúar kl. 15.00.
Blóm og kransar eru vinsamlega afþakkaðir, en þeim sem vilja minnast
hennar er bent á líknardeildina í Kópavogi og heimahlynningu
Landspítalans í síma 543 1159.
Guðjón Hallur Hallsson,
Hallur Guðjónsson, Guðbjörg R. Tryggvadóttir,
Þórunn Guðjónsdóttir, Melanie Huetter,
Margrét Petrína Hallsdóttir.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir
og afi,
HANNES ÁRNI WÖHLER,
Logalandi 6,
lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi sunnu-
daginn 3. janúar.
Jarðarförin fer fram frá Bústaðakirkju föstudaginn
8. janúar kl. 13.00.
Þeim sem vildu minnast hans er bent á Krabbameinsfélag Íslands.
Kirstín G. Lárusdóttir,
Sigríður Wöhler, Halldór Þórarinsson,
Lárus Árni Wöhler, Hafdís Hallgrímsdóttir,
Herdís Wöhler, Bjarni Svavarsson,
Ásdís Wöhler, Nökkvi Svavarsson
og barnabörn.
✝
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir,
amma, langamma, systir og mágkona,
KARÓLÍNA ÞÓRORMSDÓTTIR,
Þinghólsbraut 10,
Kópavogi,
sem andaðist á Landspítalanum Fossvogi fimmtu-
daginn 24. desember, verður jarðsungin frá
Kópavogskirkju miðvikudaginn 6. janúar kl. 13.00.
Júlíus S. Júlíusson,
Stefanía Júlíusdóttir, Vilhjálmur Þorsteinsson,
Hörður Júlíusson, Júlía J. Puiaob,
Jóhanna Júlíusdóttir,
Sigrún Júlíusdóttir,
Trausti Júlíusson, Helga G. Óskarsdóttir,
Jón E. Júlíusson,
Aðalheiður Þórormsdóttir, Sigurður Ágústsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Elskuleg systir okkar og móðursystir,
HALLA EINARSDÓTTIR
frá Kárastöðum í Þingvallasveit,
Barónsstíg 3,
Reykjavík,
andaðist á líknardeild Landspítala Landakoti
miðvikudaginn 30. desember.
Útförin fer fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Fyrir hönd annarra vandamanna,
Elísabet Einarsdóttir,
Stefán Bragi Einarsson,
Einar Jóhannesson.
✝
Elskulegur eiginmaður, faðir, tengdafaðir, afi og
langafi,
VALGEIR LÁRUSSON,
Grensásvegi 54,
lést á hjúkrunarheimilinu Skógarbæ þriðjudaginn
29. desember.
Útförin fer fram frá Fossvogskirkju föstudaginn
8. janúar kl. 11.00.
Aðalheiður Kristjánsdóttir,
Hildur Valgeirsdóttir, Jóhann Larsen,
Jóhanna Valgeirsdóttir,
Kristján Valgeirsson, Elínborg Friðgeirsdóttir,
Gunnar Valgeirsson, Elinóra Harðardóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir,
afi, bróðir og mágur,
BIRGIR G. ALBERTSSON
kennari
frá Hesteyri,
Lækjarási 5,
Reykjavík,
sem lést á Grensásdeild Landspítalans, annan dag
jóla, verður jarðsunginn frá Áskirkju föstudaginn
8. janúar kl. 15.00.
Þeir sem vilja minnast hans er bent á sumarbúðir KFUM og K.
Evlalía Kristín Guðmundsdóttir,
Borghildur Birgisdóttir, Egill Steinar Gíslason,
Guðmundur Albert Birgisson, Unnur Jóhannsdóttir,
Gunnar Friðrik Birgisson, Erla Sesselja Jensdóttir,
Guðbjörg Helga Birgisdóttir, Ingi Hlynur Sævarsson,
barnabörn,
Dagný G. Albertsson,
Margrét Ólafía Guðmundsdóttir,
Oddrún Jónasdóttir Uri.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma,
MARÍA ÓLÍNA KRISTINSDÓTTIR
frá Horni,
Árskógum 6,
Reykjavík,
lést á jóladag á Landspítalanum í Fossvogi.
Gunnlaugur K. Hreiðarsson, Kolbrún Guðmundsdóttir,
Helgi Már Hreiðarsson, Guðrún Ólöf Sigmundsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.