Monitor - 13.05.2010, Qupperneq 10
sjónvarp
10 Monitor FIMMTUDAGUR 13. MAÍ 2010
SJÓNVARP
DESPERATE
HOUSEWIVES
Sjónvarpið
21:00 Aðþrengdu eigin-konurnar og þau
óvenjulegu vandamál sem plaga þeirra
nærumhverfi veita gott frí frá amstri
hversdagsins.
PARKS AND
RECREATION
Skjár einn
20:35 AmyPoehler
fer á kostum í hlutverki
ofurmetnaðargjarns
bæjarpólitíkuss í smá-
bænum Pawnee í Indiana.
Fyndnir þættir sem minna
um margt á The Office,
enda koma þeir að hluta til úr smiðju
sömu manna.
FIMMTUDAGUR 13. MAÍ
TALIÐ Í SÖNGVAKEPPNI
Sjónvarpið
20:05 Í þess-um
þáttum stiklar breski
sjónvarpsmaðurinn
Ian Wright á stóru
og kynnir sér lög og
flytjendur sem keppa
munu í Eurovision-
keppninni í lok mánaðarins. Einnig er
skyggnst á bakvið tjöldin og fylgst með
undirbúningi keppninnar í Noregi.
WIPEOUT USA
Stöð 2
20:00 Það er fátt skemmtilegraen að sjá annað fólk
detta og í þessum þáttum má sjá nóg af
því þegar keppendur reyna að staulast í
gegnum hinar ýmsu þrautir. Auðveld og
áreynslulaus afþreying.
FÖSTUDAGUR 14. MAÍ
SJÁÐU
Stöð 2
18:00 Ásgeir Kolbeins kynnirallt það heitasta í
bíóheiminum, hvaða myndir eru að
koma út og hverjar aðalstjörnurnar eru.
STARDUST
Stöð 2
21:00 Stjörnumprýdd
ævintýramynd sem
upphaflega stóð til að yrði
tekin að hluta á Íslandi.
Tristan er ástfanginn
af hinni fögru Viktoríu
og reynir að vinna
ástir hennar með því að ferðast inní
ævintýraríkið Stormhold til að sækja
stjörnu sem féll af himnum. Á ferðinni
flækist hann í spennandi atburðarás
sem hefur í för með sér alls kyns
töfra og fjöldann allan af skrautlegum
karakterum. Meðal leikara eru Michelle
Pfeiffer og Robert De Niro.
ETERNAL SUNSHINE OF
THE SPOTLESS MIND
Skjár einn
21:50 Stórgóð mynd með JimCarrey og Kate Winslet.
Myndin hlaut Óskarinn fyrir besta
handritið auk þess sem Kate Winslet var
tilnefnd til verðlauna fyrir besta leik í
aðalhlutverki.
LAUGARDAGUR 15. MAÍ
SUNNUDAGUR 16. MAÍ
BERLÍNARASPIRNAR
Sjónvarpið
20:35 Þetta er fyrsti þátturinní norskum myndaflokki
byggðum á vinsælum skáldsögum
eftir Anne B. Radge. Þættirnir hafa
verið tilnefndir til fjölda verðlauna í
Noregi og víðar, til dæmis hlutu þeir
eina tilnefningu á alþjóðlegu Emmy-
verðlaununum.
SEM ÞÚ VERÐUR AÐ SJÁ
HVAÐ SEGJA EUROVISION-SPEKINGARNIR?
Reynir Þór Eggertsson
Þykir vænst um
Minn hinsta dans
Sigurstranglegasta
lagið: Það er líklega
Frakkland.
Lagið sem ætti
að vinna: Ísrael
og Írland eru
fallegustu lögin
þó ég væri nú
samt alveg til í að
Portúgal eða Ísland
myndu vinna líka.
Lélegasta lagið í ár: Slóvenía, klárlega!
Besta íslenska Eurovision-lagið: Mér
þykir náttúrulega alltaf voða vænt
um Minn hinsta dans af því ég fór þá
sjálfur út með Palla. En Hægt og hljótt
finnst mér líklega það fallegasta.
Besta erlenda Eurovision-lagið: Það er
portúgalska lagið frá 1969, Desfolhada
Portuguesa.
Guðrún Gunnarsdóttir
Vil helst að Svíarnir
taki þetta
Sigurstranglegasta lagið:
Við fyrstu áheyrn fannst
mér Danmörk vera með
sterkasta húkkinn. Svo
koma sterk lög eins og
franska lagið og Belgía er
líka með svolítið sterkt
lag núna. Belgíska lagið er
svolítið modern miðað við
Eurovision.
Lagið sem ætti að vinna: Ég vil að sænska
lagið vinni. Mér finnst það æðislegt.
Lélegasta lagið í ár: Ég er ekki alveg með það
á hreinu. Það eru svo mörg lög sem koma til
greina, þau rúmast ekki. Það er ekkert eitt.
Besta íslenska Eurovision-lagið: Nína.
Besta erlenda Eurovision-lagið: Lane Moje
sem kom frá Serbíu árið sem Jónsi var að
keppa, 2004. Þetta lag fannst mér æðislegt.
Ógeðslega vel sungið og ógeðslega flott lag.
Dr. Gunni
Ekkert sérstaklega
gott stöff í ár
Sigurstranglegasta lagið: Það kemur
nú bara í ljós í síðasta þættinum af
Alla leið. En það er verið að tala um
að danska lagið sé jafnvel líklegt til
vinsælda.
