Monitor - 22.04.2010, Síða 7

Monitor - 22.04.2010, Síða 7
Hera fer að gjósa Það er oft sagt að slæm athygli sé betri en engin athygli og það er örugglega eitthvað til í því. Það er staðreynd að fjöldamörg frábær Eurovision-lög hafa ekki fengið þá athygli sem þau áttu skilið að fá – þau hafa einhvern veginn flogið undir radarinn og fallið í gleymskunnar dá. Þannig er ekki nokkur vafi á því í mínum huga að sú athygli sem Ísland fékk vegna hrunsins hafi átt sinn þátt í velgengni okkar í fyrra, þótt sú staðreynd að Jóhanna Guðrún var besta söngkonan í keppninni hafi líka hjálpað mikið til. Svo ekki sé minnst á höfrunginn góða. Annað árið í röð erum við í þeirri góðu stöðu að hafa ratað í erlenda fjölmiðla skömmu fyrir Eurovision fyrir að vera með eitthvert vesen. Þetta er nokkuð sem ég tel að við ættum að nýta okkur til fullnustu. En neikvæð athygli ein og sér er ekki nóg, enda myndi Ísrael sigra á hverju ári ef sú væri raunin. Þess vegna þurfum við að hugsa aðeins út fyrir rammann. Ég sé fyrir mér tónlistarmynd- band þar sem Hera Björk spýtist upp í gegnum sprungu á Eyjafjalla- jökli með miklum hamagangi. Þaðan svífur hún svo yfir alla Evrópu á gráu skýi og sáldrar ösku yfir helstu alþjóðaflugvelli, eins og Óli lokbrá. Og hlær og hnykkir hálsinum eins og systir frá Brooklyn. Taka mætti mið af þessu í sviðsframkomunni líka. Margir tóku eftir því að það rauk úr Heru á lokakvöldinu í forkeppn- inni hérna heima, svona eins og hún væri að koma úr heitu baði. Það var góð byrjun en ég vil ganga lengra og dulbúa hana sem eldfjall. Hægt væri að klæða hana í einhvers konar múnder- ingu sem svipaði til þeirrar sem Björk var í á opnunarhátíð Ólympíuleikanna um árið, þar sem hún risi hægt og rólega upp á topp eins og kvika úr iðrum jarðar og flytti atriðið sitt, helst í ljósum logum. Þá gætu hundrað sjö ára ballerínur í dulum þeyst um salinn og sáldrað ösku yfir áhorfendur á meðan á atriðinu stendur. Mun þetta duga til þess að fá Eurovision 2011 í Egilshöllina? Ég veit það ekki. En við gleym- umst allavega ekki. Það er víst. haukurjohnson@monitor.is 6 vikur í Eurovision Sumarið er loksins komið Myndir/Allan Hrafn Gunnlaugs ætlar að verða kattliðugur Með sólgleraugu í ræktinni „Ég hef verið í ræktinni í um það bil einn mánuð og líkar vel. Maður er að herða upp vélina,“ segir Hrafn Gunnlaugsson leikstjóri. Fastagestir World Class í Laugum hafa tekið eftir Hrafni við æfingar í stöðinni að undan- förnu, en hann segist þó ekki vera í sérstöku átaki. „Ég er aðallega að gera liðkunaræfingar og reyna að liðka mig aðeins, þannig að maður verði liðugur eins og kötturinn,“ segir Hrafn. Það hefur vakið athygli að Hrafn er með sólgleraugu á meðan á æfingunum stendur og hafa margir velt því fyrir sér hvers vegna það er. „Það er nú bara vegna þess að mér finnst svo bjart þarna inni. Ég fæ hausverk af svona mikilli birtu þannig að mér finnst betra að vera með sólgleraugu,“ segir Hrafn. Hann hefur litlar áhyggjur af því að einhverjir kunni að túlka sólgleraugun sem sérvitringshátt eða stjörnustæla. „Menn mega túlka þetta eins og þeim sýnist, það er allt í lagi mín vegna. En það er ekki ástæðan.