Monitor - 13.05.2010, Blaðsíða 12

Monitor - 13.05.2010, Blaðsíða 12
12 Monitor FIMMTUDAGUR 13. MAÍ 2010 fílófaxið ÍSLANDSKLUKKAN Þjóðleikhúsið, Stóra sviðið 19:00 Stórbrotið skáldverk umsjálfsmynd lítillar þjóðar og sjálfstæði í glænýrri leikgerð. Íslandsklukkan eftir Halldór Laxness er afmælissýning Þjóðleikhússins, en 60 ár eru liðin frá opnun þess þann 20. apríl árið 1950. Íslandsklukkan var einmitt ein af þremur opnunarsýningum leikhússins. Leikstjóri er Benedikt Erlingsson. Miðaverð 3.400 krónur. MUNAÐARLAUS Norræna húsið 19:00 og 22:00 Haldnar verðatvær aukasýningar á þessu leikriti sem sló óvænt í gegn fyrr á þessu ári. Verðskrá á þessa sérstöku sýningu er tekjutengd og greiðir lágtekjufólk 2.000 krónur, miðtekjufólk 3.000 krónur og hátekjufólk 5.000 krónur. DÚFURNAR Borgarleikhúsið, Nýja Sviðið B 19:00 og 22:00 Forstjórinn Róberthverfur eftir jólaboð fyrirtækisins. Í kjölfarið sest vænisjúka taugahrúgan Holgeir í forstjórastólinn, þótt honum sé það þvert um geð. Meinfyndið leikrit eftir David Gieselmann sem ætti að höfða til þeirra sem hafa gaman af sjónvarpsþáttum á borð við Klovn og The Office. Miðaverð 3.450 krónur. UPPLIFUN Í HLJÓÐI Íslenska óperan 20:00 Marilyn Mazur og SidselEndresen stíga á stokk ásamt norrænum jazzistum á tvöföldum tónleikum í tilefni 20 ára afmælis Jazzhátíðar Reykjavíkur og 40 ára afmælis Listahátíðar í Reykjavík. Með Marilyn leika Nils Petter Molvær á trompet og Eivind Aarset á gítar, en saxófónleikarinn Håkon Kornstad stígur á svið með Sidsel. Miðaverð 3.500 krónur. FERÐASAGA GUÐRÍÐAR Víkingaheimar, Reykjanesbæ 20:00 Víkingaskipið Íslendingurer orðinn að leiksviði í nýju leikhúsi í Víkingaheimum í Reykjanesbæ. Fyrsta sýningin sem þar er sett upp er Ferðasaga Guðríðar eftir Brynju Benediktsdóttir, í nýrri uppfærslu Maríu Ellingsen en sýningin fór upphaflega sigurför um Bandaríkin og Kanada í tilefni árþúsundamótanna. Miðaverð 3.400 krónur. RÓMEÓ OG JÚLÍA Borgarleikhúsið, Stóra sviðið B 20:00 Einn af fjölmörgumviðburðum í boði á Listahátíð í Reykjavík er uppfærsla litháíska leikstjórans Osakaras Korsunovas á einni rómuðustu ástarsögu allra tíma, Rómeó og Júlíu eftir Shakespeare. Þessi uppsetning hefur ferðast um allan heim og hlotið fjölda verðlauna. Miðaverð 4.500 krónur. VILLIDÝR / PÓLITÍK Borgarleikhúsið, Litli Salur 20:00 Radíusbræðurnir Davíð ÞórJónsson og Steinn Ármann Magnússon leiða saman hesta sína á ný í íslenskri útgáfu frægrar uppistandssýningar Ricky Gervais. Fyrir hlé er það Pólitík með Davíð Þór og eftir hlé mætir Steinn Ármann með Villidýr. Leikstjóri er Gunnar B. Guðmundsson sem leikstýrði síðasta Áramótaskaupi og kvikmyndinni Astrópíu. Miðaverð 3.450 krónur. LITLA FLUGAN Salurinn í Kópavogi 21:00 Tónleikar til heiðurs SigfúsiHalldórssyni. Perlur hans fluttar af Stefáni Hilmarssyni, Heru Björk Þórhallsdóttur og Agli Ólafssyni. Tondeleyo, Litla flugan, Dagný, Við Vatnsmýrina og fleiri ódauðleg lög. DJ NINO OG DRAMATÍK Kaffi Zimsen 21:00 Trúbadorastemning TRÚBBAR English Pub 21:00 Maggi mundar gítarinn oghitar upp fólkið til miðnættis en þá taka trúbadorarnir Þór og Raggi við. A BAND ON STAGE OG DÆTRASYNIR Kaffi Rósenberg 22:00 Dætrasynir bjóða upp ákankvíst karlrembupopp og A Band on Stage flytur ábreiður af erlendum, angurværum eðalballöðum. SNORRI HELGASON, STAF- RÆNN HÁKON OG MIRI Sódóma 22:00 Nokkrir af skjólstæðingumKimi Records útgáfunnar koma hér saman á skemmtilegum tónleikum. Kjörið tækifæri til að sjá Snorra Helgason áður en hann heldur til Bretlands til að spila á Jajaja tónlistarhátðinni og eins að sjá hina austfirsku Miri-menn áður en þeir yfirgefa borgina í bili fyrir heimahagana. DJ KÁRI Kaffibarinn 22:00 Trylltur dans og tómt stuðfram eftir öllu. PRÓFLOKADJAMM X-977 Nasa 22:30 Útvarpsstöðin X-977 fagnarmeð námsmönnum í tilefni prófloka. Fram koma Endless Dark, Hoffman, Ultra Mega Technobandið Stefán, Cliff Clavin og Ensími, nokkrar af frambærilegustu rokksveitum landsins. Miðaverð er 1.200 krónur og fer forsala miða fram á midi.is. UNE SOIRÉE DU TWIST! Nýlenduvöruverzlun Hemma & Valda 23:00 Í sjöunda sinn verður tvistaðfram á nótt á Hemma og Valda. Í þetta sinn er það ekki síst til að fagna komu sumarsins. NONNI & MANNI Karamba 23:45 Vinkonurnar Nonni og Mannihalda hita í mönnum langt fram eftir nóttu. DJ JÓNAS ÓLI Á B5 B5 00:00 Jónas Óli þeytir skífum oglætur liðið dansa. Ofbeldisfullt sýrutripp í gegnum Pólland TVEIR FÁTÆKIR PÓLSKU- MÆLANDI RÚMENAR Norðurpóllinn 20:00 „Ég get nú ekki beint sagt að þetta sé splatter. En það er hasar í þessu,“ segir Hannes Óli Ágústsson, einn leikenda í leikritinu Tveir fátækir pólskumælandi Rúmenar sem nú er sýnt í leikhúsinu Norðurpólnum. Þetta er ekki fyrsta átakasagan sem Hannes leikur í en hann er landsmönnum vel kunnur fyrir eftirminnilega túlkun sína á Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni í Áramótaskaupinu. Í leikritinu segir frá manni og konu sem ferðast um Pólland á stolnum bíl og skilja eftir sig blóði drifna slóð. „Þegar líða tekur á verkið kemur í ljós að kannski er ekki alveg allt eins og það lítur út fyrir að vera í upphafi og við fylgjumst með því hvernig þessi ökuferð breytist í martröð,“ segir Hannes. Hann segir að þótt leikritið minni óneitanlega á söguþráðinn í kvikmyndinni Natural Born Killers sé það engan veginn jafnblóðugt. Norðurpóllinn er nýtt leikhús, en Hannes segir það engan veginn hafa reynst erfitt að fá fólk til að mæta. „Þetta gæti alveg tvímælalaust orðið framtíðarleikhús í Reykjavík. Það er vonandi að svo verði,“ segir Hannes. FÍASÓL Þjóðleikhúsið, Kúlan 13:00 og 15:00 Átta áragleðisprengjan Fíasól er drottning í sínu eigin risastóra hugmyndaríki. En stundum fljúga hugmyndirnar svo hátt að hún missir þær út í vitleysu. Sprellfjörug sýning fyrir alla fjölskylduna byggð á vinsælum barnabókum eftir Kristínu Helgu Gunnarsdóttur. Leikstjóri er Vigdís