Monitor - 22.04.2010, Page 4
4 Monitor FIMMTUDAGUR 22. APRÍL 2010
Hin yndislega
prófatörn
Tugþúsundir Íslendinga eru á kafi í prófum um þessar
mundir og bíða vafalaust flestir í ofvæni eftir því að skila
inn síðasta prófinu. Próflestrinum fylgir þó alltaf ákveðinn
sjarmi, sem er kannski erfitt að sjá fyrr en löngu eftir að
lestri er lokið. Monitor hafði samband við nokkra þekkta
einstaklinga og fræddist um reynslu þeirra af háskólanámi.
Strembið að púsla saman
körfunni og skólanum
Margrét Kara Sturludóttir körfuknattleikskona er á öðru ári í heilbrigðisverkfræði í HR.
„Það gengur ekkert sérstaklega vel að púsla þessu saman. Ég var hálffjarverandi andlega
í skólanum á meðan úrslitakeppnin var í gangi,“ segir Margrét Kara Sturludóttir, ein besta
körfuknattleikskona landsins, sem varð Íslandsmeistari með KR á dögunum.
Margrét Kara er á öðru ári í heilbrigðisverkfræði í HR og er í lokaprófum um
þessar mundir. Hún segist að jafnaði taka daginn snemma í próflestrinum.
„Ég reyni að vakna snemma og nýta daginn vel og slaka svo á á kvöldin.
Ég hef aldrei prófað að læra alla nóttina fyrir próf. Mér finnst ég bara ekki
ná að koma neinu inn í hausinn á mér þegar ég læri seint á kvöldin,“ segir
Margrét Kara.
Hún segir körfuboltann gera það að verkum að hún þarf að færa ákveðnar
fórnir í skólanum, einkum í félagslífinu. „Auðvitað kemst maður ekkert í öll
partí og svona í skólanum, en maður reynir að láta þetta ganga upp saman. Það
er lykilatriði að skipuleggja sig vel,“ segir Margrét Kara sem stefnir á meistaranám erlendis
eftir að hún útskrifast úr HR. Þrátt fyrir mikinn sjálfsaga í prófatörninni leyfir hún sér að
slaka á inni á milli. „Við erum nokkur í hóp sem lærum saman og dettum alltaf í smá rugl
inni á milli. Þá fer maður að spjalla og skoða einhver myndbönd. Það er bara gaman að því.“
PRÓFRÁ
Ð
Margrét
ar Köru
:
„Ekki les
a
yfir þig!
”
Aldrei samið eins
mikið af tónlist
Haukur Heiðar, söngvari Diktu, útskrifaðist
úr læknisfræði í HÍ árið 2008.
„Ég samdi aldrei eins mikið af músík
og þegar ég var í prófum. Það var alltaf
kassagítar við hliðina á mér og þegar maður
var búinn að lesa of mikið greip maður
í hann,“ segir Haukur Heiðar Hauksson,
söngvari hljómsveitarinnar Diktu. Haukur er
menntaður læknir en hann útskrifaðist úr HÍ
árið 2008. „Ég er nokkuð viss um að Breaking
the Waves hafi verið samið í prófatörn,“ segir
hann spurður um hvort einhverjir þekktir
slagarar hafi fæðst á meðan á próflestri stóð.
Haukur segist hafa verið nátthrafn og
lærði hann að jafnaði á nóttunni en
svaf á daginn. „Mér fannst alltaf mjög
gott að læra á kvöldin og nóttunni.
Þegar það er komin nótt er alger ró
og allir á heimilinu farnir að sofa.
Enginn hringir í mann og ekkert er í
sjónvarpinu,“ segir Haukur.
Hann kannast vel við það að hafa misst
sig í að gera allt annað en að læra þegar hann
átti að vera að því. „Maður las Morgunblaðið
alveg frá síðu eitt til fjörutíu og Fréttablaðið
frá forsíðu til baksíðu. Gítarinn og píanóið
voru líka oft talsvert skemmtilegri en bókin.
Maður fann sér allt annað að gera en að fara
að lesa. Ég skoðaði líka allt netið og tókst að
klára það einu sinni,“ segir Haukur.
Prófráð Hauks Heiðars:
„Að gefa sér tíma til
upprifjunar. Eyða
jafnvel heilum
degi í að
rifja
upp.“
Félaginn orðinn
doktor í YouTube
Bjarni Guðjónsson, knattspyrnumaður,
útskrifast sem viðskiptafræðingur í vor.
„Ég var einmitt að klára síðasta prófið mitt
í dag,“ sagði knattspyrnumaðurinn Bjarni
Guðjónsson þegar Monitor sló á þráðinn til
hans. Bjarni útskrifast úr viðskiptafræði frá
HR í vor og er um þessar mundir að ljúka
við lokaverkefni sitt. „Við erum að skrifa
um verðteygni eldsneytisverðs á Íslandi.
Þið viljið kannski birta brot úr ritgerðinni í
Monitor?“ grínast Bjarni og er auðheyrt að
ritgerðarskrifin eru ekki það skemmtilegasta
sem hann hefur gert.
