Monitor - 22.04.2010, Blaðsíða 10
10 Monitor FIMMTUDAGUR 22. APRÍL 2010
Ef Monitor myndi skrifa frétt um þig með
fyrirsögninni „Hemmi fallinn“, myndir þú
þá fara í mál við okkur?5
Ég myndi nú ekki fara í mál við ykkur, en
kannski berja ykkur.
Þú ert þekktur fyrir að taka aðeins í fólk,
hefur það einhvern tímann endað í tárum
og sárum?
Nei, það er nú aldrei tilgangurinn að skapa
einhver illindi eða leiðindi. Þetta er bara
einhver barnalegur og asnalegur húmor í
mér. Oftast er maður bara að sjá úr hverju
fólk er gert. En þetta er eiginlega orðið
þannig að fólk verður sárt ef maður skilur
það út undan. Ég er búinn að telja fólki trú
um að það sé merki um kærleik þegar ég er
að pína það eða fara í slag við það, þannig
að menn eru farnir að hugsa með sér hvort
ég sé hættur að fíla þá ef ég tek ekki í þá.
Bresku slúðurblöðin birtu eftirminnilegar
myndir af þér á djamminu í vetur. Pirrar
það þig að fá svona umfjöllun?
Nei, alls ekki. Mér finnst bara skemmtilegt
ef það er frétt að Hemmi hafi fengið sér bjór
og sungið í karókí. Þeir sem hafa heyrt mig
syngja vita að það er ekki fallegt en ef ég
kemst í fréttirnar fyrir það, þá er það bara
kúl.
Hversu frægur ertu úti í Bretlandi?
Ég er allavega ekki jafnfrægur og David
Beckham, en ég er samt dálítið líkur honum
með sólgleraugu.
Þú ert óneitanlega einn af vinsælli leik-
mönnum Portsmouth. Fílar þú að spjalla
við aðdáendurna og grilla í þeim?
Já, það eru náttúrlega þvílík forréttindi
að fá að spila í ensku úrvalsdeildinni og
þessi deild væri ekkert án þessara brjáluðu
aðdáenda. Það eru fyrst og fremst þeir sem
búa hana til. Stemningin á völlunum og allt
í kringum mann er alveg ólýsanleg og hjá
mörgum snýst vikan hreinlega um hvernig
úrslitin hjá liðinu þeirra voru. Ef einhver
vill áritun eða mynd eða eitthvað slíkt gef
ég mér alltaf góðan tíma í það. Þetta er bara
hluti af starfinu og engin spurning að verða
við því.
Flettir þú í gegnum spjallborð á aðdáenda-
síðum eða gúgglar þú sjálfan þig?
Nei. Ég og tölvur erum eiginlega stál í stál.
Ég hef stundum komist inn á MBL og Vísi og
lesið fréttir þar, en lengra kemst ég ekki.
Hver er besti vinur þinn í enska boltanum?
Ég vil nú ekki gera upp á milli manna. Í
vetur hefur verið svona smá kjarni sem
heldur hópinn, það eru ég, Mark Wilson,
David James, Richard Hughes, Steve Finnan
og Hayden Mullins. Þetta eru svona þeir
sem ég hef hangið mest með í vetur.
Hver er frægasta manneskja sem þú
þekkir fyrir utan fótboltann?
Baddi í Jeff Who? Við rokkuðum saman á
Goslokahátíðinni6 í fyrra. Baddi sagði sjálfur
að honum hefði aldrei liðið eins vel á sviði
eins og með mér. En það var bara af því að
ég var að syngja líka.
Hvað með íslenska landsliðið, er það á
réttri leið?
Já, það er engin spurning. Óli7 er búinn að
stilla liðið nokkuð vel af. Það hefur alltaf
vantað stöðugleika í liðið en það var góður
stöðugleiki alla síðustu keppni. Við hefðum
getað unnið Noreg bæði heima og úti og
eins hefðum við getað unnið Hollendinga
úti. Oft datt þetta bara ekki með okkur.
Við vorum aldrei neitt skammarlegir og
við áttum einn eða tvo frábæra leiki, eins
og á móti Norðmönnum hérna heima sem
við hefðum getað unnið 5-1. Liðið hefur
staðið sig hrikalega vel í síðustu
æfingaleikjum og það eru
margir ungir peyjar að
koma inn í liðið. Mér
finnst þetta allt
vera á réttri
leið.
Um fótboltamenn
Sá steiktasti?
Birkir Kristinsson.
Sá grófasti?
Heiðar Helguson.
Sá leiðinlegasti?
Tryggvi Guðmundsson í
6. flokki. Hann var í Þór
og ég í Tý. Hann skallaði
einu sinni Rút Snorra-
son og einu sinni fékk
hann rauða spjaldið frá
dómaranum og reif það.
Hann var 10 ára. 10 ára
geðveikur drengur.
Sá besti?
Leyfum Tryggva að
vinna það upp að vera
svona leiðinlegur með
því að segja að hann sé
bestur.
Sá sem er með
stærsta typpið?
Aron Einar Gunnarsson.