Monitor - 13.05.2010, Qupperneq 4
Tónlistarmyndband við lagið Bad Romance með Lady Gagaer það myndband sem oftast hefur verið skoðað á YouTube.
Myndbandinu var leikstýrt af Francis Lawrance sem hefur gert
myndbönd fyrir flest af stærstu nöfnum poppbransans, þar á
meðal Britney Spears, Justin Timberlake, Beyoncé og Shakiru.
Myndbandið var frumsýnt 10. nóvember og 13 dögum síðar var
það sett inn á YouTube. 25. apríl síðastliðinn, rétt rúmum fimm
mánuðum eftir að það birtist á YouTube, varð það svo fyrsta
YouTube-myndbandið í sögunni til að fá yfir 200 milljón áhorf.
Myndbandið gerist í súrrealísku baðhúsi og er hugmyndin sú að
Lady Gaga hafi verið rænt af hópi ofurfyrirsæta sem byrla henni
ólyfjan og selja hana til rússnesku mafíunnar. Myndbandið hefur
verið lofað í hástert af skríbentum úr skemmtanaiðnaðinum.
Entertainment Weekly sagði að Lady Gaga hefði aldrei litið betur
út og danssporin í myndbandinu minntu á Thriller með Michael
Jackson. Rolling Stone sagði að brot úr myndbandinu minntu á
verk Stanley Kubricks og The Wall Street Journal sagði að Lady
Gaga væri orðin meistari í öllu því sem Michael Jackson og
Madonna gerðu svo vel á níunda áratugnum.
Lady Gaga – Bad Romance
Áhorf: 202 milljónir Birtist: 23. nóvember 2009
4 Monitor FIMMTUDAGUR 13. MAÍ 2010
YouTube var sett á laggirnar í febrúar 2005 og er þriðji
mest sótti vefur heims í dag. Monitor tók saman 10 mest
skoðuðu myndbönd YouTube frá upphafi og söguna á bak við þau.
Vinsælustu
myndbönd
1
Charlie bit my finger
Áhorf: 188 milljónir
Birtist: 22. maí 2007
56sekúndna langt myndbrot sembreskur faðir tók af tveimur
sonum sínum, Charlie og Harry.
Drengirnir voru þriggja og eins árs
gamlir þegar myndbandið var tekið
upp, en hann segist upphaflega hafa
sett það á YouTube svo að guðfaðir drengjanna gæti
borið það augum. Myndbandið sýnir drengina tvo
sitja saman í stól, þar sem yngri bróðirinn bítur þann
eldri sem verður til þess að hann segir titilsetningu myndbandsins.
Myndbandið var lengi vel það mest skoðaða á YouTube. Bræðurnir eru orðnir
heimsfrægir og er starfrækt heimasíða og seldur ýmis konar varningur í nafni þeirra
með slagorðinu „Charlie Bit My Finger“. Samkvæmt sérfræðingum sem breska blaðið
The Times ræddi við er líklegt að tekjur fjölskyldunnar af auglýsingasölu í tengslum
við myndbandið nemi um 100 þúsund pundum, andvirði tæpra 20 milljóna íslenskra
króna. Bandaríska tímaritið Time setti Charlie Bit My Finger í fyrsta sæti yfir
mögnuðustu myndbönd sem slegið hafa í gegn á YouTube frá upphafi.
2 Evolution of Dance
Áhorf: 143 milljónir
Birtist: 6. apríl 2006
Dansarinn og skemmtikrafturinnJudson Laipply sýnir þróun dansins frá
miðri 20. öld og til dagsins í dag. Það gerir
hann með því að taka
dansspor við nokkra af
þekktustu slögurum
tónlistarsögunnar sem
til eru frægir dansar
við. Myndbandið er
6 mínútur og gerði
Laipply að stórstjörnu
á nokkrum vikum.
Síðan þá hefur hann
tekið sporin í fjölda
sjónvarpsþátta,
skemmtana og í
úrslitum NBA.
