Monitor - 13.05.2010, Blaðsíða 14
LEIKSTJÓRINN RIDLEY SCOTT
Leikstjóri Robin Hood er Ridley Scott, einn af
öflugustu leikstjórum seinni ára. Scott
varð heimsfrægur þegar hann gerði
Alien (1979) og fylgdi henni eftir með
annarri stórmynd, Blade Runner (1982).
Hann hefur þrisvar verið tilnefndur
til óskarsverðlauna, fyrir myndirnar
Thelma & Louise (1991), Gladiator
(2000) og Black Hawk Down (2001), en
aldrei hreppt hnossið. Á
teikniborðinu hjá Scott
um þessar mundir er
önnur Alien-mynd og
þá hefur verið rætt um að
gera framhaldsmynd af Robin
Hood. Ridley Scott er eldri bróðir
leikstjórans Tony Scott sem hefur
gert fjölmargar spennumyndir, nú
síðast The Taking of Pelham 123.
kvikmyndir
Hæð: 180 sentimetrar.
Besta hlutverk: Bud
White í hinni frábæru L.A.
Confidential. Ein svalasta lögga
kvikmyndasögunnar.
Skrýtin staðreynd: Hefur komið
víða við í tónlist. Hann var í
hljómsveit sem hét 30 Odd Foot
of Grunts og snemma á níunda
áratugnum hljóðritaði hann
lagið I Want To Be Like Marlon
Brando undir nafninu Rus le
Roq.
Eitruð tilvitnun: „Fólk sakar mig
um að vera alltaf hrokafullur.
Ég er ekki hrokafullur, ég er
einbeittur.“
1964Fæðist 7. aprílí Wellington,
höfuðborg Nýja-Sjálands.
1987
Leikur í fjór-
um þáttum
í sápu-
óperunni
Nágrönnum.
1990Þreytirfrumraun sína
í kvikmyndum þegar hann
leikur lítið hlutverk í áströlsku
myndinni Blood Oath.
1995Leikur í fyrstuHollywood-
myndum sínum, Virtuosity og
The Quick and the Dead.
1999Tilnefndur tilóskarsverðlauna
í fyrsta skipti fyrir hlutverk sitt
í The Insider. Tapar fyrir Kevin
Spacey úr American Beauty.
2000
Hlýturóskars-
verðlaunin
fyrir hlutverk
sitt sem
Maximus í
Gladiator.
2001Tilnefndur tilóskarsverðlauna
þriðja árið í röð fyrir hlutverk
sitt sem John Nash í A Beautiful
Mind. Tapar fyrir Denzel
Washington úr Training Day, en
hlýtur Golden Globe- og BAFTA-
verðlaun fyrir hlutverkið.
2003Kvænisttónlistarkonunni
Danielle Spencer. Þau eiga
saman tvö börn.
2005Handtekinn fyrirað henda síma í
hótelstarfsmann. Sættir nást
í málinu eftir að Crowe borgar
starfsmanninum morðfé í
skaðabætur.
Russell
Crowe
FERILLINN
14 Monitor FIMMTUDAGUR 13. MAÍ 2010
Frumsýningar
helgarinnar
Robin Hood
Leikstjóri: Ridley Scott
Aðalhlutverk: Russell Crowe,
Cate Blanchett, Max von Sydow,
William Hurt, Mark Strong og
Danny Huston.
Lengd: 140 mínútur.
Dómar: Engir dómar komnir.
Aldurstakmark: 12 ára.
Kvikmyndahús: Laugarásbíó, Smárabíó, Háskólabíó,
Sambíóin Álfabakka, Sambíóin Selfossi og Borgarbíó
Akureyri.
Hér er sögð sagan af hinum mikla bogmanni, Robin
Hood, frá því hann berst við Frakka í her Ríkharðs
konungs og þar til hann snýr aftur til bæjarins
Nottingham sem er niðurníddur af spillingu og
harðræði alræmds fógeta. Robin Hood verður fljótlega
hetja fólksins og nær einnig athygli hinnar fögru
ekkju Lafði Marion (Blanchett). Sígild saga í miklum
hasarbúningi í leikstjórn Ridley Scott.
ÞAÐ ER ENGINN AFSLÁTTUR
GEFINN HJÁ HRÓA HETTI
VILTU
VINNA
MIÐA?
Monitor ætlar að gefa
nokkrum heppnum
lesendum miða á
Robin Hood. Það
eina sem þú þarft
að gera er að fara
inn á Facebook-síðu
Monitor og velja LIKE
á kvikmyndaþráð
vikunnar. Á mánudag
drögum við svo út
nokkra sigurvegara.
Þú finnur okkur
með því að slá inn
„Tímaritið Monitor“ í
leitarstrenginn.
The Last Song
Leikstjóri: Aaron Zigman
Aðalhlutverk: Miley Cyrus, Greg Kinnear, Bobby Coleman,
Liam Hemsworth, Hallock Beals og Kelly Preston.
Lengd: 107 mínútur.
Dómar: IMDB: 3,0 / Metacritic: 3,3 / Rotten Tomatoes: 20%
Aldurstakmark: Leyfð öllum.
Kvikmyndahús: Sambíóin Álfabakka, Sambíóin
Kringlunni og Sambíóin Akureyri.
Rómantísk dramamynd um Ronnie (Cyrus), 17 ára uppreisnargjarna stúlku
sem hefur ekki verið söm síðan foreldrar hennar skildu fyrir þremur árum.
Móðir hennar sendir hana að búa með föður sínum, sem starfar sem
kennari og píanóleikari, í smábæ nokkrum. Það þykir henni afar skítt í
fyrstu, en eftir að hún kynnist Will (Hemsworth) er lífið ekki svo glatað eftir
allt saman.
MILEY CYRUS HEFUR
EKKI SUNGIÐ SITT SÍÐASTA