Monitor - 13.05.2010, Blaðsíða 6
6 Monitor FIMMTUDAGUR 13. MAÍ 2010
Myndir/Ernir
Að taka það
á þrjóskunni
Eurovision-þátttakendur
eiga það til að vera eins og
búmerang og koma aftur þegar
þeim hefur verið kastað í
burtu. Dæmi um það finnast í
keppninni í ár eins og svo oft
áður. Það eru Niamh Kavanagh,
sem vann reyndar keppnina
á gullárum Írlands á tíunda
áratugnum og stúlknasveitin
Feminnem sem keppti fyrir
Bosníu 2005 en keppir
fyrir Króatíu í ár.
Vinsældir þessarar
aðferðar eru svo
sem skiljanlegar
enda hefur hún
nokkrum sinnum
reynst ágætlega.
Skemmst er að minnast þess
þegar rússneski vælukjóinn
Dima Bilan sigraði árið 2008
með hinu hundleiðinlega lagi
Believe, eftir að hafa lent í öðru
sæti með fínt lag tveimur árum
áður. Sigurformúlan er þó ekki
svona einföld og fáir vita það
betur en hin maltneska Chiara,
sem tók þátt í fyrra og lítur út
eins og Egill Helgason. Hún
keppti fyrst árið 1998 og náði
þriðja sætinu og hækkaði sig
upp í annað sæti þegar hún
sneri aftur árið 2005. Í þriðju
tilraun hafnaði hún hins vegar
í 22. sæti.
Það hefur einmitt frekar
verið venjan hjá íslenskum
keppendum að þeir skori lægra
með hverju kastinu. Þannig
náði Sigga Beinteins fyrst fjórða
sætinu með Eitt lag enn, því
næst sjöunda með Nei eða já og
loks því tólfta með Nætur. Ekki
tókst heldur að hækka Eirík
Hauksson upp fyrir sextánda
sæti Gleðibankans og hann
komst ekki upp úr forkeppninni
2007. En bitrasta reynslan var
líklega þegar gullkálfinum
okkar, Selmu Björnsdóttur, var
hafnað þegar hún sneri aftur
árið 2005 til að sækja sigurinn
sem hefði auðvitað verið með
réttu hennar sex árum áður.
Einhverjum kann því að þykja
óþægilegt að vita til þess
að Hera Björk hefur einmitt
tvisvar áður komið fram fyrir
Íslands hönd í keppninni
- sem bakraddasöngkona þó
- bæði í fyrra og árið 2008
með Eurobandinu. Hins vegar
er mikilvæg undantekning
á þessari reglu og hún heitir
Stefán Hilmarsson. Hann lenti
í sextánda sætinu
alræmda þegar
hann söng um
Sókrates árið
1988 en náði
að hækka
sig um eitt
sæti, upp í
það fimmtánda,
þegar hann og
Eyfi kepptu með Nínu
þremur árum síðar. Eitt sæti
kann að hljóma lítið í þessu
samhengi en fyrir þá sem hafa
lent í öðru sæti, eins og Hera
og félagar í fyrra, þá skiptir
eitt sæti augljóslega öllu máli.
Við skulum því bara vona að
Hera púlli einn Stefán í Ósló og
sigurinn verði loks okkar.
haukurjohnson@monitor.is
2
vikur
í Eurovision
Ferska liti og fylgihluti
í próflokapartíið
Nýtt myndband með Friðriki Dór á leiðinni.
Í rauðum buxum
og sumarfíling
„Þetta verður svakalega sumarlegt og litríkt,“
segir Friðrik Dór Jónsson sem tók á dögunum upp
sitt fyrsta tónlistarmyndband. Myndbandið er við
lagið Fyrir hana sem fór nýverið í spilun og hefur
notið mikilla vinsælda á netinu. Myndbandið var
gert af sömu aðilum og gerðu málningarslettu-
myndbandið við lagið Jealousy með Haffa Haff.
Það var einmitt Haffi Haff sjálfur sem stíli-
seraði myndband Friðriks. „Haffi setti mig í
rauðar buxur og kom með góðan sumarfíling
í þetta,“ segir Friðrik og bætir við: „Ég fór líka í
danskennslu til að læra nokkur spor sem ég tek
í myndbandinu.“ Myndbandið var tekið upp í
miðborginni, meðal annars uppi á þaki Íslensku
auglýsingastofunnar á Laufásvegi.
