Morgunblaðið - 05.01.2010, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 05.01.2010, Blaðsíða 25
Dagbók 25 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. JANÚAR 2010 Sudoku Frumstig 7 1 2 8 5 4 9 3 8 5 7 5 2 7 2 4 5 9 2 9 3 4 1 7 9 4 8 9 8 7 4 3 5 3 9 5 4 2 4 8 1 3 5 1 5 3 4 8 9 8 9 7 9 4 4 6 1 8 6 8 5 3 6 3 8 7 2 5 4 1 8 7 3 8 1 6 6 8 1 2 7 4 9 5 3 9 3 7 8 5 1 4 2 6 5 2 4 3 9 6 1 8 7 8 9 5 7 3 2 6 1 4 3 4 2 1 6 5 7 9 8 1 7 6 9 4 8 5 3 2 2 6 9 4 1 3 8 7 5 7 5 8 6 2 9 3 4 1 4 1 3 5 8 7 2 6 9 9 6 5 3 2 1 8 7 4 4 3 2 7 9 8 5 6 1 7 1 8 4 6 5 3 9 2 6 2 3 5 1 7 4 8 9 1 4 9 8 3 6 7 2 5 5 8 7 9 4 2 6 1 3 8 9 4 2 7 3 1 5 6 2 7 6 1 5 4 9 3 8 3 5 1 6 8 9 2 4 7 6 9 3 1 7 8 2 4 5 7 8 4 6 2 5 9 3 1 5 2 1 9 4 3 8 7 6 1 3 5 7 9 6 4 2 8 9 6 2 3 8 4 5 1 7 8 4 7 2 5 1 6 9 3 3 7 8 4 6 9 1 5 2 4 1 6 5 3 2 7 8 9 2 5 9 8 1 7 3 6 4 Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3-reit birtist tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má tvítaka neina tölu í röðinni. Í dag er þriðjudagur 5. janúar, 5. dagur ársins 2010 Orð dagsins: Því hvar sem fjársjóður yðar er, þar mun og hjarta yðar vera. (Lúk. 12, 34.) Strætósamgöngur til og frá Kjal-arnesi gætu verið betri. Kjal- arnes er vissulega lítið hverfi í hinu stóra samhengi höfuðborgarsvæð- isins en eru níu ferðir á sólarhring á virkum degi, sex ferðir á laug- ardögum og fjórar á sunnudögum ekki fulllítið af því góða? Myndu önnur hverfi í Reykjavík sætta sig við þá þjónustu? Sérstaklega eru tvær slæmar gloppur í þjónustunni – enginn vagn fer frá Kjalarnesi milli kl. 10.06 og 14.06 á virkum dögum og enginn frá kl. 18.06 til 22.06. x x x Fyrri gloppan kemur sér illa fyrirfólk sem mæta þarf til vinnu á hádegi. Vagninn kl. 10.06 kemur of snemma og vagninn kl. 14.06 of seint. Víkverji þorir ekki að hugsa þá hugsun til enda sé fólk illa upp- lagt og missi af 10.06-vagninum. Sonur Víkverja er í hópi þeirra sem geldur fyrir seinna gatið. Hann leggur stund á íþróttaæfingar í Grafarvogi sem oftast hefjast kl. 20. Taki hann vagninn kl. 18.06 þarf hann að bíða í hálfa aðra klukku- stund eftir æfingunni. Það þýðir að drengurinn er oftar en ekki keyrður á æfingar. Víkverji telur það svo sem ekki eftir sér en stætisvagn kl. 19.06 væri eigi að síð- ur vel þeginn valkostur. Langi menn að skella sér með strætó upp á Kjalarnes eftir vinnu á virkum degi er um tvo möguleika að ræða, að taka vagn sem fer frá Mos- fellsbæ kl. 18.45 eða kl. 22.45. Það er líklega eins gott að vinir og vandamenn Kjalnesinga séu sjálfir akandi. x x x Fyrsti vagninn á laugardögum ferekki frá Kjalarnesi fyrr en kl. 12.06 sem þýðir að fólk sem þarf að mæta til vinnu á laugardagsmorgni hefur ekkert gagn af þjónustunni. Er það ásættanlegt? Víkverja dettur ekki í hug að biðja um sömu þjónustu fyrir Kjalarnes og Breiðholtið eða Grafarvoginn en er ekki lágmark að vagnar gangi á klukkutímafresti frá kl 8 á morgn- ana til miðnættis? víkverji@mbl.is Víkverjiskrifar Krossgáta Lárétt | 1 mánuður, 8 fallegur, 9 skólagangan, 10 nöldur, 11 horaðar, 13 vesælar, 15 sterts, 18 karldýr, 21 stök, 22 dökk, 23 kjánum, 24 ómerkilegt. Lóðrétt | 2 bleytukrap, 3 hreinar, 4 spilla um- hverfi, 5 gufusjóðum, 6 mjög, 7 fugl, 12 kraftur, 14 dveljast, 15 ský, 16 mjó, 17 létu, 18 stólkoll, 19 geðsleg, 20 lofa. Lausn síðustu krossgátu Lárétt: 1 slaga, 4 fullt, 7 afrit, 8 niðra, 9 inn, 11 gekk, 13 Erna, 14 ertur, 15 spor, 17 roks, 20 arg, 22 kokks, 23 