Jakobsdóttir. Miðaverð 1.500 krónur. BRINDISI Íslenska Óperan 16:00 Kvennakórinn Vox feminaeverður með tónleika í Íslensku óperunni þar sem tónleikagestum er boðið í ferðalag um heim óperusögunnar. Sigrún Hjálmtýsdóttir syngur nokkrar óperuaríur auk þess sem hún syngur einsöng með Vox feminae og félögum úr Karlakórnum Fóstbræðrum. Þá munu einsöngvarar úr röðum kórfélaga stíga á svið. ÍSLANDSKLUKKAN Þjóðleikhúsið, Stóra sviðið 19:00 Stórbrotið skáldverk umsjálfsmynd lítillar þjóðar og sjálfstæði í glænýrri leikgerð. Íslandsklukkan eftir Halldór Laxness er afmælissýning Þjóðleikhússins, en 60 ár eru liðin frá opnun þess þann 20. apríl árið 1950. Íslandsklukkan var einmitt ein af þremur opnunarsýningum leikhússins. Leikstjóri er Benedikt Erlingsson. Miðaverð 3.400 krónur. SÖGULEGIR SÖNGFUGLAR Leikfélag Akureyrar, Samkomuhúsið 20:00 Nú er komið að lokatón-leikum í tónleikaröðinni Sögulegir söngfuglar en þar mun Jana María Guðmundsdóttir söng- og leikkona, fjalla um Ellý Vilhjálms í gegnum söng og frásögn við undirleik Valmars Valjaots. Miðaverð 1.500 kr. LEIF OVE ANDSNES Háskólabíó 20:00 Hinn heimskunni norskipíanóleikari Leif Ove Andsnes kemur fram á tónleikum á vegum Listahátíðar í Reykjavík ásamt systkinunum Christian Tetzlaff, fiðluleikara og Tönju Tetzlaff, sellóleikara. Á tónleikunum sam- einar tríóið krafta sína í rómantískri og tilfinningaríkri efnisskrá sem er tileinkuð Robert Schumann, en í ár eru 200 ár liðin frá fæðingu hans. Miðaverð eru 4.900 krónur og 4.200 krónur. TVEIR FÁTÆKIR PÓLSKUMÆLANDI RÚMENAR Norðurpóllinn 20:00 Um hávetur ferðuðust tveirfátækir pólskumælandi Rúmenar á puttanum um pólska sveit. Þau skildu eftir sig sviðna jörð hvert sem þau fóru, en ekki eru þó allir sammála um hvað gerðist í raun og veru. Ofbeldisfullt sýrutripp í gegnum Pólland nútímans sem er einskonar samblanda af ferðalagi Maríu meyjar og Jósefs til Betlehem, Natural Born Killers, Fear and Loathing in Las Vegas, Bertholt Brecht og Samuel Beckett. Miðaverð 2.100 krónur. DÚFURNAR Borgarleikhúsið, Nýja Sviðið B 20:00 Forstjórinn Róbert hverfureftir jólaboð fyrirtækisins. Í kjölfarið sest vænisjúka taugahrúgan Holgeir í forstjórastólinn, þótt honum sé það þvert um geð. Meinfyndið leikrit eftir David Gieselmann sem ætti að höfða til þeirra sem hafa gaman af sjónvarpsþáttum á borð við Klovn og The Office. Miðaverð 3.450 krónur. SALSA OG MOJITO Thorvaldsen 20:00 Suðræn stemning í hæstagæðaflokki. Salsa- og mojitokvöld. HIPP HOPP VS. ROKK Sódóma 21:00 Hipp hopparar og rokkararleiða saman hesta sína á sérstökum viðburði á Sódóma. Fram koma Ástþór Óðinn, Stjörnuryk, Orri Err, Nögl, Narfur og No Matches. PUB QUIZ SAMMARANS English Pub 22:00 Vikuleg fótboltaspurninga-keppni á vegum umsjónarmanna vefsins Sammarinn.com. fimmtudagur 13 maí föstudagur 14 maí laugardagur SKOPPA OG SKRÍTLA Á TÍMAFLAKKI Borgarleikhúsið, Litla svið 12:00 og 14:00 Í þessari nýjustusýningu Skoppu