Morgunblaðið - 05.01.2010, Page 36
ÞRIÐJUDAGUR 5. JANÚAR 5. DAGUR ÁRSINS 2010
»VEÐUR mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 350 ÁSKRIFT 3890 HELGARÁSKRIFT 2400 PDF Á MBL.IS 2200
SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT
Morgunblaðið bíður
eftir þér þegar þú
vaknar á morgnana
FÓLK Í FRÉTTUM»
! " #
$ $
!
%& '!& ! (
)*+,--
*.),.-
))/,0-
*+,.10
*),-12
)3,+0)
)*.,//
),2+33
)1-,)2
)31,2+
456
4 +" 7
85 *.).
)*+,/-
*.),-+
))1
*+,)00
*),0-3
)3,-)*
)*),**
),2-)0
)1-,3)
)31,/+
*2*,3+0+
%
9: )*-,)-
*.*,.2
))1,2-
*+,*20
*),3*)
)3,-02
)*),-0
),2---
)10,*1
)/.,2+
Heitast 0 °C | Kaldast 12 °C
Léttskýjað að mestu,
frost 0 til 12 stig, mild-
ast við sjóinn. Víða
hægt og bjart veður í
dag og herðir frost.
Heimildarmyndin
Árásin á Goðafoss er
með þeim „bestu og
minnisstæðustu“,
segir Sæbjörn Valdi-
marsson. »33
SJÓNVARP»
Glæstur
Goðafoss
TÓNLIST»
Söngkonan Lhasa er lát-
in, 38 ára að aldri. »31
Bergþóra Jónsdóttir
veltir fyrir sér hlut-
verki tónlistarhúss-
ins við Austurhöfn
sem nýverið fékk
nafnið Harpa. »30
TÓNLIST»
Hlutverk
Hörpu
KVIKMYNDIR»
Prinsessan og froskurinn
gagnrýnd. »29
TÓNLIST»
Högni í Hjaltalín horfir
fram á veginn. »28
Menning
VEÐUR»
1. G - bletturinn finnst ekki
2. Icesave-samkomulag mikilvægt
3. Ólafur hitti Jóhönnu og Steingrím
4. „Mikill missir ef ég hefði farið“
Íslenska krónan veiktist um 0,10%
»MEST LESIÐ Á mbl.is
Skíðakappinn
knái, Björgvin
Björgvinsson,
hefur verið valinn
Íþróttamaður Dal-
víkur árið 2009.
Það telst til tíðinda
í sambandi við val-
ið, að þetta er tíunda árið í röð sem
Björgvin hlýtur sæmdarheitið.
Björgvin æfir íþrótt sína allt árið.
Hann tekst á við mörg stór verkefni
á hverju ári, svo sem Evrópubikar,
Heimsbikar og nú stefnir hann á
þátttöku í Ólympíuleikunum sem
haldnir verða í Vancouver í Kanada í
febrúar á þessu ári.
SKÍÐAÍÞRÓTTIN
Björgvin valinn Íþróttamað-
ur Dalvíkur tíunda árið í röð
Kvikmynda-
tónskáldið Atli
Örvarsson er bú-
inn að koma sér vel
fyrir í draumaverk-
smiðjunni Holly-
wood og sífellt
hleypur á snærið
hjá honum. Nýjasta verkefni hans
fólst í að semja fyrir myndina The
Fourth Kind sem skartar stórleik-
konunni Millu Jovovich í aðalhlut-
verki. Tónlistin er komin út á plötu,
merkt Atla, og fær góða dreifingu
um heim allan í gegnum amazon,
iTunes og fleiri stórar tónlistar-
verslanir.
TÓNLIST
Kvikmyndatónlist Atla Örv-
arssonar út um allan heim
Sænska knatt-
spyrnufélagið
Kristianstad til-
kynnti í gær að það
hefði samið á ný við
íslensku landsliðs-
konurnar Mar-
gréti Láru Við-
arsdóttur, Guðnýju Björk
Óðinsdóttur og Erlu Steinu Arnar-
dóttur. Þær sömdu allar til tveggja
ára við félagið, sem hélt sæti sínu í
úrvalsdeildinni í ár með frábærri
frammistöðu í seinni umferðinni.
Elísabet Gunnarsdóttir þjálfar
Kristianstad og samdi að nýju við
félagið fyrir nokkrum vikum.
KNATTSPYRNA
Margrét Lára og félagar
áfram í Kristianstad
ÞEIR Egill Örn Jóhannsson, framkvæmdastjóri For-
lagsins og Pétur Már Ólafsson, útgefandi hjá Bjarti-
Veröld, eru báðir á því að jólavertíðin í bóksölu þetta
árið hafi verið góð og jafnframt hafi árið heilt yfir ver-
ið gott. Egill tiltekur sérstaklega að sala hafi verið
dreifðari en oft áður, bækur margra höfunda hafi náð í
gegn og selst vel. Pétur Már er á sama máli en salan hjá
honum jókst frá því sem áður var. Pétur segir jafn-
framt að hin svokallaða vertíð hafi færst framar, salan
fari nú í gang í september og þá sé fólk að kaupa bækur
fyrir sjálft sig fremur en til gjafa. Söluhæsti höfundur-
inn þetta árið var Arnaldur Indriðason, en bók hans,
Svörtuloft, seldist í á þriðja tug þúsunda eintaka. | 27
Bækur seldust
vel fyrir jólin
Morgunblaðið/RAX
Ánægja Bóksala gekk vonum framar í ár.
