Skólablaðið

Árgangur

Skólablaðið - 01.03.1980, Síða 10

Skólablaðið - 01.03.1980, Síða 10
PÉTUR II. ÁllMANNSSON: AF ÍSLENZKRI BYG 01NG ARLIST. SÍDARI IILIJTI ■ NÚTÍMINN. Þessi grein er hin seinni af tveimur sem undirritaður hefur tekið saman og birtast munu í 55. árg. Skólablaðs M.R. í fyrri greininni var rakin í grófum dráttum byggingarsagan frá land- námstíð fram að síðari heimsstyrjöld, en hér á eftir er ætlunin að fjalla um þróunina eftir stríð á breiðum grundvelli. Til stóð að efninu yrðu gerð skil £ einu lagi, en sökum umfangs þess og yfirgrips reyndist það ekki unnt. Tilgangur minn með skrifum þessum var í upphafi að tjá eigin skoðanir á umhverfi fólks og byggingum hér á landi fyrr og nú. Ég komst bó fljótt á þá skoðun að hyggilegra væri að láta gróft yfirlit um byggingarsöguna koma á undan. Ættu þá væntanlegir lesendur að fá notið seinni greinarinnar sem skyldi. Það var einkum þrennt sem ýtti undir þessa viðleitni mína. 1 fyrsta lagi er mér vitanlega ekkert það sagnfræðirit til sem helgað er heildarþróun húsagerðar hér á landi. Ritaðar hafa verið ýtar- legar bækur um sögu frímerkjaútgáfu, kortagerðar og jafnvel hrossalækninga, en Byggingarsaga Islands fyrirfinnst engin? Að vísu má benda á einstakar greinar og jafnvel heilar bækur sem fjalla um afmarkaða þætti Islenzkrar byggingar- sögu, en um aðgengileg og skipuleg yfirlitsrit er ekki að ræða. I öðru lagi má nefna að fræðsluyfirvöld landsins hafabrugðizt skyldu sinni á þessu sviði. Mér er aðeins kunnugt um einn einasta skóla hér á landi sem býður nemendum sínum upp á einhverja fræðslu í byggingarlist ( Menntaskól-inn í Reykja- vík ). Það má m.ö.o. ljúka prófum úr æðstu menntastofnunum þessa lands án þess að bera hið minnsta skynbragð á það umhverfi ( í arkitektúr- ískum og skipulagslegum skilningi ) sem menn lifa og hrærast x og eiga e.t.v þátt í að móta. I þriðja lagi kemur til almennt sinnuleysi bæði almennings og sérfræðinga ( arkítekta ) sem sést bezt á því hversu örsjaldan byggingarlist ber hér á góma á opinberum vettvangi. Ég ætla nú sem snöggvast að rjúfa þessa þögn og tek því upp þráðinn þar sem áður var frá horfið. A kreppuárunum hafði hin þýzkættaða og brátt alþjóðlega stefna funktionalisminn eða nytjagildisstefnan, rutt sér til rúms hér á landi og hefur allt síðan þá verið ríkjandi þótt hún hafi birzt í ólíkum myndum. Lykilorð þessarar stefnu voru í upphafi fegurð einfaldleikans og notagildið ofar öllu. Þessi stefna hafði þó verið í deiglunni allmörg ár áður en hún tók að breiðast út, en frumrætur hennar má rekja til einnar byggingar sem olli þáttaskilum í sögunni, Kristalshallarinnar ( Crystal Palace ) , sem garðyrkjumaðurinn Jo.seph 0

x

Skólablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.