Monitor - 18.11.2010, Side 8
8 Monitor FIMMTUDAGUR 18. NÓVEMBER 2010
Monitor tók saman nokkrar stjörnur sem hafa
gert stór mistök á ferlinum með hinum ýmsu
uppátækjum. Hver man ekki eftir sköllóttri
Britney Spears og sófahömpandi Tom Cruise?
STJORNUHROP
Orðaður við drengi
Poppkóngurinn eyðilagði orðspor
sitt í sjónvarpsviðtali einu er hann
sagðist deila rúmi með ungum
drengjum sem kæmu í
heimsókn til hans. Hann
hafði áður verið ákærður
fyrir misnotkun á
börnum svo þessi
ummæli voru án efa
stór mistök.
Heróínástarsorg
Þessi skrautlegi forsprakki hljóm-
sveitarinnar Culture Club rústaði
ferli sínum algjörlega þegar hann
hætti með kærastanum sínum, Jon
Moss, sem var einnig í hljómsveit-
inni og byrjaði að neyta heróíns af
krafti. Síðan þá hefur hann verið í
miklu veseni tengdu eiturlyfjum og
partístandi og mun seint ná aftur
ímynd sinni og fyrri vinsældum
sem söngvari.
Rakaði af sér hárið
Poppgyðjan sem byrjaði sem
saklaust barn í Mikka Mús klúbb-
num fór yfir strikið þegar hún
ákvað að vera besta vinkona Paris
Hilton um tíma. Fullt af myndum
og myndböndum þar sem hún er
í mis-vafasömu ástandi fóru eins
og eldur um sinu á Internetinu og
börnin voru tekin af henni um tíma.
Lægsti punktur ferils hennar hingað
til hlýtur samt að vera þegar hún
rakaði af sér allt hárið og hætti með
eiginmanni sínum með sms
skilaboðum.
Kom út úr
skápnum með stæl
og keyrði í vímu
Sló í gegn með 80‘s bandinu Wham! og hóf svo flottan
sólóferil. Fór leynt með kynhneigð sína framan af en
árið 1998 kom hið sanna í ljós. Þá var hann hand-
tekinn fyrir kynferðislegt athæfi með karlmanni á
almenningsklósetti i í Beverly Hills. George var um
daginn handtekinn fyrir að aka undir áhrifum ólöglegra
efna en hann hefur lengi glímt við eiturlyfjafíkn sína.
GULUR AUGNSKUGGI FÓR
BOY GEORGE MJÖG VEL
HANN VAR ALVEG
MEÐ ‘ETTA
BRITNEY VAR EINU SINNI
KRÚTTLEG OG ÞÆG
LÁTIÐ EKKI BLEKKJAST AF
SEIÐANDI AUGNARÁÐINU
Barnaklám og sjálfsfróun
á almannafæri
Hinn ástsæli Pee-Wee Herman, kynnir
í barnaþáttum vestanhafs, naut mikilla
vinsælda allt til ársins 1991 þegar
hann var handtekinn fyrir að stunda
sjálfsfróun í leikhúsi. Hann komst
aftur í fréttirnar árið 2002 þegar
hann var ásakaður
um að eiga barnaklám.
HOFFINN ER BÚINN
AÐ MISSA ÞAÐ
Missti sig
hjá Opruh
Hasarleikarinn góðkunni
missti allan trúverðugleika
þegar hann byrjaði einn
daginn að predika fyrir
Vísindakirkjuna hvert sem
hann fór. Vandræðaleg fram-
koma hans í frægum þætti
hjá Opruh Winfrey staðfesti
klikkun Tom endanlega.
Illa gift og
alltaf í meðferð
Eftir að söngdívan sykursæta
giftist tónlistarmanninum
Bobby Brown á hátindi
ferilsins fór allt að dala hjá
henni. Houston fór í ruglið
og hefur nokkrum sinnum
þurft að fara í meðferð vegna
eiturlyfjafíknar. Hún skildi
við Brown árið 2006 og náði
forræði yfir dóttur þeirra
eftir að hafa tekið sig saman
í andlitinu.
BARNAKYNNIR EÐA
BARNAPERRI?
ÓGIFT WHITNEY
VAR ALGJÖR DÚLLA
ÚR OFURTÖFFARA
Í SÓFAHÖMPARA
Fullur á
YouTube
Baywatch stjarnan hefur
glímt við áfengisvanda
í einhvern tíma og árið
2007 setti dóttir hans
á netið myndband þar
sem hann sást blindfull-
ur að borða hamborgara,
liggjandi á gólfinu.
Afleiðingarnar voru þær
að Hasselhoff missti
forræði yfir dótturinni
og virðingu almennings
í leiðinni. Flott þetta
Hasselhoff.