Skólablaðið

Árgangur

Skólablaðið - 01.02.1990, Blaðsíða 33

Skólablaðið - 01.02.1990, Blaðsíða 33
kallast svæöiö sem snúningurinn afmarkar, dægurhringur (diurnal cycle). Honum er einnig skipt í tólf jafna hluta sem nefnast hús. Þetta er gert á mismunandi hátt eftir mismun- andi kerfum. Húsaskiptingin er eitt af helstu vandamálum stjörnu- spekinga í dag og greinir þá mjög á hvaða kerfi sé réttast að nota. Stjörnukort er tvívíddarmynd af sólkerfmu séð frá ákveðnum punkti á ákveðnum tíma og í flestum tilfellum er miðað við miðju jarðar. Samkvæmt kenningum stjörnu- spekinnar má ráða í persónugerð einstaklings með því að skoða fæðingarkort hans en það er kort yfir hvernig sól- kerfið leit út á fæðingarstundu hans. Þar má sjá tengsl plánetna, stjörnumerkja og húsa. (mynd 2) Plánetur standa fyrir orku, t.d. sól fyrir lífsorku og merk- úr fyrir hugaroru. Pláneturnar geta verið í tólf mismun- andi stjörnumerkjum, sem segja til um eðli þeirra. Pláneta er til dæmis ör og breytileg í tvíburamerkinu en hæg og stöðug í nautsmerkinu. Húsin eru misstór eftir kerfum og geta því náð yfir fleiri en eitt stjörnumerki. Þau segja til um á hvaða sviðum orka einstaklingsins kemur helst fram. Fjórða hús er til dæmis táknrænt fyrir heimilið og er því líklegt að pláneta þar geri vart við sig í samskiptum við- komandi við fjölskylduna. Plánetur eru einnig túlkaðar eftir því hversu stórt horn þær mynda á milli sín séð frá jörðu. Þessi horn kallast afstöður eða afstöðuhorn. Þau sýna tengslin miili plánetna. Á síðustu áratugum hefur ýmislegt bæst við hinn hefð- bundna heim stjörnuspekinnar. Á árunum 1955-’60 birti fyrrnefndur Miche Gauquelin niðurstöður athuganna sinna. Hann tók eftir því að meirihluti fólks innan sömu starfsstéttar hafði vissar plánetur á ákveðnum svæðum á dægurhring, sem hann kallaði jákvæð svæði. Læknar og vísindamenn höfðu til dæmis mars (sjá mynd 3) og satúrn- Culmination Setting Mynd 3 us ríkjandi, leikarar höfðu júpíter, stjórnmálamenn tungl og júpíter. Einnig tók hann eftir plánetum, sem hneigðust til að vera ekki á jákvæðum svæðum, til dæmis tungl hjá íþróttamönnum og hermönnum. Þau svæði sem ekki voru jákvæð kallaði hann neikvæð svæði. Heildarniðurstaða þessara athugana var að styrkleiki plánetna færi eftir staðsetningu þeirra á dægurhring. Þeg- ar pláneta er nálægt rísanda- eða miðhiminsásnum, kemur orka hennar mun betur í ljós. í könnuninni er algengara að plánetur séu hægra megin við ásinn séð frá miðju en vinstra megin. Því má álykta að áhrifin nái hámarki fáein- um gráðum til hægri við ásana, þ.e.a.s. í upphafi 3., 6., 9. og 12. húss en það er ekki í samræmi við hefðbundna stjörnuspeki, sem segir að 1., 4., 7. og 10. hús séu sterkust. Þarsem hér er um tölfræðilegar staðreyndir að ræða má gera ráð fyrir að hin hefðbundna stjörnuspeki sé ekki full- komlega rétt eins og margir stjörnuspekingar hafa haldið fram hingað til. Árið 1976 kom út bókin Harmonics in Astrology eftir Jhon Addey, þar sem hann setti fram bylgjukenningu sína. Hún er í stuttu máli á þessa leið: (sjá mynd 4) Stjörnukor- Mynd 4 tið er einingarhringurinn, x2 + y2 = 1. Hann má teikna inn á hnitakerfi sem sínusbylgju, sem er í sjálfu sér ekkert annað en fallið af y-hnitum hans, sinx. Bylgjan hefur lengd- ina 2p. Nú má skipta einingarhringnum í nokkra jafna hluta, þannig að hver hluti verði heil bylgja. Með því að skipta honum í tvennt, fást tvær bylgjur á bilinu [0;2p], báðar með bylgjulengdina p. Fallið fyrir þetta er sin2x. Eins má hugsa sér þetta þannig, að einingarhringnum sé skipt í tvo hluta við x-ás. Þeim hluta hans sem er fyrir Mynd 5 Ef ég fæ ekki 10 á þessu prófi þá hef ég gert eitthvað vitlaust!

x

Skólablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.