Monitor - 22.04.2010, Qupperneq 14
14 Monitor FIMMTUDAGUR 22. APRÍL 2010
fílófaxið
föstudagur
23
apríl
ÍSLANDSKLUKKAN
Þjóðleikhúsið
19:00 Hér er um að ræða afmæl-issýningu í tilefni þess að
60 ár eru liðin frá opnun Þjóðleikhússins, en
Íslandsklukkan var ein af þremur opnunar-
sýningum þann 20. apríl árið 1950.
GRÆN TÓNLEIKARÖÐ
Langholtskirkja
19:30 Sinfóníuhljómsveit Íslandsheldur tónleika undir
yfirskriftinni „Árstíðirnar í Langholtskirkju“. Í
grænu röðinni ættu allir að finna eitthvað við
sitt hæfi enda spilar sveitin vinsæl og þekkt
verk sem flestir ættu að kannast við.
ÚTSKRIFTARSÝNING
NEMENDALEIKHÚSSINS
Smiðjan
20:00 Nemendaleikhúsið sýnirlokaverkefni sitt, leikritið
„Stræti“, eftir Jim Cartwright, einn af þekktari
samtímahöfundum Breta.
HÆNUUNGARNIR
Kassinn, Þjóðleikhúsinu
20:00 Nokkrir kjúklingar á tilboðs-verði hverfa úr frystikistu í
fjölbýli sem á eftir að draga talsverðan dilk
á eftir sér. Eggert Þorleifsson hefur fengið
mikið lof fyrir frammistöðu sína í hlutverki
hins óútreiknanlega jazzáhugamanns,
Sigurhans. Hænuungarnir er annað verk
Braga Ólafssonar fyrir leiksvið.
GAURAGANGUR
Borgarleikhúsið
20:00 Ormur Óðinsson ogfélagar eru mættir aftur á
fjalirnar í þessu ástsæla verki Ólafs Hauks
Símonarsonar. Aðalhlutverkið er í höndum
Guðjóns Davíðs Karlssonar en þess má geta
að tónlistin í verkinu var
sérsamin af hljómsveit-
inni Ný dönsk.
EILÍF ÓHAMINGJA
Borgarleikhúsið – Litli salur
20:00 Eilíf óhamingja er sjálfstættframhald af verkinu Eilíf
hamingja sem sett var upp í Borgarleikhúsinu
árið 2007. Verkinu er lýst sem gamansamri en
beittri ádeilu á markaðshyggjuna. Handrits-
gerð er í höndum Andra Snæs Magnasonar og
Þorleifs Arnar Arnarssonar.
HELLISBÚINN
Íslenska óperan
20:00 Íslendingar kunna greinilegavel að meta þennan vinsæl-
asta einleik veraldar, en nú hafa yfir 15.000
manns séð þessa uppfærslu af Hellisbúanum.
Í þetta skiptið er Hellisbúinn leikinn af
Jóhannesi Hauki Jóhannessyni.
GRÆNJAXLAR
Rýmið, Akureyri
20:00 Leikfélag Menntaskólans áAkureyri setur upp verk Pét-
urs Gunnarssonar frá árinu 1977. Leikstjórn
er í höndum Bryndísar Ásmundsdóttur.
LÍSA Í UNDRALANDI
Bæjarleikhúsið, Mosfellsbæ
20:00 Leikfélag Borgarholtsskólasetur upp sína eigin útfærslu
af hinni klassísku sögu um Lísu í Undralandi,
en meðal þess sem boðið er upp á í sýning-
unni eru talandi kanínur og syngjandi mýs.
TVEIR FÁTÆKIR PÓLSKU-
MÆLANDI RÚMENAR
Norðurpóllinn
20:00 Fátæka leikhúsið spreytir sigá þessu víðförla og umtalaða
verki, en höfundur þess, Dorota Maslowska,
er einn fremsti ungi rithöfundur Pólverja.
Leikstjóri er Heiðar Sumarliðason.
BRÆÐINGURINN 2010
Sódóma
22:00 Ein stærsta raftónlistarveislaársins mun fara fram þegar
þrjár af vinsælustu rafsveitum Íslands leiða
saman hesta sína á tónleikum, en þær eru
Berndsen & the young boys, Bloodgroup og
Ultra Mega Technobandið Stefán.
TÓNLEIKAR
Kaffi Rósenberg
22:00 Rósenberg býður upp átónleika alla helgina. Í þetta
skiptið stígur Varsjárbandalagið á svið og
leikur fyrir gesti.