Lagið sem ætti að vinna: Það er ekkert
sérstaklega gott stöff í ár að mínu mati.
En svona í fyrstu umferð þá fannst
mér gríðarlega hallærislega lagið frá
Grikklandi, Opa, vera skemmtilegt.
Lagið frá Eistlandi er líka nokkuð gott og rússneska lagið
er fínt. Það vinnur á.
Lélegasta lagið: Þau eru nú svo mörg léleg að það er
dálítið erfitt að draga eitthvað eitt út. En það var eitt
ömurlegt, eitthvað svona sýnishornalag með bæði rokki
og þjóðlagatónlist, frá Slóveníu. Það er alveg sláandi lélegt.
Besta íslenska Eurovision-lagið: Lagið frá Silvíu Nótt,
Congratulations.
Besta erlenda Eurovision-lagið: Það eru Waterloo og All
Kinds Of Everything.
Fólk fær kikk
út úr þessu
Flestir sverja af sér áhuga á Eurovision.
Samt virðast allir vilja horfa á Alla leið
í stjórn Páls Óskars. Hvað veldur?
„Íslendingar hafa gaman af Eurovision
hvort sem þeim líkar það eða ekki. Og
það er alltaf gaman að heyra ný popplög
eða nýja músík sem þú heyrir ekki á
hverjum degi í útvarpinu þínu,“ segir
Páll Óskar Hjálmtýsson spurður um
útskýringar á vinsældum þáttarins
Alla leið sem hann
stýrir. Í þættinum gæða
nokkrir valinkunnir
tónlistarspekingar sér
á þeim lögum sem
keppa í Eurovision í lok
mánaðarins og melta þau
frammi fyrir vökulum
augum þjóðarinnar en
samkvæmt mælingum
er þátturinn eitt allra
vinsælasta sjónvarpsefni
á landinu um þessar
mundir. „Ég held að fólk
fái svolítið kikk út úr
því að horfa á og hlusta
á lögin og mynda sér skoðun á þeim og
heyra svo okkur spekingana skeggræða
þau. Þau Reynir, Guðrún Gunnars og
Dr. Gunni eru svo yndislega ólík að
ég hef grun um að þarna sé kominn
þverskurður af þjóðinni. Það geta allir
tengt við eitthvað sem einhver segir.“
Gætu mótað skoðanir fólks
Fyrirmyndin að þáttunum kemur frá
samnorrænum þáttum sem margir
muna eftir þar sem Eiríkur Hauksson
var fulltrúi Íslands í spekingaráðinu.
„En ég held að Svíarnir, Danirnir og
Norsararnir hafi bara farið að rífast um
hvernig framkvæmdin á þessum þætti
átti að vera þannig að hann var lagður
niður,“ segir Páll Óskar en í kjölfar þess
leitaði RÚV til hans og bað hann um að
búa til sambærilegan þátt. Í samnorræna
þættinum var áberandi hversu góð
Norðurlöndin voru við hvort annað og
því spurning hversu mikið mark var á
því takandi. En hversu miklu máli skiptir
það og telur hann að mat spekinganna
geti haft áhrif á það hvernig þjóðin
kýs að lokum? „Auðvitað gætum við
á einhvern þátt mótað skoðanir fólks
sem er svo heima með símana 29. maí.
En við erum fyrst og
fremst bara að spá.
Þetta er ekki svona
sleggjudómaþáttur.
Þau eru að spá því
hvaða lög komast
áfram og hvaða lög
eiga það skilið að fá
gott brautargengi,“
segir hann og bendir á
að stundum gefi spekingarnir lögum
grænt ljós þó svo að þau fíli þau ekki
sjálf. „Þau eru bara að leggja kalt
mat á það með tilliti til aðstæðna
hvort þau komast áfram eða ekki.“
Erfiðara en oft áður að spá
Eins og komið hefur fram í
þáttunum hafa Páll Óskar og
spekingarnir þrír náð að spá
nokkuð vel fyrir síðustu ár
um hvernig hinum
ýmsu lögum mun
ganga og spáðu
meira að segja rétt
fyrir um sigurvegara í
fyrra. Í ár virðist þó
vera mun minni
eining um það
hver mun hreppa
fyrsta sætið. „Ef það
er eitthvað réttlæti til í heiminum þá á
Króatía að vinna þetta núna,“ segir Páll.
En réttlæti og Eurovision fara ekki alltaf
saman. „Það er enginn í kringum mig,
enginn í fjölskyldunni og engir vinir
mínir sammála um það hverjir eru að
fara að vinna. Ég get því lofað því að
úrslitin verða brjálæðislega óvænt.“
Mynd/Golli
EUROVISION
Hvenær: Forkeppnirnar eru 25.
og 27. maí. Lokakeppnin fer
fram laugardaginn 29. maí.
Sigurstranglegir: Veðbankar
setja Azerbaijan, Þýskaland,
Ísrael og Danmörku ofarlega.
Vonlausir: Hvorki veðbankar né
aðrir hafa trú á Slóveníu.
Ísland: Þeir sem veðja á Ísland
geta u.þ.b. hundraðfaldað
upphæðina ef við sigrum.
PÁLL ÓSKAR PÍSKAR
SPEKINGANA ÁFRAM
ALLA LEIÐ TIL ENDA
SPEKINGARNIR
HAFA TRÚ Á HERU
ALLA LEIÐ
LAUGARDAGUR KL. 19:40