Skólablaðið

Árgangur

Skólablaðið - 01.02.1990, Síða 12

Skólablaðið - 01.02.1990, Síða 12
Hafnfirskt kvenfólk (Raunasaga) Margt hefur verið talað og skrifað um kvenfólk í gegnum aldirnar. Miklir hugsuðir hafa brotið heilann um konuna og fáir nokkurn tíma komist að niðurstöðu. (Enn færri að réttri niðurstöðu.) Þykk rit hafa verið skrifuð, um feitar konur og grannar konur, um heimskar konur og gáfaðar konur. Nú loks þessi grein um hafnfirskar konur. Svo er mál með vexti að nokkrir vinir greinarhöfundar hafa lent all- grimmilega í klónum á hafnfirsku kvenn- fólki. Þetta byrjaði allt nógu sakleysislega. Greinarhöfund- ur (héðan í frá kallaður ég.) var ásamt nokkrum vinum sínum að aka niður Laugaveginn. Við höfðum verið á balli og vorum á heimleið, okkur leiddist nokkuð og ákváðum að fara niður í bæ og líta á rúntinn áður en haldið yrði heim. Við vorum í ágætis skapi og einn vinur minn (sem við skulum kalla Pétur.) skrúfaði niður rúðu og fór að öskra út: "Ce la nature." Þetta dró athygli tveggja stúlkna að okkur. Þær gengu að bílnum, og spurðu flissandi hvort það væri pláss fyrir tvo. (Sem það var reyndar ekki.) Við buðum þær velkomnar að stíga inn. Þannig byrjaði það, nógu sakleysislegt svo sem. Innan stundar var farið að fara vel á með okkur og við ákváðum að líta heim til Péturs, sem býr einn í íbúð. Þar var flippað vel fram eftir kvöldi, meðal annars spilaður veiðimaður. Svo glatt var á hjalla að Ingvaldur, sem býr við hliðina á Pétri kom yfir og tók þátt í gleðskapnum. Þegar líða tók að morgni ætluðu stúlkurnar að hringja á leigubíl en af prúðmennsku og riddaraskap bauðst ég til að aka þeim heim, Þorgrímur kom með svo ég þyrfti ekki að vera einn á leiðinni til baka. í bílnum kom svo í ljós að þær voru Hafnfirðingar. Þá þegar setti svolítinn óhug að mér og Þorra, því góðvinur okkar Eyjólfur (kallaður Eyjó.) hafði þá áður lent í klónum á hafnfirskri stúlku, og komið illa út úr þeim samskiptum. Benjamín vinur okkar hefur svipaða sögu að segja, einu sinni átti hann í samskipt- um við hafnfirska stúlku, en það fór allt út um þúfur. Benni er nú með prýðis stúlku úr Breiðholtinu. En sem sagt okkur Þorra varð frekar bilt við og kannski að það sé ástæðan fyrir því að hvorugur okkar lenti í þeim leið- inda atburðum sem áttu eftir að fylgja þessu afdrifaríka kvöldi. Þegar til Hafnarfjarðar kom vildu stúlkurnar óðar og uppvægar fá símanúmer, mitt og Þorra. Við vorum tregir til, en á endanum urðum við að láta undan og stúlkurnar yfirgáfu bíhnn sigri hrósandi. Við Þorri vorum svolítið eftir okkur og ókum um í þó nokkum tíma, stefnulaust, örvinglaðir og óvissir um eigin framtíð. Svo leið og beið, vikurnar liðu og ekkert heyrðist frá feigð- ardísunum úr Hafnarfirði. Ég var farinn að halda að þær hefðu týnt númerunum og fagnaði því að kvöldið forðum hefði ekki dregið meiri dilk á eftir sér. Ég fagnaði of fijótt. Einn daginn þegar ég kom heim biðu mín skilaboð hjá símanum. "Það hringdi stúlka, 5????." Fimm, það er í Hafn- arfirði. Eg fann skyndilega til verkjar, ég fékk aðsvif og leið á allan hátt illa. í örvæntingu hringdi ég til Þorra. Það hafði líka verið hringt til hans og líkt og ég hafði hann ekki verið heima. Þess í stað hafði móðir hans tekið niður svo til samhljóða skilaboð. Við töluðum saman í smá tíma og á meðan á samtalinu stóð kom móðir Þorra heim. Það kom upp úr kafinu að hún hafði gefið stúlkunni í símanum upp númer Skafta, vinar okkar. Ég hringdi í Skafta. Nei, hann var ekki heima. í hann hafði hringt stúlka, þau höfðu talað saman í smá tíma og síðan hafði hann yfirgefið hú- sið. Hans síðustu orð sem frjáls maður höfðu verið: "Ég ætla að skreppa í bíó." Á þeirri stundu greip mig viss óhugur, ég fékk á tilfming- una að það væri orðið of seint að afstýra þessu. Darraðar- dansinn var byrjaður. Næst heyrði ég í Skafta heima hjá Pétri daginn eftir. Þar sem Pétur býr í eigin íbúð, vill það oft verða þannig að söfnumst þar saman um helgar og þannig var það einnig þennan laugardags eftirmiðdag. Við sátum allir og vorum að tala um örlög Skafta þegar bjallan hringdi, djúp og ógn- vekjandi þögn tók við af skvaldrinu. Pétur stóð upp og svaraði kallinu, það var Skafti. Við vorum ekki vissir um hvað við ættum að segja. Hvað hafði gerst? Hversu langt hafði það gengið? Var enn tími til að afstýra þessari ógæfu? Hvað svo sem hver hafði verið að hugsa fyrir sig kom næsta yfirlýsing hans eins og reiðarslag yfir hópinn. Hann og sú hafnfirska (sem við skulum kalla Árnýu.) voru byrj- uð saman. Nú var allt búið, ólánið var riðið yfir og allt sem við gátum vonað var að það myndi vara stutt og reynast skárra en við áttum von á. Já, við vissum svo sannarlega ekki, hverju við áttum von á. Stuttu seinna var haldið partý til að fagna heitskap Skafta og Árnýar. Okkur var auðvitað öllum boðið. Ég fann mér hins vegar ástæðu til að mæta ekki og missti af þeim orsökum af atburðum kvöldsins. í framhaldi af þessu fylgdi tímabil tíðra heimboða og alltaf fann ég mér ástæðu til að mæta ekki. Svo ber það við einn daginn þegar ég er á gangi í Vestur- bænum, ég var víst á leið heim frá Einari vini mínum, að ég sé Pétur hinu megin við götuna og við hlið hans stend- ur stúlka. Ég kalla til þeirra og rölti mér yfir götuna. Er ég nálgast sé ég að þau haldast í hendur og eftir því sem ég nálgast meir og meir verður mér það ljóst að hún er hafnfirsk. Ekki spyrja hvernig ég gerði mér grein fyrir því, en það sást utan á henni, það beinlínis lak af henni hafnfirskan. Ég trúði varla mínum eigin augum. Ég settist á bekk sem þarna var, þetta var strætó stoppi- stöð, og sá svart. Ég lokaði umhverfið úti og sat þarna stjarfur. "Hvað hafði gerst? Hví var heimurinn að hrynja í mola í kringum mig?" Þegar ég rankaði við mér sátu þau á bekknum við hliðina á mér og Pétur var að lýsa því hvernig hann og Guðdís, höfðu hist í partýi í Hafnarfirðin- Ef ég fæ ekki 10 á þessu prófi þá hef ég gert eitthvað vitlaust!

x

Skólablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.