Ísfirðingur - 15.12.1986, Side 15
ÍSFIRÐINGUR
15
Magdalena Thoroddsen:
Tærir berast úr tjarnar
sefi tónar...
Árin sem við bjuggum á ísa-
firði reyndum við að kynnast
nánasta umhverfi okkar eftir
föngum.
Við áttum margar ferðir um
Kirkjubólshlíðina og út á Arn-
ames til þess að dást að hinu
fagra sólarlagi sem þaðan blasir
við á vorin, þega sólin flýtur á
hafinu og slær undrabjarma á
láð og lög.
Á þessum ferðum okkar sem
heita máttu daglegar, ókum við
meðfram ísafjarðarflugvelli of-
anverðum, en þar er nokkuð
stór tjöm þétt upp að vellinum á
aðra hlið, en afmarkast svo að
segja af bílveginum að ofan.
A tjörninni er fjölskrúðugt
fuglalíf og ég hefi heyrt, að ein-
hvemtíma hafi 23 tegundir
fugla Ufað þarna í sátt og sam-
lyndi, þrátt fyrir hávaðann og
skarkalann frá flugvellinum.
Mest bar þarna á æðarfugli,
öndum, krium og stelkum, að
ógleymdum svanahjónunum.
Þau urðu miklir virktarvinir
okkar, er fram liðu stundir. Það
mátti heita að við deildum með
þeim gleði og sorg þennan tíma.
Um leið og ísinn tók að bresta
á tjöminni á vorin í apríl komu
þessir tignarlegu fuglar, ein
hjón. Þau komu sér fyrir á sama
tanganum ár eftir ár og út-
bjuggu hreiðrið. Það var stór
dyngja úr ullarlögðum, sinu-
grasi og slýi upp úr tjöminni. En
skjólgott og traust varð það að
lokum. Karlfuglinn var ævin-
lega umsvifameiri um aðdrætt-
ina en konan þess notinvirkari
um fyrirkomulag heimafyrir.
Þetta voru fullorðin hjón, og
það var tigin fegurð yfir þeim
þegar þau að erli dagsins lokn-
um liðu hlið við hlið um dimm-
bláan vatnsflötinn. Við biðum
þeirra með eftirvæntingu hvert
vor. Alltaf komu þau.
Engir aðrir svanir komu á
þetta vatn, að undanteknum
einum svani eitt vorið, en hann
var ekki velkominn og var
hrakinn burtu með vængja-
slætti og gargi og sást ekki oftar.
Að hreiðurgerðinni lokinni
hófst varptíminn og álegan.
Frúin hreyfði sig ekki af
hreiðrinu eftir að öll eggin voru
komin í það. Karlinn var á
stöðugu varðbergi í námunda
við hana og stuggaði grimmi-
lega öllum óboðnum gestum frá
hreiðrinu. Það var oft kátlegt að
sjá hann á harða spretti á eftir
blikum og öðrum fuglum sem
voru svo stuttstígir að þeir náðu
naumlega niður að vatninu á
undan svansteggnum.
Oftast klöktust út 3 — 4 ung-
ar. En einu sinni syntu hinir
stoltu foreldrar um með sex
pattaralega unga. Hjónin voru
afar aðgætin með þennan
„mannvænlega“ hóp og létu
engan þeirra nokkru sinni fara
úr sjónmáli.
Við fylgdumst vel með öllu
og tókum virkan þátt í ham-
ingju svananna. Við færðum
þeim brauðmola, sem voru vel
þegnir, en gættum þess ævin-
lega að koma ekki of nærri
þeim. Um haustið hvarf svana-
fjölskyldan af tjöminni, og við
söknuðum þeirra.
Um það bil er ísa leysti næsta
vor voru þau komin á nýjan
leik. Sama umstang og öll hin
vorin hófst, með hreiðurgerð og
tilhugalífi og svo lagðist kven-
fuglinn á, og lá lengi. Okkur
fannst hún liggja lengur á í
þetta sinn en hún var vön en ef
til vill vorum við bara svona ó-
þreyjufull.
Við biðum í ofvæni. Fórum
að tjöminni bæði kvölds og
morguns, en ekkert skeði, þar til
einn morgun að eitthvað hvítt
virtist kvika í hreiðrinu. Um
hádegisbilið þennan dag syntu
svanahjónin út á tjömina með
einn unga. Þau virtust gera sér
ljóst, að eitthvað væri að. Þau
syntu alltaf bæði þétt upp að
honum og höfðu hann á milli
sín.
Við vorum engan veginn ró-
leg. Okkur virtist unginn veikur
eða eitthvað lítilfjörlegur. Við
gerðum okkur aukaferð um
kvöldið, til að gá að vinum
okkar, en það var allt við það
sama.
í býtið morguninn eftir flýtt-
um við okkur inn að tjöm. Nú
var aðkoman dapurleg. Hjónin
syntu ráðvillt og eirðarlaus um
tjörnina, en unginn var ekki
sjáanlegur. Við fórum heim og
náðum í sjónauka. Unginn var
ekki í hreiðrinu og hvergi sjá-
anlegur í næsta umhverfi.
Svanirnir voru sorgmæddir
og við líka.
Þau héldu áfram að leita að
unganum sínum 4—5 daga. Þá
fóru þau út á sjó. Þau héldu sig
nokkra daga í vík í firðinum, en
hurfu svo alveg. Síðan hefi ég
ekki til þeirra spurt, því að
næsta vor fluttumst við hjónin
burt frá ísafirði, um það leyti er
ísa tók að leysa.
Magdalena Thoroddsen.
Áslaug Jensdóttir
Draumsýn
Ég bjó mig til ferðar úr borginni í gær
ég er barn hinna afskekktu sveita.
Þar sem víðirinn angar og ilmbjörkin grær,
mun andi minn fagnandi leita.
Hér er ég komin og kannast við flest,
sem kvaddi ég sorgbitin forðum.
í fögnuði hvísla ég „heima er best“
með hljóðlátum þakkandi orðum.
En hvar er allt fólkið og hví er svo hljótt?
aðeins hvíslandi þytur í blænum.
Það mætti halda að nú væri nótt
og nú svæfu allir á bænum.
Óskum viðskiptavinum okkar
og starfsfólki gleðilegra jóla
og farsældar á komandi ári,
með þökk fyrir líðandi ár.
Pensillinn
Hafnarstræti 11—Mánagötu 6
Töfrandi hrífur mig fegurð sem fyrr
og friðsældin hér upp við heiði.
Þó grípur mig ótti og grátklökk ég spyr,
er góðbýlið farið í eyði?
Andartak skugga yfir augu mín brá
og umhverfið breytti um lögun.
í rúminu á Hrafnistu hnípin ég lá
og hlustandi beið eftir dögun.
Óskum starfsfólki okkar og viðskiptavinum
gleðilegra jóla, árs og friðar,
og þökkum jafnframt samstarf og
viðskipti á líðandi ári.
Bjömsbúð
Kaupfélag Hrútf irðinga
BORÐEYRI
Óskum öllum viðskiptavinum okkar
og starfsfólki gleðilegra jóla
og farsæls komandi árs.
Þökkum viðskiptm á árinu
sem er að líða.
Áslaug S. Jensdóttir, Núpi
Gleðilega jólahátíð,
þökkum viðskiptin á líðandi ári
og óskum farsældar og friðar
á því nýja.
Gleðilega jólahátíð,
þökkum viðskiptin á líðandi ári og
óskum farsældar og friðar á því nýja.
^ Byggir sf. Patreksfirði