“ Hrafn hefur átt í leiðinlegri deilu við borgar- yfirvöld undanfarið, eins og mikið hefur verið fjallað um. „Ég fæ bara þunglyndiskast af því að tjá mig um þetta mál. Ég fer bara í ræktina til að reyna að gleyma þessu svo ég fái ekki enn verra þunglyndiskast,“ segir Hrafn léttur. SÓLGLERAUGU „Það er glæpur að fá sér ekki ný fyrir sumarið.“ 1.990 kr. Retro EURO-HAUKUR ER DÓSENT Í EUROVISION Vera Hilmarsdóttir fílar afslappað og kæruleysislegt í tískunni. HRAFN GUNNLAUGSSON TEKUR Á ÞVÍ Í RÆKTINNI UM ÞESSAR MUNDIR VERA HILMARSDÓTTIR 14.04.92 Nemi á öðru ári í MS. Hvað fílar þú mest í tísku? Mér finnst svona lausir mosagrænir jakkar mjög flottir. Ég elska líka armbönd. Ég fíla bara allt sem er afslappað og kæruleysislegt. Hvaða liti fílar þú mest? Hlýja liti. Jarðar- og haustliti. Hvaða flík keyptir þú síðast? Ég keypti hvítan jakka í Zöru fyrir sumarið. Ég er farin að hlakka til sumarsins og hann minnti mig á það. Hvað er uppáhaldsmerkið þitt? Forever21, Zara, Accessorize og fleiri. Hverju myndir þú aldrei klæðast? Ég myndi aldrei klæðast neinu úr spandexi eða leðurbuxum. Ekki heldur sundbol eða nælonsokkum. Hvaða tónlist hlustar þú mest á? Ég hlusta á mjög margt. Til dæmis Radiohead, Arctic Monkeys, Muse og Coldplay. Ég elska Coldplay. Hver er uppáhaldskvikmyndin þín? Ég fór nýlega á Hot Tub Time Mach- ine í bíó og hún er mjög ofarlega á lista. Ég hef aldrei grenjað jafnmikið af hlátri. Hvað ætlar þú að gera í sumar? Ég er væntanlega að fara að vinna á leikskóla og líka í bíói. Svo ætla ég bara að fara í útilegur og reyna að njóta lífsins sem mest. Hvað langar þig að vinna við í framtíðinni? Eitthvað líffræðitengt og svo væri gaman að gera eitthvað tengt listum með því. Mála eða teikna eða eitthvað svoleiðis, en það er kannski erfitt að lifa af því. SISTER’S POINT-JAKKI „Rauður og léttur fyrir sumarið. Líka til í svörtu.“ 8.990 kr. Retro ADIDAS-SKÓR „Grimmilega góðir. Rauðir og svartir.“ 17.990 kr. Retro COLOURGLIDE- VARALITUR „Endingargóður og rakagefandi. Fæst í fjölda litbrigða.“ 1.460 kr. Body Shop LJÓSAR SPARKZ- GALLABUXUR „Þröngar og klassískar.“ 13.990 kr. Retro HVÍTUR HLÝRABOLUR „Ódýr og þægilegur. Til í mörgum litum.“ 1.990 kr. Retro SVARTUR SPARKZ- BLÚNDUBOLUR „Svalur fyrir bæði hvers- dagsleg og fínni tækifæri.“ 4.990 kr. Retro KINNALITUR „Bjartir og sumarlegir litir gefa aukinn ferskleika.“ 1.540 kr. Body Shop KINNALITSBURSTI „Einstaklega mjúk nælonhár.“ 1.890 kr. Body Shop 7FIMMTUDAGUR 22. APRÍL 2010 Monitor

x

Monitor

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Monitor
https://timarit.is/publication/791

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.