Skólablaðið

Árgangur

Skólablaðið - 01.02.1990, Blaðsíða 18

Skólablaðið - 01.02.1990, Blaðsíða 18
Afmæliskveðja Guðni Guðmundsson rektor 65 ára Virðulegur rektor Menntaskólans, Guðni Guðmundsson, varð sextíu og fimm ára þann 14. febrúar síðasiiðinn. Á slík- um tímamótum í lífi manna þykir ávallt við hæfi að þeir sem til þekkja sendi afmælisbami kveðju sína og fræði þá sem vita vilja um líf, hans störf og viðmót. Guðni Guðmundsson er einn þeirra manna sem mér fmnst ég alltaf hafa vitað hver var, en það skiptir honum í flokk með mætu fólki eins og Bjama Felixsyni, Indiru Gandhi og Geir Hallgrímssyni. Þá er einhver mín fyrsta endurminning tengd honum og því hvað mér fannst hann blóta mikið og raunar er hann fyrsti maðurinn sem ég man eftir að hafa heyrt blóta. Satt að segja hafa síðari kynni mín af manninum rennt frekari stoðum undir þessa kenningu mína um það að hann hafi verið sá sem kynnti mér þá ókannaðar lendur bölvs og ragns. Guðni er borinn og bamfæddur Reykvíkingur yngstur fimm systkina. Einhverra hluta vegna sótti hann nám sitt út fyrir Reykjavík og sat í Menntaskólanum á Akureyri sem verður að teljsat ljóður á hans ráði. Framhaldsnám í ensku og frönsku stundaði hann í Edinborg á Skotlandi og við Sor- bonne háskólann í París. Nokkm eftir heimkomuna hóf hann kennslu við Menntakólann í Reykjavík og hefur eins og al- kunna er ekki horfið þaðan síðan. Haustið 1970 var hann gerður að rektor Menntaskólans og verður það því í tuttug- asta sinn nú í vor sem hann útskrifar stúdenta. Guðni verður ekki sakaður um það að hann skorti stjóm- semi og óhætt er að segja að sú stofnun sem hann hefur nú stjómað í tuttugu ár beri sterkan svip af honum. Guðni er ekki í vafa um hvemig skólar eigi að vera og hefur barist kröftuglega fyrir því að Menntaskólinn haldi sérstöðu sinni, allar breytingar kenndar við fjölbrautaskóla hafa ávallt ver- ið eitur í hans beinum og hvergi hefur hann viljað slaka á þeim kröfum sem gerðar em til nemenda þó að sú hafi orð- ið þróun sum staðar annars staðar. Sem kennari er Guðni löngu frægur og sérstaklega sá háttur hans að fleygja stílabókum til (eða í) nemendur sína í upp- hafi kennslustunda. Er þetta hin mesta seremónía og kom- menterar rektor jafnan um „glæsileg bananaskot sín“ og þar fram eftir götunum. Hann er með líflegri kennurum og geng- ur mjög vasklega fram í því að skamma nemendur sína telji Einar Magnússon afhendir Guðna Guðmundssyni lyklavöldin. Jón S. Guðmundsson, Þóroddur Oddsson o.fl. fylgj- ast með. Ljósm. Vigfús Sigurgerisson. Ef ég fæ ekki 10 á þessu prófi þá hef ég gert eitthvað vitlaust!

x

Skólablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.