Monitor - 22.04.2010, Blaðsíða 12

Monitor - 22.04.2010, Blaðsíða 12
kvikmyndir Hæð: 177 sentímetrar. Besta hlutverk: Aileen Wuornos í Monster. Skrýtin staðreynd: Þegar hún hlaut Óskarinn fyrir Monster varð hún fyrsta manneskjan frá Afríkulandi til að hljóta Óskarsverðlaun fyrir aðalhlutverk. Eitruð tilvitnun: „Ég samgleðst fólki sem vill gifta sig, en það er ekki fyrir mig.“ 1975Fæðist 7. ágúst íborginni Benoni í Suður-Afríku. 1990Verður vitni aðþví þegar móðir hennar skýtur föður hennar til bana í sjálfsvörn, en hann var ofbeldisfullur drykkjumaður. Móðir hennar var ekki ákærð fyrir atvikið. 1991 Flytur til Mílanó og reynir fyrir sér sem fyrir- sæta. Seinna fer hún til New York í ballettnám en neyðist til að hætta vegna hnémeiðsla. 1995Fær fyrstatækifærið í kvikmynd, örhlutverk í hryllingsmyndinni Children of the Corn III: Urban Harvest. Theron talaði ekkert í myndinni, sem fór beint á leigu. 1997Kemur sér á kortiðfyrir alvöru þegar hún leikur eiginkonu Keanu Reeves í kvikmyndinni Devil‘s Advocate. 1999Situr fyrir í Playboyog er önnur konan á eftir Kim Basinger til að hljóta Óskar eftir að hafa gert það. 2003 Hlýtur Óskars- verðlaun sem besta leikkona í aðalhlut- verki fyrir ógleymanlega frammistöðu sína sem morðkvendið Aileen Wuornos í Monster. 2005Tilnefnd tilÓskarsverðlauna fyrir aðalhlutverkið í North Country en tapar fyrir Reese Witherspoon úr Walk The Line. 2007Valin kynþokka-fyllsta kona heims af tímaritinu Esquire. Charlize Theron FERILLINN 12 Monitor FIMMTUDAGUR 22. APRÍL 2010 Frumsýningar helgarinnar She‘s Out Of My League Leikstjóri: Jim Field Smith. Aðalhlutverk: Alice Eve, Jay Baruchel og Krysten Ritter. Lengd: 104 mínútur. Dómar: IMDB: 6,7 / Metacritic: 4,6 / Rotten Tomatoes: 54% Aldurstakmark: 12 ára. Kvikmyndahús: Laugarásbíó, Smárabíó, Sambíóin Álfabakka og Borgarbíó Akureyri. Kirk (Baruchel) trúir því varla hvað hann er heppinn. Þrátt fyrir að vera meðaljón og starfa sem öryggisvörður á flugvelli fellur þokkadísin Molly (Eve) fyrir honum. Kirk finnst þetta nánast of gott til að vera satt og það finnst vinum hans, fjölskyldunni og gömlu kærustunni líka. Það er því mikil pressa á Kirk að sýna öllum fram á að hann geti látið sambandið endast. JAY BARUCHEL Það er 28 ára Kanadamaður að nafni Jay Baruchel sem leikur aðalhlutverkið í She’s Out Of My League. Margir muna eftir Baruchel úr aukahlutverkum í myndum á borð við Knocked Up og Tropic Thunder en þetta er fyrsta alvöruaðalhlutverk hans á ferlinum. Næsta mynd kappans er Disney-myndin The Scorcerer’s Apprentice, sem er væntanleg í sumar, en þar leikur hann aðalhlutverkið á móti Nicolas Cage. KIRK FELLUR FYRIR ÞOKKADÍSINNI MOLLY SEM ER ALLTOF GÓÐ FYRIR HANN VILTU VINNA MIÐA? Monitor ætlar að gefa nokkrum heppnum lesendum miða á She’s Out Of My League. Það eina sem þú þarft að gera er að fara inn á Facebook- síðu Monitor og velja LIKE á kvikmyndaþráð vikunnar. Á mánudag drögum við svo út nokkra sigurvegara. Þú finnur okkur með því að slá inn „Tímaritið Monitor“ í leitarstrenginn. Astro Boy Leikstjóri: David Bowers (Flushed Away). Leikraddir: Kristen Bell, Nicolas Cage, Samuel L. Jackson, Charlize Theron og Donald Sutherland. Lengd: 94 mínútur. Dómar: IMDB: 6,4 Metacritic: 5,3 Rotten Tomatoes: 48% Aldurstakmark: Leyfð öllum. Kvikmyndahús: Sambíóin Álfabakka, Sambíó- in Kringlunni, Sambíóin Keflavík, Sambíóin Akureyri og Sambíóin Selfossi. Í fjarlægri framtíð er jörðin svo menguð að mannkynið er á mörkum þess að þurfa að flýja plánetuna. Vísindamaður nokkur missir son sinn og ákveður í kjölfarið að búa til vélmenni. Vélmennið hefur ofurkrafta og verður sannkölluð borgarhetja. Astro Boy er byggð á samnefndri teiknimyndasögu frá Japan. Hægt er að sjá myndina bæði með ensku og íslensku tali. GEIMDRENGURINN NOTAR SILVER-GEL Í HÁRIÐ Youth in Revolt Leikstjóri: Miguel Arteta Aðalhlutverk: Michael Cera, Portia Doubleday, Steve Buscemi, Justin Long, Ray Liotta, Jean Smart, Fred Willard og Zach Galifianakis. Lengd: 90 mínútur. Dómar: IMDB: 7,0 / Metacritic: 6,3 / Rotten Tomatoes: 69% Aldurstakmark: 12 ára. Kvikmyndahús: Smárabíó og Regnboginn. Nick Twisp (Cera) er 16 ára strákur sem er afar upptekinn af því að missa sveindóminn en er ekki beinlínis sá vinsælasti. Nick fellur fyrir bráðgáf- aðri og fallegri stúlku (Doubleday) en þegar hann áttar sig á því að áhuginn er ekki gagnkvæmur býr hann sér til nýjan karakter og bregður sér í hlutverk hans. Það á hins vegar eftir að hafa afdrifaríkar afleiðingar og brátt er Nick orðinn eftirlýstur glæpamaður. MICHAEL CERA FER LÉTT MEÐ AÐ LEIKA 16 ÁRA STRÁK ÞRÁTT FYRIR AÐ VERA 22 ÁRA The Ghost Writer Leikstjóri: Roman Polanski Aðalhlutverk: Ewan McGregor, Pierce Brosnan, Kim Cattrall, Olivia Williams, Tom Wilkinson, Timothy Hutton og Eli Wallach. Lengd: 128 mínútur. Dómar: IMDB: 7,9 / Metacritic: 7,7 / Rotten Tomatoes: 84% Aldurstakmark: 12 ára. Kvikmyndahús: Sambíóin Álfabakka, Sambíóin Kringlunni og Sambíóin Akureyri. Breskur rithöfundur gengur undir nafninu Draug- urinn, þar sem hann starfar við að skrifa efni fyrir aðra sem síðan birtist í þeirra nafni. Draugurinn fær tilboð um að skrifa endurminningar fyrrver- andi forsætisráðherra Bretlands. Eftir því sem hann grefur dýpra í fortíð forsætisráðherrans kemst hann sífellt að skítugri leyndarmálum, sem stofna honum í mikla hættu. PIERCE BROSNAN LEIKUR FORSÆTISRÁÐHERRA BRETA

x

Monitor

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Monitor
https://timarit.is/publication/791

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.