Monitor - 22.04.2010, Page 6

Monitor - 22.04.2010, Page 6
6 Monitor FIMMTUDAGUR 22. APRÍL 2010 • Franska landsliðið í handknattleik lék tvo æfinga- leiki við það íslenska síðustu helgi og á laug- ardagskvöldinu héldu flestir leikmenn liðsins út á lífið í miðbæ Reykjavíkur. Nokkrir frönsku leikmannanna fóru á skemmtistaðinn Austur og nutu mikillar athygli meðal kvenkyns gesta staðarins. Samkvæmt áreiðanlegum heimildum Mon- itor yfirgáfu tveir af þekktari leikmönnum liðsins staðinn í fylgd með tveimur ungum dömum og héldu þau rakleiðis í leigubíl sem ók með þau á brott. Hvert ferðinni var heitið skal ósagt látið, en líklega var stefnan ekki tekin á að fara yfir leikkerfi fyrir næsta stórmót. • Söngvarinn Friðrik Dór sendir nýtt lag í spilun um helg- ina. Lagið heitir Fyrir hana og á það að fylgja eftir vinældum laganna Hlið við hlið og Á sama stað sem Friðrik sendi frá sér fyrir nokkrum mánuðum. Lagið verður frum- flutt í morgunþættinum Zúúber á fimmtudagsmorgun og verður spennandi að sjá hvort landinn tekur jafn vel í Fyrir hana og hin lög Friðriks. • Margir hafa fundið fyrir afleiðingum eldgossins og um alla Evrópu eru stranda- glópar vegna öskunnar sem hefur hamlað flugumferð. Knattspyrnulið FH, Vals og Hauka voru til að mynda stödd í Portúgal, þar sem þau undirbjuggu sig fyrir komandi átök á Íslandsmótinu í knattspyrnu, og neyddust til að vera þar lengur vegna öskunn- ar. Flestir leikmenn liðanna höfðu reyndar lítið á móti því að þurfa að vera aðeins lengur í sólinni og hitanum. • Knattspyrnu- liðin voru ekki þau einu sem lentu illa í því. Fréttablaðið greindi frá því að kvikmyndagerðarmaðurinn Ágúst Jakobsson hefði þurft að taka leigubíl frá Barcelona til London þar sem hann komst ekki með flugvél. Ágúst þurfti að komast þangað til að taka upp auglýsingu með knattspyrnuhetjunni Lionel Messi fyrir kínverskt fjármála- fyrirtæki. Ferðin tók rétt innan við sólarhring og hljóðaði reikning- urinn upp á litlar 700 þúsund íslenskar krónur. Menn hafa oft kvartað yfir að þurfa að borga mikið fyrir farið með leigubíl hér á landi, en vonandi eru einhver ár í að við sjáum svona reikninga fyrir túrinn. • Ómar Ey- þórsson hefur verið ráðinn dagskrárstjóri útvarpsstöðv- arinnar X-ins. Ómar hefur starfað í útvarpi í nokkur ár og er alsæll með nýja starfið, en að hans sögn verða ekki miklar breytingar á stefnu stöðvarinnar. Ómar sér sjálfur um morgunþáttinn Ómar sem er á dagskrá alla virka morgna á milli kl. 7 og 11. Og já... Hinn 25 ára gamli Magnús Valdimarsson, betur þekktur sem Maggi Mix, hefur vakið mikla athygli síðustu daga fyrir matreiðslumyndbönd sín og tónlistarmyndbönd. Þegar þetta er skrifað eru aðdáendur Magga Mix á Facebook komnir yfir 24 þúsund. Maggi Mix hefur verið í viðtölum í nær öllum fjölmiðlum landsins, en Monitor ákvað að leyfa lesendunum að spyrja spurninganna að þessu sinni. Fjölmargar spurningar bárust og hér eru þær bestu. Arnar Ingólfsson Hvar fékkstu hugmyndina að því að gera þættina og semja geðveiku lögin þín? M Sum lögin eru alveg síðan ég var 18 ára, þá fór ég að gera