Monitor - 13.05.2010, Síða 3
Sindri Eldon skrifaði gagnrýni
um plötu Hafdísar Huldar, Synchro-
nized Swimmers, í nýjasta tölublað
Grapevine. Skemmst er frá því að
segja að gagnrýnin er afar neikvæð
og klykkir út á þeim orðum að ef
þunglyndi hafi ekki drepið hlust-
andann muni platan gera það að
verkum að hann muni vilja drepa
sig sjálfur.
Bubbi Morthens sér tilefni til
að taka fram lyklaborðið vegna
þessa máls og skrifar um Sindra á
Facebook-síðu sinni: „Hann getur
ekki spilað á bassa skammlaust og
í staðinn reynir hann að hefja sig
upp í sól móður sinnar með drullu
um fólk sem hefur hæfileika sem
sannarlega hann hefur ekki sem
tónlistarmaður.“ Móðir Sindra er að
sjálfsögðu Björk Guðmundsdóttir.
Bubbi fær fljótlega athugasemd
þar sem hann er spurður hvort
hann hafi sjálfur einkarétt á að
upphefja sig á kostnað annarra.
Hafdís Huld skrifar svo sjálf: „Takk
Bubbi minn, gott að finna stuðning
frá fólki sem veit um hvað það
er að tala“ og er greinilega ekki
skemmt yfir gagnrýni Sindra. Bubbi
bætir svo um betur og segir: „Hann
hefur reynt allt til þess að fá ljósið
á sig kannski ætti hann að kúka
á sviði þá fengi hann mögulega
umfjöllun við hæfi.“ Tónlistarfólkið
Ragnheiður Gröndal, Jakob Frímann
Magnússon og Orri Harðarson
kvittar allt á athugasemdaþráðinn
og segist sú fyrstnefnda ekki þola
svona níðskrif. Gaukur Úlfarsson
gagnrýnir Bubba hins vegar og
skrifar: „Sjúklega hallærisleg og
barnaleg færsla Bubbi. Ég á plötu
sem Sindri gerði fyrir jólin síðustu
sem er stútfull af frábærri tónlist og
svo ættir þú að vera manna síðastur
að mæla gegn því að fólk segi það
sem því í brjósti býr.“
Monitor fylgist spennt
með framhaldinu.
„Ég hélt síðast upp á afmælið mitt þegar ég var
þrettán ára, þannig að fyrst ég ákvað að gera það
núna ákvað ég að gera það almennilega,“ segir
Egill Einarsson, betur þekktur sem Gillzenegger.
Hann fagnaði þrítugsafmæli sínu með stórri
veislu á miðvikudagskvöld, en hann á afmæli 13.
maí.
Veislan var reyndar haldin undir því yfirskyni
að um fertugsafmæli væri að ræða. „Ég gerði
það til þess að plata fólk. Þannig að þegar ég
verð fertugur eftir 10 ár munu menn spyrja:
„Bíddu varstu ekki fertugur þarna fyrir 10 árum
síðan?“ Þá er sjokkið farið og það verður ekkert
vandræðalegt fyrir mig að verða gamall,“ útskýrir
Egill.
Lagði áherslu á að fá frægu vinina
Mikið var um dýrðir í veislunni og krökkt af
þekktum andlitum. „Ég lagði mikla áherslu á að
frægu vinir mínir myndu koma, en ég var lítið að
stressa mig á því hvort vinir mínir sem eru ekki
þekktir myndu mæta. Þeir fengu bara Facebook-
boð en þeir frægu fengu Facebook-boð, SMS og
símtal,“ segir Egill.
Hann segist langt frá því að vera að stressa sig
yfir aldrinum. „Ég er einn af þeim fáu sem
hlakka til að verða gamall. Í líkamsrækt
toppar þú 43 til 45 ára, þá nær
þroskinn í vöðvunum hámarki.
Þá fer maður líka allur að
grána og kerlingarnar hata það
ekkert,“ segir Egill og bendir
á George Clooney og Sean
Connery sem sönnunargögn
fyrir því að konur kunni að
meta gráhærða menn. „Ég
hlakka mikið til að sjá fyrsta
hárið kikka inn,“ segir hann.
Engin kaka á afmælinu
Þrátt fyrir stóran áfanga neitaði
Egill sér um að fá köku eða aðrar kræsingar á
afmælisdaginn. Hann undirbýr sig nefnilega
af krafti fyrir sjónvarpsþátt sem verður tekinn
upp eftir nokkrar vikur. „Það eru innan við
sex vikur í að ég verði nakinn í sjónvarpinu
í Bandaríkjunum. Þá get ég ekki leyft mér að
borða kökur núna. Ég þarf að vera í hroðalegu
standi þá,“ segir Egill. Um er að ræða
raunveruleikaþátt þar sem hann
og Auðunn Blöndal keppa við
Sveppa og Villa Naglbít um að
komast á sem skemmstum tíma
í gegnum Bandaríkin. Fyrirhugað
er að sýna þáttinn í haust.
