Monitor - 07.10.2010, Blaðsíða 7
stíllinn
„Konur vilja vera kynþokkafullar og ég leyfi þeim það.“ -Giorgio Armani.
7FIMMTUDAGUR 7. OKTÓBER 2010 Monitor
VISSIR ÞÚ..?
Anna Sóley Viðarsdóttir er alltaf
vel til höfð og glæsileg. Hún stundar
nám við Háskóla Íslands og er á
öðru ári í ritlist með fjölmiðlafræði
sem aukagrein. Anna Sóley vinnur í
búðinni Andersen & Lauth með skóla
og hefur starfað þar núna í um tvö
ár. Óhætt er að segja að Anna Sóley
vekur athygli nánast hvert sem hún
fer en hún er mjög mikið fyrir tísku
og allt sem henni viðkemur. Stíllinn
ákvað að fá að kíkja í fataskápinn hjá
Önnu en hún valdi nokkur af sínum
uppáhaldsdressum.
„Ég er núna í Háskólanum í ritlist
en mig hefur alltaf langað til þess að
læra meira á sviði tísku,“ segir Anna
Sóley. „Ég er sérlegur áhugamaður
um skó og langar jafnvel að fara í
skóhönnun en það er ekkert ákveðið
enn.“ Haustið er uppáhaldsárstími
Önnu Sóleyjar og einnig finnst henni
haustlitirnir vera fallegastir, sem
er ekki skrítið því hún á afmæli í
nóvember og er því mikið haustbarn.
„Ég er svona að detta í vetrargírinn
núna. Ég er farin að hugsa meira um
trefla, húfur og hlýindi,“ segir Anna
og bætir við að hún sé mikil kuldask-
ræfa. „Ég reyni að vera í mörgum
lögum af fötum svo mér verði ekki
kalt,“ segir skvísan.
Þægindin í fyrirrúmi
Anna Sóley býr í miðbæ Reykjavík-
ur og gengur í vinnuna og skólann.
„Þegar skólinn er byrjaður og svona
og veturinn handan við hornið þá
er maður ekki eins uppstrílaður og
í sumar í veðurblíðunni,“ segir hún
og bætir við að hún reynir að klæða
sig þægilega og miðar þá kannski við
það að þurfa að læra allan daginn á
bókasafninu eða Þjóðarbókhlöðunni.
Ekki sé lengur hægt að rölta í bæinn
í sætum topp með ískaffi og rauðan
varalit. „Núna gengur þetta meira út
á að vera ekki kalt en samt alltaf fínn
og sætur.“
Hlýjan og þægindin eru í fyrirrúmi í vetur hjá Önnu Sóleyju
hlýrabolur
Andersen & Lauth
kragi
Áróra
sokkabuxur
H&M á Spáni
jakkinn & buxur
Andersen & Lauth
skór
Chie Mihara
belti
Nostalgía
peysa
Zara
buxur
Andersen & Lauth
bolur
Andersen & Lauth
hálsmen
All Saints
kápa
Nostalgía
trefill
Andersen & Lauth
skór
Spúútnik
peysa
Vero Moda
bolur
Dorothy Perkins
sokkabuxur
Stella
sokkar
Kisan
skór
Sonia Rykiel í Kisunni
stuttbuxur
Nostalgía
jakki
Nostalgía
sokkabuxur
Cobra
sokkar
afmælisgjöf
skór
Chie Mihara
kjóll
Aftur
kápa
Nostalgía
hetta
Andersen & Lauth
ANNA SÓLEY ER ALLTAF
SMART KLÆDD
Klæðir
sig í
mörg
lög af
fötum
Myndir/Ernir
...að aðeins er hægt að tala um að flík sé
„vintage“ ef hún er frá árunum 1920-1960.
Eftir þann tíma er flíkin álitin vera „retro“, og
því ekki hægt að kalla hana „vintage“ lengur.
...að upphaf
G-strengsins
má rekja til Fi-
orello LaGuardia,
fyrrverandi borgarstjóra New
York. Öllum strippurum New
York borgar var hent í G-streng
frekar en að vera naktir, til þess
að særa ekki blygðunarkennd
borgarstjórans.
...að hnappar á jakka-
ermum eru uppfinning
Napóleons Bónaparte
en hann lét setja þá á
ermarnar vegna þess
að hann var að verða
vitlaus á því að hermenn
þurrkuðu slímugu hori í
ermarnar sínar.