Bjarni segist hafa reynt að taka á
náminu eins og hefðbundinni vinnu
frá upphafi. „Ég á mjög erfitt með
að einbeita mér eftir klukkan 10 á
kvöldin, þannig að þetta verður að
gerast á daginn. Ég held að lengst
hafi ég verið uppi í skóla til klukkan
hálftólf um kvöld. Ég verð að fá mína
átta til tíu tíma á nóttunni,“ segir Bjarni.
Hann segist aldrei hafa leyft sér að
detta í vitleysuna í próflestri,
þótt það hafi stundum
verið freistandi. „Ég fæ
samt að kynnast þessu
vel hjá félaga mínum
sem er að skrifa með
mér ritgerðina. Hann
er duglegur að finna
sér allt annað að gera.
Eftir þrjú ár í háskóla
er hann kominn með
doktorsgráðu í
YouTube.“
Prófráð
Bjarna:
„Það hefur
hentað mér
mjög vel að
skipuleggja
námið eins
og vinnu.“
Fljótur að detta úr
venjulegri rútínu
Bergur Ebbi úr Mið-Íslandi útskrifaðist sem
lögfræðingur frá HÍ árið 2007.
„Ég var frekar venjulegur námsmaður.
Ef maður er þannig er nám ekkert erfitt. Í
rauninni er það algjör draumur og grín að vera
í námi miðað við lífið sjálft,“ segir Bergur Ebbi
Benediktsson, meðlimur uppistandshópsins
Mið-Íslands og lögfræðingur frá HÍ. Hann
segist hafa reynt að mæta í flesta tíma
á námsferlinum en hann var ekki
eins duglegur við að lesa sjálfur yfir
önnina. „Ég var samt alltaf með
einhverja hugmynd um hvað ég var
að fara að lesa upp. Svo lærði maður
alveg eins og asni undir lokin því þá
þurfti maður líka að fara að læra hluti
utan að,“ segir Bergur.
Þótt Bergur hafi verið góður námsmaður
játar hann að hafa verið gjarn á að finna sér
annað að gera en að læra á meðan á prófum
stóð. „Þegar upplestrarfríið og próflesturinn
byrjaði var maður fljótur að detta úr venjulegri
rútínu. Þá hætti maður að
vakna á morgnana og fór
að borða á óreglulegum
tímum. Mér fannst það
mjög gaman en maður
var fljótur að þreytast
á því. Eftir þriggja vikna
prófatörn var maður
alveg búinn,“ segir
Bergur.
Prófráð Bergs Ebba:
„Þetta hefðbundna,
að borða og sofa vel.
En maður gerir það
aldrei.“
Dónavísur til að
muna latínuna
Ragnhildur Steinunn útskrifaðist sem
sjúkraþjálfari frá HÍ árið 2007.
„Þegar ég var að klára háskólanámið var
ég byrjuð í Kastljósinu og þá lenti ég í því að
taka þvílíkar tarnir fyrir próf. Ég setti ófá met í
Magic-drykkju þegar ég var að reyna að halda
mér vakandi,“ segir Ragnhildur Steinunn
Jónsdóttir sjónvarpskona, sem er menntaður
sjúkraþjálfari. „Tímasóknin var ekki alveg
til fyrirmyndar hjá mér og maður
þurfti að vinna upp allt sem maður
hafði misst af. Ég kannski las til
fjögur á nóttunni, svaf svo til sjö
og vaknaði þá og fór í prófið. Tók
þetta pínulítið á geðveikinni,“ segir
Ragnhildur og hlær.
Hún tekur þó fram að tarnirnar hafi
átt vel við hana. „Stressið vann ekki á móti
mér, heldur gat ég notað það með mér. Mér
fannst fínt að vera svolítið stressuð og finnast
ég hafa lítinn tíma því þá þurfti ég að vaka
og læra, í stað þess að hafa allan tímann í
heiminum og sofna bara yfir
þessu,“ segir Ragnhildur. Hún
segir það hafa hjálpað sér mikið
í lærdómnum að búa til margs
konar vísur og ljóð til þess að
læra hluti sem erfitt var að
festa á minnið. „Ég var
mikið í líffærafræði
í mínu námi og
þar þurfti ég að
muna hin ýmsu
latnesku heiti. Þá
var ég mikið í því
að búa til vísur, oft
einhverjar dónavísur,
til þess að muna
kannski öll beinin í
handleggnum. Það
svínvirkaði,“ segir
Ragnhildur.
Prófráð
Ragnhildar
Steinunnar: „Að
semja vísur og ljóð
til að muna hina ýmsu
hluti klikkar aldrei.“
LÆKNIRINN HAUKUR HEIÐAR
ROKKAR BETUR EN FLESTIR
BJARNI TÆKLAR VERÐTEYGNI
ELDNSYTISVERÐS Í DAG
LÖGFRÆÐIN ER
EKKERT GRÍN
ÍSLANDSMEISTARI Í
ORKUDRYKKJAÞAMBI?
M
yn
d/
Er
ni
r
MARGRÉT KARA ER MICHAEL JORDAN
HEILBRIGÐISVERKFRÆÐINNAR
PRÓFRÁ
Ð
„Að gefa
sér
tíma til
upp-
rifjunar.
“
PRÓFRÁЄBorða og
sofa vel.“