Monitor - 13.05.2010, Blaðsíða 13
fílófaxið
13FIMMTUDAGUR 13. MAÍ 2010 Monitor
sunnudagur
16
maí
SCHUBERT
Fríkirkjan
11:00 Morguntónleikaröð ÁgústsÓlafssonar bassasöngvara
og Gerrits Schuils píanóleikara í Fríkirkjunni
í Reykjavík. Á tónleikunum flytja þeir
þrjá þekktustu ljóðasöngva Schuberts en
óvenjulegt er að hafa tækifæri til að hlýða á
þá alla með svona stuttu millibili. Miðaverð
2.000 krónur.
SKOPPA OG SKRÍTLA
Á TÍMAFLAKKI
Borgarleikhúsið, Litla svið
12:00 og 14:00 Í þessari nýjustusýningu Skoppu og Skrítlu
láta þær sér ekki nægja að ferðast um
heiminn, heldur ferðast þær líka um í tíma
og hitta fyrir fólk og fyrirbrigði sem eru ekki
vanalega á rölti í miðbænum. Syngjandi glöð
sýning fyrir alla fjölskylduna. Miðaverð 1.950
krónur.
ALGJÖR SVEPPI –
DAGUR Í LÍFI STRÁKS
Íslenska óperan
13:00 Sveppi fer meðaðalhlutverkið í þessari
skemmtilegu fjölskyldusýningu og honum
til halds og trausts er leikarinn Orri Huginn
Ágústsson. Sýningin byggir á barnaplötu
Gísla Rúnars, Algjör sveppur, frá árinu 1978.
Leikstjóri er Felix Bergsson og tónlistarstjóri
er Jón Ólafsson. Miðaverð 2.800 krónur.
FÍASÓL
Þjóðleikhúsið, Kúlan
13:00 og 15:00 Átta áragleðisprengjan Fíasól
er drottning í sínu eigin risastóra
hugmyndaríki. En stundum fljúga
hugmyndirnar svo hátt að hún missir þær
út í vitleysu. Sprellfjörug sýning fyrir alla
fjölskylduna byggð á vinsælum barnabókum
eftir Kristínu Helgu Gunnarsdóttur. Leikstjóri
er Vigdís Jakobsdóttir. Miðaverð 1.500 krónur.
GRANNMETISLÖG
Gerðuberg
14:00 Caput-hópurinn, ásamtGuðrúnu Ólafsdóttur,
flytur sönglagaflokk eftir Hauk Tómasson
og Þórarin Eldjárn. Sprotar að vori, ungir
tónsmiðir, stíga einnig á stokk.
MARÍUSÖNGVAR
Kristskirkja við Landakot
16:00 Fjöldi tónskálda hefurí gegnum tíðina helgað
Maríu mey verk sín og endurreisnin
var sannkallað blómaskeið slíkra
Maríusöngva. Kammerkórinn Carmina
ásamt einsöngvurum syngur Maríusöngva í
Kristskirkju, meðal annars hið víðfræga Ave
Maria eftir Josquin des Prez. Miðaverð 2.500
krónur.
EILÍLF ÓHAMINGJA
Borgarleikhúsið, Litla svið
18:00 Andri Snær Magnason ogÞorleifur Örn Arnarson,
höfundar verksins, ræddu á síðastliðnu
ári við fleiri en þúsund Íslendinga, og eftir
standa fimm persónur sem lifna við á
sviðinu. Miðaverð 3.450 krónur.
GLERLAUFIN
Norðurpóllinn
20:00 Breskt nútímaleikrit eftirhinn margrómaða höfund
Philip Ridley en hann hefur skrifað fjölda
leikrita og hlotið fjölmörg verðlaun fyrir skrif
sín. Miðaverð 2.500 krónur.
BEDROOM COMMUNITY
Þjóðleikhúsið, Stóra sviðið
20:00 TónlistarsamstarfiðBedroom Community hefur
lagt Evrópu að fótum sér með The Whale
Watching Tour en túrnum ljúka þeir einmitt
með tónleikum á Listahátíð í Reykjavík.
