Skólablaðið

Årgang

Skólablaðið - 01.03.1980, Side 2

Skólablaðið - 01.03.1980, Side 2
EDITOR ÐICHT- Að undanförnu hefur talsvert borið á umræðu um námsmál í fjölmiðlum. Fyrir nokkrum vikum var í einu dagblaðanna tekin fyrir menntunarstaða þeirra nemenda, er komið hafa til háskólanáms hérlendis á undanförnum árum. Niðurstaða þessarar umræðu var sú, að okkur hefði miðað um of aftur á bak í þessum málum, svo að til vandræða horfði við æðstu menntastofnun þjóðarinnar. Sé það svo að þessi niðurstaða eigi við rök að styöjast, hlýtur það að vera hverjum manni ljóst, í hvílíkt óefni stefnir nú, í menntamálum landsins. Það verður ávallt hverjum og einum hollast að fást við það í lífinu, er veitir viðkomandi sem mesta lífsfyllingu og ánægju af því að fást við þau verkefni sem hann er fær um. Því verður ekki betur séð en það að opna skólakerfið svo mjög, sem gert hefur verið., með lettari eða kannski engum prófum, hafi mistekist. Aukin menntun fyrir hvern, sem kann að óska þess, er vissulega æskileg. En það hlýtur að markast af þroska og getu einstaklingsins, hversu hátt hann nær í menntunarstiganum, og hver færni hans getur orðið á menntunarsviðinu. Sá sem ekki getur til- einkað sér það nám og þá færni-sem þarf til að verða t.d. góður skurðlæknir, eða bara almennur læknir, hefur ekkert við það að gera að glíma við slíkt nám. Til hvers starfs þarf ákveðna menntun og ákveðna færni. Hjá því verður ekki komist. Því getur það orðið þjóðarböl að láta fólk komast áfram í námi, með vissum sveigjanleika, í beim greinum sem viðkomandi er ekki fær um að stunda er út í starf er komið. Það er fagurt kjörorð að allir skuli menntun hljóta, svö mikla sem þeir kjósa. En er það rétt- mætt gagnvart einstaklingnum og þjóðfélaginu, að hverjum þeim er það kýs skuli kleif skólaganga, svo lengi sem hann vill. Verður ekki hver og einn að sanna á ótvíræðan hátt að hann sé áframhald** andi skólagöngu verðugur? Viðkomandi verður jafn- vel að færast upp um einn bekk á hverju ári, hvor* sem hann hefur náð færni £ bví sem kennt var eða ekkiT Svo þegar á að fara að læra af fullri alvörii til prófa, stenzt viðkomandi bau ekki, vegna van- kunnáttu eða kunnáttubrests í undirstöðuatriðum. Þá er kennurum gjarnan kennt um, eins og fram hef-t ur komið í umræðunni um þessi mál. Þá loks verður einstaklingi og vandamönnum fullkomlega ljóst að þetta var röng leið. Þa vaknar lxka spurningin: Af hverju var hún valin? Svarið hlýtur að verða að hvatinn lá innbyggður í skólakerfinu. Þetta „ slampaðist" alltaf. 1 grun-nskólanum voru kannski ekki einu sinni próf á milli bekkja og ef ekki var því betra eftirlit frá ekki bara kennarans hálfu heldur einnig foreldra og nemenda sjálfra, varð engum ljóst að námsfærnin var ekki meiri en raun bar vitni. Vonbrigðin sem þannig verða, koma því svo seint, að þau verða enn sárari fyrir bragðið. Getan hefur e.t.v. alla t£ð verið ofmet- in og einstaklingurinn unað glaður við sitt og haft bjartar vonir sem allt £ einu hrundu. Það er of seint að koma £ háskóla og uppgötva, að viðkomandi getur ekki lesið námsbækurnar, sem þarf til háskólanáms. Hættum þv£ þessari sjálfsblekkingu og tökum upp okkar gömlu kröfupólit£k. Það að gera kröfuna til sjálfs sfn en ekki sffellt til annarra og samfélagsins. Námsgeta verður engum færð á silfur-i fati. Hún verður að búa með manninum. Þroski kem- ur misjafnlega snemma hjá einstaklingunum. Sumir geta um tvftugt það sem aðrir geta fyrst um 30-35 ára, sumir aldrei. Væri þv£ ekki meira vit og væn* legra til árangurs að efla mun meira fullorðins- fræðslu? Gefa einstaklingum enn meira tækifceri til| náms sfðar £ lffinu, þegar þeir finna að þeir hafa öðlast þroskann, sem þarf til meira bóknáms

x

Skólablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.