Jay-Z bíður í París
Friðrik ætlar að eyða sumrinu í að spila um allt
land auk þess sem hann vinnur að sinni fyrstu
plötu sem kemur út í haust. Þá starfar hann sem
vallarstarfsmaður í Kaplakrika. „Ég hef verið
að vinna í Krikanum undanfarin ár og bara gat
ekki sleppt því núna, þótt það sé nóg að gera.
Sérstaklega ekki þegar það er HM-sumar. Við
ætlum að setja upp HM-stofu og svona,“ segir
Friðrik. Áður en að HM kemur er hann hins vegar
að fara í rómantíska ferð til Parísar með kærustu
sinni þar sem þau ætla meðal annars á tónleika
með Jay-Z. „Það verður mögnuð upplifun að sjá
Jay-Z. Hann er frábær tónlistarmaður og mikill
áhrifavaldur á mína tónlist,“ segir Friðrik.
EURO-HAUKUR ER DÓSENT Í EUROVISION
Sara Björk var að klára prófin
og kíkti með Monitor í Sautján.
FRIÐRIK DÓR GERIR ALLT FYRIR HANA EN
HEFUR LÍTIÐ VILJAÐ GERA FYRIR HÆNUR
SARA BJÖRK
ÞORSTEINSDÓTTIR
Nemi á þriðja ári í MK
06.11.91
Hvað fílaðir þú helst við lúkkið?
Kjóllinn er flottur og bjartir litir koma
sterkir inn fyrir sumarið. Veskið þótti
mér líka mjög flott.
Hvað fílar þú sem er móðins um
þessar mundir? Ég er hrifin af
röndóttu, uppreimuðum skóm og
indjánastílnum.
Hvaða flík keyptir þú þér síðast?
Ég keypti gráa peysu með
axlarpúðum, rennda að aftan.
Uppáhaldsbúðir?
GS-skór, Topshop og Sautján.
Er eitthvað sem þú myndir aldrei
klæðast? Sundbolur.
Hvaða lit klæðist þú helst?
Ég geng mikið í gráu og gulu.
Hvað ætlar þú að gera í sumar?
Ég er að fara í útskriftarferð til
Tyrklands í sumar og jafnvel til
Frakklands.
Tónlist? Ég hef verið að hlusta
mikið á Joshua Radin og íslenska
tónlist.
Sjónvarpsþáttur? Modern Family
eru hrikalega fyndnir þættir.
Uppáhaldsfylgihlutur?
Ég held mikið upp á töskur. Eyrna-
lokkar sem vinkonur mínar gáfu mér
í afmælisgjöf eru einnig í uppáhaldi.
Hvað ertu með í töskunni?
Síma, lykla, vaselín, klemmu í hárið
og lyklakippu með mynd af mömmu.
Uppáhaldssnyrtivara?
Maskari og vaselín eru nauðsynleg.
KJÓLL
Flottur partíkjóll
fyrir sumarið.
6.990 kr.
Gallerí Sautján
LEGGINGS
Þunnar og gegnsæjar
leggings koma í staðinn
fyrir þær þykku.
5.990 kr.
Gallerí Sautján
MISS SIXTY SKÓR
Háu hælarnir eru enn
hámóðins, þessir eru
must-have.
23.990 kr.
Gallerí Sautján
VESKI
Töff veski sem
hægt er að nota
við öll tilefni.
8.990 kr.
Gallerí Sautján
HRINGUR
Þeim mun stærri,
þeim mun betri.
3.990 kr.
Gallerí Sautján
ARMBÖND
Flott að setja mörg armbönd
saman við látlaust dress.
1.990 kr. (hvort um sig)
Gallerí Sautján
KINNALITA-
BURSTI
Engin kona
getur verið án
kinnalitabursta.
1.890 kr.
Body Shop
SHIMMER
WAVES NR. 01
Fimm litir saman.
Hver og einn
er notaður sem
augnskuggi en
allir saman sem
kinnalitur.
2.790 kr.
Body Shop
AUGNSKUGGA-
BURSTI
Með ótrúlega mjúkum
og endingargóðum
nælonhárum.
1.190 kr.
Body Shop
LOVE GLOSS-
VARAGLJÁI NR. 17
Sweet peach. Rakagefandi
og mildur varagljái.
1.590 kr.
Body Shop