urðar, 24 senna, 25 lynda. Lóðrétt: 1 slang, 2 afrak, 3 atti, 4 fönn, 5 lýður, 6 tjara, 10 notar, 12 ker, 13 err, 15 sekks, 16 orkan, 18 orðan, 19 syrpa, 20 asna, 21 gull. 6 8 11 15 22 1 24 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 7 20 2 16 Skák Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is 1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 a6 4. Ba4 Rf6 5. O-O Rxe4 6. d4 b5 7. Bb3 d5 8. dxe5 Be6 9. c3 Bc5 10. Bc2 O-O 11. De2 He8 12. Be3 Bg4 13. Bxc5 Rxc5 14. De3 Bxf3 15. gxf3 Staðan kom upp á opnu móti sem haldið var í London fyrir skömmu. Ró- bert Lagerman (2358) hafði svart gegn hinum franska Terry Pupier (1940). 15… Rxe5! 16. Dxc5 Dg5+ 17. Kh1 Rxf3 18. Bd1 Df4! 19. Bxf3 Dxf3+ 20. Kg1 He6 21. Hc1 Hg6+ og hvítur gafst upp. Róbert fékk 6 vinninga af níu mögulegum og lenti í 10.-23. sæti af 125 keppendum. Frammistaða hans á mótinu samsvaraði árangri upp á 2312 stig. Svartur á leik Brids Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is Gjafir bridsmanna. Norður ♠974 ♥KD4 ♦87542 ♣96 Vestur Austur ♠-- ♠G83 ♥10983 ♥G7642 ♦DG63 ♦ÁK109 ♣G10875 ♣2 Suður ♠ÁKD10652 ♥Á ♦-- ♣ÁKD43 Suður spilar 6♠. Á vissan hátt stríðir það gegn heil- brigðri bridshugsun að taka ekki hvern einasta slag sem býðst. Til dæmis er nýliðum illa við að dúkka – því ekki að taka slag strax ef maður getur? En gróðarökin eru hverju mannsbarni auðskilin: Í sjálfu sér er engin dyggð í því fólgin að „gefa“ slag; sú „gjöf“ er aldrei gefin af heilum hug og aðeins til þess fallin að leggja grunn að meiri gróða síðar. Brids er ekki leikur fyrir góðmenni. Ef við leggjum allar siðferðilegar vangaveltur til hliðar – og hvað annað ætti að gera við þær, eins og Mollo spurði forðum – þá snýst spilið að ofan um gjöf í grískum anda. Út kemur hjarta, sagnhafi tekur ♠Á í öðrum slag og sér leguna. Spilar svo ♠10 og brosir blítt við austri, sem er þó hollast að af- þakka óvænt boð. Hrútur Þú þarft að finna tjáningarþörf þinni útrás með einhverjum hætti. Mundu að aðrir reiða sig á þig svo þú skalt halda þig við það sem þú getur staðið við. (20. apríl - 20. maí)  Naut Það er eitt og annað sem þú þarft að velta fyrir þér og hugsa til enda. Mundu samt að það eru takmörk fyrir öllu, líka því sem hægt er að semja um. (21. maí - 20. júní)  Tvíburar Heppnin virðist vera með þér núna og þú munt áður en langt um líður uppskera laun erfiðis þíns. Þú ert mælsk- an uppmáluð þegar sá gállinn er á þér. (21. júní - 22. júlí)  Krabbi Stundum, eða kannski yfirleitt, er af hverju? ekki sérstaklega góð spurning. Leggðu þig fram, en mundu að það ert þú sem ert stjórnandinn í þínu lífi. (23. júlí - 22. ágúst)  Ljón Þú vekur bæði aðdáun og forvitni. Allt á sér sinn stað og sína stund. Leyfðu þeim sem eru í kringum þig að greiða úr flækjunni sjálfir. Þú hefur óþarfa áhyggj- ur af ungviðinu. (23. ágúst - 22. sept.)  Meyja Í ástum og viðskiptum liggur vald þitt í sjálfstæði þínu. Erfið verkefni krefj- ast oft ferskra lausna. Útivist gerir þér gott. (23. sept. - 22. okt.)  Vog Varastu allan oflátungshátt í garð samstarfsmanna þinna, þótt þú hafir á réttu að standa. Þú heldur hlífiskildi yfir vini. (23. okt. - 21. nóv.)  