„Mér finnst það til skammar að ég
sé ekki búinn að fá svör. Ég hef
mikið hugsað um þetta Icesave og
verð alltaf reiður þegar ég geri
það,“ segir Rúnar Freyr Júlíusson,
10 ára Hafnfirðingur, spekings-
legur á svip en hann hefur í þrí-
gang ritað mótmælabréf í tölvu-
pósti til Jóhönnu Sigurðardóttur
forsætisráðherra og Steingríms J.
Sigfússonar fjármálaráðherra en
ekki fengið nein svör enn.
Rúnar segist ætla að senda bréfið
í fjórða sinn ef engin svör fást.
Morgunblaðið fékk ekki svör frá
aðstoðarmanni Jóhönnu í gær en
aðstoðarmaður Steingríms sagði
hann ætla að svara Rúnari Frey við
fyrsta tækifæri, en ekki hefði tekist
að svara fjölda bréfa sem fjármála-
ráðherra hefði fengið persónulega
á síðustu vikum.
Spurður hvort margir vinir hans
eða bekkjarfélagar séu að spá í Ice-
save eða skuldir heimilanna segir
Rúnar Freyr svo ekki vera. „Aðal-
lega eru það ég og einn strákur í
bekknum mínum sem erum að
hugsa um þetta,“ segir hann.
Hefur mótmælt áður
Rúnar Freyr hefur áður staðið í
mótmælum. Í félagi við vinkonu
sína mótmæltu þau miklu rusli í
Hafnarfirði og einnig umgengni
allra jarðarbúa. Er þau voru í 3.
bekk, þá 8 ára, gengu þau á milli
fólks og verslana í miðbæ Hafnar-
fjarðar með mótmælaspjöld. „Við
fengum vaxlitina hennar mömmu
til að teikna á spjöld og skrifuðum
slagorð og teiknuðum myndir. Við
töluðum við 46 manneskjur,“ segir
Rúnar en meðal slagorða þeirra
voru „Gefum öðru lífi séns“ og
„Björgum náttúrunni“. bjb@mbl.is
Rúnar Freyr, 10 ára Hafnfirðingur, hefur í þrígang sent ráðherrum bréf
Verður reiður
vegna Icesave
Morgunblaðið/Heiddi
Mótmælandi Rúnar Freyr Júlíusson hefur áður staðið í mótmælum og bjó
þá ásamt vinkonu sinni til spjaldið í bakgrunni um að bjarga náttúrunni.
Steingrímur J. ætlar að svara á næst-
unni en ekkert heyrist frá Jóhönnu
KARLALANDSLIÐIÐ í hand-
knattleik kom saman til æfinga í
gær og verður á fullri ferð út
þennan mánuð. Eftir nákvæmlega
tvær vikur, þriðjudaginn 19. jan-
úar, mætir það Serbíu í fyrsta
leik sínum í úrslitakeppni
Evrópumótsins í Austurríki.
Af því tilefni mun Morgun-
blaðið kynna einn leikmann liðs-
ins á degi hverjum og fyrstur í
röðinni er markvörðurinn Hreið-
ar Levy Guðmundsson. | Íþróttir
Tvær vikur
í fyrsta leik
Tölvubréf Rúnars Freys til for-
sætis- og fjármálaráðherra:
„Hjartanlega sæl, kæru Jóhanna
og Steingrímur. Rúnar heiti ég og
er aðeins 10 ára en hef nú samt
góða og gilda ástæðu til að mót-
mæla. Fyrsta spurningin sem ég
rita hér í þetta bréf er þess eðlis
að ég svara henni einnig hér. Hún
er að sjálfsögðu: Af hverju hefur
aðeins 10 ára drengur vilja til að
mótmæla hart og sterkt og svarið
er auðvitað að ég: 10 ára drengur
skuli skulda margar milljónir. Já,
milljónir!!!! bara út af ice-save. Ég
spyr einnig af hverju ekki er búið
að finna lausn til bjargar heimil-
unum fyrst búið er að leita í heilt
ár. Já! Við krakkar fylgjumst vel
með. Hinir fullorðnu hafa þegar
byrjað að mótmæla og þú getur
sveiað þér upp á að barnamótmæli
eru á döfinni. Ég býst við svari við
þessum spurningum mínum á
næstu vikum. Þetta er í þriðja
skiptið sem ég sendi ykkur þetta
og 3 mánuðir síðan ég sendi þetta
fyrst. Kv., Rúnar Freyr Júlíusson.“
„Við krakkar fylgjumst vel með“