og Skrítlu láta þær sér ekki nægja að ferðast um heiminn, heldur ferðast þær líka um í tíma og hitta fyrir fólk og fyrirbrigði sem eru ekki vanalega á rölti í miðbænum. Syngjandi glöð sýning fyrir alla fjölskylduna. FÍASÓL Þjóðleikhúsið, Kúlan 13:00 og 15:00 Átta áragleðisprengjan Fíasól er drottning í sínu eigin risastóra hugmyndaríki. En stundum fljúga hugmyndirnar svo hátt að hún missir þær út í vitleysu. Sprellfjörug sýning fyrir alla fjölskylduna byggð á vinsælum barnabókum eftir Kristínu Helgu Gunnarsdóttur. VÖLUNDARHÚSIÐ Norðurpóllinn 15:00 Sýning fyrir alla fjölskyldunasem er allt í senn leiksýning, tónleikar, myndlistarsýning, leikvöllur og tilraunastofa. Börnin ganga í gegnum völundarhúsið og á leið sinni geta þau tekið þátt í hinum ýmsu þrautum. Leikstjóri er Íris Stefanía Skúladóttir. Aðgangseyrir 1.200 krónur. MARÍUSÖNGVAR Kristskirkja við Landakot 16:00 Fjöldi tónskálda hefurí gegnum tíðina helgað Maríu mey verk sín og endurreisnin var sannkallað blómaskeið slíkra Maríusöngva. Kammerkórinn Carmina ásamt einsöngvurum syngur Maríusöngva í Kristskirkju, meðal annars hið víðfræga Ave Maria eftir Josquin des Prez. Miðaverð 2.500 krónur. KRISTJÁN JÓHANNSSON OG SÖNGVINIR Íþróttahúsið á Ísafirði 17:00 Einn fremsti óperusöngvariÍslands fyrr og síðar, Kristján Jóhannsson, hefur á síðustu vikum flutt tónleika víða um land. Að þessu sinni eru það Ísfirðingar sem hann sækir heim. MANNAKORN Háskólabíó 19:00 og 22:00 Mannakorn þarfvarla að kynna en sveitin gaf út sína fyrstu plötu 1976. Í tilefni af útgáfu sinnar elleftu plötu efnir þessi sögufræga hljómsveit til tónlistarveislu. Miðaverð 3.900 krónur. RÓMEÓ OG JÚLÍA Borgarleikhúsið, Stóra sviðið B 20:00 Einn af fjölmörgumviðburðum í boði á Listahátíð í Reykjavík er uppfærsla litháíska leikstjórans Osakaras Korsunovas á einni rómuðustu ástarsögu allra tíma, Rómeó og Júlíu eftir Shakespeare. Þessi uppsetning hefur ferðast um allan heim og hlotið fjölda verðlauna. Miðaverð 3.950 krónur. Lítið um dúfur og hurðaskelli „Þetta fjallar reyndar alls ekki um dúfur, en þær koma engu að síður við sögu,“ segir Unnur Ösp Stefánsdóttir. Hún leikur í leikritinu Dúfurnar sem nú er verið að sýna við góðar undirtektir í Borgarleikhúsinu. Að sögn Unnar fjallar leikritið um fólk sem er orðið svolítið ruglað af áreiti samtímans og lendir í allskyns skakkaföllum og reynir svo að leysa úr flækjum sínum á mjög gamansaman hátt. Húmornum í verkinu hefur verið líkt við þann sem viðgengst í þáttum á borð við Klovn og The Office. „Fólk má alls ekki búast við því að fara á hefðbundinn farsa þar sem hurðum er skellt og allir eru í einhverjum framhjáhaldsmissk ilningi,“ segir hún. „Þetta er allt annars konar húmor. Ég held það sé óhætt að segja að þetta sé afar súrt.“

x

Monitor

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Monitor
https://timarit.is/publication/791

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.