Sporðdreki Þú hendir burt öllum óþarfa. Þú veist hvar hnífurinn stendur í kúnni og ert þar af leiðandi á góðri leið með að leysa tiltekið vandamál. (22. nóv. - 21. des.) Bogmaður Einhver dáir þig. Vertu ekki bara til fyrir aðra, það gengur ekki til lengdar. Þú brýtur heilann um nám sem þig langar í. Kannski er komið að því að skella sér í skóla. (22. des. - 19. janúar) Steingeit Láttu yfirborðshjal duga í sam- ræðum við vini eða í hópum í dag. Flýttu þér samt hægt og kannaðu vandlega alla valkosti. Nágranni þinn veldur heilabrot- um. (20. jan. - 18. febr.) Vatnsberi Taktu ekki þátt í deilum af neinu tagi og láttu aðra um að finna lausn á sínum málum. Þú vekur athygli fyrir skemmtilegan fatasmekk. Nýttu útsöl- urnar. (19. feb. - 20. mars) Fiskar Leitaðu ráða hjá þeim sem eru reyndari en þú og þá áttu auðveldara með að taka af skarið. Þú bíður með öndina í hálsinum eftir ákvörðun ættingja. Stjörnuspá 5. janúar 1848 Franskir skipbrotsmenn komu að landi í Breiðdal. Þeir höfðu lagt af stað frá Noregi til Frakklands í október en hrak- ist í hafi. 5. janúar 1874 Stjórnarskrá „um hin sérstöku málefni Íslands“ var staðfest af konungi. Hún tók gildi 1. ágúst. Alþingi fékk þá löggjaf- arvald og fjárveitingavald. Þetta var fyrsta stjórnarskrá landsins. 5. janúar 1931 Fyrsta barnið fæddist á Land- spítalanum, en hann var tek- inn í notkun tveimur vikum áður. Þennan sama dag 62 ár- um síðar, árið 1993, voru nítján fæðingar á fæðing- ardeild Landspítalans, en það var met. 5. janúar 1941 Dreift var fjölrituðu bréfi til breskra hermanna og þeir hvattir til að ganga ekki í verk Íslendinga sem voru í verk- falli. Breska herstjórnin leit á þetta sem áskorun til her- manna um að efna til upp- reisnar. Fjórir menn voru dæmdir fyrir verknaðinn. Þetta var nefnt dreifibréfs- málið. 5. janúar 1946 Kvikmynd um lýðveldishátíð- ina 17. júní 1944 var frum- sýnd. Þetta var fyrsta kvik- myndin sem tekin var á Íslandi með tónum, tali og í „eðlileg- um litum“. 5. janúar 1983 Lægð, ein sú dýpsta sem sögur fara af (932 millibör), gekk yf- ir landið og olli truflunum á samgöngum en ekki teljandi tjóni. Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson. Þetta gerðist… „ÉG er úti á Madeira og er að keyra út á flugvöll,“ sagði Iðunn Steinsdóttir, barnabókahöfundur og kennari þegar blaðamaður náði af henni tali í gær- morgun. Iðunn og eiginmaður hennar, Björn Frið- finnsson, höfðu þá dvalið á hinni fögru eldfjalla- eyju í hálfan mánuð. Þar fögnuðu þau sjötugs- afmælum sínum en Björn varð sjötugur á Þorláksmessu. Þau lyftu sér m.a. upp með því að fara í gönguferðir en Madeira er þekkt fyrir ægi- fagrar gönguleiðir. „Þetta var mjög fínt. Madeira er eldfjallaeyja, bara miklu minni. Hér var heldur enginn ísaldarjökull og því eru fjöllin beittari. Það er óskaplega gaman að ganga hér um,“ sagði Iðunn. Frá Madeira liggur leið þeirra Iðunnar og Björns til Kaup- mannahafnar þar sem þau ætla að dvelja í nokkra daga, finna góðan veitingastað, hugsanlega sækja leiksýningu og bara „hygge“ sig. Einnig ætla þau að hafa samband við danskan „skiptinemason“ sinn sem dvaldi hjá þeim fyrir tæplega 30 árum en þau eru enn í góðu sam- bandi. Þegar heim verður komið bíða hjónanna síðan ýmsar veislur með ættingjum og afkomendum. Afmælisár Iðunnar fer augljóslega sérstaklega vel af stað. runarp@mbl.is Iðunn Steinsdóttir rithöfundur er sjötug Afmælisferð til Madeira Nýbakaðir foreldrar? Sendið mynd af barninu til birtingar í Morgunblaðinu Frá forsíðu mbl.is er einfalt að senda mynd af barninu með upplýsingum um fæðingarstað, stund, þyngd, lengd, ásamt nöfnum foreldra. Einnig má senda tölvupóst á barn@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.