Auk þess er Egill að skrifa
sína þriðju bók. „Þegar ég fer út
á meðal almennings sé ég að
starfi mínu er ekki lokið. Það
eru rasshausar og dónar út um
allt,“ segir Egill, sem hefur áður
gefið út bækurnar Biblía fallega
fólksins og Mannasiðir og seldust þær
báðar feykivel. „Ég á í rauninni í eilífri baráttu við
að gera menn að betri mönnum. Ég gefst ekkert
upp.“
3
fyrst&fremst
Ritstjóri: Björn Bragi Arnarsson (bjornbragi@monitor.is) Umbrot og hönnun: Hilmar Gunnarsson (hilmar@monitor.is) Sími: 569-1136
Blaðamenn: Allan Sigurðsson (allan@monitor.is), Haukur Johnson (haukurjohnson@monitor.is), Vigdís Sverrisdóttir (vigdis@monitor.is)
Forsíða: Ernir Myndvinnsla: Hallmar F. Þorvaldsson Auglýsingar: auglysingar@monitor.is Útgefandi: Árvakur Prentun: Landsprent
Þorvaldur
Davíð
Kristjánsson
my LAST
WEEK before
i’m officially a 4th Year at
Juilliard. Time truly does fly!!!.
12. maí kl. 11:51
Arnar Grant
tekur nokkrar
pósur fyrir
framan
spegilinn...
11. maí kl. 6:43
FIMMTUDAGUR 13. MAÍ 2010 Monitor
Monitor
mælir með
How To Make It In
America er splunkunýr þáttur sem
lofar virkilega góðu. Í
þættinum er fylgst
með þeim Ben
og Cam sem
reyna að koma
sér áfram í
tískuheiminum
í New York.
Upphafsstefið, I
Need A Dollar með Aloe Blacc, er
líka svo nett að það eitt og sér gerir
þáttinn þess virði að horfa á hann.
Rapparinn Kid Cudi leikur líka í
þáttunum og það skemmir ekkert
fyrir.
Eldofninn í Grímsbæ
býður upp á frábærar pítsur á góðu
verði. Þar er gott að setjast
niður og borða en
einnig er boðið upp á
heimsendingar. Af
matseðlinum má
hiklaust mæla með
pítsunni „Eldofninn“
sem er hrikalega
góð fyrir þá sem vilja
sterkan mat. Hvítlauksbrauðið
er líka syndsamlega gott.
Heligoland er
nýjasta platan frá breska dúóinu
Massive Attack og
er alveg hreint
stórgóð.
Aðdáendur
sveitarinnar
höfðu beðið
lengi eftir nýrri
plötu frá sveitinni
og olli hún engum
vonbrigðum. Heligoland er nokkuð
fjölbreytt plata enda er Massive
Attack þekkt fyrir tilraunastarfsemi
við upptökur. Það má mæla
sérstaklega með laginu Paradise
Circle.
Vikan á...
Feitast í blaðinu
Vinsælustu
myndbönd YouTube
frá upphafi og
sagan á bak
við þau. 4
Páll Óskar og
Eurovision-
spekingarnir spá
fyrir um
keppnina.
8
Nína Dögg
Filippusdóttir
leikkona í
skemmtilegu
viðtali.
10
Robin Hood með
Russell Crowe í
aðalhlutverki er
frumsýnd
um helgina. 14
Fílófaxið tekur
saman alla helstu
viðburði helgarinnar
á einum
stað. 12
Á SKJÁNUM
Í MAGANUM
Hlakka til að sjá
fyrsta gráa hárið
Í SPILARANUM
The Charlies
Spent a lot of
time in IKEA
and Target
today. Now
sitting with Rip and the girls
going through songs we
just got from some amazing
songwriters :-) ..Very exciting!!
Hugs&kisses, Alma xoxo!
11. maí kl. 4:52
Efst í huga Monitor
Gillzenegger fagnaði þrítugsafmæli sínu í vikunni með glæsilegri veislu.
NÝR GILLZ.IS
Egill opnar um þessar mundir
nýja og endurbætta útgáfu
af vefsíðu sinni Gillz.is sem
hann lét hanna fyrir sig. „Það
er 100% öruggt að þessi síða
fær verðlaun fyrir vefhönnun,“
segir Egill hógvær.
Mynd/Golli
EGILL BLÆS Á KERTIÐ Á SÉRSTAKRI
LÓÐAKÖKU SEM HANN FÉKK Á AFMÆLINU
Vala Grand
omg love this
song rude boy
by rihana it
makes me feel
sexy and _________lol u
guess 11. maí kl. 2:19
Fjalar Þorgeirs-
son Menn sem
halda með
Liverpool ættu
núna að breyta
um og halda með Interpol!
12. maí kl. 0:39
+
+ =
GILLZ Á HÁLFRI MÍNÚTU
Hvaða mynd sástu síðast? Tango
& Cash. Hún er rosaleg. Leigðu
Tango & Cash í kvöld og það verður
besta mynd sem þú hefur séð.
Með hverjum heldur þú á HM í
sumar? Englandi. Ég svo marga
vini í liðinu.
Hver þarf mest á því að halda
að mæta í einkaþjálfun?
Höddi Magg.
Hvað tekur þú í bekk? 160 á
kjötinu, fyrir hádegi, óétinn.