Með þeim á ferðalaginu eru Nadia Sirota
viola, Una Sveinbjarnardóttir fiðla, Borgar
Magnason kontrabassi og Helgi Hrafn
Jónsson básúna og söngur. Daníel Bjarnason,
tónskáld og stjórnandi, opnar tónleikana
með eigin verki fyrir litla hljómsveit.
Miðaverð 3.500 krónur.
RÓMEÓ OG JÚLÍA
VESTURPORTS
Borgarleikhúsið, Stóra sviðið C
20:00 Árið 2002 frumsýndiVesturport Rómeó og Júlíu
á Litla sviði Borgarleikhússins. Sýningin sló
í gegn og markaði hún upphafið að glæstu
gengi leikhópsins. Síðan hefur sýningin
ferðast víða um heim og hlotið mikla athygli,
enda uppsetningin mikið sjónarspil en þar
mætast sirkus og leikhús með nýjum hætti.
Frábært tækifæri til að rifja upp kynnin við
þessa skemmtilegu sýningu.
DAGBÓK ÖNNU KNÚTS
- HELFÖRIN MÍN
Kaffi Rósenberg
21:00 Bráðfyndið uppistand þarsem Anna Svava Knútsdóttir,
leikkona, lýsir unglingsárum Önnu Knúts á
gamansaman og dramatískan hátt. Gunnar
Björn Guðmundsson leikstýrir. Miðaverð
1.000 krónur.
TÍUÞYNNKUBÍÓ
Prikið
22:00 Kvikmyndinni Anacondaverður varpað á tjald fyrir
þá sem vilja hræða úr sér þynnkuna með
ónotahrolli. Poppkorn í boði. Frítt inn.15
maí
LITLA FLUGAN
Salurinn í Kópavogi
17:00 og 21:00 Tónleikar til heiðursSigfúsi Halldórssyni. Perlur
hans fluttar af Stefáni Hilmarssyni, Heru
Björk Þórhallsdóttur og Agli Ólafssyni.
Tondeleyo, Litla flugan, Dagný, Við
Vatnsmýrina og fleiri ódauðleg lög. Með
hljómsveitarstjórn fer Björn Thoroddsen.
Miðaverð 3.500 krónur.
GERPLA
Þjóðleikhúsið, Stóra svið
20:00 Baltasar Kormákur hefurá undanförnum árum sett
upp geysivinsælar sýningar í Þjóðleikhúsinu,
þar sem hann hefur tekið vinsæl og virt
skáldverk frumlegum og ögrandi tökum.
Ásamt einvala liði leikhúsfólks leggur
hann nú til atlögu við meistaraverk
Nóbelskáldsins. Miðaverð 3.400 krónur.
TRÚBADORASTEMNING
English Pub
21:00 Maggi mundar gítarinn oghitar upp fólkið til miðnættis
en þá taka trúbadorarnir Þór og Raggi við.
DJ KÁRI Á BAKKUS
Bakkus
21:00 Rífandi stemning langt framá nótt.
A BAND ON STAGE OG
DÆTRASYNIR
Kaffi Rósenberg
22:00 Dætrasynir bjóða upp ákankvíst karlrembupopp og
A Band on Stage flytur ábreiður af erlendum,
angurværum eðalballöðum. Skemmtileg
tónlist og gott grín í bland. Miðaverð 1.000
krónur.
DJ B-RUFF & GÍSLI
GALDUR
Kaffibarinn
22:00 Benni B-Ruff og Gísli Galdurgera allt vitlaust.
ÁRSTÍÐIR, LIGHTS ON
THE HIGHWAY OG TOM
Sódóma
22:00 Þrjár sveitir sameinast ogbjóða upp á gæðatónlist og
góða stemningu. Miðaverð 1.000 krónur.
DANS–HANS Á KARAMBA
Karamba
23:45 Dans-Hans þeytir skífum oglætur liðið dansa.
DJ EINAR Á B5
B5
00:00 Plötusnúðurinn Einar helduruppi stuðinu.
Allt að gerast - alla fimmtudaga!
monitor@monitor.is
DÚFURNAR
Borgarleikhúsið, Nýja Sviðið B
19:00 og 22:00