Skólablaðið

Ukioqatigiit

Skólablaðið - 01.03.1980, Qupperneq 26

Skólablaðið - 01.03.1980, Qupperneq 26
STEINN STEINARR Skáldskapur kans og heiitisffeki. Aðalsteinn Kristinsson, öðru nafni Steinn Steinarr, fæddist að Laugalandi á Langadalsströnd við Isafjarðardjúp 13. október 1908. Foreldrar hans voru þau Etelríður Pálsdóttir og Kristmund- ur Guðmundsson. Fyrstu bernskuár dvaldist hann að Laugalandi, en ólst sxðan upp í Saurbæ í. Dölum til fermingaraldurs. Tvö ár eftir ferminguna dvaldist hann á öðrum bæ þar í sveitinni en fór þá að vestan og var á ýmsum stöðum - flæktist um. Stundaði hann þá margvísleg störf, var m.a. til sjós um skeið, heilsan leyfði ekki líkamlega erfiðisvinnu svo að hann fluttist til Reykjavík- ur um 1930 er kreppan var skollin á og vánn fyrst og fremst í ríki andans. Arið 1934 kvað hann sér hljóðs með útkomu 1jóðabókarinnar, Rauður loginn brann. Sú bók er skilgetið afkvæmi kreppuáranna Ég málaði andlít á vegg í afskekktu húsi. Það var andlit hins þreytta og sjúka og einmana manns. Það var andlit míns sjálfs en þið sáuð það aldrei því ég málaði yfir það. 1 Spor í sandi sem kom út 1940 er áfram hamrað á tilgangsleysinu „Það bjargast ekki neitt, það ferst, það ferst" segir í kvæðinu Ljóð . Þó að einkenni flestra Ijóðanna í Spor í sandi sé harmur og vonbrigði þá eru þó innan um gamankvæði svo sem eftirmælin um kommúnistaflokk og hefst á hvatningarljóði tii öreigaæskunnar sem auðvaldið rak út á hjarnið, og á allan heim- inn eftir því sem skáldið segir. Um afstöðu hans í stjórnmálum á þessum tíma er því ekki að vill- ast. Ljóð Steins í Rauður loginn brann eru yfir- leitt beinskeitt og nakin og skáldið á í stríði við hinn kalda og miskunnarlausa Veruleika kreppuáranna. Þó svo að skáldið vilji betri og ríkari framtíð manna er tortryggnin því í blóð borin og nærð af hörðum höndum. 1938, eða réttu ári fyrir síðari heimsstyrj- öldina gaf Steinn út næstu bók sína, Ljóð. Það er ekki fjarri sanni að ætla að skáldið hafi játast tilgangsleysi lífsins, svo rík áhersla er lögð á fánýti veraldarinnar . Ljóðið Sjálfsmynd segir okkur e.t.v. margt um Stein sjálfan: Islands. Þessi gamankvæði hafa átt sinn þátt í vinsældum Steins og sætta þjóðina við þetta tor“ ræða og uppreisnargjarna skáld. Þó að oftast sé hættulegt að fullyrða eitthvað um líf annars manns má líklega segja að þessi gamankvæði vitni um mann sem leyfir sér að horfa ógrátandi á heim- inn og tilveruna þótt baði jörð í blóði eins og skáldið kemst að orði í kvæðinu Hugleiðingar um nýja heimsstyrjöld. Mönnum er tamt að líta á ljóðabókina Ferð án fyrirheits, sem út kom 1942, sem eitt full- komnasta verk Steins. I henni er m.a. að finna ádeiluljóð í hefðbundnu formi, en nýstárleg að framsetningu. Þau minna á gamankvæðin í Sporum í sandi en tónninn er oft beiskari, vægðarlausári gagnvart öllu því sem vekur andúð skáldsins og viðbjóð. Samúð Steins er með þeim sem bíða lægri hlut en samt gerir hann gys að þeim sem vilja

x

Skólablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.