Ísfirðingur


Ísfirðingur - 15.12.1986, Page 6

Ísfirðingur - 15.12.1986, Page 6
6 ÍSFIRÐINGUR Magnús Bjömsson: Bfldudals- kirkja átta- tíu ára Bfldudalskirkja fimmtíu ára (Lag: í dag er glatt...). Vor Guð, sem tímans telur stundir og takmörk setur öll, þú skrýðir fögrum gróðri grundir og gerir dali og fjöll. Þú, sem ert athvarf allra manna og öllu gefur líf og blessun sanna, vorn lofsöng heyr og hjartans mál, er hljómar þér frá vorri sál. Hér, Drottinn, með í verki varstu og vandans leystir bönd, til sigurs oss og sæmdar barstu, þótt sýndust málin vönd. Vér vorum fáir fyrst og smáir, en fundum vel, að hjartað einkum þráir, að leita þín og leiðsögn fá við Ijósið þínu húsi frá. í dag 2. des. 1986 er kirkj- an hér á Bíldudal 80 ára, en hún var vígð 2. des. 1906 af séra Bjarna Símonarsyni prófasti á Brjánslæk. Bíldudalskirkja er stein- steypt hús, þ.e. veggir og stöpull, en gólf og turn úr timbri. Hæð á krossmarki á tumi er 17,5 metrar. Kirkjan er múrhúðuð að utan þannig að líkast er að hún sé hlaðin. Arkitekt hússins var Rögnvaldur Ólafsson, sem teiknaði margar fegurstu kirkjur Iandsins. Múrarar voru Þorkell Ólafsson frá Reykjavík, Þorsteinn Guð- mundsson og Finnbogi Jó- hannsson báðir frá Bíldudal. Trésmiðir voru: Björn Jóns- son, Kristinn Grímur Kjart- ansson og Valdimar Guð- bjartsson allir frá Bíldudal. Bíldudalskirkju var valinn staður á utanverðri Bíldu- dalseyri og er nú miðsvæðis, umvafin atvinnu- og mann- lífi. Mikið átak hefur verið gert í allri umhirðu kirkj- unnar og má fullyrða að hún sé bæjarbúum til mesta sóma. Umhverfi hennar hef- ur líka verið lagfært og fegr- að. Elstu munir í eigu kirkj- unnar eru komnir úr Otra- dalskirkju. Predikunarstóll- inn er frá 1699 með myndum af Kristi og postulunum. Altaristafla er frá 1737 með mynd af síðustu kvöldmál- tíðinni og skírnarfontur frá svipuðum tíma. Aðalaltaris- taflan er eftir Þórarin B. Þorláksson frá 1916, með mynd frá gröf Krists „Kona því grætur þú.“ Margir fleiri munir eru í kirkjunni, sem ekki er unnt að telja upp hér. Prestar sem þjónað hafa Bíldudalskirkju frá 1906 eru eftirtaldir: Jón Árnason, Helgi Konráðsson, Jón Jakobsson, Jón Kr. ísfeld, Sigurpáll Óskarsson, Óskar Finnbogason, Tómas Guð- mundsson, Þórarinn Þór (prófastur á Patreksfirði), Dalla Þórðardóttir og nú- Magnús Bjömsson. verandi prestur séra Flosi Magnússon, sem er nú tek- inn til starfa. í tilefni af afmælinu hafa kirkjunni borist ýmsar gjafir, m.a. kr. 50.000.00 frá Kven- félaginu Framsókn og kr. 350.000.00 frá Fiskvinnsl- unni á Bíldudal hf. til bólstr- unar á bekkjum kirkjunnar, gjöf Fiskvinnslunnar er einnig tengd minningu tveggja látinna félaga úr stjóm Fiskvinnslunnar. í dag gaf sóknarnefnd út fjölritaðan bækling um sögu Bíldudalskirkju eftir séra Jón Kr. ísfeld og fl. Séra Flosi Magnússon mun messa þann 7. des. í fyrsta sinn hér á Bíldudal og verður það há- tíðarmessa vegna þessa til- efnis og mun Kvenfélagið Framsókn bjóða til kaffi- drykkju í kaffistofu Fisk- vinnslunnar eftir messu. Megi kirkjan áfram verða það athvarf sem hún hefur verið fyrir okkur Bílddæl- inga og staðnum til sóma. Þú kveiktir eldinn, Guö vor góður, og gafst oss styrk og þrá. Til þín vor hljómar þakkaróður, sem þagna aldrei má. Um hálfa öld í gráti og gleði þín gæska hér oss styrk og huggun léði. Hér var oss best í skúrum skjól, hér skein oss bjartast Drottins sól. Vér biðjum allir einum rómi, af öllum huga og sál, að hér um framtíð Ijós Guðs Ijómi og leiftri guðamál, að musterið Guðs miskunn geymi og máttur hans um hjörtun þaðan streymi, að kynslóð hver, sem kemur hér í kærleik, Drottinn, fylgi þér. Finnbogi J. Arndal. Ort í tilefni af 50 ára afmæli kirkjunnar 1956 af Finnboga J. Arndal, en hann bjó á Bíldudal um aldamót. Frumflutt af kór Bíldudalskirkju 1956. baidubs Frá Bfldudal víð Amarfjörö.

x

Ísfirðingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ísfirðingur
https://timarit.is/publication/790

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.