Monitor - 22.04.2010, Page 3
„Þetta er bara mjög gaman. Fólk
hrósar manni og maður fær smá
athygli og það eykur kannski aðeins
á sjálfstraustið. En þetta er nú bara
einhver nafnbót,“ segir hógvær Atli
Hjaltested, nýkjörinn ræðumaður
Íslands. Atli fór fyrir
liði MS-inga sem
lagði Verzlinga í
úrslitum MORFÍS
um síðustu helgi.
Umræðuefnið var
„fáfræði er sæla“
og mæltu MS-ingar
með fullyrðingunni.
„Þetta er örugglega
eitt leiðinlegasta
umræðuefni sem
við höfum tekið og
keppnin sjálf var
eiginlega frekar
leiðinleg. Þetta
var ekki beint það
umræðuefni sem
maður hefði viljað
taka í úrslitunum,“
játar Atli, en liðin
áttu erfitt með að
koma sér saman um umræðuefni.
„Það var samt magnað að vera í
Háskólabíói fyrir framan þúsund
manns,“ bætir hann við.
Rektorinn óskaði liðinu ekki
til hamingju
MS hefur aðeins einu sinni áður
fagnað sigri í MORFÍS en það
var árið 1989. Viðtökur kennara
og nemenda skólans voru því
skiljanlega góðar og mikil stemning
fyrir liðinu, hjá öllum nema sjálfum
rektornum, Má Vilhjálmssyni.
„Hann vildi ekki einu sinni lána
okkur húsnæði til æfinga í vetur
þannig að við þurftum að leita í
skrifstofuhúsnæði úti í bæ. Hann
er búinn að vera þvílíkt stífur við
okkur og með leiðindi frá upphafi.
Hann mætti ekki á keppnina og er
ekki einu sinni búinn að óska okkur
til hamingju,“ segir Atli.
Það vakti mikla athygli í síðustu
viku þegar nokkrir stuðningsmenn
MS sturtuðu hrúgu af skít fyrir
utan Verzló og Atli
kveðst hafa furðað
sig á viðbrögðum
rektorsins við því
máli. „Eftir að þetta
mál kom upp talaði
hann um að láta
hætta við úrslitin,
sem var náttúrlega
ekki á hans valdi.
Hann talaði líka
um að láta banna
stuðningsliðið á
keppninni. Við
í liðinu reynum
náttúrlega bara að
vera góð ímynd
skólans út á við og
honum er einhvern
veginn alveg sama
um það,“ segir Atli.
Ætlar í lögfræði
Þrátt fyrir frábæran árangur í
MORFÍS er stutt síðan Atli kynntist
keppninni. „Ég vissi varla hvað
MORFÍS var fyrr en ég mætti í
inntökuprufurnar fyrir liðið
í haust. Þegar maður horfir
á myndbandið frá fyrstu
keppninni sér maður hvað
maður hefur tekið miklum
framförum,“ segir Atli en játar að
ræðumennskan hafi tekið góðan
tíma frá náminu.
Atli á eftir að finna sér vinnu fyrir
sumarið en í haust stefnir hann á
að fara til Danmerkur með félögum
sínum til þess að vinna. „Mig langar
að taka mér árs frí frá námi og njóta
lífsins. Svo býst ég við að ég fari í
lögfræðina,“ segir Atli.
3
fyrst&fremst
Ritstjóri: Björn Bragi Arnarsson (bjornbragi@monitor.is) Umbrot og hönnun: Hilmar Gunnarsson (hilmar@monitor.is)
Blaðamenn: Allan Sigurðsson (allan@monitor.is), Haukur Harðarson (haukur@monitor.is) Myndvinnsla á forsíðu: Hallmar Freyr Þorvaldsson
Auglýsingar: auglysingar@monitor.is Útgefandi: Árvakur Prentun: Landsprent
Pattra Sriyan-
onge Frekar
leiðinlegt að
Ísland sé
bókstaflega að
rústa öllu í heiminum, þýðir
þetta ash-cloudy-tanlaust
sumar hjá manni hérna í
SWE.. Slæmt!
16. apríl 2010 kl. 17:57
Jón Arnór
Stefánsson
Frábær
útisigur og 12
tíma rútuferð
framundan þar sem flugvöll-
urinn í Barcelona er lokaður,
er ekki vinsæll í liðinu þessa
stundina!
18. apríl 2010 kl. 20:34
Aron Pálm-
arsson A
leidinni i 30
tima ferdalag...
Aedislegt!
19. apríl 2010 kl. 13:24
FIMMTUDAGUR 22. APRÍL 2010 Monitor
Monitor
mælir með
Kick-Ass var frumsýnd
um síðustu helgi og olli engum
vonbrigðum. Frábær skemmtun
og svartur
húmor í hæsta
gæðaflokki.
Christopher
Mitz-Plasse,
sem lék
Fogell í
Superbad,
er einfaldlega
alltof fyndinn og
Nicolas Cage kemur líka skemmti-
lega á óvart sem Big Daddy. Þetta er
mynd sem allir hafa gaman af.
