SunnudagsMogginn - 03.04.2011, Blaðsíða 11
3. apríl 2011 11
S
öngspíran leið um sviðið eins og
slanga. Hold- og klæðalítil.
Brýndi raustina eins og sjálft lífið
væri í húfi. Fámennt var í Laug-
ardalshöllinni en góðmennt þetta síðsum-
arskvöld árið 1991, þegar nýjasta undrið í
málmheimum, Skid Row, stakk þar við
stafni. „Ekki rekur mig minni til að hafa
séð aðra eins almenna stemningu á tón-
leikum hér á landi,“ sagði Árni Matthías-
son í umsögn sinni um tónleikana í Morg-
unblaðinu. Og ekki þurfti Bakkus að
kynda undir mannskapnum en sam-
kvæmt heimildum Árna fundust aðeins
níu áfengisílát eftir tónleikana „sem getur
ekki talist mikið þar sem hátt í 3.000
rokkþyrstir unglingar koma saman til að
skemmta sér“.
En hvað varð um téða söngspíru þeirra
Skid Row-manna, kvennaljómann mikla
Sebastian Bach?
Bach, sem skírður var Sebastian Philip
Bierk, fæddist árið 1968 og óx úr grasi í
Kanada í hópi átta systkina. Faðir hans var
listmálarinn David Bierk og hvatti hann
börn sín óspart til að gefa sig sköpuninni á
vald. Þrír bræðra Bachs hafa fetað í fótspor
föður síns í listinni, einn bræðranna er
ljósmyndari og systirin, Dylan Bierk,
starfar sem leikkona. Þá náði enn einn
bróðirinn Zac Bierk talsverðum frama sem
markvörður í NHL-deildinni í íshokkíi.
Uppgötvaður í brúðkaupi
Liðsmenn Skid Row, sem eru frá New Jer-
sey, heyrðu Bach fyrst syngja í brúðkaupi
og töldu hann á að ganga til liðs við sig.
Frumburður sveitarinnar, sem bar nafn
hennar, kom út árið 1989 og féll í frjóa
jörð. Þar gat að heyra lög á borð við Youth
Gone Wild og kraftballöðurnar I Rem-
ember You og 18 & Life. Næsta plata,
Slave to the Grind, kom út tveimur árum
síðar og gekk ennþá betur, fór alla leið á
topp bandaríska breiðskífulistans. Orð
Árna Matthíassonar í téðri umsögn voru
skrifuð inn í þessa stemningu en hann
sagði að Skid Row væri „óneitanlega með
fjórum fremstu þungarokkssveitum heims
í dag“.
Þá gekk grönsið á land og málmsenunni
var tímabundið snúið á hvolf. Þegar Skid
Row reyndi næst fyrir sér með plötu,
Subhuman Race 1995, hafði áhugi rokk-
elskra dvínað verulega. Ári síðar hrökkl-
aðist Bach úr sveitinni eftir að hafa orðið á
þau mistök að bóka hana sem upphit-
unarband fyrir hina goðsagnakenndu
glyssveit Kiss. Hinir meðlimir Skid Row
voru sammála um að sveitin væri of stór til
að hita upp fyrir aðra. „Maður er aldrei of
stór til að hita upp fyrir Kiss,“ svaraði
Bach um hæl og kvaddi með kurt og pí.
Örlögin eru kaldhæðin skepna og fjórum
árum síðar þáði Skid Row einmitt þetta
gigg – að hita upp fyrir Kiss.
Söngleikir og veruleikaþættir
Allar götur síðan hann yfirgaf Skid Row
hefur Bach starfrækt málmband í eigin
nafni en afrek þess koma hvergi fram á
skjálftamælum. Hann kom til álita sem
söngvari Slash-sveitarinnar Velvet Revol-
ver fyrir nokkrum árum en gaf það frá sér
vegna vináttu sinnar við hatursmann
Slash, W. Axl Rose. Þeir félagar hafa ein-
mitt túrað dálítið saman undanfarin miss-
eri.
Bach hefur líka reynt fyrir sér í Broad-
way-söngleikjum, meðal annars Jeckyll &
Hyde, þar sem hann fékk prýðilega dóma.
Þátttaka hans í uppfærslu á Jesus Christ
Superstar fékk hins vegar snubbóttan
endi þegar Bach var látinn taka pokann
sinn vegna dívískra tilburða. Hann hefur
líka komið fram í ýmsum veruleikaþáttum
gegnum árin, á VH1 og víðar, auk þess að
leika m.a. gestahlutverk í sjónvarpsþætt-
inum Gilmore Girls.
Bach kynntist eiginkonu sinni, Mariu
Bierk, þegar hann var nítján ára og eiga
þau þrjú börn. Synina London og Paris,
sem hefur reynt fyrir sér sem trymbill í
þrasssveit, og dótturina Sebastiönu. Maria
hefur fylgt Bach gegnum súrt og sætt (fór
m.a. mikinn í veruleikaþættinum I Mar-
ried Sebastian Bach) eða þar til á liðnu ári
að þau skildu að borði og sæng. Síðustu
fregnir úr herbúðum Bachs herma að lög-
skilnaður bíði þeirra á þessu ári.
Stelpur, kappinn er sumsé á lausu!
orri@mbl.is
Hvað varð um ...
Sebastian
Bach
Heldur hefur kappinn þrútnað á vangann.
Sebastian Bach þótti með snoppufríðari
mönnum á Skid Row-árunum.
Dagskrá og skráning á www.sa.is
AÐALFUNDUR SAMTAKA ATVINNULÍFSINS 2011
FIMMTUDAGINN 7. APRÍL Á HILTON REYKJAVÍK NORDICA
OPIN DAGSKRÁ KL. 14-16.