TRÚBADORA
VEISLA
English Pub
22:00 Þór Óskar byrjar kvöldið meðnokkrum vel völdum lögum
en þegar líða tekur á nóttina taka þeir Maggi
og Hlynur við og spila fram á morgun.
LIFANDI TÓNLIST
Dubliner
22:30 Það verður boðið uppá trúbadorastemningu
fyrir gesti og gangandi. Tilvalið að fara með
félögunum og detta í tvo til þrjá kalda og
njóta tónlistarinnar.
„Við hættum aldrei. Á meðan
við erum báðir lifandi þá eru
Radíusbræður til,“ segir Davíð
Þór Jónsson. Hann og Steinn
Ármann munu stíga saman á
stokk í fyrsta skipti í langan
tíma í tvískiptu uppistandi sem
er byggt á tveimur af vinsælustu
uppistandsýningum í sögu
Bretlands eftir grínmeistarann
Ricky Gervais.
„Það er langt síðan við unnum
saman og við vorum báðir
farnir að sakna þess,“ segir
Davíð sem útilokar ekki frekari
landvinninga Radíusbræðra.
„Við ætlum að einbeita okkur að
þessu verkefni og gera það vel.
Við erum til í að skoða tilboð
sem koma upp en við erum ekki
að fara að herja á árshátíðir eða
uppistandskvöld, það er pakki
sem við erum búnir með.“
Harmleikur
að rífast um
kjúklinga
VILLIDÝR/PÓLITÍK -
FRUMSÝNING
Borgarleikhúsið
20:00
SKOPPA OG SKRÍTLA
Á TÍMAFLAKKI
Borgarleikhúsið, litli salur
12:00 og 14:00 Tilvalin sýning tilað fara með krakka á enda
hafa Skoppa og Skrítla verið eftirlæti ungra
leikhús- og bíógesta undanfarin ár.
FÍASÓL
Þjóðleikhúsið, Kúlan
14:00 og 16:00 Fíasól í Hosiló ersprellfjörug sýning fyrir alla
fjölskylduna byggð á hinum geysivinsælu
og margverðlaunuðu bókum Kristínar Helgu
Gunnarsdóttur en sýningin er leikstýrð af
Vigdísi Jakobsdóttur.
ÚRSLITAKEPPNI
Í HANDBOLTA KARLA
Digranes
16:00 Hasarinn er hafinn í hand-boltanum hjá körlunum.
Í þessari viðureign taka HK-ingar á móti
Íslandsmeisturum Hauka.
ÚRSLITAKEPPNI Í HAND-
BOLTA KARLA
Digranes
16:00 Hasarinn er hafinn í hand-boltanum hjá körlunum.
Í þessari viðureign taka HK-ingar á móti
Íslandsmeisturum Hauka.
ALGJÖR SVEPPI
Íslenska óperan
18:00 Börnin elska Sveppa. AlgjörSveppi - Dagur í lífi stráks
er frábær fjölskyldusýning í leikstjórn Felix
Bergssonar en tónlistarstjóri er sjálfur Jón
Ólafsson.
ÚRSLITASERÍA Í
KÖRFUNNI
Toyota-höllin, Keflavík
19:15 Snæfellingar þurfa aðferðast suður með sjó til að
etja kappi við Keflvíkinga í þriðja leiknum í
úrslitunum. Það lið sem fyrst vinnur þrjá leiki
stendur uppi sem Íslandsmeistari.
SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT
ÍSLANDS
Langholtskirkja
19:30 Sinfóníuhljómsveit Íslandsheldur tónleika undir
yfirskriftinni „Árstíðirnar í Langholtskirkju“.
Hérna ættu allir að finna eitthvað við sitt
hæfi enda spilar sveitin vinsæl og þekkt verk
sem flestir ættu að kannast við.
ÚTSKRIFTARSÝNING
NEMENDALEIKHÚSSINS
Smiðjan
20:00 Nemendaleikhúsið sýnirlokaverkefni sitt, leikritið
„Stræti“, eftir Jim Cartwright, einn af þekktari
samtímahöfundum Breta.
HÆNUUNGARNIR
Kassinn, Þjóðleikhúsinu
20:00 Nokkrir kjúklingar á tilboðs-verði hverfa úr frystikistu í
fjölbýli sem á eftir að draga talsverðan dilk
á eftir sér. Eggert Þorleifsson hefur fengið
mikið lof fyrir frammistöðu sína í hlutverki
hins óútreiknanlega jazzáhugamanns,
Sigurhans. Hænuungarnir er annað verk
Braga Ólafssonar fyrir leiksvið.