einhver lög. En matreiðslu- myndböndin eru ný. Ég byrjaði á því að gera einn rétt og svo hélt ég bara áfram því fólk fílaði þetta svo mikið og vildi sjá meira. Viðar Birkir, 18 ára Er sumt af þessu sem þú hefur sungið um eitthvað sem hefur gerst í lífi þínu í alvörunni, eins og tíðkast hjá tónlistarmönnum? M Nei, ekki eins og er allavega. Pálmi Freyr, 22 ára Hvor myndi vinna slag, Jesús eða Maggi Mix? M Það myndi bara vera jafntefli. Jesús er náttúr- lega góði karlinn og ég er góði karlinn þannig að þetta yrði jafnt. Allan, 24 ára Hverjir eru helstu áhrifavaldar Magga Mix? M Það hefur örugglega ekki farið framhjá neinum að mér finnst Jói Fel mjög fínn, svona í sambandi við matargerð og annað. Í tónlistinni er það enginn einn sérstakur. Mér finnst Akon mjög skemmtilegur en annars er það enginn ákveðinn. Stefán Snær, 17 ára Myndir þú segja jarðarberjaíssósuna vera undirstöðu í öllum mat? M Ekki öllum en hún hentar með mjög mörgu. Til dæmis með banana og ís. Sölvi, tvítugur Hver er draumaprinsessa Magga Mix? M Hún verður helst að hafa svipuð áhugamál og ég, til dæmis matargerð, og bara hafa gaman af lífinu. Tumi, á besta aldri Er frægðin byrjuð að stíga þér til höfuðs? M Ég er alveg sami maður og ég var og ég held að ég hafi lítið breyst. Ég er allavega ekki með neina stjörnustæla, ekki eins og er allavega. María Björk, 17 ára Er nafnið Maggi Mix eitthvað tengt gosdrykkn- um Mix? Kæmi ekki til greina að fara að auglýsa hann? M Það er ekkert endilega tengt honum. Það væri alveg möguleiki að auglýsa hann ef maður fengi einhvern góðan samning. Helgi, 23 ára Hvað græðir þú mikið á sölu á DVD-diskunum og bolunum? M Ég er ekki enn byrjaður að selja boli. Ég er að fá sendinguna núna. En það er bara eitthvað lítið sem ég sel, einn og einn diskur. Sylvía, 17 ára Hvað langar þig að gera í fram- tíðinni? M Mér finnst bara fínt að gera það sem ég hef verið að gera. Annars er allt óráðið. Rómeó, 46 ára Finnurðu fyrir aukinni kvenhylli eftir að þú varðst svona frægur? M Já, aðeins. Fólk sér karakterinn og kvenþjóðin fílar mann meira. Ekki kannski af því að maður er frægur heldur fíla þær persónuleikann og myndböndin og svona. Það er persónuleikinn meira en frægðin. Gummi, 15 ára Hefurðu verið í einhverjum íþróttum og með hvaða liði heldurðu í ensku deildinni? M Nei, eiginlega ekki. Ég hef áhuga á fótbolta en hef ekki spilað mikið sjálfur nema bara með vinum mínum þegar það er gott veður. Ég held með Manchester. Margrét Ósk, 23 ára Af hverju heldur þú að svona margir fíli þig svona vel? M Af því að ég er jákvæður og út af karakternum. Ætli það sé ekki út af einhverju svoleiðis. Líka af því að ég tala ekki um þessa kreppu á síðunni. Þar eru engin stjórnmál og engin kreppa. Kristján Ingi, 18 ára Hver er uppáhaldssjónvarps- þátturinn þínn? M Mér finnst Auddi og Sveppi skemmtilegir en annars horfi ég nú lítið á sjónvarp. Sylvía, 17 ára Í hvaða skóla varstu og úr hvaða hverfi kemurðu? M Ég kem úr Kópavoginum. Ég hef verið í þremur skólum. Ég var í Hjallaskóla, svo fór ég í Snælandsskóla og svo fór ég í Iðnskólann