Hound Dog Elvis Presley (1953)
The Twist Chubby Checker (1960)
Stayin Alive The Bee Gees (1977)
Y.M.C.A. The Village People (1978)
Kung Fu Fighting Carl Douglas (1974)Keep On The Brady Bunch (1973)
Greased Lightnin John Travolta (1978)You Shook Me All Night Long AC/DC (1980)Billie Jean Michael Jackson (1983)
Thriller Michael Jackson (1983)
Oompa LoompaWillyWonka& theChoc.Fact. (1971)Mr. Roboto Styx (1982)
Break Dance (Elec.Boogie)WestStreetMob (1983)Walk Like an Egyptian The Bangles (1987)The Chicken Dance Bob Kames (1992)
Mony Mony Billy Idol (1981)
Ice Ice Baby Vanilla Ice (1990)
U Can‘t Touch This MC Hammer (1990)
Love Shack The B-52‘s (1989)
Apache (Jump on it) Sugarhill Gang (1981)Jump Around House of Pain (1992)
Baby Got Back Sir Mix-A-Lot (1992)
Tubthumping Chumbawamba (1996)
What Is Love Haddaway (1993)
Cotton-Eyed Joe Rednex (1994)
Macarena Los Del Rio (1996)
Bye Bye Bye ´N Sync (1999)
Lose Yourself Eminem (2002)
Dirt Off Your Shoulder Jay-Z (2003)
Lögin sem Judson Laipply dansar við í myndbandinu
3
Justin Bieber – Baby ft. Ludacris
Áhorf: 130 milljónir Birtist: 19. feb. 2010
Tónlistarmyndband við lagið Baby með
hinum 16 ára gamla Justin Bieber sem
er óneitanlega einn allra vinsælasti
tónlistarmaður
heims í dag.
Myndbandið er
það nýjasta á topp
10 listanum og
eru góðar líkur á
að það verði það
mest skoðaða
áður en langt um
líður.
4
Pitbull – I Know You Want Me
Áhorf: 120 milljónir Birtist: 9. mars 2009
Tónlistarmynd-
band við lagið I
Know You Want Me
(Calle Ocho) með
kúbanskættaða
rapparanum Pitbull.
Þetta er fyrsta
lag Pitbull sem
nær vinsældum á
alþjóðavísu. Lagið og
myndbandið verða þó seint talin sérstaklega
merkileg og eflaust eru margir sem furða sig
á því hversu oft það hefur verið skoðað.
5
Hahaha
Áhorf: 119 milljónir Birtist: 1. nóv. 2006
Myndbandið Hahaha, sem er einnig þekkt
undir nafninu „The Laughing Baby“, var
tekið upp af sænskum manni árið 2006.
Myndbandið sýnir ungan son mannsins
skellihlæja að hljóðum sem
hann gefur frá sér og náði það
á mettíma heimsathygli fyrir
að vera fyndið og krúttlegt.
Myndbandið var sýnt Elísa-
betu II Bretadrottningu þegar
hún heimsótti höfuðstöðvar
Google í október 2008 og var
hún yfir sig hrifin.
Miley Cyrus – Party in the U.S.A.
Áhorf: 117 milljónir Birtist: 25. sept. 2009
Miley Cyrus á tvö
myndbönd á topp
10 listanum og
er annað þeirra
tónlistarmynd-
bandið við lagið
Party in the
U.S.A. sem kom
út haustið 2009.
Myndbandið sækir
til dæmis innblástur í kvikmyndina Grease og
er einstaklega bandarískt – bandaríski fáninn
blaktir í bakgrunni og allir dansa í rífandi stuði.
6
Lady Gaga – Just Dance
Áhorf: 110 milljónir Birtist: 16. júní 2009
Lady Gaga á bæði
fyrsta og síðasta
myndbandið á topp 10
listanum. Just Dance
varð feykivinsælt
lag og myndbandið,
sem er klassískt
partímyndband, naut
ekki síður mikillar
hylli. Því var leikstýrt af
ungri kvikmyndagerðarkonu að nafni Melina
Matsoukas sem er ein sú heitasta í tónlistar-
myndbandageiranum.
10
Miley Cyrus – 7 Things
Áhorf: 118 milljónir Birtist: 28. júní 2008
Tónlistarmyndbandinu við lagið 7 Things
með Miley Cyrus hefur verið misvel tekið.
Þótt það hafi verið tilnefnt til MTV-verðlauna
sagði Los
Angeles Times að
myndbandið liti út
eins og það hefði
verið tekið upp
með því að stilla
myndavél á þrífót
í kjallara og aðeins
ein ljósapera
notuð til lýsingar.
7
8
Jeff Dunham –Achmed the DeadTerrorist
Áhorf: 112 milljónir Birtist: 29. sept. 2007
Jeff Dunham er bandarískur grínisti og
búktalari og er hryðjuverkabrúðan Achmed
einn af vinsælustu karakterum hans.
Myndband frá því
þegar Dunham
tekur atriði með
Achmed í fyrsta
skipti árið 2007
varð á skömmum
tíma eitt af þeim
vinsælustu á
YouTube og hefur
verið æ síðan.
9