Monitor - 22.04.2010, Blaðsíða 8
8 Monitor FIMMTUDAGUR 22. APRÍL 2010
Hermann Hreiðarsson er fyrirliði íslenska
landsliðsins í knattspyrnu og leikmaður
Portsmouth í ensku úrvalsdeildinni. Hann
stendur á krossgötum á ferlinum en hann
lenti í erfiðum meiðslum á dögunum og
verður frá knattspyrnu í að minnsta kosti
hálft ár. Þótt Hermann sé bundinn við
hækjur og geti lítið hreyft sig lætur hann
engan bilbug á sér finna. Hann er andlit
nýrrar herferðar samtakanna Blátt áfram,
sem hófst í þessari viku, þar sem fólk er
vakið til vitundar um kynferðislegt ofbeldi
gegn börnum.
Þú ert andlit nýrrar herferðar Blátt áfram
sem fór af stað í þessari viku. Hvernig kom
það til?
Þetta byrjaði þannig að við töluðum við
nokkur góðgerðarfélög í kringum golfmótið1
í fyrra. Árið áður söfnuðum við peningum
fyrir SOS Barnaþorp, sem ég hef verið sendi-
herra fyrir á Íslandi, en eftir að allt fór á
hausinn fannst manni eðlilegra að einbeita
sér að góðgerðarfélögum á Íslandi. Við
ræddum meðal annars við Blátt áfram sem
er að vinna virkilega áhugavert og nauðsyn-
legt starf í forvörnum gegn kynferðislegu
ofbeldi á börnum. Þannig byrjaði þetta og
við höfum verið í sambandi síðan.
Ég frétti að þú hefðir haft samband við þau
að fyrra bragði og óskað eftir því að taka
þátt í herferðinni.
Ég ætla nú ekki að taka neitt kredit fyrir
það. Það var engin spurning að ég vildi fá
að taka þátt í þessu verkefni, enda er Blátt
áfram að vinna frábært starf. Kynferðislegt
ofbeldi gegn börnum er viðbjóðslegt, en
því miður er það töluvert algengara en
fólk gerir sér grein fyrir. Það eru allir hissa
þegar þeir sjá tölur yfir hversu algengt þetta
er. Þessu þarf að breyta og ég tel að það
þurfi ekki mikið til. Fyrst og fremst þarf að
upplýsa fólk um þetta almennt. Foreldrar
eru auðvitað ábyrgir fyrir sínum börnum
og þurfa sjálfir að upplýsa þau, þó að þetta
sé viðkvæmt mál og kannski óþægilegt að
ræða um. Krakkar eru bara krakkar og vita
ekki betur en fullorðið fólk segir þeim. Ef
rétta fólkið upplýsir krakkana þá er hálfur
sigurinn unninn.
Hvað ertu að gera um þessar mundir,
hálffarlama og gifsaður?2
Það er eitthvað lítið sem ég get gert. Ég
losna við gifsið í þessari viku en ég má ekki
stíga í fótinn í nokkrar vikur á meðan þetta
er að gróa. Fyrir ofvirkan mann eins og mig
er það frekar erfitt, maður má ekkert gera af
viti. Mér hefur oft fundist ég vera gagnslaus
en aldrei meira en núna. Maður getur ekki
haldið á kaffibolla án þess að sulla kaffinu
yfir sig. En ég reyni nú að hafa eitthvað fyrir
stafni og láta tímann líða. Það hefur verið
fínt veður þannig að maður kemur sér fyrir
úti og fær sér kaffi. Svo þarf maður að fara
á klósettið inni á milli og það er hálftíma
atriði, þannig að tíminn er fljótur að líða.
Áttu mikið eftir í boltanum?
Já. Þetta eru auðvitað skítameiðsli en ég er
harðákveðinn í að koma til baka og hætta
þegar ég vil hætta. Ég vil geta tekið þá
ákvörðun sjálfur í stað þess að hún sé tekin
fyrir mig. Það er ágætiskraftur í löppunum
ennþá og í skrokknum í heild sinni. Á
þessum aldri3 fara menn oft að spyrja hvort
þetta sé ekki að verða búið, en ég ætla að
reyna að halda áfram eins lengi og ég get.
Þótt aldurinn skipti einhverju máli er miklu
meira atriði í hvernig standi maður er og ég
er í fínu standi. Þessi meiðsli eru bara ein af
þessum hindrunum sem maður lendir í á
lífsleiðinni og þarf að komast yfir.
Samningur þinn við Portsmouth rennur út
eftir tímabilið. Er eitthvað komið á hreint
varðandi framhaldið?
Nei, þessi meiðsli setja allt í óvissu varðandi
framhaldið. Ég á eftir að tala við klúbbinn
um hvort þeir hafa áhuga á að hafa mig
áfram, en meiðslin veikja stöðu mína
töluvert. Ég ætla fyrst og fremst að einbeita
mér að því að ná mér góðum áður en ég fer
af stað. Svo verð ég bara að bíða og sjá.
Hvað langar þig að gera eftir að ferlinum
lýkur?