Við höldum okkur við bíóhús-
in. Fyrir þá sem vilja sjá eitthvað
menningarlegra en
Kick-Ass er franska
myndin Un prop-
hète sannkall-
aður gullmoli.
Myndin er sýnd
á Bíódögum
Græna ljóssins
en þar er að
finna nokkrar mjög
fínar myndir. Crazy
Heart með Jeff Bridges er til
dæmis stórgóð.
Blátt áfram eru samtök
sem berjast gegn kynferðisofbeldi
gegn börnum. Í þessari viku er í
gangi herferð þar
sem seld eru
vasaljós til
styrktar
starfsemi
samtak-
anna. Mon-
itor hvetur
að sjálfsögðu
alla til þess að
leggja góðu málefni
lið og fjárfesta í einu slíku.
Vikan á...
Feitast í blaðinu
Vorprófin eru í full-
um gangi. Þekktar
persónur tala um
reynslu sína
úr skóla. 4
Hemmi Hreiðars
í stórskemmtilegu
viðtali um fót-
boltann og
frægðina.
6
Maggi Mix svarar
spurningum
lesenda og talar
um aukna
kvenhylli.
8
Fílófaxið tekur
saman alla helstu
viðburði helgarinn-
ar á einum
stað. 13
Frumsýningar
helgarinnar eru á
sínum stað og nóg
að gerast í
bíóhúsunum. 12
Í BÍÓ
Í BÍÓ
Vissi varla
hvað MORFÍS
var í haust
GÓÐVERK
Af gefnu tilefni fór Monitor að
grúska í efni sem hefur verið
gert um eldgos. Það kom á
daginn að eitthvað er til af góðri
eldgosatónlist, en kvikmyndir um
viðfangsefnið eru öllu verri.
Eldgosamyndir
Dante‘s Peak er afar slök
spennumynd frá árinu 1997 um
eldfjallafræðinginn Harry Dalton
sem er sá eini sem áttar sig á því
að það er varasamt að byggja bæ
beint undir eldfjalli. Pierce Brosnan
er í hlutverki eldfjallafræðingsins
og Linda Hamilton leikur
aðalhlutverkið á móti honum.
Volcano er önnur eldgosamynd
frá árinu 1997. Í henni fylgjumst við
með mjög svo ólíklegri atburðarás
þar sem eldfjall byrjar að gjósa í Los
Angeles. Tommy Lee Jones og Anne
Heche fara með aðalhlutverkin í
þessari hrikalega slæmu mynd.
Öllu skárri er kvikmyndin Under
the Volcano frá árinu 1984. Reyndar
er hægara sagt en gert að finna
hana á leigum landsins, en þeir sem
gera það sjá stórleikarann Albert
Finney í essinu sínu. Hann fékk
óskarstilnefningu fyrir hlutverkið.
Eldgosatónlist
Beck, Count
Basie, Damien
Rice og hljóm-
sveitin The
Presidents of
the United
States of
America hafa öll gert lag með
heitinu Volcano.
Bandaríska söngkonan Edie
Brickell gaf út plötuna Volcano
árið 2003 og inniheldur hún lag
með sama nafni. Reyndar er platan
ekkert sérstaklega skemmtileg
áheyrnar, en það er önnur saga.
Á hinni frábæru plötu Trick of the
Tail með Genesis er að finna lag
sem heitir Dance on the Volcano.
Væntanlega mæla Almannavarnir
ekki með því að fólk geri það á
Eyjafjallajökli, að minnsta kosti ekki
í bráð.
Hemmi Gunn
„Þegar alvaran
hefur vígbúist
getur kímnin
hugsanlega
afvopnað hana”. Kímnin er
sólskin hugans og kveðjum
veturinn með brosi á vör.
20. apríl 2010 kl. 08:17
Efst í huga Monitor
Eldgosamenningin
Halla Vilhjalms
var að reyna
að útskýra
fyrir ömmu sinni
hvað “gimp” er...
20. apríl 2010 11:27
Atli Hjaltested var valinn ræðu-
maður Íslands þegar MS sigraði
MORFÍS í fyrsta skipti í 21 ár.
ATLI HJALTESTED
Í spilaranum: Nýi diskurinn
með Diktu. Ég hlusta mikið
á Kings of Leon og Michael
Jackson er alltaf klassískur.
Þegar ég er úti á landi er ég
með Stuðmenn í spilaranum.
Bara flest annað en
þungarokk og þá er ég flottur.
Á skjánum: Úrslitakeppnin
í NBA og meistaradeildin í
fótbolta. Annars horfi ég ekki
svo mikið á sjónvarp.
Á náttborðinu: Allavega
ekki námsbækurnar. Ég er
eiginlega ekki að lesa neitt,
bækurnar eru í hvíldarstöðu.
Mynd/Árni Sæberg
FARANDBIKARINN SEM ATLI HLAUT
ER ÓNEITANLEGA GLÆSILEGUR