GRÆNJAXLAR
Rýmið, Akureyri
20:00 og 22:30 LeikfélagMenntaskólans á Akureyri
setur upp verk Péturs Gunnarssonar frá
árinu 1977. Leikstjórn er í höndum Bryndísar
Ásmundsdóttur.
LÍSA Í UNDRALANDI
Bæjarleikhúsið, Mosfellsbæ
20:00 Leikfélag Borgarholtsskólasetur upp sína eigin útfærslu
af hinni klassísku sögu um Lísu í Undralandi,
en meðal þess sem boðið er upp á í sýning-
unni eru talandi kanínur og syngjandi mýs.
ÚRSLITAKEPPNI
Í HANDBOLTA KARLA
Höllin, Akureyri
20:00 Hasarinn er hafinn í hand-boltanum hjá körlunum. Í
þessari viðureign taka Akureyringar á móti
sprækum Valsmönnum.
GERPLA
Þjóðleikhúsið
20:00 Baltasar Kormákur leggurtil atlögu við meistaraverk
nóbelskáldsins, en Gerpla hefur aldrei áður
verið sett á svið. Með hlutverk fóstbræðranna
Þorgeirs Hávarssonar og Þormóðs Kolbrúnar-
skálds fara Jóhannes Haukur Jóhannesson og
Björn Thors.
FAUST
Borgarleikhúsið
20:00 Það eru liðin fjörutíu ár síðanFaust fór síðast á leiksvið á
Íslandi en nú gefst áhugasömum tækifæri á
að berja sýninguna augum í Borgarleikhús-
inu. Í þetta skiptið er leikstjórn í höndum
Gísla Arnar Garðarssonar en það er enginn
annar en Nick Cave sem sér um tónlistina í
sýningunni ásamt Warren Ellis.
TÓNLEIKAR
Kaffi Rósenberg
22:00 Rósenberg býður upp átónleika alla helgina. Í þetta
skiptið stígur hljómsveitin Túpílakar á svið og
leikur fyrir gesti.
TRÚBADORAVEISLA
English Pub
22:00 Þór Óskar byrjar kvöldið meðnokkrum vel völdum lögum
en þegar líða tekur á nóttina taka þeir Maggi
og Hlynur við og spila fram á morgun.
TÓNLEIKAR
Sódóma
22:00 Það verður boðið upp á þéttatónleika þegar hljómsveitirn-
ar Perla, Hoffman og Momentum leiða saman
hesta sína.
LIFANDI TÓNLIST
Dubliner
22:30 Það verður boðið uppá trúbadorastemningu
fyrir gesti og gangandi. Tilvalið að fara með
félögunum og detta í tvo til þrjá kalda og
njóta tónlistarinnar. !
"
laugardagur
SPAÐADANSLEIKUR
Nasa
23:00 Hljómsveitin Spaðar heldurárlega tónleika á Nasa en
sveitin er nú á 27. aldursári. Að eigin sögn er
tónlist þeirra balkan-blús-rokk-gömludansa-
blanda.
„Við erum ekki alveg tilbúnar að fara
í sumarfrí strax,“ segir Marthe Sördal
leikmaður Fram í handbolta en Safa-
mýrarstúlkur eru komnar með bakið
upp við vegg í baráttunni um Íslands-
meistaratitilinn eftir Valssigur í fyrstu
tveimur leikjum rimmunnar. „Nú er
þetta bara spurning um það hvort
við ætlum að vera áfram í þessari
keppni eða ekki. Ef við töpum er þetta
bara búið,“ segir Marthe sem er ekki
í vafa um hvað hefur farið úrskeiðis
í leikjunum hingað til. „Við verðum
að taka okkur saman í andlitinu og
byrja að spila almennilega vörn. Við
erum með frábæran markvörð og
gott sóknarlið en ef við spilum enga
vörn verður þetta alltaf erfitt,“ segir
Marthe sem reynir að haga leikdögum
á svipaðan hátt.
„Yfirleitt tek ég stuttan göngutúr
á morgnanna og reyni að borða vel.
Svo hlusta ég alltaf á sama lagið fyrir
leik,“ segir Marthe en vill þó ekki gefa
upp hvaða lag það er. „Ég vil halda
lífi aðeins lengur. Ég er með alveg
hræðilegan tónlistarsmekk. Eina sem
ég get gefið upp er að ég hef farið á
eina tónleika á ævi minni, og þeir voru
með Scooter.“
Framstelpur
með bakið
upp við vegg
VALUR – FRAM
Vodafone-höllin
20:00
24
apríl