Maður er búinn að vera í fótbolta í það
langan tíma að það er engin spurning að
mig langar að reyna fyrir mér í þjálfun. Ég
ætla að afla þeirra réttinda sem þarf að afla
og gefa því séns. Sjá hvort ég hef gaman
af því og hvort maður getur eitthvað sem
þjálfari.
Áttu von á því að flytja til Íslands eftir að
þú hættir að spila?
Það er erfitt að segja. Ég er ekki mikið fyrir
að ákveða hlutina langt fram í tímann. Við
erum búin að vera lengi á Englandi, yngstu
dætur okkar hafa búið hérna allt sitt líf.
Okkur líður mjög vel og kannski reynum við
að vera eitthvað hérna áfram.
Eru menn eitthvað að skjóta á þig fyrir
að vera búinn að falla svona oft úr ensku
úrvalsdeildinni?4
Nei, ég hef bara aldrei nokkurn tímann
heyrt minnst á þetta! Ef ég hefði ekki
meiðst í vetur hefðum við líka að sjálfsögðu
haldið okkur uppi, en svona er þetta. Nei,
nei, menn eru nú ekkert mikið að skjóta,
enda er þetta ekkert viðkvæmt. Þetta er
bara staðreynd sem maður hleypur ekkert
undan. Auðvitað er glötuð tilfinning að
falla og tapa, eins og allt íþróttafólk veit,
en ég hef alltaf komið sterkur til baka. Það
eina sem maður getur gert á vellinum er
að skila sínu og þegar ég hef horft til baka
eftir hvert tímabil hef ég alltaf verið nokkuð
sáttur með mína frammistöðu. Það hafa
verið margar erfiðar stundir og erfiðir tímar,
en erfiðir tímar vara ekki að eilífu. Eins og
sagt er á ensku: „Tough times don‘t last, but
tough people do.“
Eftir Björn Braga Arnarsson bjornbragi@monitor.is
Hermann Hreiðarsson er að jafna sig af
erfiðum meiðslum. Hann er langt frá því að
vera hættur að spila fótbolta og ætlar að
koma til baka sterkari en nokkru sinni fyrr.
Alltaf komið
sterkur til baka
Mérfinnstbara
skemmtilegtef
þaðer fréttaðHemmi
hafifengiðsérbjór og
sungið íkarókí.
Orðskýringar
1. Herminator Invitational er golfmót sem Hermann stendur fyrir árlega í Vestmannaeyjum. Þangað mæta margar stjörnur til leiks og safnað er fé til
góðgerðarmála. 2. Hermann sleit hásin í leik Portsmouth og Tottenham í lok mars. Hann er búinn að gangast undir aðgerð og verður frá í að minnsta kosti
hálft ár. 3. Hermann verður 36 ára í sumar. 4. Hermann hefur fallið úr ensku úrvalsdeildinni með fimm liðum, Brentford, Wimbledon, Ipswich, Charlton og
Portsmouth. 5. Bubbi Morthens fór í mál við vikublaðið sáluga, Hér og nú, eftir að birt var frétt með fyrirsögninni „Bubbi fallinn“. Bubbi vann málið og voru
honum dæmdar 700 þúsund krónur í miskabætur. 6. Goslokahátíðin er haldin fyrstu helgina í júlí í Vestmannaeyjum á hverju ári, en þá er goslokanna í
Heimaey minnst. 7. Ólafur Jóhannesson hefur stýrt íslenska karlalandsliðinu í knattspyrnu frá árinu 2007. 8. Hermann stendur um þessar mundir í sérstökum
málaferlum. Hann gerði tilboð í hús á Íslandi en hætti síðan við að kaupa það. Húseigandinn taldi ólögmætt að Hermann félli frá tilboðinu og kærði hann.
Á 60 SEKÚNDUM
Ef það yrði gerð bíómynd
um þig, hver myndi leika
þig? Dolph Lundgren.
Hann þarf reyndar að
fara í ræktina í mánuð, þá
nær hann mér.
Hvaða plötu ertu með í
spilaranum núna? Nýja
diskinn með Diktu. Ég er
hrikalega ánægður með þá.
Án hvaða íslenska
matar getur þú ekki
verið þarna úti? Ég get
ekki verið án harðfisks.
Ég er mjög oft með
harðfisk hérna. Ég verð
líka að hafa íslenskan
ost, eins og Gotta. Hann er uppáhaldið mitt.
Hvað óttastu mest? Veikindi og slys ástvina.
Maður er ánægður svo lengi sem fjölskyldan,
vinir og ættingjar eru heilir heilsu.
Hvað ertu með mörg húðflúr? Eitt.
Hvað er það fáránlegasta sem þú hefur
keypt? Mótorhjól í afmælisgjöf handa
konunni. Ég hef aldrei orðið fyrir jafnmiklum
vonbrigðum á ævinni. Ég ætlaði að vera
ógeðslega fyndinn, en svo fattaði ég að
þetta var eiginlega ekkert fyndið heldur var
þetta bara ótrúlega heimskulegt. Hún myndi
aldrei keyra mótorhjól og hvað þá sitja aftan
á því. En hún gleymir því allavega aldrei hvað
hún fékk í afmælisgjöf þetta árið.
En það fáránlegasta sem þú hefur lent í?
Að vera kærður fyrir að kaupa ekki hús sem
mig langaði kannski í.8