í Reykjavík að læra málmsmíði. Andrés, 27 ára Hvað kostar að fá þig til að vera DJ í partíi? M Það fer eftir stað og tíma og dagsetningu. Það hefur yfirleitt verið samið um það bara. Það er til dæmis öðruvísi ef það er úti á landi og svona. En ég er með mjög sanngjarnt verð. Nökkvi Hvernig er best að heilla dömurnar upp úr skónum, Maggi Mix? M Best er að vera maður sjálfur og vera bara herramaður. Ólöf Ósk Óttastu að þú munir allt í einu hætta að vera vinsæll? M Bara bæði og. Ef það gerist þá gerist það. Sigmar, 14 ára Hver er besti vinur þinn? M Ég á tvo, annar heitir Karl Eiður og hinn heitir Bjarki Freyr. Rúnar, 24 ára Um hvaða stelpu samdir þú lagið Sexý bomba? M Bara einhverjar stelpur. Enga sérstaka. Bara einhverjar þarna á klúbbnum. Jón Gunnar, 22 ára Hver finnst þér vera kynþokkafyllsta kona á Íslandi? M Þetta er nú erfið spurning. Ég segi bara öll íslenska kvenþjóðin, hún er falleg. Sandra Björk Hvað gerðir þú áður en þú varðst svona vinsæll á netinu? M Ég var eiginlega ekki að gera neitt af viti. Hver dagur var bara mjög svipaður þeim næsta. Sofa, borða, fara í bíó og sund og hitta vini mína og svona. En núna vinn ég í þessu á fullu. Frikki, 29 ára Gætir þú hugsað þér að vinna sem kokkur og búa til alla þessa svakalegu rétti þína á alvöruveit- ingastað? M Nei, ég held að það væri leiðinlegt. Nema ég væri með minn eigin stað. Gunnar Már, 26 ára Ég var að bjóða stelpu á deit og langar mikið að elda einhvern flottan mat fyrir hana. Með hverju mælir Mixarinn á fyrsta deiti? M Sko, ef við förum yfir í mína rétti mæli ég með banana- snarlinu. Ástargotterí er líka mjög skemmtilegur réttur. En svo er bara hægt að elda hvað sem er. Sigrún Edda, 24 ára Ertu með aldurstakmark á stelpur sem þú myndir vera með? En aldurshámark? M Aldurstakmark hjá mér er 18 ára, svona til að hafa þetta löglegt. Ég er ekkert með neitt hámark sér- staklega, en ég er kannski ekki í einhverju fertugt plús. Ég er sjálfur 25 ára þannig að eitthvað í kringum það er bara flott. Páll Helgi, 16 ára Hvað varð til þess að þú byrjaðir að gera myndbönd og setja þau á netið? M Ég gerði einn rétt og svo bara hélt ég áfram af því að fólki líkaði hann svo vel. Þorvaldur Már Hvernig er að vera orðinn frægur? M Ég tel mig ekki vera það frægan, ég tel mig vera þekktan, en það er bara mjög fínt og mjög svipað og áður. Unnsteinn, 21 árs Ertu mikill djammari? Drekkurðu áfengi? M Nei, ég drekk ekki og reyki ekki heldur. Ég fer lítið niður í bæ og svona, nema ég sé að spila sjálfur. Emil, 16 ára Hvaða forrit notarðu til að gera tónlistina þína? M Það heitir Garage Band. Magnús Þór, 25 ára Ertu tilbúinn að gera hvað sem er fyrir rétta upphæð? M Hvað sem er? Það er nú erfitt. Ætli það fari ekki bara eftir því hvað það er. Svona innan eðlilegra marka. Kvenhyllin hefur aukist Maggi Mix svarar spurningum lesenda MAGNÚS VALDIMARSSON Á NÆSTUM ÞVÍ 25 ÞÚSUND AÐDÁENDUR Á FACEBOOK

x

Monitor

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Monitor
https://timarit.is/publication/791

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.