Skólablaðið

Árgangur

Skólablaðið - 01.03.1980, Blaðsíða 5

Skólablaðið - 01.03.1980, Blaðsíða 5
gó5u lagi á fjármálin", síðar,.."Pjármálin stóðu mjög vel, að sjálfsögðu". I viðtalinu, og reyndar líka í ritnefndar rab'binu, skín þ(5 í gegn, að það sem stendur félagslífinu mest fyrir þrifum, er áhugaleysi nemenda. Er illt til þess að hugsa ef meiri- hluti nemenda er orðinn að ófrjórri neysluvél, sem hara gleypir en gerir (getur?) ekkert sjálfstætt (nema kannski gegn borgun?). Eitt lítið ljóð rakst ég á og get ekkert stækkað það. Opnan stóð vel fyrir sínu með kynningu á Ejalakettinum og svona til bragðbætis var ágæt grein eftir Magnás B. Baldursson um jass, en eins og allar góðar greinar var hún alltof stutt og heimildir takk. Kynningin á Suðurgötu 7 var að sama skapi of löng og hefði ég frekar kosið myndir eftir nemendur í hennar stað, en að þeim hefur oft verið mikil prýði. Editor Dioit?. Ösköp hugljúfar hugrenningar um lífið og tilveruna, föðurlegar ábendingax og rómantík, hefur oft verið beinskeittari (hvar eru þessir reiðu ungu menn?). Uppsetningin var ágæt enda mátti skilja á ritnefndar rabbinu að hún hafi útheimt "ómælt strit og puð", en sú vinna hafi lent á fárra herðum. Er það von mín að ritnefnd skólablaðsins takist að galdra fram þá hina gylltu gulrót sem fær nemendur til þess að rísa upp af sínum síútvíkkandi neyslurassi og taka þátt £ starfsemi skólablaðsins. Situr við sæinn situr einn, gráhærður gæinn, yngissveinn. THE MAD HATTER Húfu á höfði hefur hann. Langt er um liðið er hana fann. Gegnir góðu starfi, gamlinginn, líkar la-la starfið hattarinn. Minning mæðuára man hann enn, er tjallinn Jethro Tull plóg upp fann. „öði hattarinn',’ hann hæddur er. tJt af svo sem engu heilsar þér. Undurfögur ungfrú ofan frá, sýndi honum síðan er hann var, var hann er, hann var er, er var hann, hann er var, var er hann, var hvar þar zar mar far kar bar nar (komið úr dönsku og má rekja uppruna þess til þess tíma er hirðfífl tíðkuðust þar og hér) hver þér mér sér f er Og allir saman nú:„Villi var úti með ylfinga- hópinn." (bis) N.B. Úndskyld að ég gleymdi mér við fæðingu þessa ljóðabálks, en þannig er mál með vesti að ég drekk kaffið mitt svart. Sigurður Guðni Haraldsson. o

x

Skólablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.